Þjóðviljinn - 18.04.1991, Side 12
Rautt á grænum grunni
Auður Sveinsdóttir landslagsarkitekt skipar 3. sætið á
framboðslista Alþýðubandalagsins í Reykjavíkurkjör-
dæmi. Auður er formaður Landverndar og hefur árum
saman verið skeleggur málsvari umhverfisverndar. Hið
nýja merki Alþýðubandalagsins er rautt á grænum
grunni, tákn róttækni sem byggir á virðingu fyrir nátt-
úrunni. En hvernig gengur að koma málstað umhverfisverndar á
framfæri?
íslendingar virðast almennt
hafa heldur litlar áhyggjur af um-
hverfísmálunum. Við höfum verið
svo óskaplega heppin að verða lítið
vör við afleiðingar mengunar. Þetta
brennur ekki eins á okkur og fólki
víða erlendis þar sem neysluvatn er
marghreinsað því grunnvatn er
orðið mengað, þar sem skógar
deyja og lif í vötnum er horfið, þar
sem ræktun matvæla er orðin erfið
vegna stöðugrar notkunar áburðar
og lyfja og eiturs frá verksmiðjum,
þar sem orkuskortur er að verða
stærsta vandamálið vegna auð-
lindaþurrðar.
Það er erfitt að ræða umhverf-
ismálin því þau tengjast öllum
þáttum mannlifsins og kalla á nýja
nálgun á öll viðfangsefni. Við get-
um ekki tekið ein-
staka þætti út úr eða
reitt fram staðbundn-
ar „patentlausnir“.
Umhverfismálin snú-
ast líka um framiíð-
ina; ekki endilega
næsta kjörtímabil,
heldur framtíð barn-
anna okkar og það er
oft erfitt að fá fólk til
að hugsa svo langt
fram í tímann.
Við íslendingar
erum með í höndun-
um tiltölulega
ómengað en ákaflega viðkvæmt
land. I því felast okkur mestu auð-
ævi í framtíðinni. Lítil mengun á
fiskimiðunum mun auðvelda mjög
sölu á sjávarafla okkar innan fárra
ára. Við höfum nóg af orku, góða
möguleika á hreinu vatni og líf-
vænlegan jarðveg. Þetta getum við
nýtt til framleiðslu á hreinum mat-
vælum, bæði með fiskeldi og yl-
rækt.
Það er ákaflega mikilvægt að
við förum vel með þetta land og
spillum ekki gæðum þess eða
ímynd. Því verki þarf líka að sinna
á alþjóðlegum vettvangi því meng-
un virðir engin landamæri eða lög-
sögur.
Alþýðubandalagið hefur haft
frumkvæði í umhverfismálum hér
á landi. Við höfum barist gegn
kjamorkuendurvinnslustöðvunum í
Dounreay og Sellafield sem ógna
Norður-Átlantshafinu. Við höfum
verið málssvarar friðar og afvopn-
unar, mótmælt veru hers hér á
landi og umferð kjamorkuknúinna
kafbáta i lögsögu okkar. Við höf-
um lagt áherslu á uppbyggingu al-
mennmgssamgangna til að araga
úr þörf fyrir einkabílinn. Við höf-
um sett fram þá stefnu að auðlind-
imar séu sameign þjóðarinnar og
Íá einnig komandi kynslóða. Við
öfum einnig lagt áherslu á að
möguleikar á framleiðslu vetnis
hér á landi verði kannaðir af al-
vöm.
Maður verður mikið var við úr-
eltan hugsunarhátt þegar kemur að
hugmyndum um atvinnuuppbygg-
ingu. Stóriðjustefnan er dæmi um
úreltan hugsunarhátt. Lítil þjóð í
svo viðkvæmu landi á ekki að nota
dýrmæta orkuna í svo einhliða
mengandi iðnað. Hugsunarháttur-
inn „smátt er fagurt“ á miklu betur
við okkar aðstæður.
