Þjóðviljinn - 13.04.1991, Side 21
Mmning
Hafsteinn Sæmundsson
vélfræðingur
Fæddur 5. mars 1929 - Dáinn 28. mars 1991
A skírdag, fimmtudaginn 28.
mars s.l., lést á heimili sínu Haf-
steinn Sæmundsson, um aldur fram,
nýorðinn 62 ára. Andlát hans bar
brátt að og óvænt, þar sem talið var
að hinn illvígi sjúkdómur, sem
hrjáði hann, væri að hopa, að
minnsta kosti um stund.
En dag skal að kveldi lofa og
aldrei er neinn viðbúinn dauðanum,
þegar hann ber að dyrum. Það er þó
huggun harmi gegn í þetta sinn, að
Hafsteinn fékk að njóta hinsta
kvöldsins á heimili sínu í páska-
leyfi frá spítalanum, við betri heilsu
en lengi undanfarið.
Mistök
leiðrétt
Þau leiðu mistök urðu í
Nýju Helgarblaði í gær, að
með minningargrein um Haf-
stein Sæmundsson lenti
mynd af Sveini Halldórssyni,
sem átti að fylgja skákpistli
Helga Ólafssonar. Blaðið
biður hlutaðeigandi og les-
endur afsökunar á þessum
mistökum og endurbirtir hér
minningargreinina með réttri
mynd af Hafsteini Sæmunds-
syni.
Ritstj.
Hafsteinn var af vestfirsku
bergi brotinn, fæddur á Isafirði
þann 5. mars 1929, sonur hjónanna
Ríkeyjar Eiríksdóttur, sem fædd var
á Gullhúsá á Snæfjallaströnd, og
Sæmundar Guðmundssonar frá
Byrgisvík á Ströndum.
Að ytra útliti var hann í meðal-
lagi hár, frísklegur, kvikur, laglegur
með mikið og fallegt
ljósskollitað hár og samsvaraði
sér vel á yngri árum, enda vel
íþróttum búinn og stundaði þá
skiðaíþróttina af kappi.
Hann var léttur í lund og vel
skapi farinn og jafnan var stutt í
hláturinn, þar sem hann var í hópi.
Skemmtilegur og úrræðagóður
ferðafélagi með afbrigðum. Hann
var svipfallegur og átti fallegt bros
og jafhan skein mildi úr þægilegri
framkomu hans við alla jaftit.
Hafsteinn var sjötti í röð níu
systkina sinna, en á undan honum
eru gengin þau; Gerða, Ingimundur,
Steinþór, Kristín og Ester, en eftir
lifa systumar þijár Elín, Guðríður
og Dóra. Svo óvæginn hefúr mað-
urinn með ljáinn verið við þennan
fyrrum glaða systkinahóp að undr-
um sætir. Hin síðustu misseri hafa
þau verið kölluð burt eitt af öðru.
Við stöndum hljóð og agndofa, sem
eftir erum, og biðjum fyrir þeim,
sem farin eru, í hljóðri bæn.
Hafsteinn hóf nám í Vélsmiðj-
unni Héðni og lauk þaðan vél-
virkjanámi. Lokaprófi frá Iðnskól-
anum í Reykjavík lauk hann vorið
1951 og settist þá í Vélskóla Is-
lands og tók þaðan lokapróf 1955.
Að skólagöngu lokinni tóku við hin
glöðu og áhyggjulausu ár, þegar
vorið varaði allt árið og hægt var að
brosa að öllu sem fyrir kom. Hann
réðst til Eimskipafélags íslands og
sigldi sem vélstjóri á skipum fé-
lagsins um nokkurt skeið. Siglingar
féllu honum vel, enda var hann fær
í sínu starfi, vinsæll og vel liðinn
meðal skipsfélaga sinna. Hann naut
þess að sigla um höfin, skoða
ókunn lönd og kynnast íbúum
þeirra og háttum, enda fór svo, að á
vegi hans varð ung og bráðfalleg
Englandsmær. Þau felldu hugi sam-
an.
Hún er ættuð frá Yorkshire og
heitir Rita Doris, fædd Everingham,
Aðalfundur
Iðju
Aðalfundur Iðju, félags verksmiðjufólks, verður
haldinn á Holiday Inn (Hvammi) fimmtudaginn
11. apríl, kl. 17.00.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kjara- og samningamálin.
