Þjóðviljinn - 20.09.1991, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 20.09.1991, Blaðsíða 18
Krumminn á skjánum Skemmtileg helgi framundan Ur laugardagsmynd Sjónvarpsins. Það er ekki heiglum hent að sinna ungvið- inu. Konan og krónprinsinn heitir bandarísk sjónvarpsmynd sem sýnd verður á fostudaginn í Sjón- varpinu. Það eru kvikmyndastjöm- umar Jane Seymour og Anthony Andrews sem leika í verkinu, sem byggt er á einni þekktustu ástar- sögu ailra tíma. Söguþráðurinn er um ástir þeirra Játvarðs VIII og Wallis Simpson, konu sem Englendingar gátu ekki sætt sig við í hásæti Eng- landsdrottningar. Eins og kunnugt er afsalaði Játvarður sér krúnunni til að kvænast amerísku stúlkunni sem var tvífráskilin. Myndin fjallar um þetta ástarsamband og að auki þær leynilegu stjómmálaaðgerðir sem tengdust þessum máli. Já það er sannkölluð veisla fyr- ir sjónvarpsáhorfendur á föstu- dagskvöldið. Fyrsta bíómynd Stöðvar 2 heitir Astarsorg og er hún fyrsta mynd leikstjórans Sa- vage Steve Holland. Hoíland þykir takast vel upp í þessari mynd og gefur kvikmyndahandbók Maltins henni **l/2 stjömu. Myndin fjallar um ungan pilt sem missir af stúlku drauma sinna. Yfirleitt eru útfærsl- ur leikstjóra á efni sem þessu hálf- þunnar, en eins og áður sagði þykir Holland takast vel upp. Önnur myndin á Stöð 2 ber nafnið Samningurinn. Mynd þessi er hálfgerð lognmolla og hefur kannski í augum dagskrárdeildar Stöðvarinnar átt að vera undirbún- ingur fyrir síðustu mynd kvöldsins sem er Ipress-skjölin. Þetta er mynd sem fær 3'/2 stjömu hjá Maltin og er þar sögð vera njósna- mynd af bestu gerð. Það er enginn annar en Michael Caine sem leikur aðalhlutverkið, breskan leyniþjón- ustumann sem fenginn er til þess að komast að því hver leki upplýs- ingum til andstæðinganna. Hand- ritið er unnið upp úr metsölubók Len Deighton og óhætt er að hvetja fólk til að halda augunum opnum og fylgjast með. A laugardaginn byijar Sjón- varpið á að sýna mynd er ber ís- lenska titilinn Bóndinn búverkar. Ekki er Ijóst hvaðan þýðingin á titlinum hefur komið, en margir ættu að kannast við bandaríska tit- ilinn Mr. Mom. Þetta er heföbund- in gamanmynd sem kitlar hlátur- taugamar. Hún segir frá raunum heimavinnandi húsbónda sem tekið hefur að sér að sjá um búverkin á heimilinu. Astæðan fyrir því er að vísu ekki brosleg því manngarmur- inn lenti í því að missa starf sitt. Konan hans fer þá út á vinnumark- aðinn til að bjarga fjármálunum, en karlinn er heima. Það er Michael Keaton sem fer með aðalhlutverk- ið. Þeir sem ekki kannast við nafn- ið skulu upplýstir um, að hann lék í myndinni Batman ekki alls fyrir löngu. Að vísu hefúr hann svuntu í stað nærbróka utan yfir buxumar i þetta skiptið. Það er gamall kunningi sem verður á skjánum í seinni mynd Sjónvarpsins. Morse lögreglufull- trúa kannast víst flestir við, en hann er einn af fáum lögreglu- mönnum í sjónvarpsmyndum sem er bókelskur. En Morse er hrifinn af fleiru en góðum bókum, kven- fólk á ofl hug hans allan og er sá þáttur ríkur í efnisþræði myndar- innar. Lögregluforinginn verður yfir sig hriflnn af