Þjóðviljinn - 25.05.1991, Page 11

Þjóðviljinn - 25.05.1991, Page 11
Minningardagur þeirra sem látist hafa úr alnæmi Á morgun verður haldin minningarguðsþjónusta í Lang- holtskirkju sem Samtök áhuga- fólks um alnæmisvandann og Samtökin 78 eiga frumkvæði að. Tilefni guðsþjónustunnar, sem hefst kl. 14, er minningar- dagur sem á ensku hefur verið nefndur International AIDS Candlelight Memorial Day, en í maí er þeirra minnst um allan heim sem látist hafa úr alnæmi. íslendingar minnast þessa dags nú í þriðja skipti. Alls hafa 16 íslendingar greinst með alnæmi, lokastig sjúkdómsins, og eru 10 þeirra látnir. Þeir íslendingar sem smitaðir eru af eyðniveirunni, HIV, eru nú um 61 talsins. Reynir Már Einarsson er einn þeirra sem greinst hafa með smit hér á landi. Hann hefur þurft að sjá eftir mðrgum vinum og kunningjum sem hafa orðið þessum sjúkdómi að bráð. Sjálf- ur greindist hann með smit fyrir átta árum, en hann horfir bjart- sýnisaugum til framtíðarinnar. „Ég ætla mér að Iifa,“ segir hann. „Það er mjög erfitt að horfa upp á vini sína og kunn- ingja á besta aldri hrynja niður eins og spilaborgir,“ sagði Reyn- ir. Hann sagði að íslensk stjóm- völd hefðu ekki staðið sig sem skyldi í baráttunni gegn þessum sjúkdómi. „Stundum verð ég alveg öskuillur yfir því hversu lítið er gert hér á Iandi í þessu máli,“ sagði Reynir. Hann sagði að það væri alltaf verið að tala um hversu gott heilbrigðiskerfið hér á landi væri, en aftur á móti byði kerfið ekki upp á neina þjónustu sem styddi smitaða andlega. Reynir sagði homma gera sér fulla grein fyrir því hversu alvar- legt ástandið væri og hvemig þessi sjúkdómur gengi fyrir sig. Hann sagði að vegna mikilla fordóma sem ríktu í garð þessa sjúkdóms væri fólk hrætt við að koma fram og viðurkenna að það sé smitað. Reynir hefur áður komið fram í fjölmiðlum og viðurkennt að hann sé sýktur. „Mér er orðið alveg sama og vil fá mina virðingu eins og hver annar sjúklingur.“ Reynir, sem nýkominn er ftá London, sagði ástandið hér á landi í þessum málum vera mjög slæmt. „I útlöndum er upplýsingar um þennan sjúkdóm allstaðar að fmna, en hér láta allir sem þessi sjúk- dómur sé ekki til.“ Hann sagði að samkvæmt kyn- sjúkdómalögunum ætti hann að fá öll sín lyf frítt, en svo væri ekki. Hér þurfa sýktir að borga öll sín lyf sjálfir, en erlendis t.d. í London fengist þetta allt fritt. Reynir held- ur engri vinnu til lengdar því sjúk- „Stundum hef ég lagst upp í rúm og hágrátið yfir því að fólk skuli vera að benda á mig úti á götu“ dómurinn gerir það að verkum að hann þreytist fljótt. Þannig reynist það erfitt fyrir sýkta að borga fyrir öll þessi lyf. Reynir sagði að þó svo að þessi sjúkdómur væri alveg hryllilegur þá væri það ekki einungis veiran sem skemmdi, heldur einnig fólkið I kringum þá sem eru smitaðir. Hann sagði fólk almennt hafa ranga hugmynd um sjúkdóminn og forðast smitað fólk. „Stundum hef ég lagst uppí rúm og hágrátið yfir því, að fólk skuli vera að benda á mig úti á götu.“ « % Reynir sagði rofik ekki gera sér grein fyrir því hversu alvarlegur þessi sjúkdómur væri. Hann sagði foreldra almennt ekki gefa bömum sínum næga kynlífsfræðslu, og svo þegar kæmi að unglingsárum þá væri ekki næg vitneskja fyrir hendi hjá þeim í sambandi við vamir í kynlífi. „Foreldrar ættu helst að kaupa smokka fýrir unglingana og segja þeim hvemig best sé að varast smitun,“ sagði Reynir. „Hver ein- asta fjölskylda í landinu gæti vakn- að upp við það að einhver í fjöl- skyldunni greinist jákvæður. Það er sorglegt hvað fólk passar sig lítið í sambandi við vamir í kynlífi,“ sagði Reynir. Hann sagði að lokum að hann vonaðist til að stjómvöld