Þjóðviljinn - 05.07.1991, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 05.07.1991, Blaðsíða 12
Bandaríki ■ hvað nú? Þjóðhátíðardagur Bandaríkja- manna var í gær. Þeir búa sig sem óðast undir að minnast 500 ára afmælis landtöku Kól- umbusar á næsta ári. En hverju skal fagna og hvert stefnir? Meðan horfið er frá miðstýringu og opinberum rekstri annars staðar þenst ríkisgeiri Bandaríkjanna út. Eru lögfræðingar hinn ósýni- legi fótur hnignunarinnar? Sokknir í margs konar þjóðfé- lagsmein héldu Bandaríkja- menn samt galsvaskir dýrustu og mestu sigurhátíð allra tíma, til að fagna sigri í Flóabar- daga. Skruðningar og skriðdreka- sveitir á breiðgötunni Madison Drive, í hjarta Washingtonborgar, fimmtudaginn 6. júní 1991: Þetta minnir helst á innrásina í Tékkó- slóvakíu eða hersýningar á Rauða torginu í Moskvu á byltingaraf- mæli. Halarófa okkurlitaðra bryn- vagna öslar drynjandi fram hjá Sögusafninu og beygir inn á gras- flötina við Náttúrugripasafnið. Það er verið að undirbúa „sigur- göngu allra tíma“, hér og í öðrum stórborgum Bandaríkjanna, í til- efni Persaflóastríðs. Margmenni safnast strax kringum hertólin, skriðdreki er kaffærður í bömum. Víðáttumiklir vellimir milli þing- hússins og George Washington- minnismerkisins í miðborginni fýllast ört af þyrlum, þotum, eld- flaugaskotpöllum, jeppum og öðrum vígvélum úr Persaflóa- stríðinu. Ég spyr þyrlustjóra sem stendur við farartæki sitt hvort svona hersýningar séu algengar hér í miðbænum. „Alltaf þegar við vinnum stríð,“ hlær hann dá- lítið sposkur og visar til þess hve langt er síðan Bandaríkjamenn hafa komið galvaskir af vígvöll- um. Og nú á ekki að gleyma þeim. A öllum brautarpöllum og flug- stöðvum em gular slaufúr og borðar í fánalitunum þar sem heimkomu liðsveitanna úr eyði- merkurrykinu er fagnað með áletruninni „Welcome Home Tro- ops“. Annað austur-evrópskt minni læðist fram í hugann af þessu til- efni. Við brottför frá Austur-Berl- ín fyrir margt löngu var ég stöðv- aður snarlega í almennum forsal flugstöðvarinnar af starfsfólki Interflug, grunaður um að hafa á prjónunum ljósmyndatöku á staðnum. A Baltimore/Washing- ton-flugvelli endurtók sambæri- legt atvik sig við brottfor frá Bandaríkjunum að þessu sinni, en nú var ég handsamaður af starfs- liði Intercontinental, þegar ég reyndi að ljósmynda „Welcome“- borðana, sakaður ranglega um ljósmyndatökur af vopnaleitar- tækjum. I hvorugu þessara flug- vallatilfella var ég samt búinn að hleypa af einu einasta skoti þegar árvökult Inter-fólk yfirbugaði mig. En í gær var hér friðsamlegra umhorfs á Washington-velli (the Mall). Einu skotfærin voru homa- boltar og fólk undi sér að venju í sólbreiskjunni í spekt við alþýð- legan fognuð, teygði flugdreka á loft eða sleikti sólina. Sumir vom þá komnir langt að til að borða nestið sitt: Fullorðin bændahjón frá Texas sátu og biðu eftir því að lúðrasveit landgönguliða flotans héldi kvöldtónleikana, mætt fyrst á staðinn til að missa ekki af neinu. Upplýsingar mínar um þjóðemi urðu til þess að bóndi ráðlagði mér eindregið að drekka „mikinn vökva“ og éta salttöflur til að þola betur lofthitann. Þau reyndust einlægir