Þjóðviljinn - 20.09.1991, Qupperneq 14
Anatolij Karpov teflir ífyrsta sinn á Vasilij Ivantsjúk
íslandi.
Jóhann Hjartarson verður íslenski
þátttakandinn .
Jan Timman
Alexander Beljavskij
S K Á K
Karpov og Ivantsjúk a&al-
stjörnurnar á heimsbikarmóti Flugleiöa
Heimsbikarmót Flugleiða, sem
sett verður nk. sunnudag og hefst
siðan með 1. umferð á mánudag í
Kristalsal Hótel Loftleiða, er hið
fyrsta í nýrri heimsbikarkeppni
Stórmeistarasambandsins, GMA.
Stöð 2 hélt heimsbikarmót haustið
1988 með miklum glæsibrag. en
það var liður í keppni sem lauk í
Skellefta í Sviþhjóð ári síðar.
Keppendafjöldi er svipaður nú og
áður, þeir eru alls 26, en undan-
keppnir, þrjú úrtökumót og síðan
eitt úrslitamót sem haldið var í
Moskvu í fyrrasumar hafa valið
stóran hluta þeirra sem tefla nú.
Heimsmeistarinn Garrij Kasparov
á beinan þátttökurétt, auk þess sex
aðrir sem best stóðu sig í síðustu
keppni, nokkrir skákmenn valdir á
stigum og hinir koma úr úrslita-
keppninni í Moskvu.
Kasparov verður ekki með á
þessu fyrsta heimsbikarmóti af
fimm, en hinsvegar kemur erki-
fjandi hans Anatolij Karpov til
mótsins og verður það í fyrsta sinn
sem hann teflir á lslandi. Þótti
sumum vera kominn timi til. Þá er
þátttaka krónprins skáklistarinnar,
Vasilij Ivantsjúks, einnig mikið
fagnaðarefni, en hann er af mörg-
um talinn sá eini fyrir utan Karpov
sem á einhveija raunhæfa mögu-
leika að hreppa heimsmeistaratitil-
inn úr greipum Kasparovs. Þátttk-
endalistinn lítur þannig út:
Ulf Andersson (Svíþjóð), Alex-
ander Beljavskij (Sovétríkin),
Murray Chandler (England), Jaan
Ehlvest (Eistland), Boris Gulko
(Bandaríkin), Vassilij Ivantsjúk
(Sovétríkin), Anatolij Karpov
(Sovétrikin), Alexander Khalifman
(Sovétríkin), Lubomir Ljubojevic
(Júgóslavía), Predrag Nikolic
(Júgóslavía), Lajos Portisch (Ung-
veijaland), Valerij Salov (Sovétrík-
in), Yasser Seirawan (Bandaríkin),
Jonathan Speelman (England), Jan
Timmann (Holland) og Jóhann
Hjartarson, en hann teflir sem gest-
ur á mótinu eins og það er orðað.
Þeir sem eru ekki meðmæltir
öllu sem við segjum eru á móti
Okkur.
Ekki gekk áfallalaust að koma
þessari heimsbikarkeppninni á aft-
ur. Garrij Kasparov var forseti
HEIMSBIKARMÓT
FLUGLEIDA
GMA allt fram á mitt sumar í fyrra
er haldið var eftirminnilegt þing
sambandsins í Murcia á Spáni.
Fram að þeim tíma hafði heims-
meistarinn náð að koma á fjórum
undanrásamótunum og átt beinan
og óbeinan þátt í öllum heimsbik-
armótunum fimm sem haldin voru
árin 1988-1989. Kasparov lagði
geysimikla vinnu á sig í þessu
sambandi, tók ekki krónu fyrir
þátttöku sína og ávann sér mikla
hylli. Hann var enda kosinn forseti
GMA með „rússneskri kosningu“ í
Murcia. Vald hans var óumdeilt og
svo virtist sem honum væru allar
leiðir færar. Stríð hans við FIDE
og forsetann Campomnanes hafði
leitt til þess að FIDE vildi með öll-
um ráðum semja frið, gallinn var
bara sá að Kasparov vildi enga
samninga við FIDE með Camp-
omanes í forsæti, a.m.k. ekki þá er
vörðuðu sameiginlega framkvæmd
heimsmeistaraeinvígisins í New
York og Lyon. í Murcia var tekist
á um þau mál og Kasparov varð
undir í atkvæðagreiðslu. Einmitt á
þeirri stundu kom á daginn að lýð-
ræðistilfinning hans, og hins ákaf-
lega hvimleiða safnaðar í kringum
hann, var afar vanþroskuð. Ka-
sparov reis úr sæti forseta GMA og
hélt út i sal, og sagði af sér öllum
embættum með tilþrifum. Og
menn eins og Boris Spasskij hertur
í eldi átaka innan þjóðfélags sem
enginn skilur nema sá sem hefur
lifað þar, skilgreindi betur en aðrir
upphlaupið: Þessir menn skilja
ekki lýðræði, einungis hin gömlu
slagorð bolsévikka: Þeir sem sam-
þykkja ekki allt sem við segjum
eru á móti okkur og þar af Ieiðandi
óvinir okkar. Við höfum ekki hug-
mynd um hvert við erum að fara,
en við munum komast þangað.
