Þjóðviljinn - 19.04.1991, Side 4

Þjóðviljinn - 19.04.1991, Side 4
Selma Dóra Þorsteinsdóttir formaður Fóstrufélags íslands, tekin tali um nýju leikskólalögin y lög um leikskóla voru samþykkt á Alþingi síð- ustu daga þingsins í vor. Nýju lögin hafa vakið athygli lands- manna, þvi með þeim eru leik- skólar skilgreindir sem sérstakt skólastig fyrir börn undir skólaskyldualdri. Þjóðviljinn hafði samband við formann Fóstrufélags íslands, Selmu Dóru Þorsteinsdóttur og spurði hana um þýðingu þessara nýju laga gagnvart leikskólum landsins. - Fóstrur telja almennt að nýju leikskólalögin séu gullmoli á sviði uppeldismála og við Islend- ingar megum vera stoltir af þess- ari samþykkt Alþingis, bömunum til handa, sagði Selma. Viðhorfin hjá landsmönnum hafa mikið breyst nú á síðustu árum. Svavar Gestsson hefúr með setu sinni sem menntamálaráðherra, mark- að stefnu gagnvart leikskólunum, sem nær til næstu aldamóta. Og það besta við þessa stefnu, er að hún er alveg í anda þess sem fóstrur hafa barist fyrir nú í rúm tuttugu ár, sagði Selma Dóra. Með lögunum er leikskólinn skilgreindur sem uppeldis- og menntastofnun. I annarri grein laganna segir að hann eigi að veita bömum á leikskólaaldri uppeldi og menntun, ömgg leik- skilyrði og góða umönnun. Lögð verði áhersla á gildi leiksins fyrir bamið og að markmið leikskóla- uppeldis undir handleiðslu sér- menntaðs fólks sé mikilvæg við- íslendingar mega vera stoltir af nýju leikskólalögunum bót við það uppeldi sem foreldrar veita. Ef þetta á að ganga eftir þarf að vera nægt framboð af leik- skólum og fjöldi fóstra þarf að vera nægjanlegur. Það liggur því beinast við að spyija Selmu hvort þessi atriði stæðu nýja leikskóla- frumvarpinu ekki til þrifa i dag. - Jú, það vantar ennþá leik- skóla í sumum bæjarfélögum landsins, en það er á valdi við- komandi sveitarfélaga hvað margir leikskólamir em í þeirra umdæmi. Einnig er það svo, að til að tryggja þeim bömum sem nú þegar em í leikskóla þennan rétt þarf að gera vemlega bragabót í Iaunamálum fóstra, sagði Selma Dóra. Ég vil rökstyðja það með því að núverandi launaástand hef- ur ofl á tíðum fælt fóstrur frá því að starfa á leikskólunum. Ekki er kostur á neinni eftirvinnu og þarf því að koma launamálunum í við- unandi horf. Sum bæjarfélög sýna Það em börnin sem koma til með aö njóta nýju leikskólalaganna. Mynd: Kristinn. þessu mikinn skilning og skilja að eigi leikskólinn að halda velli verður að taka á launamálunum. Þessi sveitarfélög kappkosta að hafa sérmenntað fólk inn á sínum leikskólum. Enda hlýtur það að vera hagur bamanna, að með þeim séu fóstmr sem hafi þá þekkingu til að bera sem t.d. nýju leikskólalögin krefjast núna, sagði Selma. Þegar menntamálaráðherra kynnti nýja leikskólafiumvarpið Iagði hann áherslu á sérstök leik- skólaumdæmi. Sagði hann að þau skiptu miklu máli til að ijúfa þá einangmn sem leikskólar í fá- mennari byggðalögum búa oft við. - Selma sagði í þessu sam- bandi, að leikskólaumdæmin myndu fylgja núverandi fræðslu- umdæmum. Þetta væri fyrst og fremst hugsað til að þjónusta landsbyggðina. Oft á tíðum er að- eins einn leikskóli til í hveiju sveitarfélagi. Það gefur því auga leið að einangmnin hjá þessum leikskólum getur verið mjög mik- il. Við fóstmmar sjáum fyrir okk- ur að ákveðin yfirstjóm tengi saman leikskóla á stóm svæði. Það þýðir að óskir fóstra á lands- byggðinni, sem til langs tíma hafa kvartað yfir einangmn, verði að Selma Dóra