aðdáendur hersins. Kostnaður hersins við „sigur- göngumar“ var áætlaður 5-7 milj- ónir dollara (rúmar 800 miljónir ísl. króna). Éinkaaðilar greiddu annað eins á móti. En hvað er það svosem? Þegar vélaherfýlkin rúll- uðu inn í miðborgina var ég að koma af blaðamannafúndi suðrí Pentagon þar sem ljóstrað var upp um nýja tegund torséðra flug- skeyta, (AGM-137 og MGM- 137). Kostnaður við þróun og ffamleiðslu 8650 stykkja reyndist 15,1 miljarður dollara, eða um 950 miljarðar ísl. króna, sem er tæplega tífold íslensku fjárlögin 1991. Og svo aftur sé spurt, hvað er það á amerískan mælikvarða? Kostnaður hersins við hátíðahöld- in í Washington og New York var heldur minni en þóknun lögfræð- ingsins Roberts Strauss (nýskip- aðs ambassadors Bandaríkjanna í Texti og myndir: Ólafur H. Torfason Moskvu) fyrir að sjá um yfirtöku Matsushita-fyrirtækisins japanska á MCA-kvikmyndafyrirtækinu í Hollywood í fýrra, en launin fýrir það viðvik voru 7,5 miljónir doll- ara. Hinn ósýnilegi fótur En lögmenn mega fara að vara sig. Vegna geysilegrar fjölg- unar i lögffæðingastóðinu á sam- dráttar- og hningunarskeiði Bandaríkjanna er nú komin fram ný hagfræðikenning, um „hinn ósýnilega fót“, til samanburðar við „hina ósýnilegu hönd“ Adams Smiths. „Hinn ósýnilegi fótur“ - og þar með dragbítur þjóðfélag- anna - er starfsemi og eiginhags- munahyggja Iögfræðinganna, segir hagfræðiprófessorinn Stephen Magee, prófessor í hag- fræði við Texas-háskólann í Aust- in og fyrrverandi ráðgjafi Nixons forseta i Hvíta húsinu. Öfugt við afleiðingar „hinnar ósýnilegu handar“ þá leiði „hinn ósýnilegi fótur“, áherslan á eigin hag lög- ffæðinganna, til hrömunar í hag- kerfinu. Bandarískir lögmenn eru um 770 þúsund talsins núna og fjölg- ar ört, (1970 vom þeir 280 þús- und). Stephen Magee fullyrðir að hver lögfræðingur kosti banda- rísku þjóðina að meðaltali 1 milj- ón dollara á ári og að þeir dragi úr þjóðartekjum sem svarar hundr- uðum þúsunda milljarða dollara árlega. Oft geri þeir gagn, en séu fýrst og ffemst að endurdreifa fjármagni, ekki skapa það. Ein af röksemdum Magees byggir á athugunum á hlutfalli lögfræðinga hjá 34 þjóðum miðað við verga þjóðarframleiðslu ár- anna 1960-1985. í Ijós kemur að því fleiri sem lögfræðingamir era hlutfallslega, þeim mun minni er styrkur hagkerfisins. Þar sem lög- menn era fáir miðað við fólks- fjölda, eins og í Japan, Suður- Kóreu og Singapore, er þjóðar- framleiðsla mikil og vaxandi, en þar sem lögmenn era á hveiju strái, eins á Indlandi, í Chile, Nepal og Bandaríkjunum, var hagvöxtur og þjóðarffamleiðsla minni á sama tímabili. Magee segir að 3% líkur séu á að fýlgnin í þessum tölfræðilega samanburði sé tilviljun. En þjóðin bregst kannski rétt við og kaupir sér bara tölvuforritið „The Desktop Lawy- er“ á 139 dollara, en á síðasta ári seldist 1,2 miljón ffumeintaka af sex gerðum slíkra forrita fýrir ein- staklinga sem era leiðir á gjald- skrám lögmanna og taka að minnsta kosti minni háttar mál í eigin hendur. Félagsnraálapakki Bandaríkjanna Þótt nú sé spáð hægfara bata í bandarísku hagkerfi, þá hefúr efnahagskreppan, samdráttur at- vinnulífs, halli á fjárlögum, er- lendar skuldir