Þjóðviljinn - 04.10.1991, Side 13
Vændiskonur
Vændiskonur frá Austur-Evr-
ópu og þriðja heiminum leggja nú
í auknum mæli leið sína til oorga I
Vestur- Evrópu. Vaxandi fátækt
heima fyrir rekur íjölda þeirra af
stað í leit að betra lífsviðurværi.
Nýverið var haldin ráðstefna á
vegum Evrópuráðsins í Strass-
borg, þar sem lögð var fram
skýrsla um innrás vændiskvenna
til Vestur- Evrópu. Þar kemur m.a.
fram, að um 40 til 60 prósent af
vændiskonum í Hollandi koma firá
flýja vestur
þróunarlöndunum. Tvö undanfarin
ar hefur einnig orðið vart við auk-
inn straum vændiskvenna frá
Austur-Evrópu, sérstaklega frá
Júgóslavíu, Póllandi, Sovétríkjun-
um pg Austur- Þýskalandi.
I skýrslunni segir einnig að
svo virðist sem starfsemi vændis-
kvenna sé að færast í æ rikari
mæli af götunni og inn í svokall-
aðar nuddstofur, gufuböð og í sér-
stakí> og klúbba.
A sama tíma og skýrslan var
lögð fram í Strassborg, gerði lög-
reglan í París rassíu 1 Boulogne-
skóginum, en þar hefur verið
stundað vændi um árabil. Þar
handtók lögreglan stóran hóp
kvenna frá Ekvador, en þasr tif-
heyrðu velskipulögðum hóp sem
hóf starfsemi sína i höfðuborg Ek-
vador fyrir rúrnu ári.
Flestar þeirrc höfðu komið til
Frakklands í góóri trú um að þær
væru að fara að vinna á einka-
heimilum sem þjónustustúikur.
Þegar til Frakklands var komið
voru störfin horfm, og ekkert ann-
að beið þeirca en vændi I þessum
alræmda skógi. -sg
B r i d g e
Stórkostleg frammistaóa í Japan
Er þessar línur eru skrifaðar, er
lokið 9 umferðum á HM í Yoko-
hama, í undanrásum, af 14 umferð-
um. ísland leiðir sinn riðil, eftir af-
ar glæsilega spjlamennsku. Nokk-
uð ljóst er að Island hefúr áunnið
sér áffamhaldandi rétt til_ spila-
mennsku, í hópi 8 þjóða. í þeirri
lotu meta þeir einhverri af þeim 4
þjóðum, sem ávinna sér rétt til
framhaldsspilamennsku úr þeim
riðli. Reglan er sú, að lið nr. 1
mætir liði nr. 4, lið nr. 2 mætir liði
nr. 3, lið nr. 3 mætir liði nr. 2 og
lið nr. 4 mætir liði nr. 1 (úr and-
stæðum riðlum).
Urslit leikja hafa orðið, eftir
fyrstu 9 umferðimar:
Ísland-USA A-lið: 24-6
Ísland-Bretland: 10-20
Ísland-Argentína: 24,25-2,75
Ísland-Ástralía: 24-6
Ísland-Japan: 17-13
Ísland-Venesuela: 25-3
Island-Egyptaland: 16-14
HANDBRAGÐ MEISTARANS
Bakarí
Brauðbergs
Ávallt nýbökuð brauð
-heilnæm og ódýr-
Aðrir útsölustaðir:
Hagkaujp-Skeifimni
-Kringiunni
-Hólagarði
Verslunin Vogar,
Kópavogi.
Brauðberg
L6uMter 2-6 stai 71539
Hraunberg 4 sími 77272
ísland Bretland: 15-15
Ísland-Argentína: 13-1,7
Og eftir 9 umferðir hefúr Island
forystu með 168,25 stig, en næstir
koma svo Bretar með 162 stig. I 5.
sæti eru Venseúelabúar með 123
stig, þannig að við eigum 45 stig á
þá. Áðeins kraftaverk getur fleytt
þeim siðasmefhdu í milliriðil á
kosmað okkar manna.
