Þjóðviljinn - 10.08.1991, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 10.08.1991, Blaðsíða 6
d§ Hvernig líst þér á nýja útvarps- stjórann? Guðgeir Ólafsson ellilífeyrisþegi: Bara mjög vel. Hann er hlutlaus og á vonandi eftir að losa okkur við amerísku velluna sem heyrist allan daginn. Björn Sigurjónsson verkamaður: Ágætlega. Ég vona að hann eigi eftir að standa sig í starfinu. Oddný Óskarsdóttir kíropraktor: Mér líst ekki vel á hann, því hann er ógurlega forn- aldarlegur. Þorbjörg Halldórsdóttir atvinnulaus: Ég er ekki kunnug mannin- um og hef enga skoðun á þessu. Jóhannes Guðfinnsson lifir á sólskininu: Mér líst allvel á hann, og ég hef allar ástæður til að ætla að hann standi sig í starfinu. S Ibyrjun ágúst náöist sá áfangi hjá Þjóðháttadeild Þjóðminja- safns íslands að heimildasafn deildarinnar fytlti tíu þúsund númer. Þessi söfnun, sem gengur út á það að senda öldruðu fólki spurningalista um ýmsa hætti og siði sem tíðkuðust í gamla daga, hófst fyrir þremur áratugum. Á þeim tima hafa fengist svör ffá hundruðum manna af öllu landinu en spumingaskrár hafa verið um 80 talsins. Spumingaskrár þær, sem deildin hefur sent út, hafa að langmestu leyti verið um þjóðhætti í sveitum og hef- ur Þórður Tómasson, safnvörður í Skógum, haft veg og vanda af gerð þeirra, með aðstoð sérffóðra manna um ýmis atriði. Alls hafa heimildarmenn deildar- innar verið um 2.000 og hinir elstu þeirra vom fæddirum 1870. Blaðamaður heimsótti Hallgerði Gísladóttur,_ sagnffæðing hjá Þjóð- minjasafni Islands. Hallgerður sagði að það hefði verið Kristján Eldjám, fyirverandi forseti íslands, sem byrj- aði fyrst að safna þessum heimild- um. „Fólk hefúr tekið mjög vel í þetta og við ætlum auðvitað að halda söfhuninni áffam.“ Hallgerður sagði að í byijun árs hefði verið farin herferð til að afla heimildarmanna fyrir Þjóðháttadeild Þjóðminjasafnsins, sem mjög vom famir að týna tölunni. Bréf vom send til kvenfélaga víða um land og átthagafélaga á höfuðborgarsvæðinu, með beiðni um að bent yrði á fólk sem þætti líklegt til að leggja eitt- hvað af mörkum til söfnunarstarfs- ins. Eirrnig var haft samband við sóknamefhdir í Reykjavík og ná- grenni vegna þessa. Skemmst er frá því að segja að undirtektir urðu harla góðar og hafa verið send bréf og spumingaskrár til fjölda nýrra heim- ildarmanna á undanfómum mánuð- um. Sumir sendu jafnvel myndir og ýmsa hluti fyrir safnið með svarlist- anum sínum. Síðustu tvær skrámar, sem send- ar vom til fólks, fjölluðu annarsveg- ar um sjávar- og strandnytjar en hins vegar um fatnað og saumaskap á heimilum. Hefur t.d. safnast töluvert af gömlum fatnaði í tengslum við hana. Til að gefa betri mynd af heim- ildaskrám þeim sem um er að ræða, em hér teknar fyrir nokkrar spum- ingar sem gamla fólkið er beðið um Hallgerður Gísladóttir, sagnfræðingur, segir að gamalt fólk vilji gjarnan segja frá gamla tímanum. Hér er taurúlla en hún var notuö til að slétta þvott. Þvottinum var vafið upp á keflin, sem em undir kassanum, og kassinn slðan dreginn fram og aftur yfir keflin. Þessa fallegu súpuskál gefur að Ifta á Þjóöminjasafni (slands. Gamalt fólk segir frá sinni tíð að svara. Spumingamar em teknar úr skrá sem fjallar um atvinnuhætti. „Hvenær vaknaði heimildarmað- ur að morgni til vinnu? Hvemig, áð- ur en vekjaraklukka kom? Hvenær kom hún inn á heimilið? Var reynt að snúa á nýja starfsmenn og gert grín að þeim, meðan þeir vom óvan- ir? Vom til starfsmenn sem öðmm fremur urðu fyrir striðni? Hvað ein- kenndi þá?“ Heimildarmenn eiga síðan að svara spumingunum sem best þeir geta og þannig verða heimildarskrár til. í haust verða send- ar út þrjár skrá og munu þær fjalla um nytjun æðafugls, út- saum og meindýr. Allir sem þekkja eða vita af eldra fólki sem gæti verið viljugt til að láta i té upplýs- ingar um daglega lífs- hætti á heimaslóðum sínum, em beðnir um að koma þeim ábend- ingum til Þjóðhátta- deildar Þjóðminja- saihsins. Ljósmyndari blaðsins tók nokkrar myndir í Þjóðminja- safhinu þar sem gefúr að lita foma hluti sem notaðir vom í gamla daga. Þetta em hinir merkilegustu hlutir í alla staði eins og sjá má. -KMH Svona fiskispaði var notaður til að lyfta fiski upp úr potti. Myndir: Jim Smart. % m. Síða 6 ÞJÖÐVVjtWÍ ÉaugaráaguFlÖ^gúst'199V

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.