Þjóðviljinn - 17.09.1991, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 17.09.1991, Blaðsíða 3
FlÉTTIR ▲ Vilborg Davíðsdóttir tók saman I DAGr 17. september er þriðjudagur. Lambertsmessa. 260. dagur ársins. Sólarupprás í Reykjavík kl. 6.54 - sólarlag kl. 19.49. Þjóðviljinn fýrir 50 árum Nýtt Dagblað: Sovétþjóð- imar hefja vetrarstyrjöld öruggar um sigur. Þjóð- verjar segjast sækja fram á breiðri víglinu austan Dnépr. Ekkert lát á vöm rauða hersins í Leningr- ad, Kief og Odessa. Stór- orustur við Smolensk. fyrir 25 árum Eftir dúk og disk fá Árbæ- ingar nú strætó á 30-40 mínútna fresti! Garða- hreppur tekur á leigu hús fyrir gagnfræðaskóla. Allt má hækka - nema kaup- ið: Framfærsluvísitalan hefur senn tvöfaldazt. Sá spaki Hafið ofbeldið hugfast, þar ber því að vera. (Brian Aldiss) á því hvort skriða verðhækkana sé að fara af stað Leifur Guðjónsson verðlagseftirliti verkalýðsfélaganna Mér sýnist að hún sé að fara af stað. Það er það sem maður hefur óttast, að nú fari ýmsir af stað sem hafa farið rólega í sakimar undanfarið þó þeir hafí nú reynd- ar tekið sitt. Það sem mér þyícir athyglisvert, við hækkun Lands- virkjunar, er að ég hélt að nýja ál- verið ætti að borga kostnaðinn við rafmagnsffamleiðsluna, en ekki fólkið í landinu. En fólk virðist eiga að borga svo að hægt sé að hafa raforkuna tilbúna. Ég hef fundið það að vörur hafa verið að hækka. Sum bakaríin hafa verið að skriða ffam þó það sé ekki almennt. Þó að ekki sé hægt að staðsetja það nákvæm- lega ennþá þá em einhveijar hreyfingar til hækkunar í kjölfar þess að þjóðarsáttarsamningamir em að renna út. Stöð 2 hækkaði ti! dæmis um 8,8 prósent þó út- varpið sé kjurt. Hin kaldranalega staðreynd er sú að nafhvextir nú em þeir sömu og þeir vom 1. febrúar 1990. Verð- bólgan er nú 8-9 prósent, en var þá 17-18 prósent. Fjármagns- kostnaður hefiir farið hækkandi allt þetta ár sem gerir ekki annað en það að minna er fyrir hendi til að setja i umslögin. Islendingar eru ánægðir með lífið Félagsvísindastofnun kynnti í gær nýja könnun á lífsskoðun og gildismati Islending^ og annarra íbúa í nútímalegum þjóðfélögum. I jfönnuninni er gerður samanburður viðhorfum á Islandi, Danmörku, Finnlandi, Noregi, Svíþjóð, Suður- og Vestur-Evrópu og Bandaríkjunum. Könnunin er unnin samtímis í fjölda vestrænna þjóðfélaga, m.a. Sovétrikjunum og Eystrasalts- löndunum, og hefur jafnvíðtækt samstarf fé- lagsvísindamanna e,kki áður verið viðhaff milli landa. Þeir Stefán Olafspon og Fjiðrik H. Jóns- son unnu könnunina á Islandi. Úrtak var 1000 manns og var svömn um 76%. Það er óvenju- legt við pessa könnun að hún var framkvæmd þannig að þátttakendur vora heimsóttir og þeir svöraðu spumingunum á heimilum sínum. Könnun þessi er afar víðtæk og ná spum- ingamar yfir flest svið mannlegs lífs. Hér verð- ur því aðeins stiklað á stóra í niðurstöðunum: Samanborið yið aðrar þjóðir má segja að þjóðemisvitund Islendinga sé sterk, þeir era stoltir af þjóðemi sínu og bindast landinu sterk- um böndum. Islendingar aðhyllast efnishyggju í mjög miklum mæli og er eídci sjáanlegt ao úr því nafi dregið síðustu ár. Með þessu er m.a. átt Spurt var um hvemig,ætti að bregðast við atvinnuleysi og þar sýndu Islendingar að á þeim vettvangi skera þeir sig úr. Aðeins 6% Islend- inga töldu að karlmenn ættu frekar rétt á störf- um en konur en þriðjungur íbúanna i Suður- og Vestur-Evrópu og um fjópðungur Bandaríkja- manna samsinntu þessu. Islendingar era hins vegar í meiri mæli en aðrir á því að fólk af ís- lensku þjóðemi ætti að ganga fyrir á vinnu- markaði á atvinnuleysistimum. Þegar farið er nánar ofan i afstöðu Islend- inga til launajöfnunar og til þess hvort sann- gjamt sé að umbuna betri starfsmönnum um- fram þá sem standa sig lakar kemur merkileg sumu leyti flókin og þversagnakennd hjá ís- lendingum eins og fleirum. Stór meirihluti (70%) telur það veita jafhmikla lífsfyllingu að vera húsmóðir og að vinna fyrir kaupi. Alíka stór hluti er sammála því að bæði hjómn eigi að leggja sitt af mörkum til