Þjóðviljinn - 25.05.1991, Síða 8

Þjóðviljinn - 25.05.1991, Síða 8
FlÉTHR Mosfellingar taka senn ákvörðun varðandi Blikastaðamálið Ólafur Ragnar við útför Gandhis Ólafur Ragnar Grímsson, for- maður Alþýðubandalagsins, var viðstaddur útför Rajiv Gandhis, fyrrum forsætisráðherra Indlands og formanns Kongressflokksins, sem fram fór í gær. Ólafur Ragnar var við útför- ina sem sérlegur fulltrúi þing- mannasamtakanna Parliamentari- ans for Global Action. Þing- mannasamtökin áttu náið sam- starf við Rajiv Gandhi á svjði af- vopnunarmála þegar Ólafur Ragnar var í forsæti fyrir samtök- in. Ólafur Ragnar kemur aftur til landsins á morgun. -Sátfrk Bæjarmálaráð Einingar í Mosfellsbæ hefur sent frá sér ályktun um kaup- tilboð Reykjavíkur í Blikastaði. Bæjarmálaráðið Ein- ing er myndað af fulltrúum þeirra flokka sem fóru saman í framboð í síðustu bæjarkosning- um í Mosfellsbæ. Einnig er nú ráðgerður borgarafundur á veg- um JC í Mosfellsbæ um þessi landakaup. Ályktun Einingar er á þennan veg; „Bæjarmálaráðið telur það yf- irgang af hálfu Reykjavíkurborgar að gera kauptilboð í land sem 'ann- að sveitarfélag hefur skipulagt sem framtíðar íbúðabyggð sína og sér- staklega að ætlast til lögsögubreyt- ingar í því sambandi. Bæjarmálaráðið ályktar að Mosfellsbær hafhi forkaupsrétti á kaupsamningi milli Reykjavikur- borgar og eigenda Blikastaða. Jafnframt að hafha skuli viðræðum við Reykjavíkurborg um breytingu á lögsögumörkum milli sveitarfé- laganna í tengslum við umræddan kaupsamning. Bæjarmálaráðið hvetur bæjar- stjóm og íbúa Mosfellsbæjar að standa gegn allri skerðingu á lög- sögu bæjarins í þessu sambandi,“ segir í ályktuninni. Samkvæmt heimildum Þjóð- viljans mun JC í Mosfellsbæ standa fyrir borgarafundi um þetta mál nk. mánudag, á þann fund hef- ur fulltrúum bæjarins verið boðið. Páll Guðjónsson bæjarstjóri í Mos- fellsbæ sagði að þessi borgarafund- ur væri alls ekki á þeirra vegum, en taldi líklegt að einhveijir frá bænum mundu mæta á þennan fund. Jónas Sigurðsson einn af full- trúum í bæjarmálaráði Einingar sagði í samtali við blaðið, að Ein- ing hafi lagt fram bókun á síðasta bæjarstjómarfundi, sú bókun er á þeim nótum sem ályktun bæjar- málaráðsins er, sagði Jónas. „Um- ræðum um málið var frestað þá fram að næsta bæjarstjómarfundi sem haldinn verður nk. miðviku- dag. Þá verður sjálfsagt endanleg afstaða tekin í þessu máli,“ sagði Jónas. „Ef þeir fella þessa bókun okkar munum við í Einingu halda borgarafund og krefjast þess að bæjarstjóm endurskoði afstöðu sína,“ sagði Jónas. -sþ Eindreginn stuðningur við Þj óðleikhússtj óra Varla verður annað sagt en fjölmargt leikhúsfólk styðji hinar umdeildu að- gerðir Stefáns Baldurssonar, Þjóðleikhússtjóra. Þjóðviljanum hafa borist tvö bréf með ósk um birtingu, annað frá Stjórn Félags leikara á íslandi en hitt frá 4. deild Félags íslenskra leikara. I þeirri deild eru leikarar sem ekki hafa fasta atvinnu. Bréfin eru birt hér í heild: Bréf Félags leikstjóra á íslandi: „Vegna deilna sem risið hafa að undanfömu um breytingar á mannahaldi í Þjóðleikhúsi íslend- inga vill Félag leikstjóra á Islandi senda frá sér eftifarandi ályktun: Aðalfundur Félags leikstjóra á íslandi, haldinn 21 maí, 1991, telur það ekki í verkahring félagsins að skipta sér af því hveijir af félögum þess, sem skipta tugum, em ráðnir til starfa við Þjóðleikhúsið. Fund- urinn lýsir stuðningi við þá stefnu nýkjörins Þjóðleikhússtjóra að ráða