Þjóðviljinn - 13.04.1991, Page 27
GAHÐ
Davíð einmana
Einsog kunnugt er hefur Davíð Odds-
son, formaður Sjálfstæðisflokksins,
verið á flengreið um landið og vísiter-
að hvert kjördæmið á fætur öðru, til
að sannfæra kjósendur um að hann
sé ekki með hom, einsog pólitiskur
andstæðingur hans komst að orði.
Fundir formannsins hafa verið ræki-
lega auglýstir f hægri pressunni, með
heiðbláum auglýsingum, og hefur
efsti maður Sjálfstæöisflokksins I
kjördæminu jafnan fengið að láta tíru
sina glóa við hlið sólkonungsins. En
þegar að Suðurlandi kom var hvorki
veriö að spandera lit f auglýsinguna
né frambjóðanda sunnlenskra Sjálf-
stæðismanna á fundinn. Davíð var
þvi einn á fundinum á Suðuriandi.
Suöurlandsskjálftinn
í Sjálfstæðisflokknum
Það er langt þvl frá að það sé gróið
um heilt á milli Davíðs og Þorsteins
eftir fomiannsátökin á landsfundi
Sjálfstæðismanna. Hefur skráargatið
það eftir gallhörðum fhaldsmanni að
klofningurinn I Sjálfstæðisflokknum
núna kallist manna á meðal Suður-
landsskjálftinn. Þorsteinn mun hafa
verið búinn að undirbúa kosningabar-
áttuna vel fyrir landsfund og semja
hemaðaráætlanir. Þegar hann féll I
slagnum pakkaði hann öllu niður
þannig að Davið kom að auöu borði,
enda virðist hann alls ekki vita hvem-
ig hann á að snúa sér I kosninga-
slagnum. Að sögn kunnugra leikur
Þorsteinn hinsvegar á als oddi á Suð-
urlandi enda með töskuna fulla af
hemaðarplöggum.
Svo bregðast Siglfiröingar...
Siglfirðingar eru frekar ókátir meö Jón
Sæmund Sigurjónsson þingmann
sinn þessa dagana. Einsog kunnugt
er hefur atvinnuástand á Siglufirði
verið slæmt og menn þvl fegnir öllum
verkefnum sem til heimamanna ber-
ast. Jón Sæmundur lét prenta tvo
bæklinga nú í kosningabaráttunni og
er annar stilaður beint á Siglfirðinga.
Faðir Jóns rekur prentsmiðju á Sigiu-
firði og hefði þvi mátt ætla að Jón léti
föður sinn prenta bæklingana. En nei,
Jón Sæmundur fékk bæklingana
prentaða I Prentsmiðju G. Ben I
Reykjavík.
í DAG
13. apríl
er laugardagur.
25. vika vetrar byrjar.
Sólarupprás í Reykjavík kl.
6.05 - sólarlag kl. 20.54.
Viðburðir
Stóridómur staðfestur af
konungi 1565.
Þjóðviljinn
fyrir 50 árum
Nýtt afrek sovétflugmanna.
Flugleiðangur frá Sovétríkj-
unum rannsakar lítt könnuð
svæði Norðuríshafsins. Því
skammtar ríkisstjórnin ekki
kartöflumar?
fyrir 25 árum
Saga Hagbarðs og Signýjar
kvikmynduð hér í sumar.
Dýrmætum Bítlamyndum
stolið úr sýningarkassa
Kaldals. Myndimar voru af
Pétri Östlund og Rúnari í
Hljómum.
Sá spaki
Summa lastanna er alltaf sú
sama.
(Tage Danielsson)
TEYGT & TOGAÐ
Hver ertu?
Hermann Gunnarsson
dagskrárgerðarmaður.
í hvaða stjörnumerki ertu?
Ég get bara verið í einu, ég er
bogmaður.
Hvað ertu að gera núna?
Ekki neitt.
Hata mest: Togstreituna í sjálfum
mér.
Elska mest: Bömin mín.
Hvernig er fólk flest?
Það lætur stjomast af öðrum.
Hvað er verst/best í fari karla?
Sýndarmennska/Einlægni.
Hvað er verst/best í fari kvenna?
Óstundvísi/Frumkvæði.
Óttastu um ástkæra ylhýra málið?
Já, en það er svo einfalt að vanda sig að-
eins meira.
Ertu myrkfælinn?
Ég var það en er að lagast.
Hefurðu séð draug?
Ég hélt að ég hefði einu sinni séð drauga,
en líklega hafa það bara verið einhveijar
ranghugmyndir.
Værirðu ekki þú, hver vildirðu
vera?
Einu sinni var ég alltaf í þannig
leikaraskap að reyna að vera ein-
hver annar en ég var. Nú vil ég
ekki vera eitthvert annað eintak.
Hefurðu hpgleitt að breyta lífi þínu algjörlega?
Ég hef verið að því núna í noídcur ár.
Hvað er áhrifamesta leikrit sem
þú þefur séð?
Ég er meistarinn, eftir Hrafnhildi
vinkonu mína.
Leiðinlegasta bók sem þú hefur
lesið?
Bankabókin.
En með einhverja komplexa?
Já, já, en þeir em tiltölulega fáir og em leyndó.
Kanntu að reka nagla í vegg?
Það er alveg á mörkimum.
Hvað er það versta sem gæti komið fyrir þig?
Að ég hætti að rækta sjálfan mig.
Skemmtilegasta kvikmynd sem
þú hefur séð?
Ég fer svo lítið í bíó, að ég get ekk-
ert svarað þessu.
Áttu barn eða gæludýr?
Já, ég á böm, en ekkert gæludýr og
ég sakna þess.
, Ertu með einhverja dellu?
Ég hef verið með fullt af dellum síðan ég
man eftir mér.
Hvað er kynæsandi?
Það er svo margt sem getur haft áhrif á mig.
Áttu þér uppáhaldsflík?
Gallabuxur eða æfingabúningurinn minn.
Ertu dagdreyminn?
Nei.
Ertu feiminn?
Já, en er að lagast.
Skipta peningar máli í lífi þínu?
Nei, en maður verður að hafa eitthvað til að lifa.
Hvað er það sem mestu skiptir í lífí þínu?
Að ég sé sáttur við sjálfan mig, því þá veit ég að ég er
sáttur við alla aðra.
111
®Slfs
rT ■sneq e uinpuojs
giA ge i6a|u?j?i
ja QBc4
X—TC
J
ue>mHeuM
?nun
'H?M 9!0njQL| ejaq 60
I jeujjddei i jjacj epuejs I
Lujngois J
Síða 27
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 13. apríl 1991