kvenpresti (skemmtileg samsetning). Leiðir þeirra liggja fyrst saman er Morse rannsakar morð á ungri starfsystur hennar. Auðvitað er morðið dular- fullt og erfitt úrlausnar, en þegar heill megrunarklúbbur í bænum fer að tengjast málunum tekur fyrst steininn úr. Það er eins og á föstudags- kvöldin, heilmargt i boði fyrir skjá- áhugamenn. Fyrsta mynd Stöðvar 2 er mynd frá árinu 1989. Það get- ur verið að fólk muni eftir mynd- inni sem sýnd var í Bíóborginni (gamla Austurbæjarbíó). Janúar- maðurinn er nafnið. Myndin fjall- ar um löggu sem er aðeins sjálf- stæðari en löggur almennt, og merkilegt nokk, hann hugsar. Löggan er á slóð fjöldamorðingja nokkurs sem er sérvitur í meira lagi. Það er Kevin Kline sem fer með aðalhlutverkið, og er myndin þokkalegasta afþreying. Haldið ykkur fast, önnur myndin á dagsk/ánni er Dýragraf- reiturinn (Pet Semetary). Myndin er byggð á samnefndri skáldsögu eflir kóng hryllingsbókmenntanna, Stephen King. Til að skemma ekki fyrir áhorfendum verður efni myndarinnar ekki dregið ffam í dagsljósið. Sitjið ffekar i myrkrinu heima og nagið neglumar. Á milli frábærra kvikmynda er ein létt á dagskrá Stöðvar 2. Það er ævintýramyndin Töframennirnir sem fjallar um prinsinn Simon sem er naumlega bjargað undan galdra- manninum Mulfrick. Galdrakarlinn vill komast yfir hring sem hefur yf- imáttúrlegt afl, en Simon leynist í skógi einum og heldur hringnum. En kynjavemr Mulfrick era skammt undan og.... Síðásta bíómynd laugardags- kvöldsins er ekki fyrr en um hálf þrjú. Þar er um að ræða bresk-ástr- alska spennumynd. Eltur á rönd- um, sem fjaHar um forseta ffá S- Ameríku sem lotið hefur í lægra haldi fyrir her landsins. Effir að hafa verið steypt af stóli kemst hann undan til Bretlands. En hinn fyrrverandi forseti er ekki slopp- inn, því herinn hefur ákveðið að ráða hann af dögum. Eltingaleikur hefst upp ^ líf og dauða og....GÓÐA NOTT. S j ó n v a r p Föstudagur 17.50 Litli vikingurinn (48) Teiknimyndaflokkur um æv- intýri vikka vikings. Leik- raddir Aöalsteinn Bergdal. 18.20 Beykigróf (1) Nýr, bresk- ur myndaflokkur þar sem segir frá uppátækjum ung- linga f félagsmiðstöö í Newc- astle á Englandi. 18.50 Táknmálsfréttir 18.55 Hundalíf (1) Kanadískur myndaflokkur í léttum dúr. 19.20 Shelley (1) Hér hefst ný sex þátta syrpa um land- fræöinginn og letiblóöiö Shelley. 19.50 Hókki hundur Bandarrísk teiknimynd. 20.00 Fréttir, veöur og Kastljós 20.50 Samherjar (12) Banda- rískur sakamálaþáttur. 21.35 Konan og krónprinsinn Bandarísk sjónvarpsmynd frá 1988. Myndin fjallar um tilhugalíf og njónaband Wall- is Warfield Simpson og prinsins af Wales. Leikstjóri Charies Jarrot. 23.10 Billy Joel Bandaríski tón- listarmaöurinn Billy Joel á tónleikum í New York í júní 1990. 00.00 Útvarpsfréttir í dagskrár- lok. Laugardagur 15.00 Iþróttaþátturinn 15.00 Enska knattspyrnan Mörk síöustu umferöar. 16.00 Fimleikahátíö f Amsterdam Níunda heimsfimleikasýning- in. 17.50 Úrslit dagsins 18.00 Andrés önd (49) Hol- lenskur teiknimyndaflokkur. 18.25 Kasper og vinir hans (22) Bandarískur mynda- flokkur um vofukríliö Kasper. 