og samdráttur beint augum manna að ýmsum skað- semdum bandaríska þjóðfélags- ins, ófullkomnu velferðar- og skólakerfi, kynþáttaerjum, auk- inni glæpatíðni og eiturlyfja- vanda. En það sem verst er: Ríkis- geirinn þenst út. Samanlögð opinber útgjöld Bandaríkjamanna nema fýrir fjár- lagaárið 1991 um 42% af vergri þjóðarframleiðslu (25% era alrík- isútgjöld og 18% annað á vegum ríkis og sveitarfélaganna). Þetta hlutfall er minna en í Bretlandi og Svíþjóð, en ekki mikið lægra. Op- inber útgjöld Bandaríkjanna 1950 námu aðeins 24% af VÞF. Sömu þróun sýna tölur um innbyrðis hlutfallabreytingar á fjárlögun- um. Rétt fýrir upphaf síðari heimsstyrjaldar vora útgjöld til velferðarmála (heilsugæslu, menntunar, tekjutryggingar ofl.) um 30,5% af alríkisútjöldum, en þessi liður var kominn í 49,5% 1990 og er áætlaður 51,7% árið 1992. Þótt það standi hvergi í stjóm- arskrá Bandaríkjanna að þau eigi að vera valddreift auðvaldsríki (ekkert í stjómarskránni meinar þeim að taka upp kommúnisma) þá hljómar þetta allt eins og mesta þversögn í eyrum margra. I fyrsta lagi er vitað að Bandaríkjamenn eru minna sinnaðir fýrir ríkis- rekstur en aðrar þjóðir. Alþjóðleg skoðanakönnun leiddi það í ljós 1987 að aðeins 21% Bandaríkja- manna álitu að „ríkisvaldið ætti að tryggja að allir fengju ákveðn- ar granntekjur“, en 56% Vestur- Þjóðverja svöraðu slíkri spum- ingu játandi og 61% Breta. í sömu könnun (Intemational Social Sur- vey Program) kom ffam að 82% Itala og 75% Hollendinga finnst ríkið skuldbundið til að „útvega störf öllum sem þess óskuðu", en ekki nema 45% Bandaríkjamanna voru sama sinnis. Skýringin er náttúrlega sú, eins og annars staðar, að þótt Bandaríkjamenn séu í orði kveðnu á móti miklum ríkisaf- skiptum, þá vilja þeir öflugan op- inberan geira. Með aukinni vel- sæld og tækniframforum hafa all- ar kröfúr um félagslega þjónustu aukist. Fólk vill, hvað sem það kostar (jafnvel aukinn fjárlag- halla) beijast gegn fíknilyfja- Bændahjónin frá Texas ætluðu ekki að missa af tónleikum lúðrasveitar landgönguliða flotans um kvöldið og voru mætt á undan öllum öðrum með nestið sitt á flötinni framan við þinghúsið á Kapítólhæð (hjarta Washington-borgar. Washington-völlur í miðbænum troðfullur af vígvélum Persaflóa- stríðsins. Sjónvarpsfréttamaöur útmálar dýrðina sem I vændum er I „sigurgöngunni" daginn eftir. Dreifimiði andstæðinga hersýn- ingarinnar, sem stóðu fyrir „friðar- göngu" að þinghúsinu klukkan hálfátta að kvöldi daginn fyrir „sigurgönguna" vandanum, bæta umhverfið og skólakerfið. Bæði Demókratar og Repúblikanar beijast fýrir slíkum opinberam afskiptum. En þetta þykir sérstaklega mótsagnakennt núna, meðan þær þjóðir sem hafa búið við flokk- seinræði og ríkishugmyndafræði kasta slíku og vilja minnka ríkis- afskipti, draga úr forræði, mið- stýringu og skriffinnsku, en auka markaðsbúskap og fela einkaaðil- um verkefnin. Bandaríkin, sjálf söguleg fýrirmynd takmarkana á Join The Peace Parade Wahington's OiNLY Non Military Parade Friday June 7th 7:30pm From Freedom Plaza (on Pennslvania Ave bet. 13th + 14th) to the Capitol "E’ st NW U«NW IjstNW Pennsyivxnta Ave. | FREEDOM PL.A2.