Þjóðviljinn - 04.10.1991, Síða 15

Þjóðviljinn - 04.10.1991, Síða 15
F r é t t i r_ St. Jósefs- spítali skal ekki lagóur nióur-og þó Hafnfirðingar vita tæplega leng- ur hvað snýr upp og hvað niður ( málflutningi heilbrigðisráðherra um málefni St. Jósefsspítala. Bandalagi kvenna barst svar í gær frá Sighvati Björgvinssyni við samþykkt sem honum var send og segir í bréfi hans að „engin áform hafa verið uppi um að loka sjúkrahúsinu eins og látið er að liggja í samþykkt- inni.“ Sama dag var forráða- mönnum sjúkrahússins gert Ijóst af fulltrúum ráðuneytisins að ekki yrði horfið frá fyrri áætl- unum um að sjúkrahúsrekstur skuli lagður niður og tekinn upp rekstur hjúkrunarheimilis um áramót. Formaður Bandalags kvenna og fulltrúi í stjóm spítalans, Ema Fríða Berg, segist ekki skilja svar ráðherrans og það komi ekki heim og saman við það sem ráð er fyrir gert i' fjárlagaírumvarpi. 1 bréfi ráðherra segir, auk þess sem er ofan greinir, að ráðuneytið eigi nú í viðræðum við stjómendur St. Jósefsspítala um aðhaldsað- gerðir, lækkun kostnaðar og „hugs- anlegar skipulagsbreytingar í rekstri" og um þá tillögugerð verði höfð samvinna við stjómendur sjúkrahússins. Sama dag og bréfið barst, mið- vikudag, áttu stjómendur St. Jós- efsspítala fúnd með Páli Sigurðs- syni ráðuneytisstjóra og Svanhvíti Jakobsdóttur deildarstjóra. „Þrátt fyrir ýmsar yfirlýsingar ráðherrans um hið gagnstæða á undanfomum dögum þá var boðskapurinn ná- kvæmlega sá sami og hefúr verið,“ segir Ami Sverrisson forstjóri St. Jósefsspítala. „Þetta fólk virtist ekki hafa umboð til að semja um eitt eða neitt við okkur og hefur ekkert í höndunum annað en það að fjárlögin segja að það eigi að skera hér niður um 120 milljónir." Ami sagðist ekki sjá hvað það væri sem þeim væri boðið að semja um, augsýnilega væri þeim aðeins boðið að samþykkja það sem búið væri að tala um í ráðu- neytinu. Líklega yrði málið í bið- stöðu í ráðuneytinu í eina til tvær vikur á meðan starfsmenn þess ráða ráðum sínum um framhaldið. Hafnfirðingar hyggjast þó ekki bíða aðgerðalausir og undirbúa nú víðtæka undirskriftasöfnun. Söfh- unin verður skipulögð af nefnd sem skipuð var á samráðsfundi nær allra félagasamtaka í Hafnarfirði i vikunni. Fundurinn, sem haldinn var að frumkvæði Bandalags kvenna, samþykkti að skora á heil- brigðisráðherra, þingmenn kjör- dæmisins og bæjaryfirvöld að stuðla að því að St. Jósefsspítali verði áfram rekinn sem deildaskipt sjúkrahús í þágu Hafnfirðinga. Þá er í bigerð að leita liðsinnis hinna ýmsu félaga í Garðabæ og Bessa- staðahreppi við undirskriftasöfh- unina, sem einnig eru á heilsu- gæslusvæði spítalans. -vd. Ofsaveður gekk yfir norðan- og vestanvert landið í gærmorgun og fram eftir degi. Tjón af völd- um veðursins var tilfinnanlegt á Siglufirði og sagði Guðni Sveinsson, lögregluvarðstjóri þar, að mönnum hefði brugðið þegar Beinið, gömul síldar- bræðsla á þremur hæðum, fauk um koll. Björgunarsveitarmenn, iðnað- armenn og starfsmenn bæjarins höfðu nóg að gera á Siglufirði. „Bárujámsplötur og öskutunnur voru eins og skæðadrífa hér um bæinn, og í raun og veru var varla stætt þegar veðrið var sem verst. Við þurftum meira að segja að sétja farg í lögreglubílinn svo hann fyki ekki út í veður og vind,“ sagði Guðni. Um kl. 18.00 í gær höfðu borist 25 foktilkynningar á Siglufirði og vitað var um tvo bíla sem höfðu skemmst. „Það á sjálfsagt eftir að koma í ljós meira tjón á húsum og bílum þegar veðrið fer að ganga niður. Núna er ansi mikill vindur en hann kemur ekki eins mikið í hviðum og í morgun,“ sagði Guðni. Bragi Jónsson, veðurfræð- ingur hjá Veðurstofú íslands, upp- lýsti Þjóðviljann um að veðrið myndi haldast svona eitthvað fram eflir degi í dag. Lægðin sem hefði farið sunnan við landið drægi á eft- ir sér skil sem væm ansi slæm. „Það