Þjóðviljinn - 17.09.1991, Side 1
Innleiðir Sighvatur
frumskógarlögmálið?
Ef það kemur til að þessum fjórum skurðstofum verður lok-
að á landsbyggðinni og síðan niðurskurður upp á 500 milj-
ónir til spítalanna hér í Reykjavík, get ég ekki betur séð en
það þurfi að koma á forgangskerfi tii að koma í veg fyrir að
frumskógarlögmálið verði allsráðandi í heilbrigðiskerfinu, sagði
Jóhannes Gunnarsson, formaður læknaráðs Borgarspítalans, við
Þjóðviljann í gær.
Á fundi með fjölmiðlum, sem
stjórn læknaráðs Reykjavikur
boðaði til í gær, kom fram í máli
Jóhannesar að ef af fyrirhuguðum
niðurskurði yrði, myndu allir bið-
listar lengjast til muna. -Það má
ekki gerast að einhver einn hópur
í þjóðfélaginu, t.d. þeir sem ber-
ast mikið á, gangi fyrir í aðgerð-
um á spítölunum. Sú hætta verður
fyrir hendi ef fjármagnið verður
skorið niður eins og nú er talað
um. Ráðamenn þjóðarinnar verða
því að segja til um hveijir eigi að
njóta forgangs þegar um nauð-
synlegar aðgerðir er að ræða,
sagði Jóhannes.
Hann sagði að í Svíþjóð hefði
verið sett á fót kerfi þar sem fólk
yfir 70 ára fengi ekki sömu þjón-
ustu og þeir sem yngri væru.
- Þeir sem taka ákvarðanir
um að skerða fjárframlögin verða
að gera sér grein fyrir því að í
kjölfarið er allt 'eins líklegt að
þeir þurfi að setjast í dómarasætið
og ákvarða hveijir hafi forgang
og hverjir sitji eftir, sagði Jó-
hannes.
í ályktun sem lögð var fram á
fundinum, segir að Landspítalinn
og Borgarspitalinn geti ekki tekið
við því viðbótarálagi sem skapist
við lokun nokkurra skurðstofa á
landsbyggðinni og það að St. Jós-
efsspítala i Hafnarfirði verði
breytt í hjúkrunarheimili fyrir
aldraða. Allra síst ef fjárframlög
til sjúkrahúsanna í Reykjavík
verða skert eins og lagt hefur ver-
ið til.
Stjóm læknaráðs Reykjavíkur
segir og að fyrirskipunum um
lokanimar hafi ekki fylgt nein
læknisfræðileg rök, engin þjón-
ustuleg rök, engin hagfræðileg
rök, né nokkur stjómunarleg rök
sem hægt sé að byggja á. Einung-
is hafi fylgt fullyrðing um hag-
ræðingu.
„Stjóm Læknafélags Reykja-
víkur átelur harðlega þessa aðfor
yfirstjómar heilbrigðismála að
þeirri þjónustu, sem þegnar
landsins hafa þegar greitt fyrir
með sköttum sínum og skorar á
heilbrigðisráðherra að draga til
baka allar fyrirskipanir sínar um
niðurskurð þjónustu þannig að
hægt verði að vinna að tillögum
til hagræðingar og spamaðar í
heilbrigðiskerfinu eftir þeim leið-
um, sem hafa verið markaðar,"
segir í ályktuninni. -sþ
Sjúkrahús og
skólar verði
ekki forréttindi
Fundur í Verkalýðsfélagi
Húsavíkur lýsir yfir
áhyggjum sínum af hug-
myndum sem fram hafa komið
við yfirstandandi fjárlagagerð
um niðurskurð og auknar álög-
ur á sjúklinga, aldraða, öryrkja
og skóiafóik. „Ef slíkar hug-
myndir ná fram að ganga er
verið að velta vandanum yfir á
þá þjóðfélagshópa sem síst
skyldi,“ segir í ályktun fundar-
ins frá 12. september.
Fundurinn tekur og undir
fræga ályktun Verkamannasam-
bands Islands þar sem bent var á
að sanngjamara væri að mæta
vanda ríkissjóðs með því að
leggja skatta á fjármagnstekjur
og taka upp fleiri skattþrep.
