Þjóðviljinn - 18.04.1991, Síða 4
FMÉTFIM
Glundroðinn ( kjölfar „eyðimerkurstormsins“ vekur spurningar um ábyrgð Sameinuðu þjóðanna og getu þeirra til að axla slíka ábyrgð. Myndin sýnir flóttamenn frá
Irak.
Eftirmáli „eyðimerkurstormsins“
skapar deilur um hlutverk SÞ
Þegar ríkin 5 sem skipa fastasæti í Öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna lögðu tillögu fyrir Öryggisráðið um skilmála fyr-
ir vopnahléi í írak, voru margir sem bjuggust við að erfitt
yrði að koma henni í gegnum ráðið með nægilegum meiri-
hluta. En andúðin á Saddam Hussein reyndist i þessu til-
felli nægilega sterk til þess að brúa bilið á milli hagsmuna-
aðila, þannig að tillagan var samþykkt með einu mótatkvæði - frá
Kúbu - og tveimur hjásetum Yemens og Equadors. Gagnrýnisraddir
sem komið höfðu fram frá mörgum ríkjum þriðja heimsins á fram-
kvæmd stríðsins í nafni Sameinuðu þjóðanna, komu ekki fram í
þessari atkvæðagreiðslu.
Saddam býður
Talabani sjálfstjórn
Ann Clwyd, talsmaður Verka-
mannaflokksins breska um utanrík-
ismál, segir að Saddam Iraksforseti
hafi á þriðjudag haft samband við
Jalal Talabani, einn helstu forustu-
manna Íraks-Kúrda, og boðið þeim
sjálfstjóm og að öryggi þeirra í Ir-
ak yrði tryggt. Saddam hefði einn-
ig lofað lýðræði, eins og hann hef-
ur oftar gert frá því að hann tapaði
Persaflóastríði.
Clwyd, sem var í íraska Kúrd-
istan í s.l. viku og ræddi við Tala-
bani í stöðvum skæruliða undir
hans stjóm skammt ffá Súlimaníu,
sagði að Kúrdum litist ekki á að
treysta þessu tilboði Saddams. „Ég
sagði þeim að vissulega væri mjög
heimskulegt af þeim að taka því,
nema því aðeins að þeir hefðu al-
þjóðlega tryggingu íyrir því að við
það yrði staðið,“ sagði hún.
KGB verði
mannréttindastofnun
Borís Jeltsín Rússlandsforseti,
sem í gær var í París á ferðalagi
sínu um Vestur-Evrópu, sagði þá á
fúndi með fréttamönnum að hann
hcfði í hyggju að breyta sovésku
leyniþjónustunni, KGB, i baráttu-
stofnun fyrir mannréttindum. Hann
kvaðst ekki kominn til Vestur-Evr-
ópu til að biðja um efnahagshjálp
fyrir Rússland, heldur til að
„byggja brýr“ milli þess og Vestur-
landa.
Hrvðjuverk
frelsistígra
Tamílskir skæruliðar skutu og
hjuggu í hel 17 Singhala í þorpi
austanvert á Sri Lanka á sunnudag,
að sögn talsmanns Sri Lanka-hers.
Munu hafa verið þar að verki
frelsistígrar svokallaðir, sem vilja
sjálfstætt ríki tamílskt er nái yfir
norður- og austurhluta eyjarinnar.
Stjóm eyríkisins segir að tígramir
reyni að útrýma Singhölum og
múslímum úr hémðum þessum.
Suðurkóreanskur
fangelsisdómur
Song Kap Suk, suðurkóreansk-
ur stúdent, var á mánudag i Seúl
dæmdur til sex ára fangelsisvistar
fyrir að hafa haft sambönd við
norðurkóreanska stúdenta. Hann
var formaður vinstrisinnaðra stúd-
entasamtaka og handtekinn í okt.
s.l. Hann hafði þá farið huldu höfði
í nokkra mánuði.
Mitterrand
heimsækir Rúmena
Francois Mitterrand Frakk-
landsforseti kemur í opinbera
heimsókn til Rúmeníu í dag og
verður til þess fyrstur erlendra rík-
isleiðtoga frá því að Ceausescu
einræðisherra var steypt. Eru Rúm-
enar fegnir heimsókninni, enda
hafa mikil menningarsambönd ver-
ið milli þeirra og Frakka frá því á
s.l. öld..
