Þjóðviljinn - 24.05.1991, Qupperneq 20
7 z 3 s (o 7 3 52 *ó T~ °1 io 52 H
/X í 7- S2 /3 // w n- 'V 52 10 7 /<? 10
lci 22 20 y 1Q X/ 52 19 2 % /7 52 1 7 21
JZ- Ý ZD XI T 7 9 2) 21 52 7 i 13 /5 V
52 4 T' T~ 10 52 /7 7 9 12 9 3 52 JT~ T2
W y\ + 1(* 2 7 T 3 W 7 /7 T 13
w T 19- 11- llo 5? zsr ib n> 52 21 X lí U?
10 9 3 17- V 19 29 3 W 2<e V 13 21- n
T /9 Zl 7- ÍÐ 52 /3 7- 10 22 25' /B 7 17- V
2 Zá> lt> 52 X Z3> 7 3 5? 22 3 2S 52 7 i
2<7 V /7 s ]9 V 20 V 30 3 7 n 7 Ý Jt
13 7 w 20 2sr W IX 3 22 22 7- 10 IV
jy isr 5? /s 7- /9 V 2S ' /9 2i /7 2S /s
AÁBDÐEÉFGHlfjKLMNOÓPRS TUÚVXYÝÞ/FÓ)
Krossgáta nr. 148
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá götu í Kópavogi.
Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Siðumúla 37,
108 Reykjavlk, merkt „Krossgáta nr. 148“. Skilafrestur er þrjár vikur.
Verölaunin verða send til vinningshafa.
21 7 3 25 22 13 )ð )í
tugteiöin tit
Jtþngdad
MCin <k
***** J%M~€*ÍÞ**.t4Í>**«i
i &
Lausnarorð á krossgátu nr. 144 var Smáraflöt. Dregið var úr réttum Verðlaun fyrir krossgátu nr. 148
lausnum og upp kom nafn G. Óskarssonar, til heimilis að Skarðsbraut eru „Flugleiðin til Bagdad“ eftir Jó-
19, Akranesi. Hann fær senda bókina ( pokahorninu eftir Kart Helgason. hönnu Kristjónsdóttur. Vaka-
Vaka- Helgafell gaf út 1990. Helgafell gaf út 1991.
Sigurður
Palsson
MEÐ FLUGU
í HÖFÐINU
Hún er ábúðarmikil
þessi fluga, úfín og lit-
sterk.
Aður en ég fjalla um
hana verð ég aðeins að
geta um kónginn. Hann
er eins og drottningin,
bestur til veiða á bleikju í
sjó eða nærri ósum. Eng-
ar sögur hef ég heyrt af
ffægðarverkum sem
imnin hafa verið með
honum þegar bleikjan er
komin langt ffá sjó. Þó er
aldrei að vita. Annað er
flnt við kóngsa. Hann fer
vel í boxi og er líklegur
til að valda svolítilli öf-
und, svo þið sjáið það...
Þá er að snúa sér að flugu
dagsins. Hún heitir Wooly Bugger
og er úr stórum flokki flugna sem
eru hnýttar í ýmsum stærðum og
litum. Þessi hér er grimm í litunum
en það er ástæðulaust að óttast
slíkt. Laxinn tekur þetta og urrið-
inn líka. Bleikjan stenst fluguna
ekki heldur og þá er nú flest orðið
álitlegt.
Uppskriftin í þesu tilfelli er
svona:
Wooly Bugger
1. Skottíð er Maraboufjöður.
Liturinn heitir Magenta. Þetta hef
ég ríkulegt. Ofaná set ég nokkra
strimla af svörtu flashabou. Dökkt
Crystal Flash er líka gott í þetta.
2. Búkurinn er gerður úr
Chenille. Aftast er einn hringur
svartur, hitt er Magenta. Undir
þessu þarf að koma fyrir silfurvír
eða mjög grönnu sívölu tinseli. Á
búkinn er vafið svartri hænufjöður.
Byijað er ffemst og vafið firemur
gisið yfir búkinn. Fjöðrin er fest að
aftan með vímum og honum er
vafið í kross yfir fjaðravafninginn
ffam á haus. Bæði fjöður og vír
fara sama snúninginn en krosleggj-
ast af því að fjöðrinni er vafið aft-
urávið en vímum ffamávið. Fram-
an við þetta set ég hringskegg úr
svartri hænuíjöður. Gætið þess að
hún sé a.m.k. jafnbreið þeirri sem
komin er.