að afla heimilinu tekna en meirihluti (57%) er ósammála því að besta leið konu til sjalfstæðis sé að vinna utan heimil- is. Yfir 80% Islendinga segja að samband úti- vinnandi móður við böm sín geti verið jafnhlýtt og traust og móður sem ekki vinnur úti en hms vegar er helmingur sammála því að forskóla- bam sé líklegt til að liða fyrir það ef móðir þess vinnur utan heimilis. Þegar spurt er um trúmálin koma fleiri þver- stæður i þjóðarkaraktemum i ljós: Meira en 80% segjast trúa því að til sé Guð, líf eftir dauðann, sál og um 70% trúa að syndin sé til. Trú á djöfulinn og helvíti er hins vegar mjög lít- il (12-19%),en aftur á móti trúa um 40% á end- urholdgun. Islendingar trúa þessum atriðum al- mennt í meira mæli en nágrannar þeirra á Norð- urlöndum. En þrátt fyrir litla kirkjurækni og litla trúrækni f anda kristinnar kirkju er þo íslendingar telja æskilegast að eiga um það bil þrjú börn en flestar aðrar þjóðir sætta sig við að eiga færri börn. við að þeir setja hagvaxtarsjónarmiðið ofar í forgangsröð þjoðfélagslegra markmiða en fé- lagsleg, umhverfisleg og persónulega þroskandi sjonarmið. Það vekur athygli að þegar Islendingar era beðnir að velja á milli gilda sem setja jafhrétti annars vegar og frelsi einstaklinganna hms veg- ar þá setur stærri hluti fólks jafnrétti ofar á blao. Þetta er öfugt við það setji kemur fram hjá flest- um vestrænum þjoðum. Islendingar era þó ekki sinnulausir um frelsið, en þeir kjósa í miklum mæli hvort tveggja - frelsi og jafnrétti. Þeir era í mun meiri mæli hlynntir einka- framtaki en opinbera framtaki í atvinnulífmu og fleiri landar segja samkeppni af hinu gþða en t.d. Bandaríkjamenn. Sömuleiðis hafa Islend- ingar mikla trú á að vinnusemi leiði til vel- gengni í lífinu fremur en heppni og góð sam- bönd. Þegar spprt er um traust fólks á stofnunum sýnir sig að Islendingar bera mest traust til lög- reglunnar, 84% segjast bera mikið eða nokkuð mikið traust til hennar. Næst kemur mennta- kerfíð (81 %), fólagslega tryggingakerfið (69%), síðan kirkjan og þa dómstolamir. Dagblöðin era aftast i röðinni, 20% bera mesta traustið til þeirja. I Suður- og Vestur-Evrópu og í Bandaríkj- unum er algengast að fólk beri meira traust til stórfyrirtækja en til, verkalýðshreyfingar og er þessu öfþgt farið á Islandi, sem og í Noregi og Svíþjóð. I flestum löndum sem könnuð vora var það innan við helmingur íbúanna sem sagðist bera traust til þjóðþingsins en Island, Noregur og Holland era undantekningar í þessu tilviki; þar er traustið heldur meira. Athyglisvert er að í sex aðildarríkjum Evr- ópubandalagsins er meira traust borið til þess en til viðkpmandi þjóðþinga. Þessi lönd ejru Frakkland, Italía, Spann, Porjúgal, Belgía og Ir- land. Þessu er öfugt farið á Islandi og í Noregi en almennt bera vestrænar þjóðir meira traust til Evrópubandalagsins en tjl NATO. Sem fyrr segir hafa Islendingar meiri trú en aðrar þjóðir á að vinnusemi leiði almennt til velgengni. Fjölskyldan er langmikilvægust í lífi flestra á Vesturlöndum en vinnan virðist yfir- leitt skipa næsthæstan sess í lífi fólks. Þó leggja Danir og Svíar heldur meiri, áherslu á mikilvægi vina og kunningja. Danir, Islendingar og Svíar leggja áberandi meiri metnað í vinnu sína en þjóoimar í Suður- og Vestur- Evrópu, sam- kvæmt þessari könnun. Þegar spurt er hvað fólki finnist mikilvæg- ast að hafa í störfúm sínum er algengast að Is- lendingar nefni þægilegt samstarfsfólk og góð laun en síðan kemur það að sjá árangur af starf- jnu og að starfið sé ánugavert. Sjaldgæfast er að Islendingar telji mikilvægt að hafa mikil fri og lítið álag í starfinu. togstreita í ljós í þjóðarsálinni. íslendingar vilja nefnilega hvort tveggja í senn að þeim sem standa sig vel sé umbunað og að launamunur í þjóðfélaginu sé ekki of mikill. Sjónum var beint til framtíðar og spurt um afstöðu tij hugsanlegra breytinga á lífsháttum. Þar leist Islendingum best á að auka áherslu á fjölskyldulífið og á þroska einstaklinganna. Þegar spurt er um hvað fplk telji að stuðli að farsælu hjónabandi leggja Islendmgar mesta áherslu á gagnkvæma virðingu, þar á eflir kom að vera hvort öðru trú, þá skilningur og um- burðarlyndi.