Þjóðviljinn - 24.05.1991, Blaðsíða 8
N$n
þJOÐVILJINN
Útgefandi: Útgáfufélagið Bjarki h.f Framkvæmdastjóri: Hallur Páil Jónsson Afgreiðsla: »66 13 33 Auglýsingadoild: t» 68 13 10 - 68 13 31
Rltstjóran Ami Bergmann, SímfaK: 68 19 35
Helgi Guðmundsson Verð: 150 krónur (lausasöiu ' v f\'
Fréttastjóri: Slgurður Á. Frlðþjófsson Sotnlng og umbrot: Prentsmiðja Þjóöviljan Prentun: Oddí hf. hf.
Auglýsingastjóri: Steinar Harðarson Aðsetun Siðumúfa37,108 Reykjavík
Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis
Sterk skilaboö
A fundi Alþýðubandalagsins í Reykjavík í
fyrrakvöld komu fram sterk skilaboð til vinstri-
manna og jafnaðarmanna í fjölmennasta
kjördæmi landsins. Á fundinum var Gunn-
laugur Júlíussson kjörinn formaður félagsins
og var hann kjörinn einróma svo og öll stjórn
félagsins. ( stjórnarkjörinu endurspeglast vilji
alþýðubandalagsmannna í Reykjavík til þess
að skapa forsendur fyrir áframhaldandi sókn
sem hófst í kosningabaráttunni fyrir alþingis-
kosningarnar síðustu. í ályktun aðalfundarins
er jafnframt ítrekaður vilji félagsins til þess að
stuðla að samstöðu gegn hægri öflunum
hvort sem þau birtast í borgarstjórn Reykja-
víkur eða í landsstjórninni þar sem Skjálf-
stæðisflokkurinn og Jón Sigurðsson hafa
töglin og haldirnar um þessar mundir eins og
best kemur fram í vaxtahækkunum síðustu
sólarhringana.
Það er fagnaðarefni er Alþýðubandalagið í
Reykjavík skipar sér í forystusveit þeirra sem
vilja efna til samstöðu gegn hægriöflunum
hvar sem þau birtast. Sú forysta verður að
vísu ekki til nema í samstarfi við aðra aðila
eins og fram kom rækilega á aðalfundin-
um.En Alþýðubandalagið í Reykjavík er
reiðubúið til að beita sér fyrir því samstarfi.
Þjóðviljinn óskar nýrri stjórn félagsins í
Reykjavík velfarnaðar í starfi um leið og frá-
farandi stjórn undir forystu Sigurbjargar
Gísladóttur er þökkuð framúrskarandi störf
við erfiðar aðstæður. Fyrir réttu ári skiptust
þeir sem áður höfðu verið stuðningsmenn Al-
þýðubandalagsins í Reykjavík á tvo lista í
borgarstjórn. Það var því erfitt og flókið verk-
efni að taka við stjórn félagsins. Við bættist
svo að upp komu margvísleg erfið verkefni
sem ríkisstjórnin varð að taka á á sl. kjörtíma-
bili. Þegar kom að undirbúningi alþingiskosn-
inganna voru þeir æði margir sem töldu úti-
lokað að ná samstöðu um listaskipan Alþyðu-
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að kanna
hugsanlega aðild íslendinga að evrópsku
myntsamstarfi. Það hljómar sakleysislega en
jafngildir ákvörðun um að banna íslenskum
stjórnvöldum að hafa áhrif á gengisskráningu
íslensku krónunnar. Þannig yrði ekki unnt að
breyta gengisskráningu vegna vanda at-
vinnuveganna þrátt fyrir yfirvofandi atvinnu-
leysi. Hér er því tvímælalaust um alvarlegan
bandalagsins í Reykjavík eftir það sem á und-
an var gengið. Það tókst og kosningatölurnar
sýndu að það munaði ekki miklu að þriðju
maðurinn næði kjöri í alþingiskosningunumm
í stærsta kjördæmi landsins. Þegar kjörfund-
aratkvæðin ein voru skoðuð kom reyndar í
Ijós að samkvæmt þeim var þriðji maðurinn
inni, sem sýnir að G-listinn I Reykjavík var I
verulegri sókn.
Alþýðubandalagið í Reykjavík er stærsta
kjördæmisfélag Alþýðubandalagsins og þró-
un mála í Reykjavík hefur áhrif á stöðu og
þróun flokksins á landinu öllu. Þess vegna er
það ekki aðeins fagnaðarefni fyrir Alþýðu-
bandalagsmenn í Reykjavík heldur flokkinn á
landsvísu ekki síður að tekist hefur að skapa
forsendur fyrir sterku félagsstarfi í Reykjavík
á komandi misserum. - s.
hlut að ræða sem nauðsynlegt er fyrir alla að-
ila að horfast í augu við og koma í veg fyrir.
Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að setja af
stað sérstaka könnun á aðild íslendinga að
evrópsku myntsamstarfi þýðir að stefnt er að
ákvörðun um að fella niður íslensku krónuna
í raun. Þá verður aðeins sýndarmennska að
hafa stórmenni sögunnar eins og Jón forseta
á íslenskum peningaseðlum. - s.
Burtmeð Jónforseta
af peningaseðlunum
TÍLBlAVNN?
y t \ ^
* V. L V. V V. '
V V V* L \' V. S»V.«u.k-w *
V t «. . » , i c *
\\, \//í>
ty/i/Y.'Uwmví'j'VKrr '
8.SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 24. maí 1991