Þjóðviljinn - 24.05.1991, Síða 23

Þjóðviljinn - 24.05.1991, Síða 23
Hvernig spretta Á nýafstöðnum Músiktilraunum Tónabæjar skiptust hljómsveitirnar nokkuð markvisst í þungarokks og poppsveitir. Þó var ein sveit sem fór algjörlega sjálfstæðar slóðir og kom mörgum stórlega á óvart þó svo hún næði ekki á úrslita- pall. Þetta var hljómsveitin „Saktmóðigur“ sem rekur ættir sínar til Menntaskólans á Laugar- vatni. Nokkrum vikum eftir keppnina áttu pilt- arnir Ieið í bæinn og Helgarblaðið mælti sér mót við þá. RúRek Djasshátíð RJkisútvarpsins og Reykjavíkurborgar heltekur allt tónlistarlíf í borginni í næstu viku. Undantekningin eru tón- leikar í Lídó fimmtudagskvöldið 30. Þá kemur hljómsveitin Sálin hans Jóns míns fram í fyrsta skipti í átta mánuði. Mannabreyt- ingar hafa orðið í sveitinni; Birg- ir Baldurson trommari og Atli Örvarsson hljómborðs og tromp- etleikari hafa gengið til liðs við Stefán Hilmarsson, Guðmund Jónsson gítarleikara, Friðrik Sturluson bassaleikara, og Jens Hansson saxafónleikara. leikur mestmegnis gömul lög, en þó nokkur ný, þ.á.m. lögin „Ábyggi- lega“ og „Brostið hjarta“ sem verða á safnplötu Steinars „Bandalög 4“ sem kemur út í sumar. Hljómsveitin Fríða Sárs- auki hitar upp fyrir Sálina, en sú sveit er m.a. skipuð Andra Clau- sen leikara sem söng með hippa- sveitinni Andrew í denn. byggingu þess og yfírbyggingu. Við erum rosalega reiðir og pir- raðir i textunum. Þetta er óljós pirringur, hann beinist ekki að neinu ákveðnu en er bara til staðar. — Lagið Holræsi Ingólfs vís- ar þó til pirrings í garð höfuð- borgarinnar. - Mikið rétt, það besta sem hefur gerst í mínu lífi var að ég fór í nám á Laugarvatni en hékk ekki í einhveijum menntaskóla í bænum, segir Karl. I bænum er allt miklu heftara en í sveitinni. Það er rosalegur klíkuskapur í bænum en upp í sveit er allt frjálsara. Það er engin mótun í gangi. — Eitthvað hlýtur þó að hafa orðið til þess að þið fóruð að spila þessa óhefluðu tónlist, ein- hver mótun. - Við þökkum Skúla Helga- syni útvarpsmanni fyrir hvert tónlistaráhugi okkar beindist. Þættimir hans, Rokk og Ný- bylgja á Rás 2 eru frumvagga okkar tónlistaráhuga. Hann kveikti undir og síðan leituðum við fyrir okkur annars staðar. Tónlistinni er fyrst og síðast ætl- að að veita okkur óhefta útrás. Við gleymum okkur alveg, spilagleðin og útrásin skyggir á alla skynsemi. Þetta var atriði sem flest önnur bönd á músiktil- raunum flöskuðu á. Hljómsveit- imar stóðu bara og spiluðu vel æft prógramm í sömu spomn- um. Við stillum ekki einu sinni gítarana okkar. Tónlistin kemur beint frá hjartanu! Og með það sama vom fimmmenningamir þotnir út í bíl og upp í sveit. Það mun ekki fara mikið fyrir Sakt- móðigi í sumar, þeir ætla kann- ski að hittast og æfa saman um helgar. En í haust má eiga von á þeim á tónleikum í bænum. Hljómsveitin verður þó á safh- spólunni Snarl 3 sem kemur út í sumar. Saktmóðigur: nafn sem áhugamenn um fraumleika og útrás ættu að leggja á minnið! 16. júní Rokkhátíðin: Slaughter Fyrir þá sem ekki þekkja til spilar hljómsveitin óheflað frumpönk, beinlínis veitir frum- krafti mannsins útrás í gegnum hljóðfærin. Drengimir kynntust á Laugarvatni, vom að útskrifast í vor og ég spurði þá fyrst út í skólalífið. - Við emm aðalgrínið héma í sveitinni. Þegar fólk frétti að við ætluðum í bæinn að spila misstu margir andlitin þvi þeir héldu að það sem við vomm að gera gæti varla flokkast sem tónlist. Það em bara um 150 nemendur í skólanum svo fé- lagslífið er ekki margþætt. Við gáfum fyrst út okkar eigið óháða tímarit, Logsýmna, sem rann út í tveimur tölublöðum. Efhið vom hugleiðingar, ljóð og ádeila, allt efni sem ekki fékk inni í skólablaðinu. Við stofhuð- um hljómsveitina uppúr áramót- um því við vomm orðnir leiðir á tímaritinu okkar, fannst við ekki geta tjáð okkur nógu óhindrað. Svo var hljómsveitin lika and- svar við daufu tónlistarlífi í skólanum, hljómsveitin héma á staðnum „Hver sagði skál?