Þjóðviljinn - 20.04.1991, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 20.04.1991, Blaðsíða 3
Að gefnu tilefni Um tvær álíka stórar fylkingar í tilefni dagsins Skoðanakannanir hafa dunið á landsmönnum undanfarna daga; Skáís fyrir Stöð 2, Gallup með hvert kjördæmi fyrir sjón- varpið, Félagsvísindastofnun fyrir Morgunblaðið og DV með eigin könnun fyrir tveimur dögum ættu að gefa áhugasöm- um einhverja visbendingu um það sem þeir eiga von á í nótt. Og hvaða vísbendingar gefa svo þessar kannanir? 1 stuttu máli að sókn Sjálfstæðisflokks- ins sé ekki jafn þung og flestir hafa búist við. I öðru lagi að smáflokkarnir nái engum ár- angri og í þriðja lagi að Al- þýðubandalagið sé á leið upp úr þeirri lægð sem það hefur verið í síðustu misseri. „Það er til ágætur sænskur málsháttur sem er þannig að ekki sé skynsamlegt að selja skinnið fyrr en búið sé að skjóta Bjöm- inn,“ sagði Þorbjöm Broddason lektor í viðtali við Þjóðviljann í fyrradag um kannanimar og hef- ur lög að mæla. Kannanir segja okkur fyrst og fremst það hvem- ig hópurinn sem náðist í þegar hringt var skiptist á milli flokka. Eigi að síður nafa kannanir und- anfarin ár næstum undantekning- arlaust sýnt samskonar breyting- ar á fylgi flokka og komu ffam í kosningunum sjálfum. 1 flestum tilfellum hefur að vísu verið nokkur munur sem birtist í því að hægri armurinn fær yfirleitt minna fylgi í kosningum en fram kemur í könnunum en vinstri armurinn meira. Sé tekið tillit til þessara frávika má vel geta sér til um að Alþýðubandalagið fái á bilinu 13 - 17%, Framsokn á bil- inu 18 - 22%, Alþýðuflokkurinn 12 - 16%, Kvennalistinn frá 8 - 11% og Sjálfstæðisflokkurinn 34 - 40%. „Menn verða ekki reikn- aðir inn á þing,“ er fyrirsögn á grein eftir Erling Sigurðarson í blaðinu Norðyrland, sem kom út nú í vikunni. Eg býst við að ýms- ir líti svo á að óskhyggjan hafi hlaupið með mig i gönur og ég sé að reikna vinstri meirihluta inn á þing og auk þess talsverða fylgis- aukningu Alþýðubandalagsins. Því miður er ekki hægt að reikna menn á þing, eins og Erlingur bendir rettilega á, enda ætla ég ekki að leggja höfuðið að veði fyrir þessi úrslit. Mig grunar þó að á kjördagsmorgni séu fylking- ar stjómarliða Framsóknarflokks, Alþýðuflokks og Alþýðubanda- lags annars vegar og stjómarand- stæðinga Sjálfstæðisflokks og Kvennalista hins vegar álíka Qöl- mennar. Þá stendur utaf að því er virðist örlítill (innan við 3%) hópur sem getur hugsað sér að kjosa smáflokkana og einhver þúsund sem ekki hafa endanlega gert upp hug sinn. 1 athugunum félagsvisindastofnunar undanfar- in ár hefur komið í ljós að hópur- inn sem ákveður sig ekki fyrr en í kjörklefanum er bysna stór. Líklega hefur ekkert vakið jafh mikla athygli í kosningabar- áttunni en sú ímyndarbreyting sem gerð var á Davíð Oddssyni við formannskjörið. Reykvíking- ar og raunar þjóðin öll hafa van- ist því að borgarstjórinn væri bæði frakkur, frekur og frískur og byði mönnum birginn á báða boga, fyrir nú utan það að vera skemmtilegur á köflum. Undirrit- aður hefur að sönnu ekki sótt þá fúndi sem nýi formaðurinn hefur haldið, en af fregnum má ráða að enn geti hann komið fólki til að brosa, en þá eru líka upptaldir þeir þættir sem eftir standa af gömlu imyndinni. Maðurinn seg- tr ekki hvað hann eða flokkur hans vill, hann er orðinn allra vinur og svo mjúkmáll að kjós- endur þekkja hann ekki fyrir sama mann. Davíð Oddsson var kosinn