Stóra málið á fösmdaginn (í
dag) er svo, hverja við fáum í mill-
iriðil. Eins og staðan er í dag,
myndum við mæta USA B-liði, en
trúlega eiga þeir eftir að hækka sig
eitthvað. Valið stendur þá á milli
Pólveija og Svía. Eg hef trú á að
þeir fyrcnefndu verði mótherjar
okkar i milliriðli. 96 spil verða
spiluð í milliriðli 8 sveita, og kom-
ast sigurvegarar í undanúrslit 4
sveita. Eins og okkar menn hafa
spilað til þessa, er ekki fjarlægt að
gefa þeim þann möguleika, að þeir
komist í undanrásir. Tækist það,
yrði það stórsigur fyrir íslenskan
bridge. Og sérstaklega fyrir þessa 6
stórspilara, sem eru fulltrúar okkar
í Japan. Og þeim sjöunda, undra-
fyrirliðanum Bimi Eysteinssyni,
má ekki gleyma. Hans þáttur í
þessum árangri er ómetanlegur.
Nánar síðar.
Opna Flugleiðamótið á Akur-
eyri um síðusm helgi tókst mjög
vel. 42 pör mættu til leiks. Spilaður
var barometer með 2 spilum milli
para. Sigurvegarar urðu Hrólfúr
Hjaltason og Sigurður Vilhjálms-
son.
Röð næstu para varð: Eiríkur
Hjáltason - Oddur Hjaltason
(bróðir Hrólfs), Ljósbrá Baldurs-
dóttir - Hermann Lárusson (fyrsm
silfurstigin sem Ljósbrá vinnur sér
inn...), Jón Hjaltason - Sigfús Öm
Ámason, og heimamennimir
Tryggvi Gunnarsson og Reynir
Helgason urðu svo í 5. sæti. Stjóm-
un og útreikning önnuðust þeir
Jakob Kristinsson og Páll Jónsson.
Og röð efsm para í Jökiamótinu
á Homafirði um daginn varð:
Baldur Kristjánsson - Jón
Skeggi Ragnarson, Jón Viðar Jón-
mundsson - Eyjólfur Magnússon,
n
Hundahreinsun og
greiðsla árgjalds í Reykjavík
Samkvæmt 5. gr. reglugerðar nr. 201/1957 um varnir
gegn sullaveiki skulu allir hundar eldri en 6 mánaða
hreinsaðir af bandormum í október eða nóvember ár
hvert.
Eigendum hundanna er bent á að snúa sér til starf-
andi dýralækna í Reykjavík með hreinsun.
Einungis þeim hundaeigendum sem sent hafa heil-
brigðiseftirlitinu gild hundahreinsunarvottorð fyrir 15.
desember n.k. verður gefinn kostur á að greiða ár-
gjaldið með gíróseðli. Þeir sem ekki senda hreinsun-
arvottorð verða að greiða gjaldið á skrifstofu heilbrigð-
iseftirlitsins og framvísa um leið gildu hreinsunarvott-
orði fyrir hund sinn.
Gjalddagi árgjalds er 1. janúar og eindagi 1. mars.
Jón Bjarki Stefánsson - Siguijón
Stefánsson, Jón Hjaltason - Sigfús
Öm Ámason og Ólafur Sigmars-
son - Kristján Magnússon.
Og Opna spilamótið er á morg-
un, í Sigtúni. 38 pör em skráð til
leiks. Spilaður verður barometer
með 2 spilum milli para.
Opna mótið hjá Bridgefélagi
Kópavogs er svo næsta laugardag
(12. október). Upplýsingar gefur
Þorsteinn Berg.
Og Opna minningarmótið um
Einar Þorfinnsson er svo laugar-
daginn 19. október. Skráning er
m.a. hjá skrifstofu BSÍ.
Daginn þar á eftir, 20. október,
er svo árlegt ársþing Bridgesam-
bands íslands. Upplýsingar um
dagskrá og rétt þingfulltrúa, sem
sæti eiga á þinginu, hafa yerið
sendar út af skrifstofu BSI og
liggja væntanlega hjá skráðum for-
mönnum félaganna, skv. lista frá
síðasta ári. Þó saknaði umsjónar-
maður í þeim plöggum staðlaðs
lista ífá BSÍ, yfir þingfúlltrúa hvers
félags. Slík undirbúningsvinna létt-
ir á dagskrá sjálfs þinghalds, því
ávallt vill fara mikill tími í úrskurð
kjörbréfanefndar.