í lok þessa fundar gaf Ka-
sparov óljós fyrirheit um að hann
yrði e.t.v. aftur forseti GMA að af-
loknu einvíginu við Karpov. Þegar
því lauk staðfestist sá grunur
manna að hann vildi segja skilið
við þau sanmtök sem hann stofnaði
eina kvöldstund í Dubai 1986.
Jafnframt setti hann fram ýmsar
kröfur varðandi næstu heimsbikar-
keppni. Umboðsmaður hans, Eng-
lendingurinn Andrew Paige, fór
fram á geypifé fyrir sinn mann, en
Stórmeistarasamtökin gátu ekki
fallist á þær kröfur. Því var raðað
upp í keppnina með Kasparov utan
hennar og varamenn teknir inn. Er
heimsmeistaranum snerist hugur
að loknum samingingaviðræðum
við guðföður GMA og stjómarfor-
mann SWIFT- fyrirtækisins, Bess-
el Kok, var þátttaka hans ákveðin.
Karpov fór þá einnig í verkfall, en
Bessel Kok tókst að ná samkomu-
lagi við hann. Varamennimir sem
komu inn í stað Kasparovs vildu
hreint ekki út aflur og því varð um
nokkra fjölgun keppenda að ræða.
1 raun og veru er Ivantsjúk kominn
inn vegna sinnaskipta heimsmeist-
arans og einnig Norðmaðurinn Si-
men Agdestein, en þátttaka hans í
heimsbikarkeppninni þykir mörg-
um vera argasta hneyksli þar sem
hann sat auðum höndum er úrtöku-
mótið í Moskvu fór fram í fyrra.
Karpov - skáksaga síð-
ustu 20 ára holdi
klædd
Heimsbikarmót Stöðvar 2
haustið 1988 þótti takast afar vel
og hafa keppendur sem vom með
þá, þ.á m. Kasparov og Jan Tim-
man,
lýst þeirri skoðun sinni að best
heppnaða mótið hafi einmitt verið í
Borgarleikhúsinu. Stemmningin
var góð, einnig aðsókn og sjón-
varpsútsendingar margar hveijar
eftirminnilegar, einkum þegar Ka-
sparov mætti á svæðið og lét ýmis-
legt flakka. Stöð 2 verður ekki
mótshaldarinn að þessu sinni þó
hún standi fyrir svipuðum sjón-
varpsútsendinum á maðan á mót-
inu stendur. Flugleiðir leggja mest
til mótsins sem tekur nafn fyrir-
tækisins, Heimsbikarmót Flug-
leiða, jafnframt sér Skáksamband
íslands um hluta framkvæmdarinn-
ar. Verðlaunaféð kemur hinsvegar
frá Brussel, en Bessel Kok hjá
SWIFT snarar því öllu út, og fyrstu
verðlaun nema 25 þús. bandaríkja-
dölum.
Líklegt er að skákunnendum á
íslandi leiki mikil forvitni á að
fylgjast með Karpov að tafli. Kar-
pov stendur á fertugu og kemst
auðvitað ekki undan ummerkjum
tímans ffekar en aðrir, en hvort
sem sól hans er tekin að hníga til
viðar eða ekki, þá má geta þess að
stigatala hans, 2730 Elo, er hærri
en hún var nokkru sinni á meðan
heimsmeistaratíð hans stóð 1975-
1985. Hvað varðar framkomu við
skákborðið er Karpov alger and-
staða Kasparovs; hann er pollró-
legur og afar einbeittur. Hann á
það til að drepa tittlinga og stund-
um er eins og hann tali við sjálfan
sig. Þá er hið „baneitraða“ augna-
ráð hans þekkt og hafa sumir reynt
að forðast það t.d. með spegilgler-
augum. Þó Karpov hafi misst
heimsmeistaratitilinn til erkifjanda
síns, þá hefur hann veitt Kasparov
harða keppni í öllum einvígjum,
enda hafa þau verið æsispennandi
og fætt af sér ódauðlegar baráttu-
skákir. Það er eftirtektarvert að
jafnvel þó Karpov sé talsvert ffá
sínu besta á mótum og í einvígjum
tekst honum ávallt að sleppa ffá
slíklum viðburðum með fullri
sæmd, sbr. einvígið við Indveijann
Anand, en þó Indveijinn hafi teflt
af mikilli hörku og í raun verð-
skuldað sigur þá var það Karpov
sem bar hærri hlut. Hann hefur
unnið um 80 skákmót á ferlinmum
og ekki tapað í einviginu fyrir
neinum nema Kasparov. Ferill
Karpovs sem stórstjömu á skák-
sviðinu hófst 1971 þegar hann
sigraði á hinu ægisterka Aljékín-
móti í Moskvu ásamt Leonid Stein.
