Þjóðviljinn - 17.09.1991, Page 7
ElLENDAK
A Umsjón: Ámi Þór Sigurðsson
Árás á Zagreb ekki útilokuð
Háttsettur yfirmaður í
júgóslavneska hernum
sagði í gær að hann gæti
ekki útiiokað að
sprengjuárásir yrðu gerðar á Za-
greb, höfuðborg Króatíu, í bar-
dögunum sem nú eiga sér stað.
Ante Markovic forsætisráðherra
Júgóslaviu bað í gær um alþjóðlega
aðstoð við að koma á friði i landinu.
Hann sagði stjóm sína standa mátt-
vana frammi fyrir blóðbaðinu í
Króatíu, þar sem króatiskir þjóð-
varðliðar eiga í höggi við júgóslav-
neska sambandsherinn sem að
mestu er skipaður Serbum. Markov-
ic sagði að án erlendrar aðstoðar og
án íhlutunar Evrópubandalagsins
gæti stjóm landsins ekki stöðvað
borgarastyijöldina. Viðræður áttu
sér stað um helgina milli króatískra
herforingja og leiðtoga sambands-
hersins, en enn hefur engin lausn
fundist og að sögn Markovic verður
viðræðunum haldið áfram. Forsæt-
isráðherrann sagði að heimsókn
Carringtons lávarðar, sem er í for-
sæti Evrópuráðstefhunnar um mál-
efhi Júgóslavíu, og fundir hans með
Slobodan Milosevic forseta Serbíu
og Franjo Tudjman leiðtoga Króatíu
væri mikilvægt tækifæri fyrir Júgó-
slavíu. Hann sagðist þó ekki eiga
von á að ein heimsókn myndi leysa
vandamálin, en hún skapaði tæki-
færi sem menn mættu ekki missa af.
Evrópubandalagið, sem hefúr
árangurslaust reynt að miðla málum
í Júgóslavíu, ræðir nú möguleikana
á að senda friðargæslusveitir til
landsins, en um það munu vera
skiptar skoðanir meðal aðildarríkj-
anna.
Vestur Evrópubandalagið, sem
er hemaðarbandalag niu EB-ríkja,
mun íhuga að senda friðaigæslu-
sveitir til Júgóslaviu og munu utan-
ríkisraðherrar ríkjanna hittast í dag,
strax að loknum utanríkisraðherra-
fundi Evrópubandalagsins, til að
rasða það mál. I yfirlýsingu þýska
utanríkisráðuneytisins segir að Vest-
ur Evrópubandalagið muni íhuga að
senda friðargæslusveitir vegna þess
að Evrópubandalagið virðist ekki í
stakk búið til að stilla til friðar í
Júgóslavíu.
Ungverskir landamæraverðir
skýrðu frá þvi i gær að þijár orustu-
flugvélar júgóslavneska sambands-
hersins hefðu rofið lofthelgi Ung-
veijalands og að tvær þeirra hefðu
skotið flugskeytum að Króatfu.
Blóðbaðið heldur áfram I Júgó-
slavfu og tilraunir Evrópubanda-
iagsins til aö stilla til friöar virðast
engan árangur bera.
Hægrisveifla í sænsku kosningunum
Sænsku kosningarnar á
sunnudag urðu mikill
sigur fyrir hægri öflin.
Jafnaðarmenn, sem farið
hafa með völd í iandinu í nær
samfellt 50 ár, töpuðu miklu fylgi
og hefur formaður flokksins og
forsætisráðherra, Ingvar Carls-
son, beðist Iausnar fyrir sig og
ráðuneyti sitt.
Úrslitin urðu sem hér segir:
Jafnaðarmannafl. 38,2% (-5,0%)
Vinstri flokkurinn 4,5% (-1,3%)
Miðflokkurinn 8,6% (-2,7%)
Þjóðarflokkurinn 9,2% (-3,0%)
Kristil. demókratar 7,2% (+4,3%)
Hægri flokkurinn 22,1% (+3,9%)
Nýtt lýðræði 6,8%.
Jafnaðarmannaflokkurinn og
Vinstri flokkurinn fá samtals 154
þingsæti, hægri flokkamir 170 og
Nýtt lýðræði 25 þingmenn.
