Þjóðviljinn - 20.09.1991, Qupperneq 2
otrrj'
Síðhærðir karlar
og kampavín
- Hver ertu?
- Svanhildur ‘Konráðsdótt-
ir. Eins og stendur er ég
nemi,- fátækur námsmaður.
- Hvað ertu að lœra?
- Ég er að læra samskipta-
og ímyndaffæði við Háskól-
ann í Canterbury á Englandi.
- Hvað imyndarðu þér að
það geri fyrir þig?
- Ég ímynda mér að það
muni veita mér óumræðilega
lukku og hamingju í ffamtið-
inni að vera vel að mér í sam-
skipta- og ímyndaffæði. Svo
er ég að ljúka við að skrifa
bók. Það er samtalsbók við
Jónas Jónasson útvarpsmann.
- Er hœgt að taka viðtal
við Jónas? Getur hann setið
nema öðru megin við borðið?
- Mér tókst að koma hon-
um i hinn stólinn fyrir þremur
árum eða þar um bil. Þar með
tókust með okkur góð kynni
og vinskapur og ég held að ég
hafi komist ótrúlega langt
með hann í þessu öfuga hlut-
verki.
- Hvernig manneskja
ertu?
- Ég er ekki allra. Ég er
mjög mikil prívatmanneskja.
- Hvað er það besta sem
fyrir þig gæti komið?
- Að einhver kæmi til mín
í nánustu ffamtíð og gæfi mér
eyju í gríska Eyjahafinu
- Hvað heitir versti kvik-
myndaleikari sem þú manst
eftir?
- Ég hef séð marga ansi
slæma án þess að leggja nöfn
þeirra á minnið, en ætli ég
nefhi ekki Amold Schwartze-
negger. Hann er hræðilegur.
- Hvað heitir besta leikrit
sem þú hefur séð?
- Koss kóngulóarkonunn-
ar sem Alþýðuleikhúsið færði
upp í kjallara Hlaðvaipans.
Það varð mér mjög minnis-
stætt.
- Eiga íslendingar að
leggja íslenskuna niður og
gera ensku að þjóðtungu?
- Nei! Það finnst mér mar-
traðarkennd tilhugsun, en
hugmyndin er svo fáránleg að
það tekur þvi ekki að velta
henni fyrir sér.
- Hvað er það hallœris-
legasta sem getur komið fyrir
menn í veislum?
- Að missa niður um sig
buxumar.
- Hvað er yndislegt i fari
karlmanna og hvað viðbjóðs-
legt?
- Tilgerðarlaus en geisl-
andi karlmennska er það ynd-
islegasta í fari karlmanna, en
það viðbjóðslegasta er yfir-
gangssemi og sjálfbirgings-
háttur.
- Hvað er kynæsandi?
- Það er nú svo margt.
Karlmenn með fallegt hár og
helst dálítið sítt, geta verið
ómótstæðilegir. Kampavín er
líka kynæsandi.
- Hvemig er fullkomin
kona?
- Eins og móðir mín.
- Ertu sjálfstæð kona?
- Já, ég legg mikið upp úr
því.
- Trúirðu á annað lif?
- Engin spuming! Ég trúi
á fullt af lifum, bæði fyrir og
eftir þetta. t næsta lífi sit ég
með mörgum síðhærðum karl-
mönnum, drekk kampavín og
narta í humar. Það verður fiill-
komið.
- Eru stjömumerkin mikil-
vœg?
- Nei, þau em ekki mikil-
væg, en mér finnst svolítið
gaman að pælingunni. Ég er
hins vegar ffekar illa að mér í
þeim ffæðum.
- í hvaða stjömumerki
ertu?'
- Eg er sporðdreki.
- Ertu með einhverja
kompleksa?
- Nei það held ég ekki. Ég
hef unnið mjög markvisst að
þvi að losa mig við þá.
- Hvað er að vera syndug-
ur?
- Að láta sig dreyma
háskalega drauma og fram-
kvæma þá.
- Hvað er það Ijótasta sem
þú hefur gert?
- Það ljótasta sem ég hef
gert er að særa vini mina.
- Hvað þykir þér vænst
um?
- Lífið.
lO
cti
ö)
o
O)
o
O)
>
(D
I—
Mynd: Krístinn
- Dáirðu einhverja sögu-
persónu?
- Ég dái Leonardo da
Vinci.
- Var hann síðhærður?
- Já, hann var siðhærður
og mjög snjall.
- Áttu þér mottó?
- Já. Nóttin er ung.
- Hvemig halda vinir þin-
ir að þú sért?
- Vinir minir komast held
ég nokkuð nálægt sann-
leikanum. Þeir halda að ég sé
trygglynd, dálitið duttlunga-
full á köflum og þijóskari en
allt sem þijóskt er.