18.50 Táknmálsfréttir 18.55 Úr ríki náttúrunnar. Drottning rándýranna Bresk fræðslumynd um lífsbaráttu blettatígursins í Afríku. Þýð- andi og þulur Óskar Ingi- marsson. 19.25 Magni mús Bandarisk teiknimynd. 20.00 Fréttir og veöur 20.35 Lottó 20.40 Okuþór (4) 21.05 Fólkiö í landinu. I fótspor feðranna Siguröur Einarsson ræöir viö Harald Matthías- son kennara og ferðagarp á Laugarvatni. Dagskrárgerð Plús film. 21.30 Bóndinn búverkar Bandarisk biómynd fra 1983. I myndinni segir frá manni sem missir vinnuna og tekur að sér heimilishald- iö, en frúin gerist fyrirvinna í staöinn. Leikstjori Stan Dragoti. Aöalhlutverk: Mik- haefKeaton og Teri Garr. 23.00 Glæpur í guðshúsi Bresk sakamáiamynd frá 1990. Morse rannsakar morð á ungum djákna úr hópi kvenna sem rær að því öil- um árum aö koma fulltrúa sínum ( prestsembætti I trássi viö viija Ihaldsmanna I klerkastétt. Leikstjóri Roy Battersby. 00.45 Útvarpsfréttir í dagskrár- lok. Sunnudagur 17.50 Sunnudagshugvekja Óskar Einarsson tónlistar- kennari flytur. 18.00 Sólargeislar (22) Bland- aöur þáttur fyrir börn og ung- linaa. Umsjón Bryndls Hólm. 18.30 Steinaldarmennirnir Bandarískur teiknimynda- flokkur. 19.00 Vistaskipti (3) Ný syrpa um nemendur Hillman-skóla. 19.30 Fákar (6) Þýskur mynda- flokkur um flólskyldu sem rekur búgarö með islenskum hrossum I Þýskalandi. 20.00 Fréttir og veöur 20.30 Jón I Brauöhúsum Sjón- varpsleikrit byggt á smásögu eftir Halldór Laxness. Leik- stjóri Baldvin Halldórsson. Leikendur Valur Gislason og Þorsteinn Ö. Stephensen. Sveinn Einarsson dagskrár- stjóri flytur inngangsorö. Fyrst á dagskrá 23. nóv. 1969. 20.55 Kvöldstund meö lista- manni. Herdls. Herdls Þor- valdsdóttir leikkona hefur veriö fastráöin hjá Þjóöleik- húsinu frá opnun pess. Auk þess hefur hún latiö til sín taka I landverndar- og rækt- unarmálum. 21.50 Ástir og alþióöamál (3) Franskur myndaflokkur. 22.45 Málarinn Mondrian Heimildamynd um hollenska málarann Piet Mondrian og list hans. 23.35 Útvarpsfréttir I dagskrár- lok. Mánudagur 17.50 Töfraglugginn (20) Blandað erlent barnaefni. Umsjón Sigrún Halldórsdótt- ir. 18.20 Drengurinn frá Andró- medu (3) Þriöji þáttur af sex um þrja unglinga sem ganga I liö með geimveru I örvænt- ingarfullri tilraun hennar til aö bjarga heiminum. 18.50 Táknmálsfréttir 18.55 Á mörkunum (32) Frönsk/kanadlsk þáttaröö sem gerist i smábæ á landa- mærum Bandaríkjanna og Kanada um 1880. 19.20 Roseanne (6) Banda- rískur gamanmyndaflokkur. 19.50 Hókki hundur Bandarfsk teiknimynd. 20.00 Fréttir og veður 20.35 Fólkið I Forsælu (3) Bandarískur framhalds- myndaflokkur. 21.00 Iþróttahomið Fjallaö um íþróttaviöburði helgarinnar og sýndar svipmyndir frá knattspyrnuleikjum í Evrópu. 21.25 Höfðinginn I Reykholti Á þessu ári eru liöin 750 ár frá vígi Snorra Sturiusonar. I þessari mynd verður fjallaö um æviferil Snorra og farið á söguslóðir i Reykholti og I Odda. Umsjón Sigrún Stef- ánsdóttir. 21.55 Nöfnin okkar Aö þessu sinni veröur fjallað um nafnið Kristján. Umsjón Gísli Jóns- son. Dagskrárgerö Samver. 