Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1995, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1995, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1995 Útlönd Stuttar fréttir x>v Hörmulegur atburður í franska smábænum Cuers um helgina: Unglingur drap ellef u manns og særði sjö Byssumaður á unglingsaldri barði til dauða þrjá meðlimi fjölskyldu sinnar og drap síðan átta aðra með skotvopni sínu. Að ódæðinu loknu svipti morðinginn sig lífi. Atburður- inn gerðist í franska smábænum Cuers um helgina en þar búa um 7000 manns. Byssumaðurinn, sem hefur ekki verið nafngreindur, er að sögn lög- reglunnar 17 ára gamall. Hann hóf skothríðina snemma í gærmorgun en auk þeirra sem féllu eru sjö alvar- lega slasaðir. Unglingurinn notaði 22 kalibera riffil við verknaðinn. Daginn fyrir skothríðina hafði maðurinn barið stjúpíöður sinn, móður og 11 ára gamlan bróður með hamri og hafnaboltakylfu. Fjölskyld- an bjó í þorpinu Solhes-Pont, skammt frá Cuers, en að sögn lög- reglu uppgötvaðist dauði þeirra ekki fyrr en eftir skotárásina í Cuers. Lögregluyfirvöld söguðst jafnframt ekki hafa neina kenningu um hvað olli þessari hegðun unga mannsins. Einn íbúa í Cuers sagðist hafa hald- ið að ungi maðurinn ætlaði að skjóta á loft flugeldum en síðan að skjóta á leirdúfur. „Síðan sáum við mann, sem var særður á fæti. Morðinginn var friðsamur að sjá og var yfirveg- aður þegar hann hlóð riffilinn. Hann stefndi að ráðhúsinu og hélt áfram að skjóta en sneri síðan við til að ganga frá manninum sem var særöur á fæti,“ sagði einn sjónarvottanna sem horfði á atburðina úr dyragætt ölstofu einnar. „Hann skaut á allt sem hreyfðist," sagði annar sjónar- vottur. Þrír hinna slösuðu voru fluttir með þyrlu á sjúkrahús í Toulon og Mar- seille. Aðrir fóru til Hyeres eða á neyðarsjúkrastöðina sem sett var upp á knattspyrnuvellinum í Cuers. Kapellu var einnig komið upp í bæn- um þar sem íbúar og ættingjar hinna láfnu gátu beðist fyrir. Lögregluyfirvöld sögðust ekki bú- ast við að fmna fleiri fórnarlömb en héldu þó leitinni áfram í bænum til vonar og vara. Reuter 17 ára unglingspiltur i Frakklandi myrti ellefu manns um heigina. Þrír hinna látnu voru úr fjölskyldu unga mannsins en ekki er vitað hvað honum gekk til með verknaðinum. Á myndinni breiða lögreglumenn yfir eitt fórnarlambanna. Simamynd Reuter Palestinumenn fá aukin völd á Vesturbakkanum og Gasa Yasser Arafat og Shimon Peres voru þreyttir en ánægðir þegar fundur þeirra í Taba í Egyptalandi var á enda. Simamynd Reuter Samkomulag hefur tekist á milli ísraelsmanna og PLO um að þeir fyrrnefndu dragi herlið sitt til baka frá svæðum Palestínumanna á Vest- urbakkanum. Þetta verður formlega undirritað í Hvíta húsinu í Washing- ton í Bandaríkjunum á fimmtudag- inn kemur og tíu dögum síðar byrja hersveitir ísraela að draga sig form- lega til baka. Á sex mánaða tímabili eiga allar hersveitir að vera á bak og burt en að því loknu munu Palestínumenn ganga til kosninga og skal það gert innan 22 daga frá því síðustu her- sveitimar hafa hörfað. Það vora þeir Yasser Arafat, leiðtogi PLO, og Slúm- on Peres, utanríkisráðherra ísraels, ásamt yfirmönnum samninganefnd- anna, þeim Ahmed Korei og Uri Sav- ir, sem komust að þessari niðurstöðu sem nú er geymd í 400 blaðsíðna sam- komulagi sem verður undirritað síö- ar í vikunni, eins og fyrr sagði. Borgimar sjö á Vesturbakkanum, sem ísraelar munu