I ályktuninni er varað við öll-
um hugmyndum um að gera
sjúkrahús og skóla að forréttind-
um hinna efnameiri og auka
þannig efnahagslegan ójöfnuð.
Fundurinn krefst þess að i kom-
andi kjarasamningum verð lögð
áhersla á lífskjarajöfnun og
hækkun lægstu kauptaxta. Þá er
þess krafist að vextir verði lækk-
aðir og að horfið verði frá verð-
tryggingu fjárskuldbindinga eins
fljótt og kostur er.
-gpm
Ný vídd í
kvótabraskið
Lambakjötiö hækkar um 8,5%. Mynd: Jim Smart.
Kindakjöt hækkar
Innan skamms tekur tii starfa
í Reykjavík nýtt fyrirtæki,
Kvótamarkaður hf. sem mun
sérhæfa sig í sölu kvóta á upp-
boðsmarkaði. Til að byrja með
er ætlunin að hafa eitt kvóta-
uppboð á hverjum mánudegi og
verður það væntanlega haldið á
Hótel Sögu.
Aðalhvatamaðurinn að stofn-
un þessa nýja fyrirtækis heitir
Hilmar Hilmarsson. Hann segir
að með því að selja kvóta á upp-
boði fái seljendur betra verð fyrir
kvótann en ella. Að hans mati er
mikil þörf fyrir þjónustu sem
þessa, enda sífellt verið að selja
kvóta. Umboðslaunin, sem fyrir-
tækið hyggst taka fyrir að selja
kvóta með þessu móti, verða trú-
lega á bilinu 2%-3%, en það fer
þó eftir magni.
Kristján Ragnarsson formaður
Landssambands íslenskra útvegs-
manna segist vera vantrúaður á
að þetta nýja fyrirkomulag í sölu
kvóta eigi einhverja framtíð fyrir
sér hérlendis. Hann segir að það
fari þó allt eftir því hver viðbrögð
útgerðarmanna verða og hvort
eitthvert framboð verði af kvóta
til sölu. Persónulega er formaður
LIU þó þeirrar skoðunar að það
verði einna helst smábátaeigend-
ur sem muni skipta við þennan
nýja uppboðsmarkað, ef eitthvað
er.
Að mati Kristjáns Ragnars-
sonar er það miklu eðlilegur far-
vegur fyrir þessi viðskipti það
sem tíðkast hefur hjá þeim frá þvi
í sumar. Þá var byrjað að skrá þá
aðila sem vilja selja kvóta, kaupa
eða skipta á jöfnu.
-grh
ar sem stjórnvöld hafa
ákveðið að minnka niður-
greiðslur á kindakjöti
verður hækkunin á því um 4%
hærri en annars hefði orðið,
sagði Gylfi Guðmundsson, hag-
fræðingur hjá ASÍ og fulltrúi
neytenda í sex- mannanefnd-
inni.
Gylfi sagði að hækkunin væri
í fyrsta lagi tilkomin vegna 10%
hækkunar til bænda. - Hækkunin
hefði í raun átt að vera 15%, en
vegna hagræðingar upp á rúm 2%
og svo frestunar vegna þjóðar-
sáttarsamninganna tókst að halda
henni í 10%. Síðan er að öllum
líkindum um 4,5% hækkun vegna
sláturkostnaðar sem er nokkru
minna en sláturleyfishafar fóru
fram á. Heildamiðurgreiðslur rík-
isins eru hlutfallslega lægri en á
síðasta ári. Það gerir það að verk-
um að hækkunin verður 8,5% í
stað 4-5% ef niðurgreiðslur hefðu
orðið þær sömu, sagði Gylfi.
- Hækkun framfærsluvísitölu
verður samkvæmt þessu um 0,2%
gróft reiknað, sagði Gylfi og
benti á að á einu ári hefði kjötið
hækkað um 10% yfir árið. - Þetta
er aðeins yfir almennu verðlagi ef
horft er á 7% verðbólgu. Ef nið-
urgreiðslur ríkissjóðs hefðu hald-
ist þær sömu hefði kindakjöts-
hækkunin verið undir almennri
verðlagshækkun, sagði Gylfi.
-sþ
Tilþrifalitlu
íslandsmóti
Kvennaathvarfið;
Aldtei fleiri