Hann varð heimsmeistari án
keppni við Bobby Fischer 1975 og
hefur tekið þátt í sjö heimsmeist-
araeinvigjum (átta, ef einvígi hans
við Kortsnoj 1974 er talið með) og
átta áskorendaeinvígjum. Hann
teflir mun meira en Kasparov, og
þótt skákir hans séu yfirleitt ekki
jafn æsispennandi og heimsmeist-
arans þá semur hann yfirleitt ekki
jafntefli nema eftir harðvítuga bar-
áttu, og í seinni tíð hefúr hann oft-
sinnis lent í heiflarlegu tímahraki.
Styrkur hans felst í frábærri tækni
og ótrúlegri þrautseigju í erfiðum
stöðum. Karpov er eiginlega skák-
Póstur og sími óskar
að ráða
BRÉFBERA hjá Pósti og síma í Kópavogi. ( starfinu
felst auk bréfberastarfa tæming á póstkössum og
flutningur hraðbréfa. Viðkomandi starfsmaður þarf að
hafa bíl til umráða. Upplýsingar hjá stöðvarstjóra í
síma 91-41225.
PÓSTUR OG SÍMI
saga síðustu 20 árin holdi klædd. Á
hátindi ffægðar sinnar sem heims-
meistari í kringum 1980, er Bijés-
nef var og hét, slóst Karpov í hóp
þeirra manna sem nú eru kallaðir
harðlínumenn. Honum voru fengin
völd og áhrifastöður langt út fyrir
það sem venjulegur borgari getur
Iátið sig dreyma um, er forseti sov-
éska friðarsjóðsins, auk þess að
sitja á sovéska fulltrúaþinginu.
Síðustu atburðir í Sovétríkjunum
þykja benda til þess að nú blási
kaldir vindar um hann.
Brotlending
Ivantsjúks
Vasilij Ivantsjúk skaust upp
fyrir Karpov á síðasta lista FIDE
og er með 2735 stig. Hann er því
næstur á eflir Kasparov og fyrir
æsku sakir og sigursins í Linares
þar sem hann lagði bæði Karpov
og Kasparov, jafnvel enn eflir-
sóknarverðari skákmaður en Kar-
pov. En í Brussel í síðasta mánuði
gerðust atburðir sem engan gat ór-
að fyrir. Artur Jusupov sigraði Iv-
antsjúk í einvígi þeirra svo Ukra-
ínumaðurinn verður að bíða í
a.m.k. þrjú ár eftir tækifæri til að
kljást við Kasparov fyrir alvöru.
Hann kemur til Reykjavíkur þess
albúinn að berjast fyrir heiðri sín-
um. Það þyrfti ekki að koma á
óvart þótt baráttan um efsta sætið
stæði á milli Karpovs og Ivant-
sjúks.
Hvað aðra keppendur varðar þá
má geta þess að níu skákmenn
tefldu á síðasta heimsbikarmóti í
Reykjavík. Af þeim eru Jan Tim-
man og Alexander Beljavskí kann-
ski þekktastir. Valeri Salov mætir
aftur til leiks eftir fimm ár. Hann
tefldi lítt þekktur á Reykjavíkur-
mótinu 1986, en nú stendur hann í
ffemstu röð, deildi t.d. efsta sætinu
á Euwe-mótinu í Amsterdam og
skaut Karpov og Kasparov aftur
fyrir sig. Þó er ljóst að alvarlegur
heilsubrestur heftir hamlað fram-
gangi hans verulega á undanföm-
um árum.
Eins og áður segir hefst mótið í
Kristalsal Hótel Loffleiða nk.
mánudag kl. 17 og lýkur hverri
umferð kl. 23. Þó oft hafi þröngt
verið setinn bekkurinn á Loftleið-
um hefur þessi staður yfir sér ein-
hveija töffa sem finnast ekki ann-
arsstaðar. Því ætti stemmningin að
vera góð þær tæpu þijár vikur sem
mótið stendur yfir.
Helgi
Ólafsson
skrifar
NÝTT HELGARBLAÐ
1 4 FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1991