Þjóðviljinn - 25.05.1991, Qupperneq 15
Vígi í makindum undir borðinu og
kötturinn Brandur í glugganum og
við að ræða gleði okkar og sorgir í
bland við máleíni dagsins.
Siðastliðið vor brá skugga yfir
alla þessa tilveru þegar bóst varð
að Helga var komin með krabba-
mein. Auk veikinda hennar þurfti
Qölskyldan i desember sl. áð sjá á
bak elskulegri móður, tengdamóð-
ur og ömmu, Sigríði móður Helgu,
sem lést eftir þimga en stutta sjuk-
dómslegu og Helga hafði alla tið
verið svo natengd og annast svo
vel. Helga barðtst hetjulegri bar-
áttu við sjúkdóminn með sinni
léttu lund og lét aldrei bugast. Það
var dýrmæt reynsla að verða vitni
að þeim styrk. Sigurgeir annaðist
Helgu sina af fádæma umhyggju-
semi og natni og vakti yfir nenni
dag og nótt siðustu vikurnar.
Sömuleiðis önnuðust bömin fjögur
móður sína eins og best er hægt að
hugsa sér.
Þetta eru minningar okkar
Önnu, Eyglóar, Snjólaugar og Sig-
pinar um elskulega vinkonu okkar.
I veikindum hennar hefur vinátta
okkar styrkst enn. Saman fylgd-
umst við með baráttu hennar. Sam-
an lútum við höfði í djúpri sorg en
um leið emm við þakklátar fyrir
að hafa átt hana að vini.
Elsku Sigurgeir, Embla, Sol-
veig, Gunnur og Steingrimur, við
sendum okkar innilegustu samúð-
arkveðjur og megi minningar um
yndislega eiginkonu og móður
gefa ykkur styrk.
Gerður G. Óskarsdóttir
^ENNING
Sigrún og Selma
í Islensku óperunni
í dag kk 14*30
Þetta em fyrstu tónleikar Sig-
rúnar Eðvaldsdóttur frá því að hún
vann til verðlauna á hinni þekktu
Sibeliusar tónlistarkeppni í desem-
ber í fyrra. Sigrún varð fyrst íslend-
inga til að ná slíkum árangri í jafn
erfiðri keppni og hefur vakið mikla
athygli.
Hún hefur komið fram á fjöl-
mörgum tónleikum hérlendis sem
erlendis á undanfomum árum og
mun ekki ofmælt að hún sé talin
einhver efhilegasti, íslenski tónlist-
armaður sem fram hefur komið í
langan tíma. í kjölfar árangurs síns i
Sibeliusarkeppninni hyggst Sigrún
leggja höfuðáherslu á einleikinn en
áður hefur hún m.a. starfað sem
fyrsti fiðluleikari i Miami strengja-
kvartettinum og hún var konsert-
meistari hljómsveitar Islensku óp-
emnnar á sýningum Rigólettó síð-
astliðinn vetur.
Sigrún kom ffam með sinfóníu-
hljómsveitum í bæjunum Vasa og
Pori í Finnlandi í april s.l. og lék
hún með þeim einleik í fiðlukonsert
Mendelsohns á tvennum tónleikum.
Selma Guðmundsdóttir hefur á
undanfomum árum margsinnis
komið fram á tónleikum bæði utan
lands og innan, ýmist á einleikstón-
leikum, sem einleikari með sinfón-
iuhljómsveitum eða á kammertón-
leikum. Þær Sigrún hafa ofl leikið
saman áður, bæði hér heima og er-
lendis, síðast á tónleikum Tónlistar-
félagsins í Reykjavík síðasta haust.
-kj
Mynd-
lista-
námskeið
fyrir
börn
Innritun dagana: 22. - 31. maí,
kl. 14.00 - 17.00 í Tónskóla Eddu
Borg, Hólmaseli 4-6.
Þar verður námskeiðið jafn-
ffamt haldið. Farið verður í keram-
ik, málun, blandaða tækni, teikn-
ingu o.fl. Leiðbeinendur eru Guð-
laug Halldórsdóttir, grafískur hönn-
uður, og Helga Jóhannesdóttir, leir-
listarkona.