3. Önnur mál.
Kaffiveitingar í boði félagsins.
Allir Iðjufélagar eru hvattir til að mæta á fundinn.
Reikningar Iðju fyrir árið 1990 liggja frammi á
skrifstofu félagsins.
Stjórn Iðju
2. september 1937. Astin var hrein
og fölskvalaus frá fyrsta degi til
hins síðasta. Þau giftu sig 28. des-
ember 1957.
Þegar fjölskyldan fór að stækka
hætti Hafsteinn siglingum og hóf
störf í landi, til þess að geta helgað
sig sínu nýja hlutverki heimilisföð-
urins. Þeim varð fjögurra bama
auðið; elst er Sonja Rán, fædd 15.
desember 1958, í sambúð með Þóri
Þrastarsyni, næstelst er Linda Brá,
fædd 28. september 1960, kennari,
gift Ægi Jens Guðmundssyni og
eiga þau soninn Bergstein Dag, þá
Hafdís, fædd 23. febrúar 1966, dáin
16. febrúar 1991, og loks einkason-
urinn Hafsteinn Gunnar, fæddur 11.
febrúar 1972, menntaskólanemi.
Þau hjónin urðu fýrir þeirri
óbærilegu sorg fyrir aðeins fimm
vikum að missa yngstu dóttur sína
Hafdísi á voveiflegan hátt. Geta má
nærri hve mjög þetta áfall fékk á
Hafstein sjúkan, sem að auki mátti
sjá á bak elstu systur sinni Gerðu,
um miðjan janúar síðast liðinn, en
með þeim var mjög kært. Það er
ekki alltaf auðvelt að skilja eða sjá
tilganginn i tilbrigðum lífsins, þeg-
ar aftur og aftur er höggvið vægðar-
laust í sama knérunn.
Ég ætla að enda þessi fátæklegu
kveðjuorð mín til míns kæra mágs
með því að þakka honum samfylgd-
ina, leiðsögnina og vináttmia frá
fyrstu tíð. Við hjónin og bömin
okkar sendum fjölskyldu hans allri
innilegar samúðarkveðjur og biðj-
um góðan Guð að styrkja Ritu í
hennar miklu raun’im.
Guð blessi minningu hans.
Ágúst Karlsson
MALVERKASYNIN6
Kristjáns Fr. Guðmundssonar
í kosningamiðstöð Alþýðubandalagsins,
IÐNO.
Kristján Fr. Guðmundssoi
18 9 1-19 9 1
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
1901-
Auglýsing frá
Orlofssjóði VR
ORLOFSHÚS VR
Dvalarleyfi
Auglýst er eftir umsóknum um dvalarleyfi í orlofshúsum VR sumarið 1991. Umsóknir á þar til gerðum
eyðublöðum þurfa að berast skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar 8. hæð í síðasta lagi 19. apríl 1991.
Orlofshús eru á eftirtöldum stöðum:
1 hús i Ölfusborgum
6 hús í Húsafelli í Borgarfirði
1 hús í Svignaskarði í Borgarfirði
2 hús á lllugastöðum í Fnjóskadal
1 hús í Vatnsfirði, Barðaströnd
2 hús á Einarsstöðum, Suður-Múlasýslu
3húsá Flúðum
10 hús í Miðhúsaskógi, Biskupstungum
3 íbúðirá Akureyri
Aðeins fullgildir félagar hafa rétt til dvalarleyfis. Þeir sem ekki hafa dvalið sl. 5 ár í orlofshúsum á tíma-
bilinu 1. júlí til 23. ágúst sitja fyrir dvalarleyfum. Hafi ekki verið gengið frá ieigusamningi fyrir 17. maí
n.k. fellur úthlutun úr gildi. Dregið verður milli umsækjenda ef fleiri umsóknir berast en hægt er að verða
við. Verður það gert á skrifstofu félagsins laugardaginn 11. maí n.k. kl. 14 og hafa umsækjendur rétttil
að vera viðstaddir.
Sérstök athygli er vakin á því að umsóknir verða að berast skrifstofu
Verzlunarmannafélags Reykjavíkur í síðasta lagi föstudaginn 19. apríl n.k.
Umsóknareyðublöö eru afhent á skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar, 8. hæð. Ekki verður
tekið á móti umsóknum símleiðis.
Síða 21
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 13. apríl 1991