En nú þegar afleiðingar styij-
aldarinnar koma æ betur í Ijós, sem
og getu- og viljaleysi styrjaldarað-
ilanna og Sameinuðu þjóðanna til
að hindra þann_ harmleik sem nú
dynur yfir íbúa íraks, má búast við
að andstæðumar innan samtakanna
skerpist og ágreiningurinn verði
djúpstæðari um ffamtíðarhlutverk
þeirra og skipulag.
Þann 5. apríl sl. afgreiddi Ör-
yggisráðið ályktun, þar sem of-
beldi Irakshers gegn shítum og
Kúrdum var túlkað sem „ógnun
við alþjóðlegan frið og öryggi á
svæðinu“. Þá þegar var ágreining-
urinn orðinn ljósari, og tortryggni
ýmissa þriðjaheimslanda í garð
fimmveldanna birtist i því að
Kúba, Yemen og Zimbabwe
greiddu atkvæði gegn tillögunni,
en Kína og Indland sátu hjá. Meiri-
hlutinn var naumur, því 9 af 15
ríkjum Öryggisráðsins verða að
standa á bak við tillögu til þess að
hún teljist samþykkt. A bak við af-
stöðu ríkjanna 5 sem ekki stóðu að
ályktuninni má lesa ótta þeirra við
það að stórveldin noti sér Öryggis-
ráðið í framtíðinni til þess að
blanda sér i innri vandamál þessara
ríkja, sem auðveldlega geta talist
„ógna friði og öryggi" í framtíð-
inni. Haft er eftir háttsettum
bandarískum sendifulltrúa hjá
Sameinuðu þjóðunum að tregur
vilji Bandaríkjanna til að blanda
sér í borgarastríðið í írak stafi
meðal annars af því að þeir vilji í
lengstu lög halda í þá samstöðu
sem náðist um innrásina í Irak og
Kúvæt.
Engu að síður er augljóst að
ábyrgð Sameinuðu þjóðanna á
þeim vanda sem skapast hefur með
2 miljónum flóttamanna í Norður-
og Suður-írak, hlýtur að vera stór
og prófsteinn á framtíð samtak-
anna. Margir draga i efa að sam-
tökin hafi bolmagn eða getu til að
axla þá ábyrgð og tala þar bæði um
skipulagslegan, fjárhagslegan og
pólitískan vanda.
Akvörðun Bandaríkjanna frá
því í' gær að senda hersveitir inn í
N- írak til þess að koma upp
þrennum flóttamannabúðum fyrir
samtals um 180.000 Kúrda, leysir
ekki nema brot af vandanum og
engan vanda ef horft er til framtíð-
arinnar.
Vopnahléssamningurinn við Ir-
ak gerði ráð fyrir eyðileggingu ír-
akskra eldflauga og tæknibúnaðar
til að ffamleiða efna-, sýkla- og
kjamorkuvopn. Það er nú viður-
kennt að Sameinuðu þjóðimar búa
hvorki yfir reynslu né tækni til
þess að hafa eftirlit með slíkri
eyðileggingu, og margir segja jafn-
framt að tilgangslaust sé að tala
um virkan herafla Sameinuðu
þjóðanna til þess að tryggja öryggi,
á meðan skipulag samtakanna sé
með því formi sem verið hefúr.
Skipulagsvandinn varðar ekki
bara skipun Öryggisráðsins með
fimmveldin sem sigmðu í síðari
heimsstyijöldinni sem fastafulltrúa
með neitunarvald. En ýmsir hafa
bent á að bæði Þýskaland, Japan
og stærstu ríki þriðja heimsins
muni ekki sætta sig við þessa skip-
an til lengdar.
Kosning nýs framkvæmda-
stjóra samtakanna er nú að komast
á dagskrá, og er sú krafa uppi frá
rikjum þriðja heimsins að hann
komi úr þeirra röðum sem mót-
vægi gegn stórveldunum sem hafa
neitunarvald í Öryggisráðinu. Hins
vegar er sú krafa uppi hjá öðmm
aðildarríkjum, þar á meðal Banda-
ríkjamönnum, sem töldu Perez de
Quellar ekki hafa staðið sig nægi-
lega vel i Flóabardaganum, að
næsti ffamkvæmdastjóri verði kos-
inn til þess að hreinsa til í yfir-
stjóm samtakanna og gera hana
skilvirkari, þannig að samtökin
geti tekið að sér það lögreglueftirlit
í heiminum sem kveðið er á um í
sjöunda kafla stofhskrár samtak-
anna.
