Þjóðviljinn - 10.08.1991, Qupperneq 15
GATBÐ
Með lögum
skal land byggja
Það er ekki sama á hvem er
ekið, né hver ekur á hvern.
Það fékk starfsmaður Geð-
deildar Landspítalans, sem
var á ferðinni með nokkra
skjólstæðinga sina í smárútu,
að reyna hér á dögunum.
Hann ók eftir aðkeyrslu á lóð
Landspítalans við hlið löggu-
bíls. Þegar gatan þrengdist
skyndilega og óvíst hvor
skyldi víkja, neyddust báðir til
að stöðva. Starfsmaðurinn
hafði forskot og hugðist nýta
sér það þvert á ætlun ákveð-
ins ökumanns löggubílsins
sem ók ógnandi í átt að sjúk-
lingarútunni og rak við það
stuðrann i hjól hennar án
þess þó að verulegt tjón hlyt-
ist af.
Starfsmaðurinn var að vonum
ósáttur við þetta og gekk til
löggunnar og spurði þá hvort
þeir hefðu tjónaskýrslu. Þeir
skipaðu honum að setjast inn
í löggubílinn og kröfðu hann
skilríkja en vildu ekki ræða
tjónaskýrslu né kalla til félaga
sína í lögreglunni til að meta
aðstæður, heldur vildu þeir
Ijúka málinu óopinberlega á
sinn eigin hátt. Þessu vildi.
starfsmaðurinn ekki una,
enda á bifreið í eigu Landspít-
alans, og hugðist hann fara
og kalla til þriðja aðila (þ.e.
lögguna) en þá brugðust lag-
anna verðir ókvæða við,
stukku á manninn og færðu
hann með valdi aftur i löggu-
bílinn en gáfust upp við að
reyna að fá manninn til að
falla frá skýrslu þegar þeir átt-
uðu sig á því að fjöldi manns
var kominn til að fylgjast með
hvernig þeir reyndu að kom-
ast hjá þvi að fara að settum
reglum í umferðinni.
TEYCT & TOGAÐ
Mynd: Jón Fjömir.
Hver ertu?
Hafþór Ragnarsson söngvari
í hljómsveitinni Synir Raspútíns
(hvaða stjömumerki ertu?
Ég er Vog.
Hvað ertu að gera núna?
Lesa bókina Söngur villiand-
arinnar eftir Einar Kárason.
Hata me*t:
Hræsni.
Eiska mest:
Að vera til.
Hvað er fólk flest?
Fólk er yfirleitt eins og það er
flest.
Hvað er verst/best í fari
karla?
Það er eflaust eitthvað.
Hvað er verst/best í fari
kvenna?
Það er eflaust eitthvað.
Óttastu um ástkæra ylhýra
málið?
Já, það kemur fyrir.
Ertu myrkfælinn?
Já.
Hefurðu séð draug?
Nei.
Værirðu ekki þú, hver vild-
irðu vera?
Fred Flintstone.
Hefurðu hugleitt að breyta
lífi þínu algjörlega?
Nei.
Hvað er það versta sem
gæti komið fyrir þig?
Klipping.
Hvað er áhrifamesta leikrit
sem þú hefur séð?
Líklega var það leikritið Dýrin
í Hálsaskógi sem hafði mestu
áhrifin á mitt líf.
Leiðinlegasta bók sem þú
hefur lesið?
Þjófur í Paradís eftir Indriða
G. Þorsteinsson.
Skemmtilegasta kvikmynd
sem þú hefur séð?
Three Amigos.
Áttu bam eða gæludýr?
Ég á kött.
Ertu með einhverja dellu?
Ekki þá nema tónlistardellu.
En með einhverja komp-
lexa?
Ég hef stundum viljað vera
með bumbu því ég er svo ofsal-
ega horaður.
Kanntu að reka nagla í
vegg?
Já, alveg tvimælalaust.
Hvað er kynæsandi?
Konur.
Áttu þér uppáhaldsflík?
Ég á gamla hettuúlpu sem
pabbi minn var alltaf í á sjónum.
Ertu dagdreyminn?
Ég er mikill draumóramaður.
Ertu feiminn?
Já, við vissar aðstæður þá er
ég mjög feiminn.
Skipta peningar máli í lífi
þínu?
Já, þeir hljóta að gera það
hjá öllum.
Hvað er það sem mestu
skipti í lífi þínu?
Það er nú ansi margt. T.d. ég
sjálfur, fjölskyldan mín, kötturinn,
kærastan og hljómsveitin.
IBAG
10. ágúst
er laugardagur.
Lárentíusmessa.
222. dagur ársins.
Nýtttungl.
Sólarupprás í Reykjavík kl.
5.01 - sólarlag kl. 22.03.
Viðburðir
Þjóðhátíðardagur Ecuador.
Landsyfirréttur stofnsettur
1801.
Þjóðviljinn
fyrir 50 árum
Nýtt Dagblað: Byggingasjóður
verkamanna þarf að bjóða út
nýtt lán til bygginga á verka-
mannabústöðum. Peningar
eru nógir ef byggingaefni
fæst. Barizt af mikilli heift í
Eistlandi við Smolensk og [
Ukrainu. Rauði herinn segist
hafa gersigrað 10 þýzk her-
fylki.
fyrir 25 árum
Landbúnaðarráðherra við
sama heygarðshornið: Hvetur
bændur ennþá til að stækka
búin og auka ræktun. Enn
„njóta“ Eyjamenn sjónvarps-
ins. Heildarsíldveiðin í sumar
nemur nú 191.203 lestum.
Sá spaki
Nútímamaðurinn lifir í þeirri
blekkingu að hann viti hvað
hann vill - í rauninni vill hann
það sem ætlast er til að hann
vilji.
(Erlch Fromm)
Óregla í andardrættinum
sokum krampakenndra
kippa í þindinni.
Finnst þér þú ekki öllu
merkari persóna núna?
Þakka þér kærlega fyrir,
Rósalind. .
=T7----------
Þakka þér
aftur og
Sfða 15
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 10. ágúst 1991