Þjóðviljinn - 16.05.1991, Side 6

Þjóðviljinn - 16.05.1991, Side 6
<9 Fylgist þú með um- ræðum um Evrópskt efnahagssvæði? Sigurður Sigurjónsson, leigubílsstjóri: Nei, ekki nógu vel. Þetta er ekki nógu vel kynnt. Björn Daníelsson, menntaskólanemi: Já, ég fylgist með þeim, því ég tel að það hafi mikil áhrif hvort fsland gengur inn í Evrópskt efnahagsvæði eða sækir um aðild aö EB. Málfríður Elídóttir, húsmóðir: Nei, það gerí ég ekki. Ólafur Kjartansson, verslunarmaður: Já, vegna þess að þetta varð- ar framtíð þjóöarinnar í heild. Ragnheiður Jónsdóttir, verðbréfasali m. meiru: Já, að sjálfsögðu geri ég það. Þessi mál gætu haft mikil áhrif á verðbréfa- og peningamark- aðinn og því læt ég ekkert fram hjá mér fara. Fkéthr Alvarlegum vinnuslysum I landbunaði hefur faekkað mjög og er það þakkað aukinni fræðslu og reglum um öryggishlífar á dráttarvélum. Hvar mega bömin vinna? Vinnueftirlit ríkisins hefur gefið út ítarleg- ar leiðbeiningar um hvaða störf börn und- ir 16 ára aldri megi vinna. Vinnuslys á börnum verða helst í fiskvinnslu og I landbúnaði. Athuganir á tíðni vinnuslysa hér á landi benda til að þau séu tiltölulega algengust í yngstu aldursflokkunum. Sigurður Þórarinsson deildar- stjóri hjá Vinnueflirlitinu scgir enn tíðkast að böm séu látin vinna við hættulegar vélar og þá sérstaklega flökunar- og roðflettivélar í frysti- húsum. Nýlegar tölur um vinnu- slys liggja ekki fyrir, en Sigurður kvaðst telja að þeim hefði fækkað mikið og þakkaði það helst betri og öruggari vélabúnaði í frystihús- unum. „Flestar vélar eru nú með ör- yggishlífar þannig að ef roð eða fiskur festist í hnífunum þá stöðv- ast vélin þegar hlífmni er lyft,“ segir hann. „Þetta er mjög mikill kostur og fækkar slysum. Það eru þó enn á markaðinum gamlar vélar sem eru ekki með þessum búnaði. Slysin vilja oft verða þannig að fiskur óklárast í flatningsvél og enda þótt það eigi að stoppa vélina til að ná honum úr, þá er það ekki gert og fólk fer með höndina inn í til að losa um hann.“ Hann sagði atvinnurekcndur hafa lekið tilmælum Vinnueftirlits- ins vel og af og til væri hringt inn til að fá upplýsingar um reglur varðandi þcssi mál. „Nú hafa þcir skýrar línur í höndunum um, hvaða vélar má leyfa bömum að vinna við,“ sagði Sigurður. I leiðbeiningunum em m.a. tal- in þau léttu og hættulitlu störf sem má ráða böm yngri en 14 ára til. Þau störf em talin létt sem ekki hafa í för með sér mikla líkamlega áreynslu, svo sem að lyfta eða bera þunga hluti eða flytja þá til. Hættu- lítil teljast þau störf þar sem ekki em notaðar vélar eða verkfæri sem geta haft hættu í för með sér, störf þar sem ekki cr hætta á falli eða þar sem ekki er unnið með eitur- efni eða önnur hættuleg efni. Sem dæmi um hættulitil störf má nefna sendla- skrifstofu- og verslunar- störf, hreinsun á lóðum og garð- yrkjustörf án véla. Einnig létt land- búnaðar- fiskvinnslu og iðnaðar- störf sem ekki tengjast hættulegum vélum. Hættulegar vélar,. sem ekki má láta unglinga á aldrinum 14-15 eða yngri vinna við, em m.a. vélar sem skera, merja, pressa eða þrýsta á efni eða hluti. Vinnueftirlitið hefur ásamt Umferðarráði og fleimm staðið fyrir árlegum dráttarvélanámskeið- um fyrir unglinga í þeim tilgangi að fækka vinnuslysum í landbún- aði. Námskeið þessi hafa verið vel sótt og í ár lærðu 100 böm á aldr- inum 13-16 ára á dráttarvélar. Flest koma þau af höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt lögum mega böm á aldrinum 13-15 ára ekki aka drátt- arvélum nema á túnum, en 16 ára unglingar mcga taka ökupróf á dráttarvél. Námskeiðshópiium er skipt í tvennt og fær yngri hópur- inn sjö bóklega tíma og tvisvar sinnum 30 mínútna reynsluakstur. Tíu manns vom í réttindahópnum og i vor tóku fimm drengir og fimm stúlkur próf á dráttarvél und- ir leiðsögn ökukennara. „Alvarlegum slysum í landbún- aði hefur fækkað mikið á undan- fömum árum,“ segir Haukur Söl- Landslið Islands skipað leik- mönnum 18 ára og yngri hélt af landi brott í fyrradag til keppni í Austurríki og Tékkóslóvakíu og mun liðið leika 5-6 leiki í ferð- inni sem er liður í undirbúningi liðsins i Evrópukeppninni. Liðið mun spila aðeins einn leik í Austurríki til að endurgjalda heimsókn þeirra hingað til lands í fyrra en þá unnu Islendingar lið Austurríkismanna 3:0 á Hvolsvelli. Síðan mun liðið halda til Tékkóslóvakíu þar sem það tekur þált í sterku móti sem haldið er í tilefni af áttatíu ára afmæli tékk- neska knattspymusambandsins. vason hjá Vinnueftirlitinu. „Aukin fræðsla og reglur frá árinu 1984 um öryggishlífar á dráttarvélar eiga mikinn þátt í því sem og breyttur hugsunarháttur fólks og aukið eftirlit." -vd. 1 riðli með íslenska liðinu em Rúmenía sem leikið verður gegn á morgun, 17. maí, gegn þýskalandi 18. maí, Grikklandi daginn eftir og síðan gegn úrvalsliði Slóvakíu þann 20. maí. Verði liðið í 1. eða 2. sæti í sínum riðli mun það leika um 1. eða 3. sæti mótsins þann 21. maí næstkomandi gegn einhverju eftirtalinna liða: Tékkóslóvakíu, ísrael, Tyrklandi, Póllandi eða Sovétríkjunum sem skipa hinn rið- ilinn. Þjálfari liðsins er Hörður Helgason. -grh Landslið 18 ára og yngri til Austurríkis og Tékkóslóvakíu CE MMBNk S mæmr i L co ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 16. maí 1991 Síða 6

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.