22.00 Viö kjótkatlana (3) Breskur gamanmyndaflokk- ur. 23.00 Ellefufréttir og dagskrár- lok. Föstudagur 16.45 Nágrannar 17.30 Gosi Teiknimynd. 17.55 Umhverfis iöröina Spennandi teiknimyno. 18.20 Herra Maggú Teikni- mynd. 18.25 Á dagskrá 18.40 Bylmingur Rokkaður tón- listarþáttur. 19.19 19.19 Fréttir. 20.10 Kænar konur Nýr banda- rískur gamanmyndaflokkur um fjórar konur sem eiga aö reka fyrirtæki sem sémæfir sig I innanhússarkitektúr. 20.40 Ferðast um tímann Spurningin er, hvar hann Sam lendir I kvöld. 21.30 Ástarsorg Létt gaman- mynd um ungan strak sem missir af stúlku drauma sinna. Þetta er fyrsta mynd leikstjórans Savage Steve Holland og þykir honum tak- ast vel upp. (1985) 23.05 Samningurinn Hörku- spennandi sakamálamynd um lögreglumanninn Schim- anski, en nann hefur einstakt lag á aö koma sér I vand- ræði hvort sem er með glæpamönnum eða konum. Leikstjóri Hajo Gies. Bönnuð börnum. 00.30 Ipress-skjölin Þetta er bresk njósnamynd eins og þær gerast bestar. Michael Caine er hér I hlutverki út- sendara bresku leyniþjónust- unnar sem fenginn er til pess að komast aö þvl hver leki upplýsingum til and- stæöinganna. Stranglega bönnuö börnum. 02.15 Dagskráríok. Laugardagur 09.00 Börn eru besta fólk Fjöl- breyttur þáttur fyrir börn og unglinga. Umsjón Agnes Jo- hansen. 10.30 I sumarbúöum Fjörug teiknimynd. 10.55 Barnadraumar Fræöandi myndaflokkur. 11.00 Fimm og furöudýrið. 11.25 Á ferð með New Kids on the Block Teiknimynd. 12.00 Á framanai slóðum Framandi staöir víöa um ver- öldina heimsóttir. 12.50 Á grænni grund Endur- tekinn þáttur fra sl. miöviku- degi. 12.55 Blues-bræöur. 15.00 Sagan um Ryan White Átakanleg mynd um ungan strák sem smitast af eyöni og er meinað aö sækja skóla. Leikstjóri John Hezz- eld. 16.30 Sjónaukinn Endurtekinn þáttur. 17.00 Falcon Crest Bandarísk- ur framhaldsþáttur. 18.00 Popp og kók. 18.30 Bilasport Endurt. Um- sjón Birgir Þór Bragason. 19.19 19.19 20.00 Morðgáta spennandi þáttur par sem ekkjan Jess- ica Fletcher leysir sakarnál. 20.50 Á noröurslóðum Þriöji þáttur gamanþátta um lækn- inn Joel sem stundar lækn- ingar I Alaska. 21.40 Janúarmaðurinn Þetta er gaman-, spennu- og róman- tísk mynd allt I senn og segir frá sérviturri löggu sem er á slóö fjöldamoröingja. Fjöldi þekktra leikara koma fram I myndinni. Leikstjóri Pat O Connor. (1989) Strang- lega bönnuð börnum. 23.20 Dýragrafreiturinn Magn- þrungin hrollvekja gerð eftir samnefndri bók Stephen King. Leikstjóri Mary Lamb- ert. (1989) Stanglega bönn- uð bórnum. 00.55 Töframennirnir Ævintýra- mynd þar sem segir frá prinsinum Simon sem er naumlega bjaraað undan galdrakariinum Mulfrick. En Mulfrick þessi er aö reyna aö komast yfir hring sem hefur yfirnáttúrleg öfl. Leikstjóri Hector Olivera. (1986) Bönn- uð börnum. 02.25 Eltur á röndum Þetta er hörkugóð bresk-áströlsk spennumynd um forseta frá Rómönsku-Amerlku sem hefúr verið steypt af stóli af her landsins. Leikstjóri Maur- ice Hatton. (1988) Bönnuö börnum. Lokasýning. 04.05 Dagskráriok. Sunnudagur 09.00 Morgunperiur Skemmti- leg teiknimyndasyrpa. 09.45 Pétur Pan 10.10 Ævintýraheimur NIN- TENDO Skemmtileg og spennandi teiknimynd. 