Fréttaritari danska blaðsins In-
formation hjá Sameinuðu þjóðun-
um segir að eftir Flóabardagann sé
merkjanleg viðhorfsbreyting hjá
Bandaríkjamönnum til samtak-
anna, og að hin nýja samvinna
Bandarikjanna og Sovétríkjanna
innan Öryggisráðsins hafi gefið
þeim hugmyndum byr, að stefnt
verði að sérstökum herafla samtak-
anna í ffamtíðinni. Forsenda þess
að slíkur herafli verði virkur sé
hins vegar endurskipulagning á
allri yfirstjóm samtakanna.
Þess er að vænta að tekist verði
á um þessar hugmyndir við kosn-
ingu nýs framkvæmdastjóra sam-
takanna, og má þá búast við að sá
ágreiningur sem kom í ljós við at-
kvæðagreiðsluna um Iraksmálið í
Öryggisráðinu birtist með skýrari
hætti sem ágreiningur á milli stærri
ríkja þriðja heimsins og þeirrar
blokkar sem Sovétríkin og A-Evr-
ópuríkin hafa nú myndað með
Vesturveldunum.
-ólg./information
Króatíuþing hvetur
til sjálfstæöis
ing Króatíu samþykkti í
gær með atkvæðum mik-
ils meirihluta þingmanna
yfirlýsingu, sem inniheld-
ur hvatningu til stjórnar
lýðveldisins um að hraða
ráðstöfunum til að segja skilið við
Júgóslavíu. Yfirlýsingin er ekki
lagaiega bindandi, en eigi að síður
talin vera skref í átt til upplausn-
ar júgóslavneska sambandslýð-
veldisins.
Deilumar um framtíð Júgóslavíu
hafa staðið lengi og harkan í þeim
stundum verið slík að legið hefur
við borgarastríði. Serbía og Svart-
fjallaland, tvö lýðveldanna sex sem
mynda Júgóslavíu, vilja að sam-
bandslýðveldið verði áfram undir
sterkri miðstjóm en hin lýðveldin
fjögur, Slóvenía, Króatía, Bosnía og
Makedónía vilja að það verði banda-
lag fullvalda ríkja. Króatar og Sló-
venar segjast ætla að segja sig úr
Júgóslavíu ef því fáist ekki fram-
gengt.
Milli tveggja fjölmennustu lýð-
veldanna, Serbíu og Króatíu, hefur
samkomulagið verið sérlega slæmt
undanfarið. Fomstumenn serbneska
þjóðemisminnihlutans í Króatíu
hafa lýst yfir innlimun nokkurra hér-
aða þar í Serbíu og undanfamar vik-
ur hefur oft komið til illinda milli
Serba í Króatíu og króatísku lög-
reglunnar. Króatíska þingið sakar
serbnesku stjómina um að espa
Króatíu-Serba til óspekta. Serbneska
þingið hefur lýst yfir fullum stuðn-
ingi við Serba í Króatíu.
Serbar á útifundi méð mynd af for-
seta sinum, Slobodan Milosevic -
Króatar saka hann um að espa til
illinda.
Aukagjald á
símaskrafskjóður
Seamus Brennan, fjar-
skiptamálaráðherra ír-
lands, hefur látið það
boð út ganga að símanot-
endur, sem tali lengur í
síma samfleytt en 15
mínútur, verði að borga fyrir
það meira en hinir, sem Ijúki því
af sem þeir vildu sagt hafa á
skemmri tíma. Hingað til hafa
allir borgað jafnt, án tillits til
þess hve lengi var talað.
írar hafa það orð á sér að þeir
séu málskrafsmenn með meira
móti en jafnframt skemmtilegri og
jafnvel listrænni í hversdagslegum
viðræðum en aðrir menn. Er nú
spuming hvort þessi nýja ráðherra-
tilskipun muni valda einhveijum
breytingum á þeim þjóðareigin-
leika. „Hafa verður í huga að hér á
landi á fólk mjög erfitt með að
ljúka samtali á fimm mínútum.
Meira að segja er til mikils mælst
að ætlast til að það sé búið á stund-
arfjórðungi," sagði aðstoðarmaður
fjarskiptamálaráðherra.
Einhveijir, sem þykjast þekkja
íra, segja að nýja gjaldið verði rík-
inu mikil búbót án alls vafa, því að
ekki muni símnotendur láta það
beygja sig til að breyta samtals-
vénjum sínum.
Nýja reglan gildir aðeins um
innanlandssamtöl.
ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 18. apríl 1991
Síða 4