Þjóðviljinn - 04.10.1991, Qupperneq 14
Erlendar fréttir
Fögnuðurinn sem ríkti í
Þýskalandi á sameiningar-
deginum 2. október 1990
virtist víðs fjarri við hátíðahöldin
ári síðar
Þvert á móti setti vaxandi út-
lendingahatur, einkum i austur-
hluta ríkisins, ófagran svip á hátíð-
isdaginn. Þannig lagði hópur ný-
nasista í bænum Luckenwalde
heimili 32 innflytjenda frá Ghana í
rúst eftir að þeir höfðu verið fluttir
á burt af öryggisástæðum. Nýnas-
istamir voru vopnaðir jámstöngum
og homaboltakylfum.
Tvö börn frá Líbanon, 5 og 9
ára gömul, brenndust illilega þegar
bensínsprengju var varpað inn á
heimili þeirra skammt frá Dussel-
milli íbúa austur- og vesturhluta
landsins.
Kohl sagði í sjónvarpsávarpi til
þjóðarinnar að sýna bæri útlend-
ingum í landinu umburðarlyndi og
virðingu. Margir þeirra hefðu starf-
að lengi í Þýskalandi og lagt sitt af
mörkum til efnahagslegrar upp-
byggingar. Hins vegar sagði hann
að koma þyrfli í veg fyrir misnotk-
un á tiltölulega frjálslyndum lög-
um um innflyljendur, en búist er
við að um 200.000 muni sækja um
landvistarleyfi á þessu ári.
Útlendingahatur í Berlin: tyrkneskur innflytjandi gengurfram hjá vegg með áletrun: „Burtu með Tyrkina!" Fyrir
hálfri öld voru gyðingar í sömu sporum í Berlín.
Útlendingahatur setti svip á
sameiningardag Þýskalands
dorf. Og í Elmshom í Schleswig-
Holstein réðust svokallaðir skalla-
ruddar eða skinheads á blökkmann
sem var farþegi í almcnningsvagni
og misþyrmdu lionum.
Stjómmálamenn héldu ræður í
tilefni dagsins, og sagöi Kohl
kanslari að þrátt fyrir það að efna-
hagsumbætur væru nú vel á veg
komnar í austurhluta ríkisins, þá
væri enn djúp sálfræðileg gjá á
Enda þótt aðeins sé reiknað
með að um 5% þeirra fái landvist-
arlcyfi, þá hefur reynslan orðið sú
að tugþúsundir dvelja langdvölum
og jafnvel ámm saman i landinu á
meðan mál þeirra em í athugun eða
fyrir dómstólum. Kohl sagðist vita
að þetta ylli mörgum áhyggjum, og
sagðist myndi gera það sem í hans
valdi stæði til að koma í veg fyrir
misnotkun innílytjendalaganna.
Henning Voscherau, borgar-
stjóri Hamborgar og forseti efri
deildar þingsins í Bonn, sagði í til-
efni dagsins að Þjóðverjar yrðu að
sýna þeim 5 miljónum útlendinga
sem lifðu á meðal þeirra virðingu
og umburðarlyndi, ekki síst vegna
eigin fortíðar.
Stjómmálaskýrendur telja að
nýlegan ósigur Jafnaðarmanna
(SPD) í kosningum til fylkisþings-
ins í Bremen megi að nokkm rekja
til almenns ótta við útlendinga, en
Jafnaðarmenn hlutu um 38% at-
kvæða á móti nær 50% 1987. Hinn
kristilegi flokkur Kohls fékk nú
30,5% á móti 23,4% fyrir 4 ámm.
Telja fréttaskýrendur að Jafn-
aðarmenn hafi hugsanlega fengið
að gjalda fyrir of frjálslynda af-
stöðu sína til innflytjenda, og að
loforð Kohls um hertar aðgerðir
Ganga Sovétríkin i NATO?
James Baker, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, og Hans-
Dietrich Genscher, utanríkisráð-
herra Þýskalands, gáfu út sam-
eiginlega yfirlýsingu í gær þar
sem hvatt er til nánara sam-
starfs NATO og Sovétríkjanna á
sviði öryggis- og varnarmála.
Tillaga þeirra fól að vísu ekki í
sér að Sovétríkin og nokkur
önnur ríki A-Evrópu gengju i
bandalagið, en samkvæmt yfir-
lýsingunni er hvatt til þess að
NATO og A-Evrópuríkin stofni
með sér sérstakt samstarfsráð á
sviði öryggis og varnarmála.
I yfirlýsingu ráðherranna segj-
ast þeir ætla að vinna að því með
bandalagsþjóðunum í NATO að
koma á fastari samskiptum við
lýðræðisríki í Mið- og Austur-
Evrópu, og að það verði hlutverk
leiðtogafundar NATO-ríkjanna í
Róm í nóvember næstkomandi að
koma á formlegum samskiptum
bandalagsins við þessi ríki í fram-
tíðinni.