þá gott kynlíf, þá bömin, síðan það að búa ekki njá tengdó, jafnrétti í heimilisverk- unum og viðunandi tekjur. Ymislegt fleira var nefht en í ljós kom að Islendingar, Bandaríkja- menn og þjóðimar á meginlandi Evrópu lögðu meira en Norðurlandaþjoðimar upp ur viðun- andi tekjum. Danir leggja minna en aðrar þjóðir ppp úr þýðingu bama fyrir farsælt hjónaband en Islendingar og B^ndankiamenn leggia mesta áherslu a bömin. I anda pess segja Islendingar æskilegast að eiga um það bil þijú böm þegar flestar aðrar þjóðir sætta sig við að eiga færri böm. Það segir nokkuð um kynslóðabil að stór meirihluti Islendinga segist eiga trúarskoðanir, siðferðisreglur og félagsleg viðnorf sameiginleg með foreldram sinum en mun minni hluti segist deila stjómmálaskoðunum (47%) og kynlífsvið- horfúm (31%) með foreldram sínum. Þá skera lslendingar sig stóram úr í frjáls- lyndi gagnvart einstæðum mæðram því um 84% þeirra segja það í lagi að kona sem ekki vill bindast karlmanni varanlegum böndum eignist bam sem einstæð móðir. Einungis um fjorðungur Norðmanna og Svía samsinnir þessu og tæp 40% Bandaríkjamanna og þjóðanna á meginlandi Evrópu. Afstaða til hlutverka karla og kvenna er að Meira en 80% segjast trúa því að til sé Guð, líf eftir dauðann, sál og um 70% trúa að syndin sé til. Trú á djöfulinn og helvíti er hins vegar mjög lítil (12-19%) en um 40% trúa á endur- holdgun. nokkur hluti sem segist biðja oft.eða stundum til Guðs, þ.á m. um helmingur Islendinga og Finna en aðeins fjórðungur Svía. Spurt var um hvort fólk teldi að til væra al- gjörlega einhlítar skilgreiningar á hvað væri gott og hvað illt,án tillits til aðstæðna og reynd- ust aðeins 11% Islendinga sammála um að þær væra til. Þeir og Danir reyndust hafa sérstöðu hvað þetta varðaði því um helmingur Banda- ríkjamanna og þriðjungur Norðmanna töldu að hægt væri að segja af eða á um gott eða illt án þess að taka tillit til aðstæðna. Sem dæmi um nokkrar niðurstöður um sjð- ferðismál má nefna eftirfarandi: Um 84% Is- lendinga segja það aldrei réttlætanlegt að þiggja mútur í starfi, að tilkynna ekki um tjón sem maður hefúr valdið á kyrrstæðum bíl (79%), að þiggja bætur frá hinu opinbera sem maður á ekki rétt á (72%) og að fólk í hjúskap haldi framhjá (71%). Nokkra; athafhir skera sig úr að t>ví leyti hve stór hluti Islendinga telur þær rétt- ætanlegar, en það er hjónaskilnaður, samkyn- hneigð, að drepa í sjálfsvqm, fóstureyðing og líknardráp. Um fiórðungur Islendinga er hlynnt- ur því að einstaklingar ættu að eiga þess kost að njót^ algers frelsis í kynlífi án takmarkana. íslendingar virðast almennt ánægðir með lífsgæði sín í heildina tekið þótt þeir jafnframt bendi á ýmislegt sem betur mætti fara. Einungis Panir lysa sig ánægðari með lífið almennt en Islendingar. Svíar koma þar næstir og aðrar þjóðir í kjölfarið. Þjóðimar í suðurhluta Evrópu era áberandi meir^ óánægðar með líf sitt þegar á heildina er litið. Islendingar segja sömuleiðis í fremur miklum mæli að heilsufar þeirra sé gott. Frændumir á Norðurlöndum, utan Finna, era jafhvel enn ánægðari með heilsufar sitt. Danir, Svíar og Bandankjamenn segjast í álíka miklum mæli hgmingjusamir þegar á allt er litið og Sví- ar og Islendingar hafalægst hlutfall íbúa sem segjast þunglyndir, einmana eða einangraðir frá öðra folki. Óg umhverfismálin í lokin: Yfir 80% íbúanna a Norðurlöndum, íbúa á megin- landi Evrópu og 72% Bandaríkjamanna era ósammála því að umhverisvemd sé ekki eins brýn og ofl er talið og íslendingar taka hraust- lega undir þetta. Hins vegar hafa þeir meiri fyr- irvara á þvi að gefa hluta tekna smna eða sam- þykkja skattahækkanir til að koma f veg fyrir umhverfismengun. Þá vitum við það... Samantekt úr skýrslu Félagsvísindastofnunar -vd. Sfða 3 ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 17. september 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.