-k | To help orgsrme meet at Bradshtw s/Roxanne’s 2319 I8th St. NW in Adams .Vlorgan. Lower level.One block south ot Columbia Rd. Mon. June3. 3:00PM For more Information call 703-538-6366 ríkisafskiptum og miðstýringu, hafa ekki gert annað en aukið rik- isútgjöldin á meðan. Eitt af því sem mönnum hefúr líka orðið starsýnt á, er sú staðreynd að þótt heilbrigðis- og tryggingakerfið sé að stórum hluta einkavætt i Bandaríkjunum, kemur nú á dag- inn, að samanlögð útgjöld til heil- brigðismála í Bandaríkjunum era með því hæsta sem þekkist í heiminum, en uppskeran, heilsu- far þjóðarinnar, lífslíkur ungbama og meðalaldur borgaranna, ekki í neinu samræmi við útgjöldin og f slakara ástandi en með flestum öðrum iðnríkjum. Herinn er dijúgur en þó minnkandi út- gjaldaþáttur. Samkvæmt upplýs- ingum skattyfirvalda í Washing- ton eru meðalárstekjur útvinnandi bandarískra hjóna með tvö böm 46 þús. dollarar (um 2.898.000 ísl. kr.) og af þessu greiða þau í al- ríkisskatta í ár 12.984 dollara (817.992 ísl. kr), sem jafngildir um 28% af tekjum. Af þessari skattupphæð era 8.314 dollarar beinn tekjuskattur. Hins vegar vilja sumir taka inn í heildar- skattadæmi einstaklinganna fleiri gjöld, þar á meðal óbeina skatta eins og hlutdeild atvinnurekenda í lífeyrisgreiðslum, tekjuskatta fýr- irtækja, vörugjöld af eldsneyti og áfengi osfrv. Sé allt þetta lagt til grandvallar er niðurstaðan sú að 20 sent af hveijum dollara sem er með einhveiju móti innheimtur af skattgreiðanda fara í herinn (1992 er áætlunin 20,4% ). Flokkun opinberra útgjalda í Bandaríkjunum 1991 Tekjutryggingar 32% Herinn 20% Vextir af ríkisskuldum 14% Heilbrigðismál 13% Menntamál 3% Umhverfismál 3% Samgöngur 3% Vísindi og rannsóknir 3% Dómsmál 3% Menning, landbún. ofl. 6% Hér er þess að gæta að alríkis- útgjöldin sýna ekki öll framlög opinberra aðila, því einstök ríki hafa sín fjárlög og greiða líka til verkefnanna. A upphafsárunum í stjómartíð Carters forseta vora útgjöld til hermála samkvæmt þessum reikniaðferðum 23,8% af heildar- útgjöldum alríkissjóðsins, en 22,7% þegar hann hætti. Þau námu 23,2% fýrsta Reagan-árið, en 27,3% það síðasta. Hemaðar- útgjöldin vora svo komin niður í 23,9% af ríkisútgjöldum Banda- ríkjamanna 1990 og eiga sam- kvæmt áætlun að vera 20,4% árið 1992. Og fýrir 1995 ætla þeir að draga úr herkostnaði sínum um hvorki meira né minna en 25%. En hvert stefnir þjóðin? Þær raddir hafa heyrst, að hefðbund- inn grunnur bandarískra gilda, mótmælenda-kristni, fari nú mjög halloka fýrir annars konar sjónar- miðum, eða hverfi í afskiptaleys- ið. Og þá spyija sumir: Fer þar með forgörðum sá andi kapítal- ismans sem er bakhjarl fijáls- hyggju-ffamfaranna? Enn ískyggilegra finnst öðrum, að stungið hefúr verið upp á því, að nú sé ekki seinna vænna að lýsa því formlega yfir, að enska sé op- inbert tungumál í Bandaríkjun- um. Jafmargir tala nú spænsku og ensku að móðurmáli á Flórída og nota spænskuna til allra viðskipta. Sífellt meiri fjöldi Bandaríkja- manna talar bara sína kínversku, víetnömsku eða kóresku og kemst upp með að kunna hartnær enga ensku. Aðrir benda á að einn mikil- vægasti eðlisþáttur Bandaríkj- anna sé