Þjóðviljinn - 24.05.1991, Page 19

Þjóðviljinn - 24.05.1991, Page 19
 / Bíil, ó bíll, hvert ekur þú meö mig? Það var haft eftir Sigurði Helga- syni hjá Umferðarráði að það kostaði að meðaitali um 400 þúsund krónur á ári að reka bíl. Það var látið fylgja með að fram- færsla einstaklings á ári kostaði nú um 470 þúsund. Og þá er að spyija fyrst: Er sá meðaltalskostnaður fenginn með því að draga frá allan kostnað af því að reka bílaflotann? Spyr sá sem ekki veit. En hvað um það: 400 þúsund er mikið. Og ef við höfum það í huga að íslendingar eiga fleiri bíla en allar aðrar þjóð- ir í Vestur-Evrópu, þá er það ljóst að bílakostnaðurinn gerir ekki lit- ið strik í allan lífskjarareikning. Ekki að undra þótt fólk sé að segja, að það hafl ekki ráð á meiru þótt tvær fyrirvinnur séu í íjöl- skyldu en það hafði þegar fýrir- vinnan var ein. Það gleymir þá að reikna bílinn inn í dæmið. En hann gleypir náttúrlega mjög stóran hluta af tekjum annarrar fyrirvinnunnar. Gleymum því ekki heldur að það er mjög al- gengt að tveir bílar séu í fjöl- skyldu. Frelsi bílsins Og er nú mál til þess komið fyrir löngu að snúa gamalli heim- spekispumingu upp á þetta höf- uðhnoss samtímans. Hún gæti þá hljóðað sem svo: Hvers vegna eru þeir sém ekki öiga bila ekki ríkari en þeif sem eiga bíla? Svari nú hver fyrir sig. Bílar eru vitanlega merkileg- ustu tæki. Þeir eru hið sanna tákn og ímynd ffelsisins: Þú getur sest upp í þína bifreið og brunað eins og Þór, að sönnu ekki um himin- hvolfm, en um allar trissur aðrar og ræður sjálfur hvenær þú ert á ferð og hvert er haldið. Enginn þeirra sem hefur vanið sig á að segja „blikkbelja“ með mikilli fyrirlitningu (vel á minnst: hvers eiga kýmar að gjalda?) ætti að gleyma einmitt þessu: Bíllinn er frelsið. Hann er líka vald hinna valdlausu: vald yfir vegi og hraða, sönnun á því að þú ert maður með mönnum. Böl og þraut En svo er billinn í vaxandi mæli að verða að böli og þraut, því er nú fjandans ver. Hann for- pestar andnimsloftið. Hann eykur hávaða. Hann sólundar orku. Og það sem undarlegast er: hann flýt- ir ekki lengur fyrir fólki. I stór- borgum hinna ríkari landa er svo mikið af bílum, að þegar allir hoppa upp í sinn bíl og fara í vinnvma (eða heim úr vinunni) þá kemst enginn áfram. Allt stendur fast. Meðalbílstjóri í þýskri borg eyðir 70% af keyrslunni í borg- inni sjálfri í það að finna sér bíla- stæði. Þýskur meðalbílstjóri eyðir líka einum 65 klukkustundum á ári í að bíða í umferðarþvögum þegar ekkert gengur eða rekur. Þetta hefur það m.a. í for með sér að meðalhraði bíla sem aka um Parísarborg er 15 kílómetrar á klukkstund (hjólríðandi fólk kemst greiðar áfram). I Aþenu er hraðinn kominn niður í sjö kíló- metra á klukkustund, og þá er al- veg eins gott að labba. Ekki er von á góðu Menn eru nú að ranka við sér og átta sig á því að umferðarstefn- an hefur verið röng. Allt hefur þjónað þeim tilgangi að allir kæmust allt á sínum einkabíl. Al- menningssamgöngum hefur hnignað að sama skapi. Og ef svo heldur áfram sem horfir, þá er von á meiri hrellingum. Loftmengun frá bílum i þettbýlum löndum Evrópu mun aukast um 75% ffam að árinu 2010 og það er meira en fólk fær þolað. Umferð í Þýska- landi mun aukast um 40% ffarn til aldamóta, og kemur þar mjög til stóraukin keyrsla með vaming