3. Hausinn er byggður upp úr
tvinna og blýþræði. Allt er mettað
vel með lakki jafnóðum. Hausinn á
að mynda kúlu. Svartur skal hann
vera með hvítu auga með svörgum
punkti í.
Öngullinn er CS17
Kolbeinn Grímsson benti mér
á að gott gæti verið með svona
flugur að nýta ekki alveg allan
legginn á önglinum þegar hnýtt er.
Það þýðir að krókurinn verður aft-
urundir skottinu. Þið skiljið það
auðvitað. Kolbeinn er fullur af
góðum ráðum og eitt sinn kenndi
hann mér fýrstu handtökin við
fluguhnýtingar.
Engar sögur fara af því að egg-
ið hafi farið að kenna hænunni í
því tilfelli.
Þegar þið farið að kasta þesari
flugu er best að nota línu 9 eða þá
10 sem er enn betra. Annars getur
allt farið í vitleysu og þið steinrot-
ið kannski físk með henni og það
er bannað nema þið hafið fyrst
komið í hann króknum.
Eg hef veitt talsvert marga sjó-
birtinga á Buggerinn og þið getið
bara ímyndað ykkur alla þá stóru
sem munu liggja fyrir henni og mér
á næstu árum. Eg tala nú ekki
meira um það.
Hvemig á svo að veiða á
skepnuna? Mín aðferð er leyndar-
mál en ég get vel sagt ykkur hvem-
ig Sæbjöm gerir a.m.k. stundum.
Hann kastar ofanvið þvert á straum
og lætur hana hrekjast og búmm,
allt í keng. Einfaldara getur þetta
nú ekki verið.
Af starfsemi landssambandsins
í síðasta þætti fjölluðum við lít-
illega um starfsemi landssambands-
ins. Síðasta starfsár hefur um margt
tekist með ágætum. Vel hefur verið
staðið að undirbúningi flestra móta
og nánast allir hlutir gengið upp.
Afkoman er góð, þó óneitanlega
hefur verið gengið lengra í þá átt en
æskilegt er, með ýmsum spamaðar-
ráðstöfunum. Að spila úrslita-
keppni Islandsmótsins í tvímenning
í Sigtúni er dæmi sem væntanlega
verður ekki endurtekið. Það þarf
ekki ýkja mikla glöggskyggni til að
sjá mistökin. Rætt hefur verið um
að „fara“ með litlu mótin, þ.e. para-
keppni, Islandsmót kvenna og yngri
spilara út á Iand. Er ekki nema gott
um það að segja, svo lengi sem veð-
ur gerast ekki válynd og tímasetn-
ing stenst. Ævintýrið á Akureyri er
mönnum enn ferskt í minni, þegar á
annað hundrað bridgespilarar vom
veðurtepptir í 2 daga, að undan-
genginni spilamennku í 4 daga.
Það skal ekki rifjað upp hér
hveijir „sluppu“ með síðustu vél
suður, en óneitanlega var skitafýla
af því máli.
íslandsmótið í sveitakeppni var
framkvæmt af kunnáttu. Mótsblað-
ið setti óvenjulegan svip á úrslita-
keppni mótsins og eiga þeir aðilar
(Elín, Valgerður, Kritján og Guð-
mundur P.) heiður skilinn fyrir gott
starf. Annað er uppi á teningnum,
þegar kemur að meistarastiga-
skránni, þeirri sem félagsmönnum
innan BSI er seld (á kosmaðar-
verði?). Sjálft ritið er hin besta lesn-
ing og ómissandi handbók íþrótt-
inni árlega. En, að félagsmenn í
gegnum félögin sín um land allt,
sem greiða nokkuð há árgjöld til
sambandsins, skuli ekki fá skrána
án endurgjalds, er hlutur sem taka
þarf upp á ársþingi og helst setja í
lög. Málsgreinin gæti hljóðað eitt-
hvað á þessa leið: „Hver sá félags-
maður innan BSI, sem þess óskar,
skal fá, án endurgjalds, meistara-
stigaskrá BSÍ ár hvert, enda sé félag
viðkomandi skuldlaust við BSI.
Viðkomandi félag annast dreifmgu
á skránni."
Og ekki orð meir um þetta
klúður.
Nánar síðar.
Þegar þessar línur eru settar á
blað (miðvikudagskvöld) eru að-
eins 10 sveitir skráðar til leiks í
Bikarkeppni BSÍ. Frestur til að til-
kynna skráningu rennur út á mánu-
daginn kemur. Skorað er á spilara
að vera með.