I yfirlýsingu ráðherranna er
talað um að sameiginlegt öryggis-
ráð NATO og A-Evrópuríkja ætti
að hafa regiulcga fundi sendifull-
trúa annars vegar og ráðherrafundi
hins vegar, að koma ætti á auknum
samskiptum til þess að efla skiln-
ing á tengslum stjómvalda og hers
í lýðræðisrikjum Vesturlanda, að
opna ætti upplýsingaskrifstofur
NATO í höfuðborgum A-Evrópu-
ríkja, að koma ætti upp sameigin-
Iegum áætlunum um neyðarhjálp
og flóttamannahjálp í ríkjunum. Þá
sögðu Baker og Genscher að það
ætti að vera forgangsverkefni
NATO að styðja alla viðleitni
þessara ríkja til þess að breyta
vopnaiðnaði sínum í framleiðslu-
iðnað á neysluvamingi.
Ráðherrarnir hvöttu sovésk
stjórnvöld til þess að svara bylt-
ingarkenndum afvopnunartillögum
Bush Bandaríkjaforseta með sam-
svarandi áræði og hugmyndaflugi
og sögðu það meginverkefni
NATO nú að styðja og styrkja Iýð-
ræðislegar stofnanir og frjálsa
efnahagsþróun í austurhluta álf-
unnar. „NATO getur beinlínis
stuðlað að myndun nýrrar sterkrar
og lýðræðislegrar Evrópu og mun
aðlaga uppbyggingu sína að því
markmiði að leiða Evrópu að sam-
eiginlegri öryggishugsjón og
stuðla að aukinni ábyrgð Evrópu-
ríkja á vömum álfunnar,“ segir í
þessari sameiginlegu yfirlýsingu
utanríkisráðherra Bandaríkjanna
og Þýskalands.
-ólg/reuter
| B S FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
W Síðumúla 39 — 108 Reykajvík — Sími 678500
Félagsráðgjafi
Laus er 75% staða félagsráðgjafa á félagsráð-
gjafasviði öldrunarþjónustudeildar í Síðumúla
39. Til greina kemur ráðning í 50% starf.
Starfið er fólgið í ráðgjöf og aðstoð við aldraða,
mati á húsnæðis- og þjónustuþörf og meðferð
umsókna um húsnæði og fjárhagsaðstoð.
Nánari upplýsingar veita yfirmaður öldrunar-
þjónustudeildar Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir og
forstöðumaður félagsráðgjafasviðs Ásta Þórðar-
dóttir.
Umsóknarfrestur er til 18. október n.k.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Síðumúla 39 — 108 Reykajvík — Sími 678500
Meðferðarfulltrúi
Meðferðarfulltrúi óskast í 50% starf á Áfanga-
staðinn Amtmannsstíg 5 A. Menntun á sviði
uppeldis, félags- eða sálfræði æskileg. Reynsla
í vinnu með áfengis- og vímuefnaneytendur er
einnig æskileg.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður Áfanga-
staðarins í símum 26945 og 686956.
Umsóknarfrestur er til 15. október n.k.
Umsóknum skal skila til Félagsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar, Síðumúla 39, á um-
sóknareyðublöðum sem þar fást.
gegn innfiytjendastraumnum megi
skoða í þessu ljósi.
-ólg.
Erótík
■ bógu
eyoni-
S|úkra?
1 gær var opnuð í Kaup-
mannahöfn yfirgripsmikil
sýning á klámi og ýmsum
„hjálpartækjum ástarlífs-
ins“ undir yfirskriftinni
„Erotica 2000“.
Sýningin, sem stendur i 4
daga, tekur yfir gríðarmikið
sýningarsvæði þar sem saman
hefur verið safnað öllum
hugsanlegum afurðum kyn-
lífsiðnaðarins, svo sem plast-
ígildum getnaðarlima og
skapa kvenna, kynæsandi nær-
klæðum og tólum til að svala
kvalalosta og öðrum bældum
kenndum, myndböndum til
sjálfsfróunar og örvunar,
myndskreytingum og bókum
er tengjast furðum og leyndar-
dómum kynlífsins ffá ólíkum
timum og menningarskeiðum.
Aðstandendur sýningar-
innar segja svæðinu skipt í
tvennt, og er annar helmingur-
inn ætlaður allri fjölskyldunni,
þar sem megináhersla er lögð
á kynfræðslu.
Hinn hlutinn er einungis
ætlaður fullorðnum, þar sem
svæsnari vamingur er til sýnis.
Aðstandendur sýningar-
innar búast við um 50.000
gestum á 4 dögum, en að-
gangseyrir er 750 ísl. kr. Hafa
forsvarsmenn þegar heitið því
að leggja eina miljón ísl. kr. í
styrktarsjóð eyðnisjúkra auk
þess sem sjóðurinn muni fá
100 kr. af hveijum seldum að-
göngumiða.
Mikill fjöldi útlendinga er
sagður væntanlegur á sýning-
una, allt frá Amsterdam til Ist-
ambul.
-ólg/reuter
NÝTT HELGARBLAÐ 14
FÖSTUDAGUR 4. OKTÓER 1991