hörfa frá, eru Jenin, Nablus, Tulkarm, Qalgilya, Ramallah, Betlehem og Hebron en til viðbótar draga þeir herlið sitt frá 450 þorpum. Að auki ætla ísraelar að láta lausar þúsundir Palestínu- manna sem sitja í fangelsum í landi þeirra. Sérstakt samkomulag gildir um staöi sem hafa trúarlegt giidi og veröur aðgangur aö þeim tryggður. Um 30 þúsund lögreglumenn frá Palestínu munu sjá um að halda uppi lögum og reglu á Vesturbakkanum og Gasa en í framtíðinni er 82 manna stjórn ætlað að bera ábyrð á flestum málum á þessu svæði. Meðlimir ráðsins mega þó hvorki vera haldnir kynþáttafordómum né starfa óheið- arlega eða ólýðræðislega. Þótt niðurstöður hggi nú fyrir gengu viðræður PLO og ísraels- manna ekki átakalaust fyrir sig og Yasser Arafat æddi a.m.k. út af ein- um fundanna í Taba í Egyptalandi. Þá hafa harðlínumenn í ísrael sagt að þeir muni hundsa samkomulagið. Leiðtogar víða um heim tóku hins vegar fréttunum fagnandi og utan- ríkisráðherra Frakka, Herve de Cha- rette, sagði m.a. þetta: „Frakkar eru mjög ánæðir meö þessar fréttir. Þetta er mikilvægt skerf í átt til friðar." Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna, tók í sama streng. „Þetta er stórt skerf til aö koma á varanlegum friöi íMiðausturlöndum. Reuter SprengjuráKorsíku Fjórar sprengjur sprungu á Korsíku í gærmorgun. Tvö veit- ingahús skemmdust mikið en enginn slasaðist. Öflug sprengja Einn lést og sex særðust þegar sprengja sprakk í bílakjallara í Bogota í Kólumbíu um helgina. Óeirðirífangelsi Fjórir fangar létust og 24 slös- uöust í óeirðum í yflrfullu fang- elsi í Venesúela. Kaupsýslumaðurinn Jackson Poppstjaraan Michael Jack- son á nú í við- ræðum við Sony Music Pubiishing um kaup á helm- ingshlut í fyrir- tækinu. Fyrir á popparinn m.a. fyrirtækið ATV Music, sem á réttinn á lögum Bitl- anna, Elvis Presley og Little Ric- hard svo dæmi séu nefnd. Flugslys í Alaska Tuttugu og fjórir létust þegar bandarísk herflugvél hrapaði i Alaska á fóstudaginn. Bosníumenn ósáftir Bosníumenn sögöu í gær að þeir myndu hundsa friðarvið- ræðurnar í New York vegna ágreinings þeirra við Serba. Kúrdar drápu fimm Kúrdískir uppreisnarmenn drápu fimm manns í miðhluta Tyrklands um helgina. Fjölmenn friðarganga Áttatíu þús- und manns tóku þátt í ár- legri friðar- göngu í mið- lúuta italíu í gær. Móðir Theresá sendí göngumönnum kveðju sína en á meðal þeirra var Betty Wiiliams sem fékk friðar- verölaun Nóbels árið 1976. EkkitílBretiands Breski innanrikisráðherrann, Michael Howard, segir þaö ekki inni í myndinni að veita 3 milljón- um Hong Kong-búa landvistar- leyfi þegar Kínverjar taka við nýlendunni 1997. Estefaníáreksferi Vélbátur, með söngkon- una Gloriu Estefan og eig- inmann henn- ar, Emiho Estefan, innan- borðs, keyrði á sæþotu í gær með þeim afleiðingum aö einn á síöaraefnda farartækinu fórst, Hertarreglur Svíþjóð og fleiri Evrópulönd hyggjast herða mjög öryggisregl- ur um búnað skipa j kjölfar þess að Estonina sökk. Á fimmtudag- inn er höið ár frá því ferjan sökk og með henni 852 menn. Chiracóvinsæll Vinsældir Chiracs Frakklands- forseta halda áfram að hrapa. Aðeins 33% kjósenda eru ánægð- ir með störf hans samkvæmt nýrrí skoðanakönnun. Frekari viðræður Major forsætisráöherra og írsk- ur starfsbróðir hans, John Bru- ton, samþykktu á laugardaginn að auka viðleitni sína til að koma á friði á Noröur-írlandi. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.