Þjóðviljinn - 16.05.1991, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 16.05.1991, Qupperneq 16
h.iÁni/(i fiAiii Auaivsinaar sj álf sákvörðunarréttar Stjórnarandstaðan er ekki sérlega hrifín af þeirri yfírlýsingu sem Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra undirritaði á dðgunum varðandi samninga um evrópskt efnaghagssvæði Evrópubandalagsins og Efta- ríkjanna og skýrt var frá í Þjóðviljanum í gær. Hún er talin visbending um að Island sé á leið með að afsala hluta sjálfsákvörðunarréttar síns, hún er talin sönnun þess að Island sé að stíga stórt skref inn í EB auk þess sem stjórnarandstaðan telur mörgum spurningum ósvarað varðandi samningagerðina en stefnt er að undirskrift í júnflok í Strassburg. Ölafur Ragnar Grímsson for- maður Alþýðubandalagsins sagði að tvennt væri athyglisvert varðandi fund EB og Efta um evrópskt efna7 hagssvæði í Brussel á dögunum. „I fyrsta lagi hefúr eljkert gerst varð- andi hagsmunamál Islands. Þau eru í nákvæmlega sömu sporum og fyrir einu og hálfu ári siðan. Þrátt fyrir allar viðræðumar og hátíðleg loforð Mitterands og Cossiga þá er niður- staðan að Jót] Baldvin fékk ekki neitt,“ sagði Ólafur Ragnar. Hann taldi það oftúlkun hjá Joni Baldvin að telja 15. grein yfirlýsingar fúndar- ins tryggja sérstöðu íslands þar sem Spánverjar gætu allt eins túlkað greinina sér í hag. „Hitt meginatriðið sem setur svip á þennan fúnd er mjög alvarlegt. Þao virðist af sameiginlegu yfírlýsing- unni að mun lengra hafi verið gengið af hálfu Efta til að afsala sér full- veldis- og sjálfsákvörðunarrétti en fyrri ríkisstjóm hefði nokkm sinni heimilað. Það vekur upp þá spum- ingu hvort Sjálfstæðisflokkurinn hafi heimilað utanríkisráðherra svo við- tækt fúllveldisafsal sem hann virðist hafa skrifað undir á fundinum,“ sagði Ólafúr Ragnar og benti á orð forsætisráðherra Noregs um að þyrfti samþykki 3/4 þingmanna Stórþings- ins til að samþykkja samninginn. Hann gagnrýndi að með yfirlýsing- unni má,ráða að lög EB verði æðri löggjöf Islands auk þess sem dóm- stoll svæðisins yrði æðri íslenskum dómstólum. En hann sagði einnig að yfirlýsingin væri óskýr um mörg at- riði og að vonandi væri það oftúlkun hjá sér að Efta-ríkin hefou látið und- an EB í fjölmörgum kröfum ríkj- anna. Kristín Einarsdóttir sagði að yfir- lýsingin væri staðfesting þess sem Kvennalistakonur hefðu sagt frá upphafi að verið væri að taka stórt skref inní Evrópubandalagið. „Þama er gert ráð fyrir því að lög Evrópsks efnahagsvæðis verði æðri lögum landsins," sagði hún og bætti við að hún taldi dómstólinn fyrirhugaða sennilega bijóta í bága við stjómar- skrá íslands. Hún sagði að yfirlýsingin hefði ekki komið sér á óvart því þetta hefði hún, Kvennalistakonur og aðrir verið að segja i þinginu að undan- fömu og væri að koma æ skýrar í ljós. Hún sagði að fyrirvarar 1 íyrri ríkisstjómar hefðu verið sáralitlir enda hefði Jón Baldvin ekki kannast við aðra fyrirvara en hugsanlega í Alþýðubandalaginu. Þá benti hun á að utanríkisráð- herra talaði ekki um annað en físk í þes^u sambandi en léti vera að ræða að Island væri með þesu að afsala sér stómm hluta sjálfstæðis síns. „Það má minna á orð forseta fram- kvæmdastjómarinnar íyrir nokkrum árum þegar hann sagði að það myndi koma þingmönnum aðildarrríkja EB á óvart þegar þeir myndu uppgötva nokkmm arum síðar að þeir væm búnir að missa öll völd,“ sagði Krist- in. Steingrímur Hermannsson for- maður Framsóknarflokksins taldi yf- irlýsinguna skilja eftir ótal spuming- ar þó nann vilcfi fagna því að ekkert heiöi verið gefíð eftir í sjávarútvegs- málum. Steingrímur