Sama má segja um Evrópu-
bandalagið og evrópska efnahags-
svæði. Þetta eru fyrst og fremst
viðskiptabandalög þar sem úreltir
umhverfismálin
tengjast öllum
þáttum mannlífsins
og kalla á nýja
nalgun á öll
viðiangsefni
Auður: Hugsunarhátturinn „smátt er fagurt" á vel við okkar aðstæður.
útreikningar á hagvexti ráða ríkj-
um. Vestrænar þjóðir verða að taka
fórnarkostnað náttúrunnar inn í
dæmið og einbeita sér að því að
minnka bilið milli ríkra og íatækra
þjóða, en ekki auka það. Frá sjón-
arhóli umhverfisvemdar væri inn-
ganga í þes§i bandalög hræðileg
ógæfa fyrir ísland. Við búum við
mikla serstöðu og verðum að hafa
frelsi til að sníða umhverfislöggjöf
eftir henni. Það hefðum við ekki
innan þessara bandalaga.
Við stöndum á mjög mikilvæg-
um tímamótum hvað varðar um-
hverfisvernd. Miklar breytingar
eru að eiga sér stað í heiminum og
það getur skipt sköpum fyrir kom-
andi kynslóðir hvemig staðið verð-
ur að stefnumótun í umþverfismál-
um á allra næstu árum. Eg vil orða
Eað svo að við stöndum með brot-
ætt fjöregg okkar í höndunum.
Að mínu mati er brýnasta verkefni
nýs Alþingis að móta umhverfis-
löggjöf og heildstæða stefnu í um-
hverfismálum.
ag
Glistinn
” í Reykjavík
Sjálfboðaliðar!
Sjálfboðaliða vantar til starfa á kosninga-
skrifstofur: Látið skrá ykkur til starfa eða
komið á kosningaskrifstofur G-listans á
Laugaveg 3 eða í Iðnó og takið á með okkur.
Sjálfboðaliðar með bíla: Látið skrá ykkur til
aksturs á kjördag.
Vinnum öll saman
í lokasókninni!
628274
17500
620106
xG
Alþýðubandalagið
I
Ungt fólk kemur til Alþýðubandalagsins
Aðalskrifstofa Alþýðubanda-
lagsins fyrir landið allt er til
húsa að Laugavegi 3 í Reykja-
vík. Þar starfar skrifstofustjóri
Alþýðubandalagsins, Flosi Ei-
ríksson. Flosi var spurður hvert
væri hlutverk aðalskrifstofunnar
I kosningabaráttu.
Við sjáum um útgáfu og dreif-
ingu á sameiginlegu áróðursefni,
höldum tengslum við kjördæma-
skrifstofumar um landið allt og út-
vegum þeim þaö sem þær vanhag-
ar um. Við sjáum einnig um sam-
skipti við útvarps- og sjónvarps-
stöðvar og samnæfum kosninga-
starfið.
Þessi barátta núna er stutt og
snörp og hefur gengið ágætlega
þrátt fyrir að við séum undirmönn-
uð eins og alltaf hvað varðar laun-
aða starfskrafta. Ég vil einnig geta
þess að samhliða kosningaundir-
búningi höfum við verið að koma
okkur fyrir í nýjum húsakynnum
svo óvenju mikið hefur gengið á.
-Hverju spáir þú svo?
Það er greinilegt að landið er
að rísa. Ungt fólk kemur til Al-
þýðubandalagsins á ný enda sjá
menn árangur flokksins í ríkis-
stjórn og su raunsæja og róttæka
stefna sem við rekum, er hugsandi
fólki að skapi - ekkert inninalds-
laust slagorðaglamur. Við sýnum
hvað við höfum gert, hvað við ætl-
um að gera og hvemig við ætlum
að fara að því. Eg held að Alþýðu-
bandalagið reki nú mjög heil-
steypta og raunsæja kosningabar-
áttu með mjög róttækum úrræðum.
ag
Reykjavík
Reykjavík er fjölmennasta kjör-
dæmi landsins. Þar eru að þessu sinni
40,13% kjósenda á íslandi á kjörskrá
eða 73.411 og hefur fjölgað um 6.024
síðan 1987. 5.739 ungmenni eru að
öðlast kosningarétt í alpingiskosning-
um í íyrsta sinn.