fer einnig kólnandi og má bú- ast við því að einhver slydda verði um landið og þá sérstaklega á fjall- vegum,“ sagði Bragi. Aðspurður hvort von væri á fleiri lægðum í kjölfar þessarar, sagði Bragi að nú væri sá árstími þegar allra veðra væri von. „Þessa stundina em aðstæður í háloftunum þannig að búast má við kröppum lægðum. Við vitum um eina sem er á leiðinni, en getum ekki sagt ná- kvæmlega til um hve djúp hún verður. Annars er að koma vetur og það vita allir að svona lægðir koma af og til. Það er því ástæða til að hvetja fölk til að huga að húsum sínum og umhverfi þeirra og reyna að minnka hættuna á tjóni af völd- um veðráttunnar,“ sagði Bragi. -sþ Stefnan tekin á heimsmeistaratitilinn Jón Baldursson, einn af bridge- spilurunum fræknu sem eru að gera garðinn frægan í Japan, sagði að ef (slendingum tækist að halda fyrsta sætinu í sínum riðli væri óskandi að b-lið Bandaríkjanna yrði frekar en Hong Kong í fjórða sætinu í hin- um riðlinum. Eins og sagt var frá í Þjóðvilj- anum í gær er fyrirkomulagið eftir að riðlakeppninni lýkur þannig að sú þjóð sem er í fyrsta sætinu í öðr- um riðlmum spilar við þá fjórðu í hinum. Islendingar eru þegar tvær umferðir eru eftir í riðlakeppninni með 19,25 stiga forystu og vonir standa til að það nægi þeim í fyrsta sætið. 1 hinum riðlinum er b-lið Bandaríkjanna í fjórða sætinu, en aðeins sex stigum á eftir þeim er Hong Kong. Gærdagurinn var íslendingum þungur í skauti og eftir að hafa lot- ið í lægra haldi fyrir Egyptum með 11 stig gegn 19 þeirra, gerðu okkar menn jafntefli við Ástrala 15-15, en unnu síðan Japan með 21 stigi gegn 9. Eftir gærdaginn voru Islending- ar með góða forystu í sínum riðli eða 218,25 stig á móti 199 stigum Breta sem voru næstir í röðinni. í þriðja sæti komu Argentínumenn með 194,25 og í fjórða sæti riðils7 ins var Venesúela með 166 stig. í hinum riðlinum eru það erkióvin- imir í íþróttum Svíar með foryst- una eða 222 stig. í öðm sæti em Brasilíumenn með 208 stig og í því þriðja em Pólveijar með 207,35 stig. Eins og áður sagði era það b- lið Bandaríkjamanna og Hong Kong sem beijast um fjórða sætið, en b-lið Bandarikjanna er með 195 stig og Hong Kong með 189 stig. I dag mun riðlakeppninni ljúka og heyja Islendingar fyrst omstu við Venesúela og ljúka riðlakeppn- inni með því að spila við a-lið Bandaríkjamanna. -sþ Kristinn H. Einarssson, formaður BISN, sagði að orð núyerandi Jjármálaráðherra á kosningafúndi í vor, um að iðn- nemar myndu fá sömu meðferð og aðrir námsmenn hjá LIN hafi verið svikin. Mynd: Jim Smart. Iðnnemarsaka fjármálaráðherra um ósannsögli Sagði Friðrik Sophusson ósatt? stóð í undirfyrirsögn fréttatil- kynningar er Iðnnemasamband (slands sendi frá sér til fjölmiðla. Tilefnið var að sl. vor sagði Friðrik, á kosningafundi í Iðn- skólanum í Reykjavík, að breyt- ingar á Lánasjóði íslenskra námsmanna (LÍN) myndu ekki koma niður á iðnnemum. Þetta segja þeir að hafi nú gerst og með nýju breytingunum hjá L(N fái iðnnemar lakari tekjumeð- ferð en aðrir námsmenn. Iðnnemasamband íslands og Skólafélag Iðnskólans í Reykjavík héldu þvf upprifjunarfund fyrir Friðrik Sophusson, núverandi fjár- málaráðherra. Iðnnemar buðu Frið- rik á fundinn og sögðust hafa myndbandsupptöku af honum þeg- ar hann sagði í vor að fráleitt væri að nokkrar þær breytingar sem gerðar yrðu hjá LIN yrðu látnar bitna sérstaklega á iðnnemum. Kristinn H. Einarsson, formað- ur Bandalags íslenskra sérskóla- nema, hélt ffamsögu fyrir hönd iðnnema og rakti hann þar fjölda dæma um að iðnnemar fengju í dag mun lakari tekjumeðferð hjá LIN en annað skólafólk er fengi lán hjá sjóðnum. Kristinn varpaði ffam þeirri spumingu á fúndinum hvort það væri stefna stjómvalda að fjölga lögffæðingum og viðskipta- fræðingum í landinu og láta á með- an iðnnámið sitja á hakanum. „Em of margir iðnnemar í námi?