Þjóðviljinn - 18.04.1991, Side 5
A. Umsjón: Dagur Þorleifsson
Vesturveldin senda
her inn í íraska Kúrdistan
Ljóst er nú að Bandaríkin, Bretland og Frakkland hafa ákveðið
að senda herlið inn í íraska Kúrdistan til að koma upp búðum
þar fyrir kúrdneskt tlóttafólk og vernda þær fyrir íraksher. Er
gert ráð fyrír að Bandaríkin muni senda þangað til þess 5.000-
10.000 manna lið. Flugher Vesturveldanna mun auka eftirlit
sitt yfir írak, landhersveitunum til verndar.
„Þetta þýðir að bandamannaher-
sveitir munu halda inn í Irak eins og
Saddam forseti Hussein væri ekki
til,“ segir einn fréttaskýrandinn.
Bandarískar herþyrlur voru þeg-
ar í fyTradag yfir Norður-írak til að
fmna staði heppilega til að reisa
flóttamannabúðir, en sagt er að þær
verði sjö talsins. Bandarískar land-
hersveitir fóru svo inn í íraska Kúrd-
istan í gær.
Iraksstjóm hefur harðlega mót-
mælt þessum aðgerðum _sem afskipt-
um af innanríkismálum Iraks og sagt
þær ónauðsynlegar með öllu, þar eð
samkomulag hafi í meginatriðum
tekist með Irak og hjálparstofhunum
Sameinuðu þjóðanna um að leysa
flóttamannavandamálið. Ekki var þó
að heyra á fréttum í gær að búist
væri við því að Iraksher legði til at-
lögu við bandamannahersveitimar.
Bush Bandaríkjaforseti tilkynnti
þessar aðgerðir á þriðjudagskvöld og
virðist þar vera um að ræða nokkra
stefnubreytingu Bandaríkjastjómar,
sem undanfamar vikur hefur ekki
tekið í mál að beita her sínum til
bjargar Íraks-Kúrdum. En hörmung-
ar þær gífurlegar, sem yfir kúrdneska
þjóðemisminnihlutann i írak hafa
dunið síðan um páska, hafa vakið
með þeim víðtæka samúð á Vestur-
löndum og afskiptaleysi Bush af því,
sem margir telja að sé meðvituð til-
raun Iraksstjómar til að útrýma
Kúrdum úr Irak, er farið að koma
niður á honum í skoðanakönnunum.
Stjómir Bretlands, Frakklands og
Þýskalands hafa verið þess mest
hvetjandi að gripið yrði til áþreifan-
legra ráðstafana til bjargar Kúrdum
og er sumra mál að John Major, for-
sætisráðherra Bretlands, hafi um síð-
ir tekist að telja Bush á sitt mál í því
efni._
Akvörðun Vesturveldanna um
þessa aðgerð mun hafa verið tekin í
samráði við tyrknesku stjómina, sem
ákaft hefur skorað á Vesturlandaríki
að leysa flóttamannavanda sinn.
Hefur og tyrkneska stjómin fagnað
ákvörðuninni. Flóttamannabúðum
þessum, sem Vesturveldin koma á
fót í íraska Kúrdistan og tekur a.m.k.
tvær vikur að koma i gagnið, er eink-
um ætlað að taka við hundruðum
þúsunda flóttafólks sem enn er innan
landamæra Iraks, en hefur flúið upp i
fjöll, þar sem það líður ómældar
þjáningar af völdum hungurs og
kulda og árása Irakshers.
Allmikils taugatitrings gætir á
alþjóðavettvangi út af aðgerð þess-
ari. Meginregla hjá Sameinuðu þjóð-
unum hefur verið að íhlutun í innan-
ríkismál komi ekki til greina, sem í
ffamkvæmd hefur þýtt að aðildarríki
þeirra hafa oft tmflunarlítið getað
ffamið hverskyns hryðjuverk á þegn-
um sínum án þess að þurfa að óttast
afskipti utan frá. Á þvi hafa Kúrdar
fengið að kenna flestum ffemur.
Þriðjaheimsriki em sérlega við-
kvæm fyrir því að vikið sé ftá þess-
ari reglu, enda mikið hjá þeim um
minnihluta af ýmsu tagi sem oft em
hraklega leiknir. Sovétríkin með sin
þjóðemisvandamál og Kína með
Bush - afskiptaleysið farið að segja
til sín 1 skoðanakönnunum.
skuggalegan feril að baki i Tíbet og
Sinkíang em og mótfallin þvi að
nokkrar aðgerðir af því tagi sem hér
um ræðir fari ffam í umboði S.þ.
Með hliðsjón af þessu munu Vestur-
veldin hafa tekið það ráð að hefjast
handa í íraska Kúrdistan án þess að
leita fyrst til þess samþykkis Örygg-
isráðs S.þ. Enn má nefna sem ástæðu
ótta við að hinn gífurlegi fjöldaflótti
Kúrda til grannlanda, þar sem fjöl-
mennir og miður ánægðir kúrdneskir
þjóðemisminnihlutar em fyrir, leiði
af sér ókynð þar.
Javier Perez de Cuellar, ffam-
kvæmdastjóri S.þ., sagðist í gær ekk-
ert hafa á móti þessum aðgerðum
Vesturveldanna og kvaðst vona að
írösk stjómvöld skildu að hersveit-
imar kæmu til líknarstarfa eingöngu.