I Reykjavík er kosið um 14 þing-
sæti. Að auki féllu 4 jöfnunarþingsæti
í hlut Reykjavíkur á síðasta kjörtíma-
bili. Urslit í alþingiskosningunum
1987 voru sem hér segir: Alþýðu-
flokkur hlaut 9.527 atkvæði eða 16%
greiddra atkvæða og 3 menn kjöma.
Framsóknarflokkur 5.738 atkvæði
(9,6%) og 1 mann. Sjálfstæðisflokkur
fékk 17.333 atkvæði (29%) og 6
menn. Alþýðubandalag fékk 8.226 at-
kvæði (13,8%) og 2 menn. Borgar-
flokkur fékk 8.965 atkvæði (15%) og
3 menn. Kvennaiisti fékk 8.353 at-
kvæði og 3 menn. Flokkur mannsins
hlaut 1.378 atkvæði (1,6%) og engan
mann og Bandalag jafnaðarmanna
167(0,3).
I kosningunum 20. apríl verða 8
listar í boði í Reykjavík. Þeir eru A-
listi Alþýðuflokks, B- listi Framsókn-
arflokks, D-listi Sjálfstæðisflokksins,
F-listi Frjálslyndra, G-listi Alþýðu-
bandalagsins, H-listi Heimastjomar-
samtakanna, V-listi Samtaka um
kvennalista og Þ-listi Þjóðar-
flokks/Flokks mannsins.
Framboðslisti Al-
þýðubandalagsins
í Reykjavík til
Alþingiskosninga
1991
1. Svavar Gestsson,
alþingismaður.
2. Guðrun Helgadóttir,
alþingismaður.
3. Auður Sveinsdóttir,
landslagsarkitekt.
4. Guðmundur Þ. Jónsson,
form. Iðju félags
verksmiðjufólks.
5. Már Guðmundsson,
hagfræðingur.
6. Margrét Rikharðsdóttir,
þroskaþjálfi.
7. Ámi Þór Sigurðsson,
deildarstjón.
8. Steinar Harðarson,
tæknifheðingur.
9. Hildur Jónsdóttir,
verkefhisstjóri.
10. Leifur Guðjónsson,
forstöðumaður
verðlagseftirl. verkalýðsf.
11. Steinunn Jóhannesdóttir,
rithöfundur.
12. Kolbrún Vigfúsdóttir,
fóstra.
13. Amór Þórir Sigfússon,
dýraffæðingur.
14. Sigurrós Siguriónsdóttir,
fúfltrúi.
15. Tryggvi Þórhallsson,
nemi.
16. Dýrleif Bjamadóttir,
nemi.
17. Ingólfúr H. Ingólfsson,
féiagsfræðingur.
18. Sigurbjörg Gísladóttir,
efnaffæðingur.
19. Matthlas Matthíason,
nemi.
20. Þóra Þórarinsdóttir,
kennari.
21. Gísli Gunnarsson,
sagnffæðingur.
22. Halla Eggertsdóttir,
sjúkraliði.
23. Hörður Bergmann,
ffæðslufúlltrýi.
24. Guðrún Kr. Oladóttir,
varaform. Sóknar.
25. Guðmundur H. Magnússon,
iðnverkamaður.
26. Ingibjörg Haraldsdóttir,
ritnöfúndur.
27. Tómas R. Einarsson,
tónlistarmaður.
28. Þómnn Sigurðardóttir,
leikstjóri.
29. Þorleifur Friðriksson,
sagnlfæðingur.
30. Guðrún HaUgrímsdóttir,
matvælaverkffæðingur.
31. Helgi Guðmundsson,
ritstjóri.
32. Margrét Guðnadóttir,
prófessor.
33. Grétar Þorsteinsson,
form. Trésmiðafélags
Reykjavíkur.
34. Adda Bára Sigfúsdóttir,
veðurffæðingur.
35. Guðjón Jónsson,
jámiðnaðarmaður.
36. Svava Jakobsdóttir,
rithöfúndur.
ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 18. apríl 1991
12