leikstjóra einungis til skamms tíma, eins eða tveggja ára í senn, enda hefur það verið og er skoðun félagsmanna að endumýjun sé æskileg í þessum störfum. Fundur- inn bendir á að nú er liðinn um áratugur frá því að leikhúsfólki tókst að knýja það fram að Þjóð- leikhússtjóri og aðrir leikhússtjórar atvinnuleikhúsanna væru aðeins ráðnir til fjögurra ára í senn og aldrei lengur en í átta ár. Vildum við með því tryggja að breyttir tímar og breytt viðhorf endurspegl- uðust ætíð í listrænni forystu hús- anna og sú sífellda endumýjun sem er nauðsyn öllum listum mætti eiga sér stað. Leikstjómm hefur aldrei dottið í hug að sú endumýjun ætti aðeins að ná til eins manns, þ.e. leikhússtjórans. Breyting á list- rænni forystu hlýtur ætíð að kalla á aðrar breytingar á skipulagi og starfsliði hússins. Enda gert ráð fyrir því svigrúmi í lögum um Þjóðleikhús og í ráðningarsamn- ingum hússins. Fundurinn hvetur leikhúsfólk til að taka afstöðu til deilnanna á gmndvelli hagsmuna alls leikhús- fólks og leiklistarinnar í landinu. Og fundurinn minnir á að Stefán Baldursson hefur verið skipaður Þjóðleikhússtjóri. Honum ber sam- kvæmt lögum að ráða sér sam- starfsmenn til að hrinda þeirri stefnu í framkvæmd. Okkur getur greint á um ákvarðanir hans í ein- stökum málum en aðalatriðið er að það er hans og einskis annars að axla þessa ábyrgð“. Bréf 4. deildar í Félagi ís- lenskra leikara: „ Um leikarasamningana Vegna einhliða blaðaskrifa að undanfömu um þær aðgerðir sem átt hafa sér stað í Þjóðleikhúsinu viljum við að þetta komi fram: Samningar Félags íslenskra leikara við Þjóðleikhús um kaup og kjör fastráðinna leikara kveða á um eftirfarandi: „1.1.1. Fastráðinn leikari skal ráðinn til a.m.k. eins árs í senn. Heimilt er aðilum þó að gera ráðn- ingarsamning til lengri tíma, þ.e. til tveggja eða þriggja ára, takist um það samkomulag. Ef ráðningu leikara er ekki sagt upp með sex mánaða fyrirvara, miðað við mán- aðamót, framlengist hún um eitt ár í senn. 1.1.2. Hafi leikari starfað í átta ár eða lengur hjá Þjóðleikhúsinu á hann rétt á að gerður sé við hann ótímabundinn ráðningarsamningur með gagnkvæmum þriggja mánaða uppsagnarfresti.“ Þama er þess hvergi getið að leikarar þeir sem á hveijum tíma eru ráðnir við stofnunina hljóti sjálfkrafa æviráðningu. Samt sem áður hefur af einhverjum orsökum skapast sú hefð í Þjóðleikhúsinu að hrófla sem minnst við þessum „hreyfanlegu“ samningum, sem hefur alið á þeirri tilhneigingu að skoða þá sem óuppsegjanlega. Fyr- ir bragðið hefur ískyggilega lítil tilfærsla eða endumýjun átt sér stað í leikaraliði Þjóðleikhússins mörg undanfarin ár. Að þessu hef- ur löngum verið fundið, bæði af aðilum innan leikarastéttarinnar og utan hennar, en því miður enginn séð ástæðu til að aðhafast neitt fyrr en nú að nýTáðinn Þjóðleikhús- stjóri virðist ætla að taka af skarið. I F.I.L. em 225 leikarar, þar af emm við sem skipum 4. deild, þ.e. leikarar sem ekki hafa fasta at- vinnu, 150 talsins. Við (viðstaddir á fundi 4. deildar 14. maí, 1991) erum ekki á móti þessum breyting- um 1 Þjóðleikhúsinu. Við viljum hreyfanleika á samningum og hljótum því að styðja aðgerðir Þjóðleikhússtjóra. Nú á dögunum, þegar þessar stöður vom auglýstar, sóttu 78 leikarar um. Við viljum taka það skýrt fram að við erum ekki að leggja nokkurt mat á ein- stakar uppsagnir, einungis að styðja þá viðleitni að hafa hreyfan- leika á stöðugildum við Leikhús þjóðarinnar. Ályktun írá fundi 4. deildar, 14. maí, 1991. Samþykkt ein- róma.