,Og fróðlegt væri að skrifstofa
BSÍ (meistarastiganefnd) skilaði
fyrir ársþing nýju Evrópustigunum.
Það er varla óyfirstíganleg vinna
að finna út áunnin stig spilara frá
1988, eða hvað?
Falleg vinningsleið (og oft sú
eina rétta) er oft á tíðum litið
vandamál. Vefst þó fyrir mörgum
að greiða úr „vandamálinu". Lítum
á dæmi um vandamál, sem í raun
er þó ekkert vandamál:
4:8642
7: KD73
0:Á7
•!•: D95
4: G7
7: ÁG1062
O: K95
*:Á73
Eftir spaðaopnun Austurs verð-
ur Suður sagnhafi í 4 hjörtum.
Vestur spilar út spaðatíu, tekið á
drottningu, spaðakóngur og spaða-
ás. Þú trompar með hjartatíu og
Vestur hendir smáum tígli. Og
hvað nú? Þú sérð 6 slagi á tromp
(með tígultrompun í borði) 2 á tíg-
ul og 1 á lauf. En þetta eru aðeins 9
slagir. Hvemig færðu þann 10.?
Lausnin er sáraeinföld: Þú gef-
ur þér að Austur eigi kónginn í
laufi, fyrir opnun sinni á 1 spaða.
Þú tekur trompás, og meira tromp
og legan er 2-2 hjá andstöðunni.
Tígli spilað á ás, meiri tígull á
kóng og þriðji tígullinn trompaður
i borði. Þá kemur lausnarspilið,
smár spaði úr borði. Austur lætur
níuna og þú hendir einfaldlega
laufi. Leyfir Austri að eiga slaginn.
Hann á um það að velja að spila
meiri spaða (í tvöfalda eyðu) eða
laufi ífá kóngnum. Slétt staðið.
Eflirmáli:
Svona spil eiga að sjálfsögðu
heima í kennslubókum. í þeim til-
vikum sem „meistarinn“ spilar ein-
mitt á þessa leið (og vinnur sitt spil
að sjálfsögðu), þá „sér“ byijandinn
alls ekki þessa leið, heldur einfald-
lega spilar laufi að drottningu. Og
undarlega oft vinnur byrjandinn
einnig sitt spil. Sérstaklega þegar
menn opna „létt“. Eða gat ekki
Austur haldið á hendi eins og:
ÁKD93 84 G63 G84
En óneitanlega er fyrri leiðin,
þessi með „innkastið“ í spaða fal-
legri. Ekki satt?
Ólafur
Lárusson
skrifar
. / /
■ /r ■
/ 'V
7: t ' X í/"
< /f ■■*
ILW UV
! <
/
.o
-"y/ v f
~\ /
VIRÐISAUKASKATTUR
Gjalddagi
virðisaukaskatts er
5. þessa mánaðar
Skýrslum til greiðslu, þ.e. þegar
útskattur er hærri en innskattur,
og núllskýrslum má skila til banka,
sparisjóða eða pósthúsa. Einnig
má gera skil hjá innheimtumönnum
ríkissjóðs en þeir eru tollstjórinn
í Reykjavík, bæjarfógetar og sýslu-
menn úti á landi og lögreglustjór-
inn á Keflavíkurflugvelli.
Bent skal á að bankar, sparisjóðir
og pósthús taka aðeins við skýrsl-
um sem eru fyrirfram áritaðar af
skattyfirvöldum. Ef aðili áritar
skýrsluna sjálfur eða breytir áritun
verður að gera skil hjá innheimtu-
manni ríkissjóðs.
Inneignarskýrslum, þ.e. þegar
innskattur er hærri en útskattur,
skal skilað til viðkomandi skatt-
stjóra.
Til að komast hjá álagi þarf
greiðsla að hafa borist á gjald-
daga. Athygli skal vakin á því að
ekki er nægilegt að póstleggja
greiðslu á gjalddaga.
1/ / \ — l'v/ NJ
V —-J) } y /;.r—
j i 1 / \ /
M""‘ i\ V N
NÝTT HELGARBLAÐ
13 FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1991