taldi vanta svör við því hvort tryggt væri að ekki væri opnað á landakaup útlendinga, og hvort enn væm fyrirvarar varð- andi virkjanarétt. Einnig spumingar mn íjárfestingar útlendinga og hvort ný lög um það efni héldu. Þá taldi hann mörg atriði þarfnast skýringa til dæmis varðandi félagsmál og hvort lög EB ættu að gilda í þeim efnum en hann telur lögunum viða ábóta- vant i löndum EB. Þá taldi Steingrímur nauðsynlegt að fá upplýst hvort utanríkisráðherra hefði fullt umboð til samninga utan fyrirvara i sjávarútvegsmálum. En Jón Baldvin ætti að geta svarað ein- hverjum þessara spurninga í dag þegar málið verður rætt í sameinuðu pingi. -gpm I fararbroddi gegn losun geislavirks úrgangs Fyrir fundi aðildarríkja að Parísarsamkomulaginu um mengun sjávar, sem haldinn verður í næsta mánuói, ligg- ur fyrir tillaga frá Islandi um að reglur verði settar um geymslu og losun geislavirkra úrgangsefna og annars efnaúrgangs undir sjávar- botni, en bresk stjórnvöld hafa uppi áform um að sniðganga al- þjoðasamþykktir um losun slíkra efna með því að koma þeim fyrir undir sjávarbotni annað hvort við kjarnorkuendurvinnslustöðina í Sellafield á vesturströnd Englands eða við Dounreay í Skotlandi. Að sögn Eiðs Guðnasonar, von- ast hann til þess að fundur aðildar- ríkja Parísarsamkomulagsins fallist á þessa tillögu, en sömu tillögu lögðu Islendingar fram á fúndi að- ildarríkjanna i fyrra. - Eg reikna með því að við fá- um í þessari viku jákvæð viðbrögð ffá sumum hinna nkjanna sem aðild eiga að samkomulaginu, svo sem eins og hinum Norðurlöndunum, en Norðmenn hafa þegar lýst sig íylgj- andi, tillögunni, sagði Eiður. í gær sendi starfshópur sem kallar sig Northem European Nucle- ar Information Group eða Kjam- orkuupplýsingamiðstöð N- Evrópu og hefur aðsetur í Leirvík á Hjalt- landseyjum, ífá sér yfirlýsingu ttl ís- lenskra yfírvalda og Qölmiðla þar sem lýst er velþóknun á tillöguflutn- ingi stjómvalda. - Það er fúll ástæða til að þakka íslendingum fyrir að eiga frum- kvæði að því að reglugerð verði sett um losun geislavirkra úrgangsefna undir sjávarbotni og Norðmönnum fyrir stuðning við tillöguna, sagði Chris Bunyan, talsmaður starfshóps- ins. - Við vonum sannarlega að aor- ar þjóðir feti í fótspor þeirra. -rk Breskur tundurspillir í vmáttuheimsókn Tundurspillirinn HMS York, ur flota hennar hátignar bretadrottn- ingar, lcggst að höfn í Reykjavík í dag og dvel- ur hér fram á annan í hvíta- sunnu en skipið er hér í kurteis- isheimsókn. TundurspiIIirinn er Manchester United bar sigurorð af Barcelona í Evrópukeppni bikarhafa með tveimur mörkum gegn einu í stórskemmtilegum úrslitaleik í Rotterdam í gær- kvðldi. Maður leiksins var án efa velski landsliðsmaðurinn Mark Huges sem skoraði bæði mörk Manchesterliðsins í seinni hálfleik þó Steve Bruce hafi átt allan heið- urinn að því fyrra með kröftugum skallabolta sem stefndi í spænska markið. Það var svo hoílenski landsliðsmaðurinn Ronald Koeman sem minnkaði muninn fyrir Barcel- ona með gullfallegu marki, beint úr aukaspvmu þegar um tíu mínútur voru tif leiksloka. Eftir það press- aði Barcelona stíft og minnstu munaði að liðið næði að jafna leik- inn á lokamínútunni þegar leik- útbúinn til að bera kjarnorku- vopn, en staðhæft er af hálfu breskra hermálayfirvalda að engin slík vopn seu um borð í skipinu á friðartímum. Þrátt fyrir eftirgrennslan Þjóð- viljans tókst ekki að fá upplýsingar í Utanríkisráðuneytinu í gær hvort menn Manchester björguðu á marklínu. Leikmenn Barcelona lék einum færri síðustu mínútur leiksins þegar einn varnarmanna þeirra