Þjóðviljinn - 24.05.1991, Síða 16
Kveðja
/7
Maja: Seinasta prófið og ég þarf bara að
muna: Hvemig myndast ský og regndrop-
ar?
ÆNSNAPRIKW
. ■'iv ■ | ,■ ■ - . 1 \ " ■ ' 1 1| r , M
Kæru
krakkar!
Ósköp er gott, þegar vorið er
komið , og skólastarfi vetrarins að
Ijúka. Ég vona að ykkur hafi gengið
vel í prófum og veturinn kennt ykkur
eitthvað nýtt og gagnlegt. Og einmitt
núna eru lömbin að fæðast og fugl-
arnir famir að stunda hreiðurgerð og
þá togar sveitin í suma.
Ingunn Ásta Sigmundsdóttir er
eitt þeirra Reykjavíkurbarna, sem er
svo heppin að eiga afa og ömmu í
sveit. Hún fer til þeirra á hverju sumri
og þekkirjafn vel lífið á landsbyggð-
inni og í borginni. Hún sendi
Hænsnaprikinu þessa athyglisverðu
sögu. Teikningin er eftir hana.
Ingunn Ásta Sigmundsdóttir, 12 ára
Sumar í sveit
Hildur og Leifur fundu í. sumar
andarhreiður með einu eggi. Öndin lá
dauð og stirðnuð skammt frá hreiðr-
inu. Fyrst vissu þau ekki, hvað þau
ættu að gera við eggið. Allt í einu datt
þessum 9 ára tvíburum í hug að taka
eggið heim. Þá sagði Hildur: „Settu
það í húfuna þína svo að unganum
verði ekki kalt innan í skurninni." Leif-
ur gerði það. Svo byrjaði Hildur að
lýsa því fyrir Leifi, hvað þau skyldu
gera við eggið og ungann á leiðinni
heim. Hún sagði: „Við skulum alltaf
eiga hann og við skulum leika okkur
með hann, klæða hann í dúkkuföt og
láta hann keyra í kassa í bílnum þín-
um stóra, manstu sem pabbi gaf
þér?“ Þá segir Leifur: Já, ég man eftir
bílnum, ég vildi aldrei leika mér með
hann, af því það var enginn bílstjóri.
En þegar þau komu heim með
eggið sagði mamma þeirra þeim, að
það væri ekki hægt að loka ungann
frá sínu eðlilega umhverfi, en hún
sagði þeim líka að kannski væri ung-
inn dáinn úr kulda. En það mætti at-
huga hvort hann væri dáinn eða ekki.
Hún sagði þeim að sækja kassa og
hana Dínu hænu, sem var nýbúin að
verpa og láta hana liggja á egginu og
unga því út.
Eftir 5 daga var unginn að reyna
að brjótast út úr egginu og börnin
gláptu nærri því úr sér augun og voru
að springa úr forvitni og vildu helst
brjóta eggið fyrir ungann og sjá hann
en mamma sagði, að hann mundi
verða að gera þetta sjálfur. Allt í einu
kom lítið tíst, en hænuungarnir göptu
af undrun yfir þessu fóstursystkini og
gláptu af forvitni á sundfitin sem voru
á milli tánna.
6 vikum síðar fór hænumamma
með ungana sína 3 og fósturungann
líka út að ganga meðfram læknum,
þar sem Hildur og Leifur höfðu funduð
andarungann. En hann fór strax að
synda. Hann fann á sér að hann gæti
það. En þá kom allt í einu rámt garg
frá honum. Honum fannst þetta stór-
skrýtið, en Dínu hænumömmu brá
svo mikið og ungunum líka að þau
hlupu í burtu.
Daginn eftir fór hún ein að gá að
litla andarunganum. Hún sá hann
synda einmanalegan og leiðan. Hún
gaggaði til hans og hann hljóp til
hennar og sagði henni, hvað honum
hefði verið kalt. En Dína sagði að hún
hefði verið að hugsa um hann alla
nóttina og verið hrædd um hann. Þau
föðmuðust og héldu saman heim.
Símasambandið
- Eyja, þetta er Óli Helgi.
- Sæll vinur. Hvernig gengur í
prófunum?
- Ég veit það ekki. Bara ágæt-
lega.
- Ertu stressaður?
- Ekkert voðalega. Maður þarf nú
ekkert að vita allt.
- Nei, nei. Aðalatriðið er að nota
vel, það sem maður veit.
- Heyrðu, Eyja?
- Já.
- Af hverju var þessi maður drep-
inn á Indlandi?
- Áttu við Rajiv Gandhi?
- Já. Af hverju var hann drepinn?
- Ég veit það ekki Óli minn. Það
er flókið mál.
- Var hann vondur.?
- Það held ég ekki. Ég held að
hann hafi frekar veriö nokkuð góður
maður. Hann átti merka konu fyrir
móður, Indiru Gandhi. Hún var líka
drepin, því miður.
- Eru konur líka drepnar?
- Já, það kemur fyrir, þó það sé
sjaldgæft að stjórnmálakonur öðlist
svo mikil völd að það setji þær í lífs-
hættu.
- Er svona hættulegt að vera
stjórnmálamaður?
- Nei, nei, ekki dags daglega. En
það er hættulegt að hafa mikil völd yf-
ir mörgu fólki. Sá sem hefur mikil völd
og misbeitir þeim með einhverjum
hætti, hann eignast skæða óvini.
- En var hann þá svona vondur?
- Það er ómögulegt fyrir stjórn-
málamann að gera alltaf svo öllum
líki.Það eru alltaf einhverjir sem
verða útundan og finnst þeir rangind-
um beittir. Og Indland er risastórt
land, þar sem búa mörg hundruð milj-
ónir manna. Margir eru mjög fátækir
og réttlausir. Það er geysilega erfitt
og varla hægt að stjórna svo stóru
landi af réttlæti.
- Það var sagt í Sjónvarpinu að
það hafi verið stelpa sem færði hon-
um blóm með sprengju í. Heldurðu
að hún hafi vitað að hún átti að drepa
hann?
- Nei. Áreiðanlega ekki. Og það
er alveg ótrúlega samviskulausir
glæpamenn, sem misnota barn með
þesum hætti. Það er hrikalegt.
- Hún dó líka.
- Já, auðvitað dó hún líka. Og
reyndar margir fleiri.
- Ég ætla ekki að verða stjórn-
málamaður, þegar ég er orðinn stór.
- Það á nú að vera öllu óhætt á ls-
landi, Óli minn.
- Ég ætla samt ekki að verða
stjórnmálamaður.
- Enda nógur tími til stefnu fyrir
þig, þó þú skiptir um skoðun seinna.
Og farðu bara út í vorblíðuna og
leiktu þér.
16 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 24. maí 1991