“ , gerði ekki annað en að spila Honky Tonk Woman. Nei, Saktmóðigur í Tónabæ: óhamin útrás. mynd Björg. hvaða vitleysa grípur einhver fram í, Skálin á nokkur ágætis lög. Já, en það er ekki nóg að geta tekið gítarsólóa... Saktmóðigur er kvintett; Karl söngvari og Þorvaldur trommari koma úr bænum, Ragnar gítarleikari kemur úr Borgarfírðinum og Davíð bassa- leikari og Svavar gítarleikari koma úr nágrannasveitum Laugarvatns. - Þetta er blanda úr öllum landshlutum, segja piltamir. - Textamir virðast skipta miklu máli, spyr ég. - Já, oftast em þeir komnir löngu á undan laginu. Kalli og Valdi hafa samið langmest fyrir hljómsveitina en f Logsýrunni áttum við allir ljóð. Það em ákveðnir kennarar sem veita okkur mestan innblástur, sam- þykkja Valdi og Kalli, þegar þeir em að messa yfir okkur fer sköpunin á fleygiferð. Textamir em ádeila á þetta leiðinlega þjóðfélag. Við deilum á upp- Vaggtíðindi Kvikmynd Óskars Jónasson- ar, Sódóma Reykjavíkur, er ekki langt komin í vinnslu, en tónlist myndarinnar hefur þegar verið ákveðin. Björk Guðmundsdóttir og hljómsveitin HAM munu sjá um tónlistina. Björk gerði tónlist- ina við stuttmynd Oskars „Sér- sveitin SSL 25“ og kom þar skemmtilega á óvart. Ákveðið hefur verið að gefa tónlistina við Sódómu út og er væntanlegur til landsins upptökumaðurinn Roli Mosiman til að sjá um upptökur á þeim sex HÁM-lögum sem myndin mun hafa að geyma. Roli gerði áður garðinn frægan með Swans, en hefur í seinni tið séð um upptökur hjá That Petrol Em- otion, Young Gods o.fl... Lítið hefur heyrst frá Nick Cave garminum eftir að hann gaf út hina frábæru plötu „The good son“ 1989. Nú hefur heyrst að Cave sé í San Paolo, Brasilíu að hljóðrita lög fyrir nýjustu mynd Wim Wenders, „Until the end of the World“... Tölvukarlamir í Kraftverk gefa út sína fyrstu plötu í sex ár innan skamms. Platan heitir „The mix“ og hefur að geyma endur- upptökur og hljóðblandanir af ell- efu gömlum lögum. Hljómsveitin mun túra um hinn vestræna heim í sumar. Eins og allir rokkarar vita dynur á okkur risavaxin rokkhá- tíð daginn fýrir þjóðhátíðina. Hljómsveitimar sem koma og rokka á Kaplakrika em fjórar, allar bandarískar nema Thunder og spila allar mjög álíka tónlist, eða þungt rokk í fluguvigt, svip- að „sleaze“ rokk og Guns and Roses og AC/DC em frægastar fyrir. í Helgarvaggi dagsins er réttast að kíkja á Slaughter. Höfuðpaur sveitarinnar, Mark Slaughter, syngur og spil- ar á gítar. Hann og bassaleikar- inn Dana Stmm vom sálufélag- ar í Vinnie Vincent Invasion, hljómsveit Vinnie Vincent sem einu sinni spilaði á gitar með Kiss. Vistin hjá Vinnie var hörmuleg, hann var ráðríkur og tók endalaut gítarsóló á bleikan HELGARVAGG gítar. Svo fór að þeir sögðu sig úr vistinni, bættu við gítarleikar- anum Tim Kelly og trommaran- um Blas Elias og fóm að spila undir nafninu Slátur. Mark lýsir tónlistinni svona: Við tökum góðan skammt af Back in Black með AC/DC, smá af Hysteria og Pyromania með Def Leppard, blöndum útí götufíling Guns and Roses og smá Zeppelin og þá er tónlist Slaughter nokkum veginn komin. „Stick it to ya“ heitir fyrsta og eina plata Slaughter til þessa, áheyrilegur gripur, fullur af sólid rokki og inná milli góðar ballöður. Tvö lög á plötunni em tileinkuð föllnum vinstúlkum HljómsveitinSlaughter; engir sláturkeppir! en annars em textamir heföbundnir. Það er sungið um vondar konur og ást- ir sem annað hvort ganga upp eða ekki. Platan kom út í fýrra og fóm Slátur-drengimir í tón- leikaferð um allar trissur. Þegar hljómsveitin var á tónleikaferð um Evrópu ásamt hljómsveit- inni Cinderella var þeim ógnað daglega. Þetta var á tímum Persaflóastríðsins og nafnið Slaughter þótti ekki beint við hæfi á þessum ófriðartímum. Sveitinni bámst fjöldi sprengju- hótanna og þótti ráðlegast að snúa heim eftir tvo tónleika í London þrátt fyrir mikinn ör- yggisviðbúnað og sprengju- þefandi hunda. Umsjón: Gunnar L. Hjálmarsson „Við emm Ameríkanar sem emm mikið í fjölmiðlum,“ segir Dana Stmm, „og við heitum Slaughter, sem gerir okkur að góðum skotmörkum. „Imyndið ykkur bara fyrir- sagnimar sem við myndum út- vega hryðjuverkamönnum ef það tækist að sprengja okkur,“ segir Mark Slaughter. „Við urð- um að taka þesum hótunum al- varlega, við gátum ekki stefnt lífi áhorfenda okkar í hættu.“ Þess má geta að hljómsveitin er neftid eftir forsprakkanum Mark Slaughter, og er ekki verið að ögra neinum. Slaughter koma frá Las Vegas og em stolt spila- borgarinnar. Borgarstjórinn Ron Lurie, lýsti yfir Slaughter- degi þegar hljómsveitin flúði heim og aðalgata borgarinnar var nefnd Slaughter-gata í tilefhi dagsins. I næstu viku: THUND- ER. Föstudagur 24. maí 1991 NÝTT Aai&g

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.