Þær hafa báðar veitt bamastarfí
forstöðu áður.
AUGLÝSINGAR
Það em nú senn 17 ár síðan ég
kynntist henni Helgu Gunnarsdótt-
ur, frænku minm og vinkonu.
Leiðir okkar lágu saman í tón-
menntakennaradeildinni í Tónlist-
arskólanum í Reykjavík, hún
sprenglærð á lokaári, - ég lítill
busi. Frá fyrstu tíð þótti mér mikið
til þessarar ffænku minnar koma.
Hún var aðsópsmikil í fasi, talaði
jafnan sköralega, var föst fyrir og
fylgin sér, söng eins og engill og
hló sérkennilegum, dillandi hlátri
sem lét engan ósnortinn. Það var
aldrei lognmolla í kringum Helgu í
Brekku. Gilti þá einu hvort starfs-
vettvangur nennar væri við
kennslu i Kennaraháskólanum,
Tónlistarskólanum eða Leiklistar-
skólanum, á fundum í tónmenntar-
kennarafélaginu, á bamakóramót-
um eða á kóræfíngum - alltaf var
áhuginn jafn brennandi og alltaf
átti hún jafh auðvelt með að hrifa
fólk með sér. Auk þess átti hún
stórt hjarta og hús sem rúmaði
fjölda vina; stóra og yndislega
fjölskyldu, að ógleymdum fjölda
ferfættra heimilisvina. Ötullega lét
hún félagsmál okkar tónmennta-
kennara til sin taka og síðustu árin
var hún fulltrúi okkar í samtökum
norrænna tónlistar- og tónmennta-
kennara, NMPU, og var forseti
stjómar félagsins þegar hún lést.
Það var einmitt á stjómarfundi í
Kaupmannahöfn fyrir rúmu ári,
sem hún kenndi sér meins af þeim
sjúkdómi sem hefur nú lagt nana
að velli. Sá fundur var haldinn til
að undirbúa ráðstefnu tónlistar-
kennara sem verður á Laugarvatni
nú í sumar og er mér til efs að af
henni hefði orðið ef ekki hefði
komið til eldmóður Helgu og trú á
því að við gætum staðið fyrir jafn
veglegri raðstefnu og kollegar
okkar á hinum Norðurlöndunum.
Mikið hlakkaði hún til að takast á
við þetta verkefni og mikið átti
hún erfitt með að sætta sig við að
taka sér fri frá stjórnarstörfum
þegar heilsan brást. Síðustu vik-
umar, þegar hún var orðin fársjúk,
fylgdist hún engu að síður grannt
með öllum undirbúninigi, biýndi
okkur busana og áminnti okkur
um að gleyma nú ekki þessu eða
hinu og að sjá til þess að þetta eða
hitt yrði nú gert almennilega. Við
höfum fylgst með henni berjast
hetjulega, full vonar og bjartsýni á
að þesum ósköpum færi brátt að
linna. Það er sárt til þess að hugsa
að hún verði ekki með okkur fram-
ar og ósættanlegt gagnvart fjöl-
skyldu hennar, eiginmanni og
bömum. Þeirra bíður það erfiða
hlutskipti að læra að lifa án henn-
ar. Eg er þess hinsvegar fullviss að
hún á eftir að vera með okkur i
anda og úr mínu húsi fvlgir sú bæn
að hugur hennar og kjarkur efli
okkur hin sem kveðjum hana nú
með kærri þökk fyrir allt.
Tóta
DÓMS OG -
KIRKJUMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Námskeiö og próf
vegna löggildingar
fasteigna- og skipasölu
Fyrirhugað er að efna til námskeiðs og prófa vegna iöggilding-
ar fasteigna- og skipasala sem hefst í september nk. ef næg
þátttaka fæst.
