Þjóðviljinn - 18.04.1991, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 18.04.1991, Blaðsíða 19
RÚSfNAN... Davíðssálmar og bragfræðin Skráargatinu hefur borist eftir- farandi bréf vegna vísunnar um skattakónginn Davíð, sem birt- ist í skráargatinu í gær: „Það hefur lengi farið örlítið I taugamar á mér þegar ég rekst á handahófskennda vísnagerð I dagblöðum. (miðvikudagsblaði Þjóðviljans mátti lesa þessa vísu: Víst ertþú Davíð kóngur klár, kóngur skatta um eilífár. Kóngur malbiks og mengunar, mögur heimsku og harðstjórnar. Vísur af þessu tagi sækja ekki kraft sinn I efni heldur I form. Þetta ber ekki að skilja þannig að eitthvað sé yfir efninu að kvarta sem slíku. Ég ber fulla virðingu fyrir skilningi höfundar á þjóðmálum. Það er ekki held- ur ætlun mín að halda því fram að ég sé handhafi einhvers forms sem I öllum tilvikum er gallalaust. Þegar svona lagað er sett saman þá vill engu að síður gleymast hve margir möguleikar standa til boða. Að mínu mati er seinni hluti vís- unnar meingallaður. Mengun er I fyrsta lagi grábölvað rímorð og I öðru lagi þá þykir yfirleitt ólán að vera með aukastuðla (sbr. heimsku og harðstjórn). Þar að auki er óþarfi að nota orðið „mögur" sem fáir skilja nú orðið og bætir engu við efni vísunnar. Hafi höfundi veriö eftirsjá I rí- morðinu „mengun" hefði til dæmis vel mátt hafa síðustu línuna svona: mætur fulltrúi heimskunnar. Með „mætum fulltrúa" er þá átt við að umræddur stjórnmála- maður gefi einkar skýra og góða mynd af því sem hann er fulltrúi fyrir. Mengunina má reyndar líka færa til I vísunni þannig að seinni parturinn verði á þessa leið: Kóngur malbiks og málæðis, mengandi gróðabrjálæðis. Nú kann einhverjum að finnast þunglamalegur stíll á því að nota málæði og brjálæði I eign- arfalli til þess að ríma en það finnst mér ekki. Fyrri parturinn er stæling á sálmi og þess vegna ætti að vera I lagi að nota svolítið upphafinn stíl. Hins vegar gæti botninn líka verið með hversdagslegra oröalagi og yrði þá einhvern veginn svona: ■ Öll þín kenning er ihaldsraus, átakanlega stefnulaus. Kristján Jóhann" Skráargatið þakkar Kristjáni Jó- hanni þessar ábendingar og mælist til þess að fleiri sendi inn seinniparta á vísuna. Eggjám SH Á aðalfundi SH sem hófst í gær átti að úthluta fundarmönnum hnífum merktum Sölusamtök- unum. I stað þess fengu menn litinn gulan miða með fundar- gögnunum sem á stóð: Agæti félagi. Á þessum aðal- fundi standa fundarfulltrúum til boða sérmerkt eggjárn. Þar sem það er útbreidd hjátrú I Húnavatnssýslum um land allt, að hnífa megi aldrei gefa heldur selja og selja dýrt, hefur verið sett upp sérstök bitvopnabúð hjá Þjónustumiðstöð aðalfund- arins - Ingibjörgu. Söluverð er fast 10 kr og verður því ekki breytt. Öllum hagnaði af sölunni hefur þegar verið ráðstafað. Iðunn Steinsdóttir rithöfundur fékk barnabókaverðlaunin Bókin „Gegnum Þyrnigerð- ið“ eftir Iðunni Steins- dóttur var valin af Verð- Iaunasjóði íslenskra barnabóka sem besta barnabókin að þessu sinni. Bamabókaverðlaunin vom nú af- hent í sjötta sinn og er þetta í fyrsta sinn sem viðurkenndur höfundur er verðlaunahafi. I hin fimm skiptin hafa alls óþekktir höfundar hlotið þetta hnoss, sem markað hefur upphaf þeirra á sviði ritlistarinnar. I umsögn dómnefhdar kemur ffam að bók þessi sé nýstárleg og spenn- andi ævintýrasaga sem gerist fýrir langa löngu. Þar segir líka: „Efhið skírskotar engu að síður á áhrifamik- inn hátt til samtíðar okkar og þeirra breytinga sem em að verða á meginlandi Evrópu. Verkið geislar af ffásagnargleði og persónur verða ljóslifandi fyrir hugskotssjónum lesandans.“ Armann Kr. Einarsson rithöfundur afhenti Iðuimi verðlaunaféð, sem var nú 200.000 krónur. Armann sagði að þegar hann hefði lesið yfir handritið, hefði flogið í huga sér nafhið Astrid Lindgren. Ár- mann hrósaði bókinni mjög og sagði að Iðunn væri vel að þess- um verðlaun- um komin. Þegar Iðunn Steinsdóttir tók við verðlaununum, sagði hún að því mið- ur væri það svo að böm fengju ekki þá athygli sem þeim bæri hér á landi. „Islendingar era ekki bamavinir. Böm era til trafala i dansinuih kringum gullkálf- inn,“ sagði Iðunn og vildi með því leggja áherslu á af- skiptaleysi þeirra fullorðnu gagnvart bömum í lífs- gæðakapphlaupi nútímans. Stjóm Verðlaunasjóðs ís- lenskra bamabóka skipa þau _ Olafur Ragnarsson formaður, Armann Kr. Einarsson, Jón Freyr Þórarinsson, Sigrún Klara Hannesdóttir og Kristinn Amars- son. Stjómin fékk auk þess til liðs við sig að þessu sinni Steindór Emil Sigurðsson, nemenda í Hjallaskóla í Kópavogi, sem fulltrúa lesenda bama- og unglingabóka. -sþ Iðunn Steinsdóttir rithöfundur með verðlaunabókina og viðurkenning- arskjalið sem stjórn Verð-. launasjóðsins afhenti henni. Mynd: Jim Smart. triað fer ekki á milli mála! \ X Konur eiga auövitað að standa strípaðar yfir pottunum.../ Þegar þú ert búinn að laga til geturðu byrjað á stærð- fræðidæmunum mínum. Svona á lifið að vera. Við getum gert allt sem okkur langar til en á meðan vinn- ur engladrenguinn öll verk- in. Og hann kvartar ekki einu sinni. ' I jl \ É^r Mm Hann kvartar ekki, en grobbið i honum fer í taugarnar á mér. Síða 19 ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 18. apríl 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.