formaður Sjálfstæðis- flokksins vegna þess að hann ... hægri armurinn fær yfirleitt minna fylgi í kosningum en fram kemur í könn- unurn en vinstri arm- urinn meira þótti hafa allt annan svip en for- veri hans Þorsteinn Pálsson, þótt sagt væri að þeir styddust við sama kjarnann í flokkn.um og skoðanirnar væru líkar. I kosn- ingunni kom raunar í ljós að þeir studdust alls ekki við sama kjam- ann í flokknum, þar sem Þor- steinn naut greinilega stuðnings forystumanna úr hinum gömlu atvinnugreinum meðan Davið studdist við frjálshyggjuliðið, einkum af Reykjavíkursvæðinu. Þá var það talið honum sérstak- lega til gildis hvemig hann hefði stjómað málefnum Reykvíkinga, landsmenn allir skyldu njóta að- ferða hans og stefnu eins og þær birtust í Reykjavík. Þegar enginn svör fengust við því hvað maour- inn ætlaðist fyrir var farið að rýna í hvernig borginni væri stjómað. Þá kom auðvitað í ljós að borgarstjórinn, sem allra manna mest hefur talað um skattaáþján vinstri flokkanna hef- ur hækkað skatta þrefalt meira en „skattpíningarríkisstjómin". Það stendur með öðmm orðum ekkert eftir af þeirri ímynd sem þjóðin hafði af hinum nýja formanni. Sem vonlegt var höfðu allir andstæðingar Sjálfstæðisflokks- ins orð á því að með nýjum for- manni myndi færast meiri harka í stjómmálin. Þetta hafa sjálfstæð- ismenn óttast, sporin frá Bret- landi hræða þar sem Margrét Thatcher var nýlega fallin á óbil- giminni fyrst og fremst. Þvi var gripið til þess raðs að selja kjós- ... grunar þó að á kjördagsmorgni séu fylkingar stjórnarliða Framsóknarflokks, Alþýðuflokks og Al- þýðubandalags ann- ars vegar og stjórnar- andstæðinga Sjálf- stæðisflokks og Kvennalista hins veg- ar álíka fjölmennar endum svikna vöm. „Það er ekki gull en selsemgull,“ (selst sem gull). Var þetta ekki haft eftir slyngum höndlara fyrr á öldinni sem bjó með þessu til nýja teg- und af gulli, selsemgull? Davið Oddsson og Sjálfstæðisflokkur- inn hafa reynst eins og hvert ann- að selsemgull í þessari kosninga- baráttu og ef marka má skoðana- kannanir undanfarna daga tekst ekki að selja fleimm þessa vöm en þeim sem tryggir voru fyrir því þær benda til að flokkurinn muni fá nokkurn veginn það fylgi sem hann fékk 1983, fyrir Borgaraflokksævintýrið. Fyrir sex mánuðum fjallaði ég í þessum pistli um ímynd Al- þýðubandalagsins meðal kjós- enda og sagði meðal annars þetta: ...“ „ímynd" Alþýðubanda- lagsins með þjóðinni er um þess- ar mundir háskaleg fyrir flokk- inn, sennilega háskalegri en hún hefur verið í langan tíma. Þannig hefur þjóðin ekki þá hugmynd um Alþýðubandalagið að það sé flokkur eindrægni þar sem flokksmenn takist í sameiningu á við verkefhin, heldur öfúgt. Fylgi flokksins hefur um langan tíma mælst innan við 10% í skoðana- könnunum og hver skyldi vera skýringin á því? Þær em auðvit- að fleiri en ein, en geta menn bú- ist við því að kjósendur í landinu tjái sig reiðubúna til að kjósa llokk sem þeir telja samansafn af fólki sem leggur meiri áherslu á að rifast innbyrðis en að takast á við verkefnin út í þjóðfélaginu. Þetta er því hraklegra fyrir flokk- inn sem hann situr í ríkisstjóm sem hefur á ýmsum sviðum náð árangri sem engan hefði dreymt ....hafa vanist því að borgarstjórinn væri bæði frakkur, frekur og frískur og byði mönnum birginn á báða bóga um fyrir fáeinum missemm.