hreyfanleikinn, aðlögun- arhæfnin og þessi síkvika og fijóa þjóðemablanda. Innflytjendafjöl- skyldum ffá Asíu gengur til dæm- is svo vel þessa stundina, að blökkumenn geta ekki lengur vís- að til þess að kynþáttafordómar valdi því að hvítir verði ævinlega ofaná. Og ekki nóg með árangur þeirra gulu í viðskiptum, menn- ingu og skólakerfi: Kóreskir og víetnamskir innflytjendur hafa í hópum sest að í „vonlausum“ fá- tækragötum stórborga, endur- byggt húsin, málað þau, stillt út blómapottum á gangstéttir og friðað hverfin fýrir ofbeldi og eit- urlyfjum. A heimleiðinni til íslands með Flugleiðum yfir Atlantshafið sat ég hugsandi um allt þetta við hliðina á breskum hjónum frá Do- ver, með tvö böm. Þau höfðu um þriggja ára skeið undirbúið bú- ferlaflutninga til Bandaríkjanna, og ætluðu að sigla þannig í kjöifar nokkurra breskra vina og ættingja undanfarin ár. í þessari síðustu júní-heimsókn höfðu þau endan- lega hætt við allt saman. „Við viljum ekki taka áhættuna sem fýlgir því að bömin okkar alist upp í þessu bandaríska þjóðfélagi, eins og það hefúr verið að þró- ast,“ sagði ffúin mér.Efst í huga hennar vora glæpir og eiturlyf. „Auk þess era atvinnuhorfur og Iaunakjör eiginmannsins í skipa- smíðastöðinni heima í Englandi skárri en honum býðst vestra.“ Þeir borga ekki lengur Verða íslendingar innan skamms látnir borga rekstrar- og mannvirkjakostnað vamarliðs- ins? Bandaríkin herða nú að sam- starfs- og bandalagsaðilum að taka þátt í rekstri herstöðva og borga síðan fúllt markaðsverð fýrir mannvirkin við lokun þeirra. Embættismenn í Wash- ington era ekki á einu máli um „sérstöðu“ íslendinga Bandaríkin era að Ioka budd- unni: Fyrir 1995 á að draga um 25% úr hemaðarútgjöldum. Hundruðum herstöðva verður lokað. Bandarísk stjómvöld hafa ákveðið, að stefnt skuli að því að bandalags- og samstarfsþjóðir, sem hýsa herstöðvar þeirra, greiði raffnagn, hita, mat, elds- neyti og almennan launa- og rekstrarkostnað vegna herliðsins. Bandaríkin leggja aðeins ffam mannskap og tæki. Við brottför bandarískra heija verður síðan rakkað fúllt markaðsverð fýrir fasteignir og framkvæmdir sem þeir hafa tekið að sér á „sam- starfstímanum". Nýlega skilaði bandaríski herinn í Þýskalandi nokkram landskikum sem hann hafði hafði haft til umráða og breytt í homa- boltavelli, en lagði um leið ffam reikning í Bonn vegna útlagðs kostnaðar við endurbætur á svæðunum. Þjóðveijamir höfn- uðu með öllu að borga og sögðu: „Þetta er okkur einskis virði, við eram ekkert í homabolta.“ Þessi níska Þjóðveija mælist illa fýrir í Washington. Banda- riska þingið samþykkti árið 1990 lög sem kveða skýrt á um það, að í öllum herstöðvum Bandaríkj- anna sem þeir yfirgefa erlendis, skuli krafist fulls markaðsverðs fýrir þær framkvæmdir og fjár- festingar sem bætt hafi aðstöðu í landinu. Flest bendir til að þetta verði Bandaríkjamönnum harð- sótt víðar en í Þýskalandi, en þar hafa þeir eytt um fimm miljörð- um dollara í herstöðvar. Repúblikaninn Earl Hutto frá Flórída, formaður einnar undir- nefndar þingsins varðandi her- mál, benti hneykslaður á að Þjóð- verjar greiði Sovétmönnum fús- lega 15 miljarða dollara fýrir að færa