Þjóðviljinn - 31.01.1992, Side 9

Þjóðviljinn - 31.01.1992, Side 9
Blað sem engum að er óneitanlega undarleg tilfínning að setjast niður til að skrifa sína síðustu grein í Þjóðviljann. í sannleika sagt líð- ur mér ekki ólíkt því að vera að skrifa minningargrein um mann sem óvænt hefur fallið frá á besta aldri. Kröftugan og umdeildan mann sem hafði alla tiða átt við erfíðan sjúkdóm að stríða, á stundum vart verið hugað líf en alltaf haft það á seiglunni. Þá þegar minnst varði, var hann all- ur. Eitthvað þessu lík hefur lífs- og þrengingasaga Þjóðviljans verið undanfarin ár og áratugi. Blaðið sem alla tíð átti í vök að verjast hvað fjárhaginn snerti, en sýndi þrátt fýrir það oft og tíðum bæði áræði, snerpu og þor þegar aðrir þögðu. Blað sem hefur haft á að skipa mörgum af bestu pennum þjóðarinnar. Blað sem engum hefur verið sama um, hvorki áskrifendum né þeim sem aldrei datt í hug að iíta í blaðið. Allir höfðu sína skoðun á því sem þar birtist og kannski ekki síður því sem aldrei birtist. Ég starfaði á ritstjóm Þjóðvilj- ans í réttan áratug. Það var sannar- lega viðburðaríkur og skemmtileg- ur tími en gat líka verið erfitt þegar fáliðaður blaðamannahópurinn vann myrkranna á milli við að koma blaðinu út. Það þekkja allir sem unnið hafa við blaðamennsku að það þarf sam- virkan og glaðlyndan hóp góðra starfsmanna til að gefa út gott blað. Þjóðviljinn getur státað af því að þar hefur alla tíð verið úrvals starfsfólk og samheldni yfirleitt góð. Ég ætla ekki að rifja upp ein- staka viðburði eða nefna til sögunn- ar ákveðna samstarfsmenn, heldur nota tækifærið og þakka öllu því ágæta fólki sem ég átti samleið með á Þjóðviljanum þau ár sem ég starfaði þar. Síðustu árin hef ég verið nokk- uð tíður gestur á ritstjóm Þjóðvilj- ans, bæði til að hitta gamla starfsfé- laga að máli og einnig í margvís- legum erindum fyrir Blaðamanna- félagið. Það tekur sjálfsagt nokkum Þjóp¥hjimm var sama um tíma að uppgötva það til hlítar að Þjóðviijinn er hættur að koma út. Hér er komið að merkum tímamót- um í islenskri blaðasögu. Það hefur legið í loftinu um nokkurt skeið að til umtalsverðrar uppstokkunar gæti komið í blaðaút- gáfu hérlendis. Þar er ísland síður en svo sér á parti. Sama þróun hef- ur verið að eiga sér stað í öllum ná- lægum löndum. Lítil og miðlungs- stór dagblöð, sem gefin em út á landsvísu og tengd á einn eða ann- an hátt pólitískum hreyfmgum, eiga erfitt uppdráttar og blaðadauði er nær daglegt brauð. Skýringin á þessari þróun ligg- ur m.a. í stóraukinni útþenslu ljós- vakamiðla, harðnandi samkeppni um auglýsingar og almennum efna- hagslegum samdrætti og um leið vanmætti hinna minni blaða til að veita þá almennu þjónustu sem blaðalesendur leita eftir í síauknum mæli. Rekstur Þjóðviljans var kominn í þrot. Við þær aðstæður var ekki um margt að velja fyrir stjómendur og eigendur blaðsins. Áætlanir og vonir um stoíhun nýs blaðs, sem gæti staðið sig í harðri samkeppni á fjölmiðlamarkaðnum, hafa ekki gengið eftir enn sem komið er. Því miður blasir nú við nokkurt atvinnuleysi í stétt blaðamanna. Efitir mikla uppgangstíma síðustu ára er nú víða verið að draga saman seglin. Þetta er alvarleg staða sem ástæða er til að hafa áhyggjur af. Það ljós skín þó í myrkrinu að nokkrir fyrrum starfsmanna Þjóð- viljans og félagar í Blaðamannafé- laginu ætla ekki að láta deigan síga og hafa kynnt útgáfu nýs helgar- blaðs sem hefur göngu sína strax I næstu viku. Hér er um merkt og virðingarvert framtak að ræða sem vonandi fær góðar undirtektir al- mennings svo útgáfa þess nýja blaðs verði tryggð. Blaðaútgáfan heldur því enn um sinn velli í (Blað)- Síðumúlanum, þar sem öll dagblöð landsins utan Morgunblað- ið höfðu sínar bækistöðvar, fyrir réttum áratug. Síðan þá hefur mikið vatn runn- ið til sjávar. Höfuðstöðvar fluttar vítt og breitt um borgarlandið, nýir miðlar komnir til sögunnar og aðrir hafa lagt upp laupana. Það er hins vegar meira en lítill viðburður í ís- lenskri blaða- og fjölmiðlasögu þegar 56 ára sögu Þjóðviljans er lokið. Hvaða taugar sem menn hafa haft til blaðsins, þá er víst að það hefur haft ótvírætt gildi sem frétta- og umræðuvettvangur islenskra þjóðmála. Hvort og hvemig sá vett- vangur verður uppfylltur f næstu framtíð mun tíminn einn leiða í ljós, en hitt er víst að sú uppstokk- un sem nú hefur átt sér stað er að- eins upphafið að því sem á eftir mun fylgja. Lúðvík Gcirsson, form. BÍ EINSTAKT TILBOÐ! ALLTAÐ AFSLÁTTUR Seljum næstu daga skápa og húsgögná stórlækkuðu verði. Lítið útlitsgallaðir fataskápar með miklum afslætti. Dæmi um einstök tilboð: Átur Nustgr. Fataskápur80x210 nrt _ - wt.wrUs 18.905.- Fataskápur60x210 25.63C~ 13.965.- Hjónarúm én dýnu 154x205 16.0C0. - 18.905.- Einstaklingsnim án dýnu 80x200 42.625?' 10.355.- Einstaklingsrúmándýnu79x190 -17.7C5:- 8.550.- Vegghilla 37x200 6.555.- Vinnuborl 80X160 8.455.- Vinnubori80x120 a n /i/ia. 'IV.iIUV.'- 7.505.- Bókasképar80x184 i— 16.625.- Landsbyggðarþjónusta: Tökum við símapöntunum og sendum um land allt VISA Opið: 9-18 virka daga 10-16 laugardaga Visa raðgreiðslur i allt að 18 mán., engin útborgun. AXIS AXIS HUSGOGN HF. SMIÐJUVEGI9. KÓPAVOGI SÍMI: 43500 FAX 43509. Ibmstundoskólinn: Vorörin’92 Kennsla á vorönn hefst í næstu viku. Opið íyrir innritun og afgreiðslu laugardag og sunnudag kl. 10 - 18 báða dagana. Hvergi fjölbreyttara úrval af námskeiðum. TÓMSTUNDA SKOUNN Grensásvegi 16a Sími677222

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.