fékk að líta rauða spjaldið auk þess sem bæði liðin fengu að sjá gula spjald- ið einu sinni. Dómari leiksins var sænskur og hafði hann góða stjóm á honum allan tímann. Þetta er i annað skipti sem Manchester United verður Evrópu- bikarmeistari en það var síðast fyrir rúmum tuttugu ámm. Ennffemur er þetta í annað sinn sem Alex Ferg- usson þjálfari liðsins stiórnar liði sínu til sigurs í Evrópukeppninni, en það gerði hann fyrir átta ámm þegar hann var við stjórnvölinn pegar skoska liðið Aberdeen sigr- aðt Real Madrid. -grh gengið hafi verið úr skugga um það af hálfu íslenskra yfirvalda að tryggt væri að skipið væri ekki með kjarnorkuvopn um borð, en samkvæmt samhljóða ályktun Al- Íingis frá 1985 er skipum búnum jamorkuvopnum þheimilt að sigla inn fyrir landhelgi Islands. I fréttatilkynningu sem Samtök herstöðvaandstæðinga hafa sent ffá sér af tilefni heimsóknar HMS York segir að samtökin átelji ís- lensk stjomvöld fyrir að leyfa slíku skipi að koma til hafnar hér á landi án þess að gengið hafi verið úr skugga um að engin kjamorkuvopn séu par innanborðs. „Samtökin benda á að það dug- ar ekki að berjast einungis gegn endurvinnslustöðvum fyrir kjam- orku í Skotlandi ef hersicipum er á sama tíma leyft að koma með kjamorkusprengjur inn í íslenskar hafnir." Meðan á dvöl skipsins stendur verður m.a. haldið um borð boð fyrir hóp af bömum úr Öskjuhlíð- arskóla. Þá verður skipið einnig til sýnis almenningi á hvítasunnudag millj kl. 14 og 16. I fréttatilkynningu frá breska sendiráðinu segir að skipið sé 4600 rúmlestir að stærð. Skipið er undir stjóm kapteins Anthonys G. McE- wen, en í fréttatilkynningunni er hann sagður áhugasamur silungs- veiðimaður og leggur stund á töfra- brögð f frístundum. -rk Manchester United Evrópubikarmeistari ÞeirTryggvi Jakobsson, Ásgeir Guðmundsson, Gunnar Jónsson, Eirikur Þ. Einarsson, Karl Gunnarsson og Jakob Jakobsson standa að útgáfu námsefnis um lífrlki sjávar. Mynd: Kristinn. Nýtt námsefni um lífríki sjávar Hafrannsóknastofnun og Námsgagnastofn- unvinna nú sameigin- lega að útgáfu náms- efnisins: Lífríki sjávar. Þetta eiga að verða u.þ.b. 40 bækling- ar. Hver um sig verður 4- 12 síður að lengd og útgáfu verður lokið árið 1993. Þetta efni er ætlað efstu bekkjum grunnskóla og getur jafnvel hentað í framhaldsnámi. Sérfræðingar Hafrannsóknastofn- unar semja efhið en Námsgagna- stofnun annast útgáfuna. Það er ánægjulegt til þess að vita að þessar tvær stofnanir skuli hafa tekið upp þetta samstarf. Sambandsleysi við umhverfið hefur löngum verið eitt af alvar- legustu vandamálum íslenska skólakerfisins og ekki þarf lengi að ræða mikilvægi þess að útvega ungu kynslóðinni góðar upplýs- ingar um lífriki sjávar. Fjórir fyrstu bæklingamir eru nú korrm- ir út. Það em bæklingamir Lúða og Steinbítur, eftir Gunnar Jóns- son, Klóþang eftir Karl Gunn^rs- son og Dýrasvif eftir Ólaf Ast- þórsson. Þessir fjórir bæklingar em fallegir og aðgengilegir í út- liti. Málfar er skýrt og gott. Gunnar Jónsson telur til skemmt- unar upp þau margvíslegu nöfn sem lúðunni hafa verið gefin, t.d. alfiskisflyðra, langflaka og kvöm, svo að nokkuð sé nefnt. Vonandi verður útgáfú þessa námsefnis fylgt fast eftir. Verði næstu hefti eins góð og þau sem komin eru þá hefur hlaupið á snærið hjá kennurum og nemend- um. Það má í lokin geta þess að von er á meira efni fyrir sama aldursstig. Námsgagnastofhun og atvinnurekendur í sjávarútvegi em að undirbúa útgáfu 15 mín. myndbands og nemendaheftis um veiðar, vinnslu og sölu sjávar- fangs. -kj

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.