Þorsteinsdóttir formaður Fóstrufélags Islands. Mynd: Jim Smart. vemleika, sagði Selma Dóra. Sveitastjómir og fóstrur út á landi hafa líka lagt áherslu á faglega Það þarf að gera verulega bragabót í launamálum fóstra ráðgjöf fyrir bæði fóstrur og for- eldra. Núna sé ég fyrir mér að þetta breytist til mikilla muna. Leikskólamir sem áður hafa al- farið verið á ábyrgð sveitastjóm- anna, verða nú einnig undir vemdarvæng ríkisins. Það verður ríkið sem leggur til sérfræðiað- stoð þ.e. sálfræðinga og félags- ráðgjafa, sem að sjálfsögðu skilar sér í auknu öryggi fyrir böm, for- eldra og fóstrur, sagði Selma. Auðvitað er þetta eitt af atriðum nýju laganna sem biýtur blað í leikskólamálunum. Núna fá leik- skólamir út á landi þessa sjálf- sögðu þjónustu sem aðeins stærstu bæjarfélögin hafa haft bolmagn til ffam að þessu. Átökin milli Félagsmálaráð- neytis og Menntamálaráðneytis um hvort ráðneytið ætti að hafa leikskólana, stóð leikskólafhim- varpinu lengi vel fyrir þrifum. Hvemig finnst ykkur fóstrunum núverandi niðurstaða? - Átökin milli þessara ráð- neyta snerist um hugmyndafræði, sagði Selma. Félagsmálaráðneyt- ið vildi að umgjörð leikskólana snerist um fjölskylduaðstæður, ekki bamið. Þetta hefði getað komið þannig út, að ef íjölskyldu- aðstæður bams löguðust ffá því sem var, ætti bamið á hættu að vera sagt upp leikskólaplássinu. Núverandi kerfi er byggt upp á allt annan hátt. I dag mun leik- skólinn snúast um bamið, ekki einhveijar efnahagslegar aðstæð- ur. Sem sagt bömin em í leikskól- anum bamanna vegna. Það er ffamtíðin, sagði Selma. Framtíðin ber sjálfsagt margt í skauti sér, en ef við afmörkum sviðið og horfúm til leikskólanna og veltum því fyrir okkur um leið TEG: 8001 TEG: 8178 TEG: 9177 TEG: 9183 IfTUR: SVART/BRUNT. SVART/SVART SVART/GRÆNT VERÐ: 6.690kr. LITUR: 8RUNT 0G SVART VERÐ: 6.890 kr. LITIR: DÖKKBIÁTT,8RÚNT 0G SVART VERÐ: 6.490 kr. LITIR: SVART 0G BRUNT VERÐ: 6.690 kr. NÝ SENDING AF GLÆSILEGUM KVENSKÓM FRÁ SPÁNI. STÆRÐIR 3 - 8 í HALFUM OG HEILUM NÚMERUM. POSTSENDUM Skói ó ollo fjöláyldunti... m/ÁiíiTfkfj 1/JlJUíl LAUGAVEGI 95 62 45 90 hvemig þeir koma til með að verða í ffamtíðinni, er nærtækast að spyrja formann fóstrufélagsins Selmu, að því hvemig hún horfi til ffamtíðarinnar fyrir leikskól- ana. - í dag nær einn þáttur nýju laganna til þróunarstarfs. Það sem átt er við er að rannsóknir og þró- unarstarf gagnvart leikskólunum Börnin eru í leikskóla barnanna vegna mun eflast að miklum mun. Einn- ig hefúr verið lögfest „námsskrá" fyrir leikskólana, sem við köllum uppeldisáætlun. Með þróunar- starfi og rannsóknum innan leik- skólanna tekur þessi „námsskrá" að sjálfsögðu breytingum í tím- anna rás. Það verður að ítreka það, að til að þróun leikskólaupp- eldis verði sem sem best, verður að endurskoða áætlanir á nokkra ára ffesti, sagði Selma Dóra. - í lokin vil ég minnast á, að hraðari uppbygging leikskólanna, kallar á fleira sérmenntað starfs- fólk. í niðurstöðum forskóla- nefndar sem vann upp leikskóla- ffumvarpið, kom meðal annars fram, að ef leikskólamir ætla að halda uppi þeirri þjónustu sem þeim er ætlað að sinna verður að útskrifa um 140 fóstrur á hveiju ári. Það er því við hæfi að hvetja fólk til að mennta sig í þessu skemmtilega starfi, sagði Selma. Greinilega full tilhlökkunar að taka þátt i nýjum og spennandi tímum í sögu leikskólanna. -sþ Nýju leikskólalögin eru gullmoli 4 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.