Viðbrögð grannríkjanna við
kosningaúrslitunum em ólík. Gro
Harlem Brundtland forsætisráð-
herra Noregs, sagði í viðtali við
norska blaðið Verdens Gang í gær
að úrslitin væra hörmuleg. Það yrði
jafn erfitt að stjóma Svíþjóð og það
væri að stjóma Noregi, en með því
vísar hún til þess að hvorki hægri
blokkin né sú vinstri hafi hreinan
meirihluta. Uffe Ellemann- Jensen
utanrikisráðherra Danmerkur fagn-
aði úrslitunum i gærmorgun. Hann
sagðist hlakka til að starfa með nýju
ríkisstjóminni. í viðtali við danska
ríkisútvarpið sagði Ellemann-Jens-
en að sænskir kjósendur virtust hafa
áttað sig á að þriðja leiðin milli kap-
ítalisma og kommúnisma leiddi að-
eins til stjómnálaöngþveitis og
frelsisskerðingar.
Búist er við að Thage Petterson
forseti sænska þingsins feli Carl
Bildt formanni Hægri flokksins að
mynda nýja ríkisstjóm.
Velferðarríkið -
Þingkosningar fóru fram í Svíþjóð á sunnudaginn. Úrslit
þeirra komu ekki mjög á óvart ef miðað er við skoðana-
kannanir undanfarnar vikur og mánuði. Jafnaðarmanna-
flokkurinn, sem farið hefur með stjórn iandsins í meira en
50 ár að frátöldum árunum 1976- 1982, galt afhroð og fékk rétt
rúm 38% atkvæða á móti rúmum 43% í síðustu kosningum. Ingvar
Carlsson forsætisráðherra hefur beðist lausnar fyrir sig og ráðu-
neyti sitt. Líklegast er tallð að Carl Bildt, formanni Hægri flokks-
ins, verði falið að mynda nýja ríkisstjórn, en flokkur hans fékk um
22% atkvæða, bætti við sig um 4% og er næst stærsti flokkur
Iandsins.
Ný stjómmálasamtök, sem
kalla sig „Nýtt lýðræði“ og stofn-
uð vora í vor, fengu mikinn með-
byr og hlutu um 7% atkvæða.
Flokkurinn kemst þar með í odda-
aðstöðu á sænska þinginu, en það
eitt eiga „gömlu“ flokkamir sam-
eiginlegt að vilja ekki starfa með
„Nýju lýðræði“ og leiðtogum
þess. Megin ástæða þess er að
flokkurinn er ekki talinn til
„ábyrgra“ stjómmálaflokka, hann
sé eiginlega lýðskramaraflokkur
og svo langt til hægri að það sé
ekki með nokkra móti unnt að
hleypa honum að landsstjóminni.
Það einkennir þessar kosning-
ar sérstaklega hve margir tapa og
fáir vinna. Hægri flokkurinn,
Kristilegir demókratar og Nýtt
lýðræði vinna allir mikið á, en
Jafnaðarmenn, Vinstri flokkurinn,
Miðflokkurinn, Þjóðarflokkurinn
og Umhverfisvemdarflokkurinn
tapa allir og sá síðastnefndi datt
reyndar út af þingi, því hann náði
ekki 4% atkvæða sem til þarf til
að fá kjörinn þingmann. Sem sagt:
vinstri og miðflokkar tapa, en
hægri flokkar vinna, því lengra
sem þeir eru til hægri þeim mun
stærri er sigurinn!
Þannig er nú komið velferðar-
rikinu Svíþjóð og Jafnaðarmanna-
flokknum, fánabera velferðarpól-
itíkur í þróuðum löndum. En hvað
veldur?
Getur verið að hrun Sovétríkj-
anna hafi haft áhrif á sænska kjós-
endur og fylkt þeim um nýjan
öfgasinnaðan hægri flokk og
Kristilega demókrata? Ekki verð-
ur það talin trúleg skýring hér,
heldur miklu fremur hitt að al-
menn óánægja og leiði með sænsk
stjómmál, sem hafa verið í ótrú-
lega fostum skorðum um áratuga-
skeið, hafi fengið útrás við það að
kjósa ný og að sumu leyti óábyrg
öfl inn í sænska Riksdagen. Það
má heldur ekki gleyma að „Nýtt
lýðræði" lagði mikla áherslu á að
aðstoð við innflytjendur og þróun-
arlönd yrði skorin niður og vel er
líklegt að slík sjónarmið hafl
gengið greitt í kjósendur. Það er
afar algengt að þegar harðnar á
dalnum heima fyrir finni menn sér
blóraböggul til að skella skuldinni
á, þegar dregur úr atvinnumögu-
leikum er auðvelt að krefjast þess
að innflytjendur verði látnir fjúka
úr störfum, þeir era jú bara fyrir!