her sinn úr því sem hét Austur-Þýskaland, en þegar að Bandaríkjamönnum komi sé ann- að uppi á teningnum, þeir þurfi að semja sig burt og líklegast sé að brottflutningur herliðsins frá Þýskalandi muni kosta banda- riska skattgreiðendur álitlegar summur. Aronskan afturábak? Hvað gerist á íslandi? Verður fækkað verulega í herstöðinni i Keflavík eða henni kannski lok- að? Og verði hún starfrækt áfram, munu Bandaríkjamenn þá fara hvað úr hverju að rakka Is- lendinga um rekstrarkostnaðinn, eins og núna er reyndar gert á Kyrrahafssvæðinu? Er „aronskan affurábak" það sem bíður ís- lenskra áhugamanna um vest- ræna samvinnu? Verður Kefla- víkurstöðin sett á íslensk fjárlög í framtíðinni, ætli íslendingar sér að halda áfram í öryggissamstarfi innan NATO? Stöðu Islands að þessu leyti bar á góma í samtölum við marga embættismenn í Washington í júní sl., þar á meðal tvo ráðgjafa utanrikismálanefhdar fúlltrúa- deildar bandaríska þingsins. Þeir bentu á, að víða hefði þetta fýrir- komulag um skiptan kostnað ver- ið í gildi um langa hríð. Sam- drátturinn í útgjöldum til vamar- mála og skipting sameiginlegs kostnaðar við Persaflóastríðið hefði svo orðið til að efla skiln- ing þjóða á því, að Bandaríkja- menn mundu ekki i framtíðinni axla þvílíkar byrðar sem hingað til í öryggis- og vamarmálum víða um hnöttinn. Ekki er hægt að segja að bandarískir embættismenn hafi verið fýllilega á einu máli um hvað biði íslands sem NATO-að- ila í þessu efni. Flestir telja lík- lega að krafan um veralega þátt- töku í kostnaði eigi engan veginn við um ísland, það hafi „sér- stöðu“, þótt ekki væri nema vegna fólksfæðarinnar, en lega landsins og hemaðarlegt mikil- vægi er líka talið ffarn í hefð- bundum stíl. Sumir bandarískir talsmenn telja þó rétt að gera ráð fýrir að íslendingar taki í ffam- tiðinni siaukinn þátt í kostnaðin- um. Greiðslur Islendinga mundu hins vegar ekki spara Bandaríkja- mönnum stórar fjárhæðir hlut- fallslega, en ímynd þeirra hér á landi eflaust breytast færa þeir eða setja fram slíkar kröfur núna. Fulltrúar utanríkismálanefnd- ar þingsins töldu að þetta hefði aldrei verið rætt hvað varðaði ís- land sérstaklega og þeir hefðu ekki trú á því að nokkum tíma yrði í alvöra farið ffarn á þetta við Islendinga. Hins vegar væri því ekki að leyna að fáir banda- riskir þingmenn gerðu sér fúlla grein fýrir mikilvægi Islands og í þeirra röðum mætti auðveldlega finna menn sem mundu styðja hugmyndina. Embættismaður í Pentagon var sama sinnis um yfirgnæfandi mikilvægi íslands og komst þannig að orði að GlUK-hliðið væri „verðmætasta fasteign á jörðinni“. (GIUK: Greenland- Iceland-United Kingdom, nafn- gift á hafsvæðunum milli land- anna.) íslendingar óábyrgir? Einn sérffæðingur utanríkis- málaráðuneytis Bandaríkjanna var þó á annarri skoðun: „Það væri villandi að ímynda sér, að það verði ekki dregið úr fram- kvæmd og kostnaði á íslandi líka, það er verið að vinna að til- lögum um þau mál núna.