Sagt er að Bandaríkjastjóm geri
sér vonir um að þessi innrás muni
leiða til þess að íraksstjóm biðji Ör-
yggisráð að senda gæslusveitir á
vegum S.þ. til íraska Kúrdistans, í
þeim tilgangi að losna við vestur-
veldahersveitimar þaðan.
Ungur kúrdneskur flóttamaður með pott fyrir höfuðfat - margir flóttamannanna efast um að Vesturveldin tryggi þeim ör-
yggi til lengdar.
Kúrdar bæði
fegnir og tortryggnir
f raks-Kúrdar í flóttamanna-
Ibúðum í Tyrklandi tóku
sumir fréttinni um að Vest-
urveldin væru að senda her-
sveitir inn í íraska Kúrdist-
an með fögnuði, en margir
létu í ljós tortryggni. Hið
sama er að segja um forustu-
menn uppreisnarsamtaka Kúrda
í írak.
Izziddin Berwari, talsmaður
Kúrdneska lýðræðisflokksins,
sagði að hér væri um að ræða
fyrsta skrefið til að vemda kúrd-
neska flóttamenn innan landamæra
íraks. En það nægði ekki. Til þess
að öryggi Kúrda í írak yrði tryggt
til ffambúðar yrðu þeir að fá siálf-
stjóm.
Sumir flóttamannanna, sem
fréttamenn ræddu við, sögðust hik-
andi við að treysta Bandaríkja-
mönnum. Ef þessi vemd þeirra
stæði aðeins um skamman tíma og
Iraksstjóm yrði síðan leyft að end-
urheimta völd sín yfir íraska Kúrd-
istan, yrðu ráðstafanir Vesturveld-
anna nú til lítils.
Vestrænir stjómarerindrekar
létu í gær í ljós efa um að umrædd-
ar ráðstafanir Bandaríkjamanna,
Breta og Frakka yrðu til nokkurrar
hjálpar þeim flóttamönnum, sem
þegar væm komnir út fyrir landa-
mæri íraks, sérstaklega þeim sem
flúið hefðu til írans. Talsmenn
íraskra sjítasamtaka krefjast þess
að Sameinuðu þjóðirnar sendi
gæslulið til Suður-Iraks til vemdar
almenningi þar. Segja flóttamenn
þaðan að liðsmenn íraksstjómar
hafí undanfama daga tekið þar af
lífi hundmð manna og að þeir hlífi
ekki einu sinni bömum feðra, sem
hafi tekið þátt í uppreisninni.
Bush ræðir
við Dalai Lama
Dalai Lama, hinn útlægi leið-
togi Tíbeta, heimsótti George
Bush, Bandaríkjaforseta, í Hvíta
húsið í gær. Er þetta þeirra fyrsti
fundur. Talsmenn Hvíta hússins
sögðu að þeir hefðu ræðst við
sem prívatpersónur, fréttamiðlar
fengu ekki að vita hvað viðræð-
urnar snerust um og frétta-
mönnum og ljósmyndurum var
ekki hleypt nálægt leiðtogunum
fyrir fundinn, eins og siður er.
Frá því að vinskapur tókst með
Bandaríkjunum og Kína á áttunda
áratugi hefur Bandaríkjastjóm
sniðgengið Dalai Lama, er hann
hefur heimsótt Bandaríkin, til að
sfyggja ekki kinverska ráðamenn.
Hinsvegar hefur hinn útlægi leið-
togi jafiian notið talsverðrar sam-
úðar bandarískra þingmanna. 1988
mælti öldungadeildin með 98 atkv.
gegn engu með því að þáverandi
forseti, Ronald Reagan, hitti Dalai
Lama að máli, en Reagan fór ekki
að þvi.
Dalai Lama - Reagan vildi ekki tala
við hann en Bush lét tilleiöast.
Biðröð við verslun 1
Búkarest - ofan á
vöruskort hefur
bæst stórhækkað
verðlag á nauð-
synjavörum, sem á
efalítið mikinn þátt (
fjölgun glæpa.
Glæpaalda flæðir
yfir Kúmeníu
Glæpatíðni hefur stóraukist í
Rúmeníu frá því að alræði
kommúnista lauk þar, að sögn
þarlendrar lögreglu. Lögreglan
hefur á skrá frá fyrstu þremur
mánuðum ársins 28.722 glæpi á
móti 9264 fyrstu þrjá mánuðina
eftir að Ceausescu einræðisherra
var steypt í árslok 1989.
Auðgunarbrot af ýmsu tagi,
fjárdráttur, falsanir, mútur, rán
o.s.frv., em algengust. 145 morð
vom framin á fyrsta fjórðungi árs-
ins, á móti 50 á tímabilinu sem
tekið var til samanburðar. Lögregl-
an segir vaxandi glæpahneigð
meðal unglinga sérstakt áhyggju-
efni, ekki síst þar sem margir þeir
sem ffernji rán, morð og nauðganir
séu mjög ungir að árum. Mikið sé
um að glæpamenn á unglingsaldri
skipuleggi sig í hópa og undirbúi
glæpina fyrirfram.
ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 18. apríl 1991
Síða 5