Þjóðviljinn - 25.05.1991, Side 10
A Umsión: Sif Gunnarsdóttir
K¥I1KMTWfíT
Sumardagskrá
Háskólabíós
Hrói Höttur sýnir hvaö (honum býr á tjaldi Regnbgans
Bífræfnir bílaþjófar
Bíóhöllin
Nýliðinn (The Rookie)
Leikstjóri: Clint Eastwood
Framleiðandi: Howard
Kazanjian
Aðalleikarar: Clint Eastwood,
Charlie Sheen, Raul Julia og
Sonia Braga
Eg hafði nú dálitlar áhyggjur
af því að Eastwood væri
búinn að missa of mikið af
spaghettivestra sjarmanum
til að geta leikið ósigrandi löggu
einu sinni enn. En þær áhyggjur
voru ástæðulausar, Eastwood
gamli stendur alltaf fyrir sínu og
ég held að það séu fáir amerískir
leikarar sem eru eins vel til þess
fallnir að leika hetjur og hann.
I Nýliðanum leikur Clint East-
wood (eða Klístvúdd eins og sumir
kalla hann) löggu í Los Angeles
sem eltist við bílaþjófa, en bíla-
þjófnaðir eru stór viðskipti í
Bandaríkjunum. I byrjun myndar-
innar er hann að takast á við einn
sérstaklega voldugann og viður-
styggilegann bílaþjóf (þjóðverja
sem Raul Julia leikur) og í látunum
deyr félagi Eastwoods en bófinn
sleppur.
Löggur mega ekki starfa einar
svo að Eastwood verður að fá nýj-
an félaga og fær náttúrlega nýliða
(Charlie Sheen) sem er ungur
uppastrákur, allsendis óvanur lög-
reglustörfum og kveif í þokkabót.
Nú er skemmst frá því að segja
að Eastwood og félagi hans elta
bílaþjófinn um þvera og endilanga
Los Angeles og eins og lög gera
ráð fyrir lenda þeir í ýmsum
óvæntum uppákomum. Til dæmis
kveikir Sheen í bar og Eastwood er
nauðgað. Þeir lenda náttúrlega líka
upp á kant við stjórana í lögregl-
unni sem vilja ekki samþykkja að-
ferðir þeirra félaga til að ná glæpa-
mönnunum. Eins og við mátti bú-
ast sigra þeir félagar að lokum,
verða vinir og segja hvor öðrum
brandara.
En misskiljið mig ekki, Nýlið-
inn er alls ekki leiðinleg þótt við
höfum kannski séð hana áður.
Clint er óviðjafnanlegur hvort sem
hann er að slást eða að skjóta
hnyttnum tilsvörum út um vindil-
inn. En hann leyfir fleirum en
sjálfum sér að njóta sín, Charlie
Sheen er ágætur sem gungan sem
verður hetja í lokin. Raul Julia er
skemmtilegur leikari en hefur útlit-
ið á móti sér þegar hann leikur
þjóðveija. Sonia Braga leikur ást-
konu og félaga Julia og er harðsoð-
ið glæpakvendi ef bestu sort.
Nýliðinn er hin besta skemmt-
un og alveg ómissandi fyrir
„Klístvúdd" aðdáendur.
sumar býður Háskólabíó
kvikmyndahúsagestum upp
á margt og mismunandi og
ekki eingöngu léttmeti eins
og oft vill verða þessa mánuði
sem sést til sólar.
* Nú er loksins komin hið
margumrædda framhald af mynd-
inni Chinatown, neíhilega The two
Jakes. Eins og áður hefúr verið
sagt hér á síðunni þá er það Jack
Nicholson sem bæði leikstýrir og
leikur aðalhlutverkið, Jake Gittes.
* Aðalgrín sumarsins í Há-
skólabíó er Naked Gun 2' : The
smell of fear. Það er Leslie Nielsen
sem er aftur á ferðinni i hlutverki
hins óborganlega leynilögreglu-
manns Frank Drebin. I þetta skipt-
ið er hann orðinn umhverfissinni
og berst fyrir betri jörð með því að
takast á við olíu og kjamorku fyr-
irtæki sem ætla að tortíma sólar-
orku! Leikstjórinn, David Zucker,
er mikill umhverfissinni sjálfur,
keyrir um á rafmagnsbíl og notar
eingöngu endurunninn pappír. Svo
að við megum kannski búast við
nokkmm endurunnum bröndumm
í spamaðarskyni.