“ í Pent- agon var því hins vegar til svarað af hálfú talsmanna vamarmála- ráðneytisins, að sjálfir hefðu þeir ekki heyrt að neitt slíkt væri í bí- gerð varðandi ísland. Hitt kom skýrt fram, að ýms- ir Bandaríkjamenn bera mis- mikla virðingu fyrir afstöðu og ffamlagi Islendinga í hermálun- um. Sú rödd heyrðist í utanrikis- ráðuneytinu, að íslendingar hlytu bráðum að draga úr takmörkun- um á ferðaffelsi bandarískra her- manna á Islandi. íslendingar mættu líka vara sig á því að spilla áliti sínu á alþjóðavettvangi með vanhugsuðum afvopnunartilllög- um: „OIl lönd hafa sínu hlutverki að gegna, en varðandi málflutn- ing íslands um afvopnun á höf- unum er það að segja að ísland þokaði engu,“ („Iceland didn’t advance anything"), „en tókst að móðga marga og sumum fannst þetta óábyrgt. Fyrir bragðið era þeir ófúsari til að nenna að hlusta á ykkur eða taka mark á í öðrum efnum. Þetta var hugsað sem um- hverfisvemdartillaga, vegna fisk- stofna og líffíkis sjávar og hefði því átt að bera ffam á slikum við- eigandi vettvangi.“ Sparnaðarhugmyndirnar varðandi herinn glymja hvar- vetna og endurómuðu i orðum bandaríska vikuritsins Newswe- ek 10. júní, þar sem sagt var að með ákvörðunum vamarmála- ráðherra NATO í Brassel í júni sl. um stórkostlegan samdrátt í her- afla hefði einkum tekist að „...sefa bandaríska þingmenn sem berjast fýrir því að Banda- ríkin dragi herlið sitt snarlega og einhliða frá Evrópu“. Óvinur óskast í Pentagon hafa menn ákveð- ið að loka 200 herstöðvum í Evr- ópu og fækka í liðsstyrk sínum þar úr 320 þúsund manns í um 100 þúsund, sumir vilja fara nið- ur i 75 þúsund. Áköfústu spam- aðarsinnar á Bandaríkjaþingi vilja reyndar kippa öllum herafl- anum burt strax og láta Evrópu- menn sjá um sig sjálfa. Leyfa þeim að eiga sitt Vestur-Evrópu- bandalag (WEU) í ffiði. Vandinn með NATO i:r sá að það vantar óvin, eftir Iok kalda stríðsins, fall Berlínarmúrsins og upplausn Varsjárbandalagsins. A ráðherrafundum NATO í júni var lagt á ráðin um róttækustu breyt- ingamar á stefnu og starfsháttum bandalagsins ffá stofnun 1949. Dregið verður veralega úr her- styrk NATO og hann gerður sveigjanlegri. Mörgum þótti fréttnæmast að heyra ákvarðan- imar um nýjar „hraðfara sveitir" (rapid reaction forces / Rapid Re- action Corps), en i þeim eiga að vera 70-100 þúsund hermenn undir breskri herstjóm. Þessar úr- valssveitir eiga að geta komið til skjalanna hvar sem er innan NATO-sambandssvæðisins á innan við 72 klst., eða þrem sól- arhringum. Frakkar, sem hafa ekki starf- að í herstjóm NATO frá 1966, hafa svo lýst því yfir að þetta sé kænskubragð Bandaríkjamannaa til að draga þrótt úr WEU, Vest- ur-Evrópubandalaginu endur- vakta. En hvað er NATO í raun og veru? Mesta herffæðilega til- raunastofa veraldar, eins og sum- ir segja? Risavaxin vígvél sem miðar ekki á neitt? Eftir Persa- flóastríðið hafa heyrst þær raddir, að nú séu Bandaríkjamenn ekki lengur sama hugsjóna-heimslög- regla og áður var, heldur mála- liðalögregla heimsins. Þeir vilji einfaldlega komast i vinnu við öryggisgæslu. í því ljósi beri að skoða allar tillögur þeirra um greiðslur og kostnaðarskiptingu. Ólafur H. Torfason 12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 5. júlí 1991 Föstudagur 5. júlí 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SfÐA13

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.