Þjóðviljinn - 18.04.1991, Síða 10
Diddi: Krafturinn og spennan eykst með hverjum kiukkutfmanum.
Pólitískir
andstæðingar
hjálpa
okkur mest
Sigurður Rúnar Jónsson,
betur þekktur sem
Diddi fiðla, skipar 20.
sætið á framboðslista
Alþýðubandalagsins á
Reykjanesi. Diddi er
jafnframt kosningastjóri flokks-
ins í kjördæminu og stýrir liði úr
Þinghóli, Kópavogi.
Starfið fór hægt af stað, pásk-
amir lentu inn í miðri kosningabar-
áttu og settu strik í reikninginn. En
eftir páskana fór allt á fleygiferð
og þetta hefur verið mikið stuð.
Krafturinn og spennan eykst með
hverjum klukkutímanum sem nær
dregur kosningum.
Okkur hefur gengið afskaplega
vel að fá fólk til starfa, hér er mik-
ið unnið pg á mörgum stöðum
samtímis. Eg get nefnt að við emm
með kosningaskrifstofur á fimm
stöðum í kjördæminu.
-Færðu viðbrögð við barátt-
unni á skrifstofuna til þín?
Já ég fæ mikil viðbrögð og mér
þykir mjög vænt um þau. Fólk
hringir mikið og maður reypir að
gefa sér tíma til að spjalla. Eg fæ
skemmtilegar ábendingar enda
segir gamalt orðtæki: Sá er vinur er
til vamms segir. Það era ábyggi-
lega 50-60 manns sem fylgjast
mjög grannt með því hvað ég geri
og hvað ég geri ekki og láta mig
vita ef einhver er ekki sáttur. I
svona starfi er mjög gott að hafa
slíka bakhjarla.
-Hvernig er andinn í kjör-
dæminu?
Við erum í gríðarlegri upp-
sveiflu sem heíst í hendur við
tempóið í starfinu. Viðbrögð fólks
fefa tilefni til bjartsýni og ég get
ætt því við í lokin að það era pól-
itískir andstæðingar sem hjalpa
okkur mest í kosningabaráttunni.
Þeir eru ákaflega duglegir við að
auglýsa Alþýðubandalagið.
ag
Hitað upp fyrir kosningaslag?
Jón Páll Eyjólfsson nemi og
Ólafur Ragnar fjármálaráð-
herra taka Iétta æfingu á
vinnustofa Tolla í Mosfellsbæ.
Jón Páll og Ólafur Ragnar
komu þar við ásamt öðrum
frambjóðendum Alþýðubanda-
lagsins á Reykjanesi 24. febrú-
ar síðast liðinn þegar listinn fór
í ferðalag um allt kjördæmið.
í þessu ferðalagi fræddust
frambjóðendur um alla staði
kjördæmisins og málin voru
rædd vítt og breitt. Að sö§n Sig-
urðar Rúnars kosningastjóra var
niðurstaða þessarar ferðar mjög
samstilltur nópur og aukin þekk-
ing á vanda hvers staðar fynr sig.
Um síðustu helgi hélt Al-
Mynd: Kristján Logason
þýðubandalagið íjölsótt Kamival
í Mosfellpbæ til þess að fagna til-
Iögum ,Ólafs Ragnars um að
gömlu Alafosshúsunum, þar sem
meðal annars vinnustofa Tolla er
til húsa, verði breytt í menningar-
miðstöð.
'A EFTIR BOLTA
KEHUR BARN
"BORGIN OKKAR OG BÖRNIN í UMFERÐINNI”
Næstu kjaraátök
verða háö
í kjörklefanum
Sigríður Jóhannesdóttir
kennari skipar 2. sætið á fram-
boðslista Alþýðubandalagsins í
' jördæmi. Sigríður
ti á stjórn Kennara-
s Islands og samninga-
nefqd Kt síðastliðin sjö ár.
Re
hefur átt s;
samband;
IKI
I Reykjaneskjördæmi er mjög
mikið rætt um atvinnumálin. Al-
þýðuflokkurinn ætlaði að slá sér
upp á þeim með samningum um
Singu álvers á Keilisnesi. Þetta
hins vegar snúist í höndun-
um á þeim því þeir hafa verið að
vekja miklu meiri vonir en hægt er
að uppfylla.
Við teljum að því miður hafi
verið lögð svo einhliða áhersla á
álver að önnur atvinnutækifæri í
kjördæminu hafa gleymst. Fyrir
nokkram vikum var haldinn miög
íjölsóttur fundur í Keflavíkjþar
sem Ólafur Ragnar kynnti íjöl-
margar nýjar hugmyndir og tillög-
ur í atvinnumálum. Sumar þeirra
eru meira að segja komnar til
ffamkvæmda nú. Þetta vakti mikla
athygli og Alþvðubandalagið stal
óvænt senunm í atvinnumálum.
-Eru skólamálin lifandi í
umrjcðunni fyrir kosningar?
Eg hef lagt á það mikla áherslu
að kynna hvað gert hefur verið í
menntamálum og hvemig unnið
hefur verið í menntamálaraðuneyt-
inu síðan Svavar Gestsson tók við
sem ráðherra. Þar er um gífurlega
stefhubreytingu að ræða.
Okkur í kennarasamtökunum
hefur alltaf dreymt um að fá að
starfa með ráðuneytinu þegar verið
er að undirbúa framvörp, áætlanir
og tillögur sem varða menntamál.
Óskir kennarasamtakanna um að
skipa formlega fulltrúa sina til
slíkrar vinnu hafa aldrei verið
teknar til greina heldur hafa ráð-
herra tilnefnt sína flokksgæðinga
einhliða og tilviljun hefur ráðið þvf
hvort kennarar vora þar á meðal
eða ekki.
Svavar Gestsson hefúr aftur á
móti ekki sett niður eina einustu
nefhd um skólamál nema kennara-
samtökunum hafi verið boðið að
tilnefna sína fulltrúa. Þannig hefur
verið unnið í fullu samráði við
kennara í öllum málum. Aður en
framvarp er lagt fram höfum við
alltaf fengið það til umsagnar, beð-
ið hefur verið eftir okkar áliti og
reynt að taka tillit til þess. Þessi
nýju vinnubrögð ráðherra Alþýði
bandalagsins finnast mér að hafi
ekki komið nægilega vel fram í
umræðu um skólamal. Allir kenn-
arar á landinu ættu að vita um
þetta.
-Hver eru brýnustu verkefn-
in á næsta kiörtímabili?
Mér verour hugsað til kjara-
málanna. Hin svokallaða þjóðarsátt
hefur óneitanlega verið samkomu-
lag um ákveðna kjaraskerðingu til
þess að ná niður verðbólgunni.
Þrátt fyrir hrakspár í upphafi hefur
það tekist svo slaandi vel að maður
man ekki eftir neinu þvílíku á sinni
tíð. Nú finnst mér brynt að stöðug-
leikinn sem náðst hefur verði not-
aður til að bæta lífskjörin í land-
inu.,
I þessum kosningum er i raun
kosið um hvort reynt verði að
koma ágóðanum af stöðugu efna-
hagslífi sem jafnast út til þegnanna
eða hvort hinir sterkustu eigi áfram
að fá mest. Næstu kjaraátök verða
ví í raun háð i kjörklefanum í
ssum kosningum.
ag
ÞJÓÐVILJINN Fimmudagur 18. apríl
10