út og suður um hagvaxtarins Evr- ópu. Það er meira en veganetið þolir, hve miklu af peningum sem menn annars kjósa að demba í það. Bflahöfðingjar iðrast Og því bregður nú svo við, að það drífa yfir þá sem áhuga hafa skýrslur sem eru afar gagnrýnar á bílapólitíkina. Bílamir em að eyðileggja borgir okkar og þeir em um margt afar óheppilegt samgöngutæki, segir í einni skýrslu. Og það er ekki einhver græningjahópur sem tekur saman slíkt skjal, heldur FIAT, einhver stærsti bílaffamleiðandi heims. FIAT kemst að þeirri niður- stöðu að það verði að snúa við blaði. Það verði að takmarka að- Arni Bergmann gang einkabílsins að miðborgum. Það verði að stórbæta almenn- ingssamgöngur. Og FIAT er ekki með neina sérvisku: sömu viðhorf hafa komið ffam hjá forstjóra Volvo, Gyllenhammer, forstjóra Renault í Frakklandi og forstjóra Volkswagenverksmiðjanna í Þýskalandi. Þetta em óvitlausir menn og vita að þeir verða að fylgjast með. Þeir verða að vera því reiðubúnir að spurt verði um öðmvísi farartæki. (Svona karlar taka í rauninni við nokkmm nauðsynlegum hugmyndum um áætlanagerð ffam í tímann, sem sigldu í strand í skriffæði eins- flokkskerfisins austurevrópska.) FIAT er að smíða nýjan díselmót- or sem mengar minna en aðrar vélar. Peugot hefur sett sér það mark að gera sína bíla 20% spar- neymari en þeir nú em. Renault hamast sem mest við að smíða nothæfan rafmagnsbíl. Aö borga brúsann Allir búast bíljöframir við því (og telja það sjálfsagt) að bílanot- endur verði í vaxandi mæli látnir borga fyrir það sem umferðin kostar. Svo hefur ekki verið áður: það hefur verið of vinsælt í pólit- ík að gera einkabílinn sem ódýr- astan, og enn í dag þorir enginn bandarískur stjómmálamaður að rétta við helauman fjárhag ríkis- ins með því að hækka þó ekki væri nema lítillega bensíngjöld. En semsagt: menn telja að þessu komið. Umhverfismálakomissar Efnahagsbandalagsins (skrýtið að EB-ráðamenn skuli bera sama tit- il og ráðherrar í fyrstu stjóm bol- sevíka eftir byltinguna 1917) - hann heitir Carlo Ripo di Meana - boðar nú tillögur um nýja EB- skatta og gjöld á einkabíla og á bensín. Peningamir eiga að fara í það að kosta róttæka breytingu á umferðarkerfi Evrópu um leið og bíleigendur verða látnir borga meira fyrir mengunina sem þeir valda. Di Meana segir: „Því verður ekki með nokkm móti haldið fram að bílanotendur borgi það verð sem samvarar af- leiðingum bílaumferðar fyrir um- hverfið." Slagur stendur sem hæst En þar með er ekki sagt að hugmyndir umhverfiskommiss- arsins nái fram að ganga. Um alla Evrópu er staðið í stórffam- kvæmdum eða lagt á ráð um slík- ar - sem munu allar auka umferð að miklum mun. Hér má til nefna göng undir Ermarsund, hina um- deildu brú yfir Eyrarsund, ný jarðgöng undir fjallaskörðin í Sviss og nú síðast er viðruð ítölsk hugmynd um beint samband Sik- ileyjar við meginlandið. Og það er ekki neinn skortur á reikni- meisturum sem „sanna“ að hver framvkæmd um sig sé góð og verði til blessunar, giftum sem einhleypum, og lyfti hagvextin- um margræmda, sem enginn fæst enn til að reikna út á heiðarlegan hátt: með öllum áföllnum kosm- aði. Jón Thor Haraldsson: Kominn væri nú ef koma hygði Mörlandinn, með öllu sínu tóm- læti, hefur löngum hjátrúarfullur verið. Kirkjan, að því er ætla mætti mettuð af „andatrú" og