Þjóðviljinn - 18.04.1991, Page 6
Hvernig hefur þér
fundist kosninga-
baráttan?
Sigrún Þórarinsdóttir
húsmóðir:
Ja, það vantar hörkuna
sem var í gamla daga.
Mér finnst hún í daufara
lagi.
Ólöf Steinarsdóttir
sölumaður:
Ég hef nú lítið fylgst með
henni, en þó finnst mér
nokkurt fjör í henni.
Zophanías Sigurðsson
tæknistjóri:
Hún hefur verið ótrúlega
róleg. Menn eru ailir búnir
að sameina sig í málefn-
um.
Björn Ófeigsson
heildsali:
Ég hef ekki hlustað á það.
Elías Reynisson
sölumaður:
Ég eiginlega veit lítið um
það. Hef ekki sett mig inní
þetta. En verður þetta ekki
hörð barátta?
Ýmsir frambjóð-
endur sýndu á sér
aðra hlið, þegar
þeir stjórnuðu
fjöldasöng af
miklum krafti.
Vigdls Grlmsdóttir rithöfundur les úr
verkum slnum fyrir áheyrendur.
Jassband Tómasar R. Einarssonar í góðri sveiflu, en það skipa; Eyþór Gunn-
arsson á pianó, Tómas R. Einarsson á kontrabassa, Sigurður Flosason á
saxafón og Einar Valur Scheving á trommur.
Frá vinstri má sjá Ólaf Guðmundsson, Helgu Brögu Jónsdóttur og Jakob Þór
Einarsson í leikþætti sem frumsýndur var i tilefni hátíðarinnar.
Mikil stemmning í
Islensku óperunni
að var geysilega mikil
stemmning hjá okkur,
enda húsið fullt af fólki,
sagði Svavar Gestsson
um kosningahátíð G-
listans sem haldin var í
Islensku óperunni á þriðjudags-
kvðldið var.
- Fjöldi listamanna lagði sitt af
mörkum til að gera þessa hátíð
sem veglegasta. Leikþáttur eftir
Ólaf Hauk Símonarson í uppfærslu
Þórhalls Sigurðssonar var t.d.
frumfluttur þetta kvöld, sagði
Svavar. - Einnig komu fram rit-
höfundamir Vigdís Grímsdóttir og
Ingibjörg Haraldsdóttir og lásu úr
verkum sínum. Ragnar Davíðsson,
ungur söngvari, söng sig þama inn
í hjörtu okkar og jasstónlist var
spiluð við góðar undirtektir áheyr-
enda. Svavar sagði að mikið hefði
verið sungið þetta kvöld, bæði tók
fólk undir með trúbadomum Bjart-
mari og einnig var sunginn fjölda-
söngur undir stjóm frambjóðenda
og neiri.
Auk þess má geta þess að milli
skemmtiatriða vom flutt ávörp og
án þess að ég vilji undanskilja
nokkum, þá var sérstaklega gaman
að hlusta á ávörp Margrétar
Björnsdóttur Sóknarkonu, sem
mælti fyrir hönd eldri kjósenda, og
Ólafs K. Sigurðssonar sem mælti
fyrir hönd þeirra ungu, sagði Svav-
ar.
- Myndir: Kristinn.
Ólafur K. Sig-
urösson flytur
hér ávarp fyrir
hönd ungra
kjósenda.
Salurinn var þéttskipaður fólki sem tók vel undir í fjöldasöngnum.
ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 18. apríl 1991
Síða 6