* Þýska myndin Die Venusfalle
í leikstjóm Robert Van Ackem
verður á dagskrá í sumar hjá Há-
skólabíó og verður eflaust góð til-
breyting fyrir þá sem verða orðnir
yfirfullir af amerískum sumar-
smellum. Myndin fjallar um lækn-
inn Max sem hefúr búið með kær-
ustunni sinni i nokkur ár. Hún er
hræðilega afbrýðisöm og Max fer
~að hafa áhyggjur af framtíð sinni
með henni. A einni af mörgum
gönguferðum sínum um borgina
lætur hann undan löngun sinni til
að leita að hinni fúllkomnu konu
og finnur hana... Myriem Roussel,
Horst-Giinter Marxs og Sonja
Kirchberger leika aðalhlutverkin.
* Söngvarinn úr hljómsveitinni
Who, Roger DaltTey, leikur aðal-
hlutverkið í myndinni Buddy’s
song á móti Chesney Hawkes. Þeir
leika feðgana Buddy og Terry sem
em báðir miklir áhugamenn um
rokkmúsík. Pabbinn, Terry, • var
einu sinni tónlistarmaður og sonur-
inn, Buddy, langar til að verða það.
Svo er bara spumingin hvort að
Buddy tekst að höndla frægðina
með hjálp föður síns. Önnur spum-
ing sem eflaust brennur á vömm
allra tónlistamnnenda er hvort
Daltrey getur leikið jafn vel og
hann syngur.
* Leikstjórinn Jonathan
Demme hefúr snúið sér frá gerð
grínmynda eins og Married to the
mob, til að gera þryllinn Silence of
the lambs eftir skáldsögu Thomas
Harris. Þar leikur Jodie Foster
starfsmann úr FBI sem er að eltast
við andstyggilegan kvennamorð-
ingja sem hamflettir stúlkur eftir
að hann hefúr drepið þær. Hún fær
hjálp frá öðmm geðveikum glæpa-
manni, Anthony Hopkins, sem er
lokaður inni á hæli. En hún þarf að
borga honum fyrir hjálpina á all
undarlegan hátt.
* Aðal spennumynd sumarsins
í Háskólabíó er Delta force 2. Þar
segir frá tveimur harðgerðum hetj-
um sem em að beijast við suður-
amerískan eiturlyfjabarón. Richard
Sumardagskrá Regnbogans
Fyrir þá sem fara ekkert út í
sumar og ætla bara í bíó í
staðinn er Regnboginn með
nokkra sumarsmelli sem
ágætt væri að eyða nokkmm
klukkutímum í.
* Þá má fyrst nefna grínmynd-
ina To much sun sem Robert
Downey leikstýrir (og skrifaði
reyndar handritið líka), en sonur
hans Robert Downey jr. leikur eitt
af aðalhlutverkunum. Eric Idle
(fyrrum Monty Python meðlimur-
inn) og Andre Martin leika systk-
ini sem em bæði samkynhneigð.
Vegna þessa lenda þau í vandræð-
um þegar ríkur faðir þeirra deyr og
setur skilyrði í erföaskránni fyrir
því að þau verði að eignast bam
(upp á gamla góða mátann) ef þau
ætla að fá arfinn. Ef ekkert bam er
komið undir innan árs þá renna öll
auðæfin til kirkjunnar. Það má lík-
lega bóka nokkra rúmstokksbrand-
ara í þessari ensk- amerísku grín-
mynd.
* Hin spengilega Jamie Lee
Curtis (A fish called Wanda) leikur
aðalhlutverkið í myndinni Blue
steel sem Regnboginn sýnir á
næstunni. Hún Teikur þar nýliðann
Megan Tumer í lögreglunni á
Manhattan. Það hefur lengi verið
draumur hennar að komast í lög-
regluna og þess vegna verður hún
niðurbrotin þegar henni er sagt upp
störfúm vegna mistaka. En það er
bara byijunin, í New York hefst
röð af óhuggulegum morðum þar
sem upphafstafir Megan em skom-
ir í líkin. Megan verður að sýna
hvað í henni býr og fóma ástaræv-
intýri til að ná morðingjanum. Það
er óvenjulegt að sjá konu í svona
hörkulegu átakahlutverki en það er
líka kona sem leikstýrir, Kathryn
Bigelow. Hún á líka hálfan heiður
af handritinu og hefur sjálf sagt að
hana hafi alltaf langað til að gera
„aksjón mynd“ um konu.