öðru álíka kukli, hefur verið borin þeim sökum að „svíða vængi við djöf- uls dyr“ og „draugæra kristinna safnað". Og það er gripið til margvísleg- ustu ráða. „Hundrað sannanir fyrir framhaldslífi“ hefur mér jafnan þótt einhverbjálfalegasti bókartitill allra tíma; ein væri nóg, ef bara stæðist. - Hafa menn annars nokkum tíma út í það hugsað, hvaða afleið- ingar það hefði, ef virkilega tækist að færa sönnur á framhaldslíf? Ég tala nú ekki um, ef eitthvað reynd- ist hæft í „Karma-lögmálinu“ blessuðu. Tilraunastarfsemin er raunar al- gömul orðin, ef marka má Jóms- víkinga sögu. Orrustunni í Hjör- ungavogi lýkur með fullum sigri Hákonar jarls, og Jómsvikingar eru drepnir hver af öðrum, „höggnir úr streng" sem hefur verið nánast færiband þeirra tíma: Síðan er leiddur til höggs hinn sjöundi maður, og spyr Þorkell hann, hversu gott hann hygði til dauðans. „Eg hygg allgott," sagði hann, „og þykir mér vel til bera, en það vilda eg, að þú veittir mér, að þú hyggir sem skjótast af mér höf- uðið, en eg hélda á einum tygilkn- ífi, því að vér Jómsvíkingar höfum oft rætt um það, hvort maður vissi nokkuð, þá er af færi höfuðið, ef maður væri sem skjótast höggvinn. Og nú skal það til marks, að ég mun fram vísa knífinum, ef ég veit nokkuð frá mér, ellegar mun hann falla þegar niður úr hendi mér, en þú lát það eigi av skorta, er þú skalt að vinna, að þú högg höfuðið svo skjótt af mér, að það megi reynt víða fyrir þá sök .“ Og nú höggur Þorkell svo, að þegar fauk höfuðið af bolnum, en loiifurinn féll á jörð niður, sem líklegt var. „Sem líklegt var“ stendur þar. Ekki er núvíst, að allir fallist á það, en þegar ég renndi yfir þessa fomu frásögn nýlega, riíjaðist upp fýrir mér annað atvik öllu nýrra. Það hefur trúlega verið á öndverðum sjötta áratug aldarinnar, að haldinn var í útvarpi umræðufundur um meint „framhaldslíf1. Þá skýrði Hákon Bjamason, skógræktar- stjóri, ffáþvi, að hann hefði í fómm sinum bréf, gott ef ekki innsiglað, frá Stephani G. Stephanssyni, sem þá heftir verið dáinn eitthvað á þriðja áratug. Stephan hafði, minn- ir mig, sagst mundu eftir dauða sinn koma ffarn á miðilsfundi, væri þess nokkur kostur. I bréfinu stæði skrifað, hvað Stephan ætlaði að segja, og sanna þar með „líf‘ sitt „bak við“ dauðann, ef svo má að orði komast. Trúlegast þykir mér, að Hákon hafi fengið bréfið frá föður sínum, Agúst H. Bjamasyni, prófessor, en þeir Stephan vom vinir. Því er skemmt frá að segja, að til Steph- ans hafði ekki heyrzt „stuna né hósti" að handan. Muni ég rétt, og það er orðið anzi langt um liðið, varð fátt um svör hjá „andatrúuð- um“. Þeir sögðu eitthvað á þá leið, að það væri svo sem enginn kom- inn til með að segja að Stephan G. væri „interessaður“ lengur! Og nú langar mig til að spyija: Er ekki kominn tími til að birta þetta bréf, sem mér þykir sennileg- ast að einhver af niðjum Hákonar Bjamasonar varðveiti? Ekki er bréfasafn skáldsins fullfrágengið meðan það vantar. - Og varla von til þess lengur, að skáldinu skjóti í bráð upp á einhverri miðilssam- komunni. Verður ekki að gera ráð fýrir þvi, með orðum Völsunga- kviðu hinnar fomu, að Kominn væri nú/ ef koma hygði...? Föstudagur 24.maí 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 19

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.