10.35 Ævintýrin í Eikarstræti Skemmtilegur framhaldsþátt- ur fyrir börn og unglinga. 10.50 Blaðasnaparnir Annar þáttur. 11.20 Trausti hrausti Spenn- andi teiknimynd. 11.45 Upprifjun á vítaspyrnu- keppni I sumar fór fram á vegum stöðvar 2 vltaspyrnu- keppni þar sem sá mark- maður vann sem varöi flest vlti. Nú er keppninn lokiö og I þessum þætti rifjum viö upp pessa spennandi keppni og fáum aö sjá hver stóð uppi sem sigurvegari. 12.00 Popp og kók Endurtek- inn þáttur frá þvl I gær. 12.30 Feðgarnir Sannsöguleg mynd um Zumwalt-feðgana sem báðir gegndu herpjón- ustu þegar Vietnam stríöið geisaöi. Þegar sonurinn greinist meö krabbamein sem rekja má til notkunar efnavopna I Víetnam er kaldhæöni öriaganna sú að faöir hans fyrirskipaöi notkun þessara vopna. 13.55 Italski boltinn. 15.40 Björtu hliöarnar I þess- um þætti ræðir Haukur Hólm viö þá Magnús Kjartansson og Sigurö Rúnar Jónsson. Þátturinn var áöur á dagskrá þann 24. mars sl. 16.20 Gillette sportpakkinn. 17.00 Bláa byltingin Lokaþátt- ur. 18.00 60 mínútur Vandaöur fréttaskýringaþáttur. 18.40 Maja býfluga. 19.19 19.19 20.00 Elvis rokkari Leikinn myndaflokkur um ævi kon- ungsins. 20.25 Hercule Poirot Nú hefur aftur göngu slna þessi vand- aöi breski þáttur um hugar- fóstur Agötnu Christie, Herc- ule Poirot, þar sem hann ásamt vlni slnum og aðstoö- armanni, Hastings, leysir sérstæð sakamál. 21.20 Pabbastrákar Fram- haldsmynd I tveimur hlutum sem byggö er á sönnum at- buröum. Leikstjóri Marvin Chomsky. Seinni hluti er á dagskrá annaö kvöld. 23.05 Flóttinn úr fangabúöun- um Nýr vandaöur framhalds- þáttur sem gerist áriö 1944, en 5. ágúst það ár gerðu 1100 japanskir strlösfangar örvæntingarfulla tilraun til aö sleppa úr áströlskum fanga- búðum. 00.00 Klnverska stúlkan Ungur strákur af Itölskum uppruna fellir hug til klnverskrar stúlku. Þrátt fyrir þaö að hvorki vinir þeirra né fjöl- skyldur sætti sig viö sam- bandiö eru þau staöráöin I aö láta þetta ganga. Leik- stjóri Abel Ferrara. (1987) Stranglega bönnuð börnum. 01.30 Dagskráríok Mánudagur 16.45 Nágrannar 17.30 Geimálfarnir Teikni- mynd. 18.00 Hetjur himingeimsins 18.30 Kjaflarinn tónlistarþáttur. 19.19 19.19 20.10 Dallas 21.00 Heimsblkarmót Flug- leiöa ‘u1 Sextán öflugustu stórmeistarar heims taka þátt I þessu skákmóti sem er eitt af fjórum sterkustu skák- mótum I heiminum I ár. 21.10 Ættarsetrið Breskur framhaldsþáttur um kaup- sýslumann sem erfir óvænt ættarsetur. Fjóröi þáttur af átta. 22.00 Heimsbikarmót Flugleiða ‘91 22.15 Pabbastrákar Seinni hluti vandaörar framhalds- myndar sem byggö er á sönnum atburöum. Þaö er Judd Nelsson sem fer með aðalhlutverkiö. 00.00 Italski boltinn. Mörk vik- unnar Umfjöllun um leiki og mörk síðustu umferðar. 00.20 Fialakötturinn Einstök mynd par sem fjallaö er um ævi og störf danska leikstjór- ans Carts Dreyer, en hann var án efa besti leikstjóri á Noröuriöndum á slnum tlma og vann brautryöjendastarf. I myndinni era synd brot úr myndum hans, en einnig er fjallaö um einkalíf hans. 02.05 Dagskráríok NYTT HELGARBLAÐ 1 8 FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.