“ spurði hann og sagði að allir vissu að svo væri eldci. Friðrik Sophusson lagði ekki á sig að mæta ffammi fyrir þessum kjósendahóp og bar við önnum á þingi. í hans stað mætti Steingrím- ur Ari Arason, aðstoðarmaður fjár- málaráðherra og varaformaður stjómar LÍN. Hann sagði að um- fjöllunin væri allt einn stór mis- skilningur. Þegar reglum lána- sjóðsins hafi verið breytt hafi t.a.m. verið tekið mið af iðnnemum í sambandi við tekjumörk þeirra sem væm á starfssamningum. „Að breyta úthlutunarreglum LÍN til að takmarka námsmöguleika iðnnema meira en annarra námsmanna er tómur misskilningur,“ sagði Stein- grímur. Aðstoðarmaður ráðherra vildi aftur á móti ekki gefa orð sín fyrir því að iðnnemar fengju sömu tekjumeðferð og aðrir námsmenn, þegar hann var hvattur til þess. En hann sagði að ef það kæmi fyrir yrði málið að sjálfsögðu skoðað í stjóm LÍN. -sþ Aðlögun áb ECU I aföngum Tjón í ofsaveóri ó Siglufirói Til að undirstrika að verið sé að leggja grunninn að því að tengja íslensku krónuna við ECU, evrópska myntkerfið, hef- ur verið ákveðiö að um næst- komandi áramót verði gengis- voginni breytt þannig að í henni verði aðeins ECU, Bandaríkja- dollar og japanskt yen. Um mitt næsta ár verður síðan stefnt að ákveðnum lagabreytingum sem taldar eru nauðsynlegar til að tengja krónuna við ECU og á árinu 1993 er síðan ætlunin að stíga skrefið til fulls. Frá þessu var skýrt á blaða- mannaíúndi sem Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra efndi til í gær. Ásamt honum vom á fundinum seðlabankastjóri og forstjóri Þjóð- hagsstofnunar. En eins og kunnugt er hefúr ríkisstjómin að undan- fomu fjallað um greinargerðir frá þessum tveimur stofnunum um tengingu krónunnar við ECU- myntkerfið. Ennfremur var ítrekað af hálfú ráðherra að einn af hom- steinum efnahagsstefnu ríkisstjóm- arinnar væri stöðugt gengi og því engin áform um að fella gengi krónunnar. Ráðherra sagði að áffamhaldandi stöðugt gengi og fyrirhuguð tenging krónunnar við ECU þýddi gmndvallarbreytingu í stjóm efnahagsmála. Til að skapa nauðsynlegar for- sendur fyrir tengingu íslensku krónunnar við ECU er nú unnið að ýmsum veigamiklum skipulags- breytingum. Þar má nefna að regl- ur um skilaskyldu á erlendum gjaldeyri verða rýmkaðar til að unnt sé að þróa gjaldeyrismarkað, styrkja þarf stjómkerfi Seðlabank- ans í peningamálum og afla laga- heimilda til að gengi krónunnar geti ráðist af ffamboði og eftir- spum á markaði. Jafnffamt þessu verður aflétt enn frekar hömlum á gj aldeyrisviðskiptum. Að mati viðskiptaráðherra mæla ýmis rök fyrir því að gengj krónunnar verði tengt ECU. í fyrsta lagi er með slíkri tengingu gefin sterkari yfirlýsing um stöðugt gengi en hingað til og í henni felst jafnframt aðhald að öllum ákvörð- unum í efnahagsmálum. I öðm lagi dregur tenging við ECU úr gengis- áhættu í viðskiptum á ECU-svæð- inu, það er í Evrópu. Ennfremur felst í _ECU-tengingu yfirlýsing um vilja Islendinga til nánara sam- starfs við Evrópuþjóðir í viðskipta- og efhahagsmálum og í fjórða lagi mun tenging krónunnar við ECU gera hana gjaldgengari í erlendum viðskiptum en nú er. Til að komast hjá þeim sveifl- um sem jafnan em í íslenskum þjóðarbúskap, sem eiga í veruleg- um mæli rætur sínar að rekja til sjávarútvegsins, er lagt til að byggt verði upp öflugt sveiflujöfnunar- kerfi í sjávarútvegi, virk sveiflu- jöfnun í skattlagningu fyrirtækja, virkari stjóm ríkisljármála og pen- ingamála en síðast en ekki síst þró- un nýrra útflutningsgreina. Þá úti- lokaði ráðherra ekki að tekið yrði upp veiðileyfisgjald í sjávarútvegi og vísaði til yfirlýsingar Alþýðu- flokksins þar um. -grh NÝTT HELGARBLAÐ t 5 FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1991

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.