Fyrirkomulag námskeiðs og prófa verður þannig:
Námskeið Próf
I. hluti september - desember 1991 janúar 1992
II. hluti janúar- apríl 1992 maí 1992
III. hluti september - desember 1992 janúar 1993
Kostnaður við að taka þátt í námskeiðinu er nú áætlaður kr.
120 þúsund fyrir hvern námskeiðshluta en verður ákveðinn
þegar fjöldi þátttakenda liggur fyrir. Kostnaður við þátttöku í
prófi er kr. 15.000.
Þeir sem óska eftir að taka þátt í námskeiðinu og/eða gangast
undir próf skulu tilkynna það til ritara prófnefndar, Viðars Más
Matthíassonar, hæstaréttarlögmanns, Borgartúni 24, 105
Reykjavík, fyrir 15. júní nk. Innritunargjald, kr. 5000, skal fylgja
tilkynningu. Gjaldið er endurkræft ef námskeiðið fellur niður
eða tilkynnandi fellur frá þátttöku áður en námskeiðið hefst.
Nánri upplýsingar veitir dómsmálaráðuneytið, Arnarhvoli, sími
609010.
Reykajvík, 23. maí 1991
Prófnefnd löggiltra fasteignasala
REYKJAVÍKURHÖFN
Umsjónarmaður fasteigna
Reykjavíkurhöfn óskar að ráða umsjónarmann fasteigna.
Starfið felst í daglegu eftirliti með öllum húseignum Reykjavík-
urhafnar, umsjón með nauðsynlegu viðhaldi, rekstri veitu-
kerfa, eftirliti með umhverfi og þjónustu við leigjendur. Boðið
er uppá góða starfsaðstöðu og fjölbreytilegt starf.
Leitað er að áhugasömum manni sem getur starfað sjálfstætt
og haft frumkvæði í starfi. Iðnfræðimenntun og einhver tölvu-
þekking æskileg.
Umsóknarfrestur er til 10. júní n.k. Upplýsingar um starfið veit-
ir forstöðumaður hafnarþjónustu Reykjavíkurhafnar.
Hafnarstjórinn í Reykjavík
Frá Háskóla íslands
Skrásetning nýrra stúdenta
Skrásetning nýrra stúdenta til náms í Háskóla (slands há-
skólaárið 1991-1992 ferfram í Nemendaskrá Háskólans dag-
ana 3.-14. júní 1991. Umsónareyðublöð fást í Nemendaskrá
sem opin er 10-12 og 13-16 hvern virkan dag.
Einnig verður tekið við beiðnum um skrásetningu nýrra stúd-
enta dagana 6.-17. janúar 1992.
Við nýskrásetningu skrá stúdentar sig jafnframt í nám-
skeið á komandi haust-og vormisseri.
Umsóknum um skrásetningu skal fylgja:
1) Ljósrit eða staðfest eftirrit af stúdentsprófskírteini.
2) Skrásetningargjald: kr. 7.770,- Ljósmyndun vegna nem-
endaskírteina ferfram í skólanum í september 1991.
Ekki er tekið á móti beiðnum um nýskrársetningu, né endur-
greidd skrásetningargjöld, eftir 31. ágúst ár hvert.
Skráetningargjald vegna nýskrásetningar í janúar er ekki
endurgreitt.
Fjármálaráðuneytið
Húsnæði óskast
Ríkissjóður leitar eftir kaupum á íbúðarhúsi á (safirði.
Um er að ræða einbýlishús, par- og/eða raðhús, u.þ.b. 150-
200 rrf að stærð að meðtalinni bílgeymslu.
Tilboð, er greini stærð, byggingarár- og efni, fasteigna- og
brunabótamat, verðhugmynd og áætlaðan afhendingartíma,
óskast send eignadeild fjármálaráðuneytins, Arnarhvoli 150,
Reykjavík, fyrir 10. júní 1991.
Framhaldsskólakennarar
Kennara vantar að framhaldsskólanum á Laugum næsta
skólaár.
Umsóknarfrestur er til 15. júní nk.
Upplýsingar gefur skólameistari í símum 96-43112 og 96-
43113.
Síða 15
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 25. ma( 1991