En að slepptu öllu gamni er ef
til vill hollt fyrir jafnaðarmenn að
þurfa endrum og eins að standa
upp úr rikisstjómarstólunum og
viðra sig agnar ögn. Því eins og
stundum hefur verið sagt: ef
meiningin er að reka hægri pólit-
ík, er þá ekki best að láta hægri
menn um það sjálfa? Sannleikur-
inn er nefnilega sá að Jafnaðar-
mannaflokkur Svíþjóðar hefur
tekið æði margar hægri beygjur að
undanfömu og mörg kennisetn-
ingin hefur fengið að fjúka, svo
sem eins og um hlutleysisstefnu
Svia. Velferðarkerfið hefur líka
mátt þola atgöngu jafnaðarmanna
í þeim tilgangi að draga úr ríkisút-
gjöldum. Er það ekki svo að jafn-
aðarmenn hafi upp skorið i sam-
ræmi við það sem þeir sáðu?
Kosningámar í Sviþjóð setja
hægri blokkina i sænskum stjóm-
málum í nokkurn vanda. Að
minnsta kosti Þjóðarflokkurinn og
Miðflokkurinn hafa aftekið sam-
starf við Nýtt lýðræði. Engu að
síður verður að teljast líklegast að
einhvers konar hægri stjóm taki
við völdum. Carl Bildt, formaður
Hægri flokksins, fær umboð til
stjómarmyndunar og reynir trú-
lega að mynda minnihlutastjóm
Hægri og Þjóðarflokksins, sem
síðan yrði að semja við aðra
flokka frá einu máli til annars.
Osennilegt er að slik stjóm myndi
sitja allt kjörtímabilið sem er þrjú
ár. Ástæða þess er einfaldlega sú
að jafnaðarmenn eru þrátt fyrir
allt svo sterkir að minnihlutastjóm
getur ekki til lengdar komist hjá
samstarfi við þá. Og þá er spum-
ing hvort ríkisstjómin gæti til
lengdar átt allt sitt undir jafnaðar-
mönnum.
Annað mynstur var aðeins rætt
í lok kosningabaráttunnar, nefni-
lega samstarf milli blokka, t.d.
milli jafnaðarmanna og Miðflokks
og Þjóðarflokks. Eins og áður
sagði hafa sænsk stjómmál verið í
afar föstum skorðum um áratuga-
skeið, svo föstum að samsteypu-
stjóm milli blokka verður að telj-
ast út úr myndinni á fyrstu stigum
a.m.k. Ekki er þó hægt að skjóta
loku fyrir það að slíkt samstarf
gæti tekist ef fyrsta tilraun hægri
flokkanna mistækist eða að slík
stjóm sæti skamma hríð. En þá
væri brotið blað í stjómmálasögu
Svíþjóðar.
Svíar völdu hægriflokkana, og Carl Bildt verður líklega næsti forsætis-
ráðherra.
Það er fróðlegt að skoða úr-
slitin i Svíþjóð í samhengi við úr-
slit bæjar- og fylkisþingkosning-
anna í Noregi um síðustu helgi.
Þar unnu Miðflokkurinn og Sósí-
alíski vinstri flokkurinn mikið á,
aðallega vegna andstöðu við evr-
ópska efnahagssvæðið og aðild að
EB. Atvinnumál voru þar líka á
dagskrá, en atvinnuleysi er nú það
mesta í Noregi um langt árabil. í
Sviþjóð var litið sem ekkert rætt
um Evrópuþróunina, Svíar hafa jú
sótt um aðild að EB, en efnahags-
þrengingar era af svipuðum toga í
báðum löndunum.
Óháð því hvað veldur, er ljóst
að Svíþjóð siglir nú hraðbyri inn i
miðstýrða Evrópu, hyggst kasta
fyrir róða ýmsum verðmætum
sem einkennt hafa sænskt sósíal-
demókratiskt velferðarkerfi og
gefa markaðslögmálum lausari
taum en nokkra sinni fyrr. í Nor-
egi hafa kjósendur góðu heilli
stöðvað þann gang mála, um tíma
a.m.k.
Slfla 7
ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 17. september 1991