* En það verða ekki bara konur
sem sjá um spennuna í Regnbog-
anum í sumar, Christopher Walken
leikur aðalhlutverkið í nýrri glæpa-
mynd sem heitir King of New
York. Þar leikur hann hættulegan
glæpamann og það er Abel Ferrara
sem leikstýrir.
* Waiting for the light er ný
gamanmynd leikstjórans Christop-
her Monger. Þar leika Shirley
MacLaine og Teri Garr frænkumar
Zenu og Kay sem flytja ásamt
bömum Kay frá Chicago til smá-
bæjarins Buckley, snemma á sjö-
unda áratugnum. Þær koma miklu
róti á rólegan bæinn, Zena þykist
nefnilega vera sjónhverfingamaður
og finnst ekki nóg að hrelia bæjar-
búa ein, heldur kennir litlu frænd-
systkinum sínum sífellt ógeðfelld-
ari brögð. Eins og nærri má geta
endar allt með ósköpum og aðeins
kraftaverk getur bjargað íjölskyld-
unni.
* Aðal sumarsmellur Regnbog-
ans er kvikmynd Kevin Reynolds
um útlagann og hetjuna sígildu
Hróa hött. Það er hinn geysivinsæli
Kevin Costner sem leikur Hróa,
væntanlega af alkunnri snilld. Af
öðmm leikurum má til dæmis
nefna Morgan Freeman sem leikur
austurlenskan vin Hróa, Azeem,
Christian Slater sem leikur Will
Scarlet og Alan Rickman sem Ieik-
ur fógetann í Nottingham, höfuð-
óvin Hróa. Mary Elizabeth Mastr-
antonio leikur laföi Marion, kon-
una sem Hrói elskar og Sean
Connery ku koma á tjaldið í nokkr-
ar mínútur sem Ríkharður konung-
ur. Sem sagt úrvalsleikarar í von-
andi úrvalsmynd.
* Þeir sem höfðu gaman af
frönsku löggunum René og
Francois í myndinni Les Ripoux
sem var sýnd í Regnboganum í
vetur geta glaðst því að þeir félag-
ar eru væntanlegir aftur með haust-
inu í myndinni Ripoux contra Ri-
poux. Þar takast þeir á við enn
ósvífnari svindlara en þeir eru
sjálfir. Philippe Noiret og Thierry
Lhermitte leika aðalhlutverkin.
Jaeckel og Chuck Norris leika
hetjumar og Billy Drago vonda
manninn! Við megum eflaust búast
við mörgum byssuhvellum,
sprengingum, eltingarleikum og
morðum frá leikstjóranum Aaron
Norris (einhver ættingi kannski?)
* Cher er komin aftur á kreik í
mynd Richard Benjamins, Merm-
aids. Þar leikur hún dálitið sérstaka
einstæða móður sem á erfitt með
að vera lengi á sama staðnum. Svo
að hún þeytist borg úr borg með
dætur sínar tvær. En þegar hún
kemur til Eastport Massachusetts
verða bæði hún og dóttir hennar
ástfangnar (ekki af sama mannin-
um) og þá verður að koma í ljós
hvort hún geti sest þar að til fram-
búðar. Winona Ryder leikur eldri
dótturina og Bob Hoskins leikur
hinn ólíklega ástmann Cher. Rich-
ard Benjamin leikstýrir.
* Fyrir þá sem fíluðu Top Gun
er von á annari mynd í líkum stil
nema í þetta skiptið er aðalhetjan
kona leikin af Sean Young. Hún er
Silence of the Lambs sem tekin verður til sýningar ( Háskólabíói ( sumar
eitilharður flugmaður sem ekkert Jones. David Green leikstýrir þess-
fær stöðvað. A móti henni leika um eltingarleik um loftin blá.
Nicholas Cage og Tommy Lee
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 25. maí 1991
Síða 10