“ Nýr formaður kjörinn hjá ABR Aðalfundur Alþýðubanda- lagsins í Reykjavík fór fram síðastliðið miðviku- dagskvöld. Á fundinum fóru fram venjubundin aðalfund- arstörf, þar sem m.a. var kjörin ný stjórn fyrir félagið. Nýr for- maður ABR var kosinn Gunn- laugur Júlíusson hagfræðingur. Á fundinum var einnig samþykkt ályktun um kosningaúrslitin og svo stjórnarþátttöku kratanna með Sjálfstæðisflokknum. Aðalfundur ABR fór fram með heföbundnum hætti. Ný stjóm var kjörin þar sem Gunnlaugur Júlíus- son var valinn til formennsku. Fyrri formaður Sigurbjörg Gísladóttir gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Þeir sem skipa nýja stóm ABR eru: Gunnlaugur Júlíusson, formaður, Sigurbjörg Gísladóttir, Guðrún Kr. Óladóttir, Guðmundur Helgi Magn- ússon, Ingólfur H. Ingólfsson, Auð- ur Sveinsdóttir og Kristrún Guð- mundsdóttir. Varamenn voru kjöm- ir: Kolbrún Vigfúsdóttir, Matthías Matthíasson, Ástráður Haraldsson og Þóra Þórarinsdóttir. Á fundinum voru líflegar um- ræður og í lok fundarins var eftir- farandi ályktun samþykkt: „Aðal- fundur Alþýðubandalagsins í Reykjavík lýsir fullri ábyrgð á hendur forystu Alþýðuflokksins á því, að ekki tókst að mynda ríkis- stjóm vinstri- og félagshyggju- flokkanna í landinu, en úrslit kosn- inganna vom ótvíræð vísbending um að vilji meirihluta þjóðarinnar stóð til þess. Þess í stað kaus Al- þýðuflokkurinn að mynda hægri stjóm undir forsæti Davíðs Odds- sonar og gekk þar með þvert á mál- flutning margra frambjóenda flokksins, sérstaklega á lands- byggðinni. Aðalfundur Alþýðubandalags- ins í Reykjavík telur að brýnasta verkefni Alþýðubandalagsins nú sé að taka þátt í uppbyggingu stjómar- andstöðu á breiðum grunni. Leita verður leiða tl að virkja mismun- andi stjómmálaöfl, áhugahópa og einstaklinga í breiða fylkingu gegn hægri öflunum í landinu. Mikilvægt er að vel takisl til við að byggja upp slíka hreyfingu hér í höfuðborginni og beinir fundurinn því til nýkjör- innar stjómar að vinna að því að svo geti orðið. Aðalfundur Alþýðubandalags- ins í Reykjavík lýsir ánægju sinni með þann árangur sem Alþýðu- bandalagið náði í síðustu kosning- um. Þessa niðurstöðu ber að rekja til árangurs af störfum Alþýðu- bandalagsins í síðustu ríkisstjóm og til þeirra mála sem Alþýðubanda- lagið lagði áherslu á í kosningun- um, sérstaklega lífskjarajöfnun, varðveislu efnahagslegs stöðug- leika og umhverfísvemd. En ekki síður byggðist þessi árangur á þeirri samstöðu sem náðist í aðdraganda kosningabaráttunnar innan flokks- ins. Alþýðubandalaginu tókst að halda svipuðu fýlgi og í kosningun- um 1987 í Reykjavík. Þetta er góð- ur árangur í ljósi margskonar erfið- leika í starfi Alþýðubandalagsins í Reykjavík á undanfömum árum. Nægir þar að nefna að íyrir ári skiptust Alþýðubandalagsmenn í Reykjavík í tvo hópa í borgarstjóm- arkosningunum þá um vorið. í kosningabaráttunni í Reykja- vík náðist nú mjög góð samstaða og samstarf allra þeirra sem skipuðu lista flokksins. Fundurinn telur mikilvægt að byggt verði á þessum gmnni. I því sambandi telur aðal- fundurinn mikilvægt að starf fé- lagsins á næstu árum taki mið af því að varðveita og efla samstöðu allra Alþýðubandalagsmanna í Reykjavík. Fundurinn felur nýkjör- inni stjóm að vinna að þessu mark- miði. Síða 8 ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 25. maí 1991

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.