“ Síðan þessi orð gengu á þrykk út er mikið vatn til sjávar mnnið. Alþýðubandalagið nefur sannað á þessum vetri að í því býr sú seigla og þróttur sem dug- ir stjórnmálaflokki til langlífis, þó á móti blási um skeið. Ríkis- stjómin sem flokkurinn hefur átt aðild að, og sett svo sterkan svip á, er að skila af sér marktækari Flokkurinn sem var sundurtættur af inn- byrðis deilum fyrir hálfu ári er nú sam- stæð heild, sem reynst hefur fær um að tak- ast á við vandasöm verkefni árangri en nokkur ríkisstjóm hef- ur gert í háa herrans tíð. Tíminn frá því í haust hefur verið vel notaður. Flokkurinn sem var þjakaður af innbyrðis deilum fyr- . ír hálfú ári er nú samstæð heild, sem reynst hefur fær um að tak- ast á við vandasöm verkefni. Vissulega hafa nokkrir félagar hrokkið fyrir borð, og gengið til liðs við aðra flokka eða telja at- kvæði sínu betur varið með því að kjósa aðra lista en G-listann. Þegar svo hagar til hættir mönn- um til að ruglast í röksemda- færslunni, og ryðga í sagnfræð- inni á meðan umskiptin eiga sér stað. Össur Skarphéðinsson, fyrr- um ritstjóri Þjóðviljans og vara- borgarfulltrúi Alþýðubandalags- ins með meiru er nú í framboði fyrir krata í Reykjavík, segir t.d. í DV i fyrradag: „I hinni gömlu hugmyndafræði Sjálfstæðis- flokksins var margt gott að finna. Þar bar vitaskuld hæst áherslu og fastheldni flokksins á frelsi ein- staklingsins og frjálsræði." Nú er öldin önnur, segir Össur því „..innan Sjálfstæðisflokksins eru handlangarar fjölskyldnanna fjórtán, kolkrabbans í islensku at- vinnulífj, búnir að brjótast til valda.“ Ósköp er þetta nú klén sagnfræði hjá frambjóðanda Al- þýðuflokksins þegar þess er gætt að saga baráttunnar sem verka- lýðshreyfingin, pólitísk og fag- leg, hefur háð fyrir öllum mikil- vægustu velferðarmálum þjóðfé- lagsins er vörðuð óteljanai stríð- um við Sjálfstæðisflokkinn, Morgunblaðið og samtök at- vinnurekenda. Hér er þá mál að ljúka um- fjöllun um tvennsskonar pólitísk- ar breytingar sem orðið hafa á siðustu mánuðum, ímyndarbreyt- ingu Davíðs annars vegar og þau mikilvægu umskipti sem orðið hafa á Alþýðubanaalaginu (með viðauka um galvaskan félaga sem hélt ekki út). Síðamefnda breytingin gæti haft varanleg áhrif á stjómmálaástandið í land- inu. Komi Alþýðubandalagið öfl- ugt út úr kosningunum er verið að festa í sessi þa róttæku stefnu um lífskjarajöfnun sem flokkur- inn hefur boðað, þá stefnu sem verður að setja mark sitt á ís- lenskt þjóðfélag næstu árin. Geri hún það ekki er ekki von um þjóðarsátt né heldur framfarir sem ná til þjóðarinnar allrar. hágé. Raunaukning skatttekna á íbúa árín 1982-1990 l 35 30 25 20 15 10 5 0 á föstu verðlagi landsframleiðslu R 1 K 3 I 10,9 •O c i J Reykjavík Kópavogur Ríkið Davið Oddsson hefur hækkað skatta á hvem Reykvíking þrisvar sinnum meira en rikiö og nærri helmingi meira en Kópavogur undir stjórn vinstri manna. Þetta hefur að vonum vakið mikla athygli, vegna þess að borgarstjórinn hef- ur lengi haldið hinu gagnstæða fram. Fyrir þá sem hafa gaman af að leika sér að tölum má nefna sem dæmi um ráðstöfun skattanna.á borgarbúa að tvö þekktustu húsin sem nú eru í byggingu i borginni, Ráðhúsið ( Tjörninni og hús Hitaveitunnar á Öskjuhlið kosta um fjóra miljarða, eða 500 - 600 miljónum meira en iarðgöngin á Vestfjörðum og ca. 100 miljónum meira en jarðgöngin og SS húsið, sem ríkið keypti fyrir listmenntun i landinu, til samans! síða 3 ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 20. apríl 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.