Jón Baldursson og Aðalsteinn
Jörgensen urðu efstir í Butlerút-
reikningi, á helgar „túmeringu"
Bridgesambandsins um síðustu
helgi. Öll 7 landsliðspörin auk 9
annarra para tóku þátt í spila-
mennskunni. Önnur slík verður á
næstunni. En hvar er Zia?
Vestfjarðarmótið í sveitakeppni
er spilað um þessa helgi.
Bræðumir Bogi og Anton Sig-
urbjömssynir frá Siglufirði, sigmðu
í Opnu stórmóti, sem Bridgefélag
V-Húnv. á Hvammstanga stóð fyrir
og spilað var fyrir skemmstu. Án-
ton Haraldsson og Pétur Guðjóns-
son, stórspilarar frá Akureyri urðu í
2. sæti en sveitarfélagi þeirra, Jakob
Kristinsson stjómaði mótinu, af al-
kunnum léttleika.
Hafnfirðingar em nýkomnir
heim eftir vel heppnaða ferð til
heimalands Tuborg og Carlsberg.
Að sögn þátttakenda, mætti vera
meira um framtak sem þetta í ís-
lenskum bridge, þar sem viðkom-
andi félag tekur þátt í útlögðum
kostnaði. Er ekki að efa, að áhugi er
fyrir hendi víða. Fyrir nokkmm ár-
um vom uppi umræður innan
Bridgefélags Reykjavíkur um sam-
skipti við erlend félög. Rætt var um
Amsterdam og Dublin sem tak-
mark. Er ekki mál að endurvekja
þessar umræður, með það í huga að
ffamkvæma, ef næg þátttaka fæst
og styrkur er í boði?
Bridge er tímalaus íþrótt. Hefur
ekkert breyst að ráði í tímanna rás.
Aðeins spilaramir hafa breytt sér.
Tekið upp nýjungar, snúið við
þekktum stærðum í íþróttinni og yf-
irleitt framkvæmt það sem þeim
dettur einna helst í hug að vefjist
sem mest fýrir hugsanlegum and-
stæðingum. En aðrir bara eldast og
spila sinn rólegheitaleik. Á Mar-
bella á Spáni búa nokkrir gamlir
bridgespilarar, sem sleikja sólina og
taka í spil. Satt að segja, kjósa þeir
frekar spilin en sólina. Einn af þess-
um mönnum er írinn Des Deery,
sem átti fast sæti í írska landsliðinu
um árabil. Lítum á spil sem kom
einmitt fýrir í árlegu Marbella- móti
fýrir nokkmm árum:
S: Á65
H: D32
T: Á1074
L: G64
S: 743 S: G109
H: G10 H: Á976
T: D T: 9632
L: K1098632 L: Á7
S: KD82
H: K854
T: KG85
L: D
Sá gamli var sagnhafi í 4 hjört-
um, eftir að Vestur hafði stungið inn
4 laufum við hjartaopnun Suðurs.
Norður ákvað að segja 4 hjörtu, í
þeirri von að félagi ætti fimmlit. Ut-
spilið var lauf upp á ás og meira
lauf, sem okkar maður varð að
trompa. Og ekki er útlitið bjart.
Hjarta á drottningu, tekið á ás.
Spaðagosi og drottning. Þá var
hjartakóngur tekinn (gosi og tía firá
Vestur). Og spilið fór nú óðum
batnandi. Spaðakóngur tekinn, tí-
gull upp á ás og síðan tigultía. Þá
var þessi staða töfruð fram skömmu
síðar:
S: —
H: 3
T: —
L: G
S:— S: —
H: — H: 97
T: — T: —
L: K10 L: —
S: 8
H: 8
T: —
L: —
Laufgosa var nú spilað frá
Norður og 10. slagur gamla manns-
ins í Suður verður ekki umflúinn.
Suður vinnur einnig spilið þó Aust-
ur eigi 4 spaða og 3 tígla. Sama
staða kemur upp, nema tíguldaman
verður að finnast í þeirri stöðu.
Greinilega fjör á Spáni.
Sumarbridge BSÍ hófst í gær
(fimmtudag). I næstu viku verður
spilað mánudaga (hefst kl. 19.30),
þriðjudag (hefst kl. 19.30), mið-
vikudag (fýrir byrjendur, hefst kl.
19.30) og loks fimmtudag (í riðlum
og húsið opnar kl. 17.00). Verður
ffóðlegt að fýlgjast með allri þess-
ari spilamennsku á næstunni.
BRIDGE
Olafur
Lárusson
20 SfÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 24. maí 1991