myndu vakna og horfast í augu við þetta mikla vandamál sem eyðni er og gera eitthvað róttækt í málinu. Hann sagði að fólk þyrfti að gera sér grein fyrir því, að viö bemm öll sameiginlega ábyrgð á þessu vandamáli. -KMH „Getgátur um að nokkur hundruð manns séu smitaðir hér á landi“ orvaldur Kristinsson, for- maður Samtakanna 78, sagði að félagið hefði frá því að sjúkdómsins varð fyrst vart tekið skýra afstöðu til vandans, vegna þess að tæp 70% þeirra sem smitast af ainæmi eru hommar eða karlmenn sem lifa kynlífi með öðrum karlmönnum. Hann sagði að tíðni sjúkdómsins væri áþekk því sem væri á öðr- um Norðurlöndum. „Eins og spámar hljóða hvarfl- ar stundum að mér að fjórði hver maður sem ég þekkti meðal homma á níunda áratugnum verði látinn um næstu aldamót,“ sagði Þorvaldur. Hann sagði ástandið vera mjög alvarlegt og að sumir sérfræðingar nefndu að um 15 milljónir manna yrðu mögulega látnir úr alnæmi í heiminum nú um aldamótin. Þorvaldur sagði alnæmisstarf Samtakanna 78 ekki síst hafa snú- ist um það að reyna að knýja á um ríkari upplýsingar yfirvalda til samfélagsins um tilvist sjúkdóms- ins, smitleiðir og háskann hér á landi. Ekki síst væri brýnt að skir- skota eindregið til áhættuhópanna svokölluðu. Hann sagðist halda að þorri almennings vissi núna hvem- ig alnæmi smitast og að sjúkdóm- urinn sé ekki bráðsmitandi, smit bærist einungis við blóðblöndun og kynmök, væru varrúðarráðstaf- anir ekki við hatðar. „Vandamálið er að Islendingar líta almennt svo á að alnæmi sé ekki veruleiki hér á landi,“ sagði Þorvaldur. Astæðumar væm m.a. þær að alnæmi hefði borist nokkru síðar til íslands en nágrannaland- anna, og einnig hefði dregið mjög úr opinberum áróðri í íjölmiðlum upp á síðkastið, enda íjárveitingar til forvama skammarlega litlar. „Það þarf stöðugt að halda for- vamaráróðri á loft, því að á hveiju ári eiga nokkur þúsund unglinga sina fyrstu kynlífsreynslu og þvi er þörf á stöðugri fræðslu og um- ræðu.“ Þorvaldur sagðist telja að hommar gerðu sér núna fulla grein fyrir því hver hættan væri og hefðu lært að lifa samkvæmt því. Hann sagði það ósköp auðvelt að veijast alnæmi ef menn lærðu að haga sér samkvæmt einfoldum leikreglum í kynlífi. Háskinn fælist fyrst og fremst í þeirri staðreynd að kynlíf ungs fólks tengist aðallega nætur- lífi eftir að viman hefúr ruglað dómgreindina. Þá er eldurinn laus og litlar vamir við hafðar. Hann sagði það almennt álitið að opinberar tölur um fjölda smit- aðra væru aðeins toppurinn af ís- jakanum. Sérfræðingar geta sér þess til að raunverulegur fjöldi smitaðra sé nokkur hundmð hér á landi. En sjúkdómurinn hefði til skamms tíma verið feimnismál, því í fyrsta lagi smitaðist hann við kynmök og í öðru lagi tengdist hann hommum að miklu leyti. „En þó svo að sjúkdómurinn hafi verið okkur hommum hörð reynsla þá hefur hann gert tilvist samkynhneigðra sýnilega. Það er engin leið að loka augunum fyrir þeirri staðreynd að við emm til og við emm tíundi hluti þjóðfélags- þegnanna." Þorvaldur vildi að lokum ítreka það að þó að umræðan um alnæmi færi háskalega hljótt á Islandi þessi misserin, þá ætti sjúkdómurinn eft- ir að höggva stór skörð, einkum í hóp unga fólksins. „Alnæmi er núna algengasta dánarörsök ungra manna á aldrin- um 20-40 ára í New York, Los Angeles og fleiri stórborgum Bandaríkjanna. Með svona alvar- legar fréttir fyrir augunum verðum við að axla ábyrgðina hér á landi, og þar vil ég ekki síst kalla stjóm- völd til ábyrgðar.“ -KMH Þorvaldur Kristinsson, formaður Samtakanna 78. Síða 11 ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 25. mal 1991

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.