Norsk kvikmynda- og listavika
Fjölbreytt norsk menningar-
vika fer f gang á morgun. Kvik-
myndir verða sýndar í Háskóla-
bíói frá kl. 17.00. á morgun og
síðan á hverjum degi þangað til
á fðstudag. í Norræna húsinu
opnar Borghild Bredeli mynd-
listarsýningu kl. 16.30 og sýnir
vatnslitamyndir, olíumálverk og
teikningar. Sunnudaginn 22. kl.
17.00 kynnir Bente Erichsen
menningardagskrá Vetraról-
ympíuleikanna í Lillehammer
sem haldnir vcrða 1994. Bente
þessi er menningarstjóri leik-
anna. Hún er þekkt fyrir kvik-
myndaleikstjórn m.a. og hefur
leyfi til að eyða 500 norskum
miljónum í menningarlíf á
Vetrarólympíuleikunum
Ur kvikmyndinni „ Tvennir
tímar" sem gerð var 1989.
Þar er farið frjálslega milli
nútíðar ogfortíðar, draums
og veruleika.
Mánudaginn 23. september
segir Finnmerkurskáldið Kjell
Sandvik frá rithöfundarferli sín-
um. Knut ödegaard kynnir rithöf-
undinn. Sinikka Langeland syng-
ur síðan þjóðlög, laugardags-
kvöldið 28. Kynnir verður Gísli
Helgason sem einnig leikur á
flautu.
Kvikmyndimar sem sýndar
verða á norsku kvikmynda- og
menningarvikunni sem hefst á
morgun eru vel valdar. Þetta eru
alls fimm kvikmyndir og þær gefa
mjög góða hugmynd um það sem
best er í norskri kvikmyndagerð
og fengu góðar viðtökur bæði hjá
áhorfendum og gagnrýnendum.
Til glöggvunar fyrir þá sem ekki
kannast við þær þá er sú nýjasta
af þessum kvikmyndum: „Döden
paa Oslo S.“ (Dauðinn á lestar-
stöðinni) 100 mínútna unglinga-
mynd. Aðalpersónur myndarinnar
eru unglingar. Þau eiga heima i
Osló og eru með leynilögreglu-
sögur á heilanum. Myndin þótti
fyndin og hlýleg þegar hún var
frumsýnd árið 1990.
Tvær kvikmyndir eru frá árinu
í d a g
20. september
jdai
S k ú m u r
er föstudagur.
263. dagur ársins.
Sólarupprás í Reykja-
vík kl. 7.03 - sólarlag
kl. 19.38.
Viðburðir
Ríkharður Jónsson
myndhöggvari fæddur
1888.
1989. önnur þeirra er kvikmynd-
in: „En handfull tid“ sem á ís-
lensku gæti heitið Tvennir tímar.
Aðalhlutverk er þar leikið af Es-
pen Skjönberg sem er einn sá
þekktasti af eldri leikurum Norð-
manna. Hann horfir til baka og
ræðir við konu sina sem er löngu
dáin af bamsförum.
Hin myndin firá 1989 heitir
„Landstrykere" (Umrenningar) og
er gerð eftir skáldsögu Knut
Hamsun. Aðalhlutverk leikur
stjömuleikari Norðmanna, Helge
Jordal, og hann gerir það gott í
þessari kvikmynd eins og endra-
nær.
„Veiviseren" (Leiðsögumað-
urinn) verður sýndur líka. Sú
kvikmynd er frá 1987 og var á
sínum tíma tilnefnd til óskars-
verðlauna sem besta erlenda kvik-
myndin það árið.
Norðmenn láta sér ekki nægja
að sýna okkur kvikmyndir þessa
viku. Leikkonan Juni Dahr hefur í
þijú ár leikið kvenpersónur Ibsens
við einstaklega góðar undirtektir.
Hún er ein á sviðinu í klukku-
tíma og bregður sér i gervi Hildu,
úr Sólnes byggingameistara,
Heddu Gabler úr samnefndu leik-
riti, frú Alving úr Afturgöngun-
um, Nóm úr Brúðuheimilinu og
fleiri kvenna firá Ibsen.
Einn af bestu flautuleikurum
Dana, Chris Poole, leikur frum-
samda tónlist við sýningu Juni
Dahr og þegar sýningunni lýkur
geta áhorfendur fengið að spjalla
við þau á kaffistofu Norræna
hússins um Ibsen og þær kvenper-
sónur sem birtust á sviðinu.
- Þessar konur eiga að öðlast
lif, segir Juni Dahr. Eg ætla mér
að sýna að allar reyna þær að
bijótast út úr fangelsi, hvort sem
það heitir hjónaband eða þröng-
sýnt samfélag.
- ki
NÝTT HELGARBLAÐ 2 FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1991