Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1995, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1995, Blaðsíða 19
MÁNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1995 31 Fréttir Söfnuðu handa alþingismönnum: Við megum ekkert aumt sjá - segirKarlHjelmsemstóðfyrirsöfnuninni „Við megum ekkert aumt sjá hér í Neskaupstað og þess vegna gekk ég um og bað fólk gefa í söfnunina það sem það væri með í vösunum og væri aflögufært fyrir. Mér tókst að safna þijú hundruö tuttugu og tveim- ur krónum og niutíu aurum enda þótt allir legðu ekki eitthvaö af mörk- um. Og þetta fé lagði ég inn á reikn- ing hjálparsjóös Rauða kross íslands með óskum um að því yrði útdeilt meðal fátækra og nauðstaddra al- þingismanna. Eg veit að þetta er ekki há upphæð til sextíu og þriggja fá- tækra þingmanna. En ef fleiri færu að okkar dæmi þá má ekki gleyma því að þaö safnast þegar saman kem- ur,“ sagði Karl Hjelm, starfsmaður í saltfiskverkun Síldarvinnslunnar hf. í Neskaupstað, við DV. Hugmyndin að því að safna pening- um handa alþingismönnum kviknaði í kaffitíma fyrir helgina þegar menn ræddu um þær skattfrjálsu 40 þús- und krónur á mánuði sem þingmenn telja nauðsynlegt aö þeir fái. Nokkrir starfsmenn saltfiskverk- unarinnar tóku hugmyndinni ekki vel, neituðu að gefa í söfnunina og sögðust ekki vilja hæðast að alþingis- mönnum opinberlega. Karl Hjelm sagðist vonast til að svona safnanir færu fram sem víðast á landinu til styrktar þingmönnum landsins. Starfsmenn við Höfðabakkabrúna: Hundrað manns til Newcastle „Það er verið að plana golfleiðang- kreditkortum þeirra. í lengstu lög aö endumýja visakortin ur, ferð á fótboltaleik og síðast en „Ég held að flestir karlamir reyni sín,“segirSigurður. -rt ekki síst árshátíð fyrirtækisins sem við ætlum að halda ytra,“ segir Sig- urður Sigurðarson, framkvæmda- stjóri Hlaðbæjar Colas, sem var eitt þriggja fyrirtækja sem sáu um fram- kvæmdir við Höfðabakkabrúna. Ákveðið hefur verið að 100 manna hópur starfsmanna og maka þeirra sem unnu við Höfðahakkabrúna haldi til Newcastle þann 2. nóvember nk. Um er að ræða starsfólk frá Hlaðbæ Colas og JVJ hf., um 50 manns frá hvoru fyrirtæki. Þriðja fyrirtækiö sem stóð að framkvæmd- um, Álftárós hf„ sendir ekki sitt starfsfólk vegna samnings um upp- mæhngu sem sagt er að hafi þegar gefið starfsmönnum ábatahlut. Sigurður segir að ferðin sé farin vegna góðrar frammistöðu starfs- mannanna sem luku verkinu á mun skemmri tíma en áætlað var. „Það náðust þau markmið sem sett voru. Það stóöst að ekki var lokað nema í 25 daga og verkið kláraðist þegar á heildina er litið um 20 dögum á undan áætlun," segir Sigurður. Hann segir að verklok á undan áætlun hafi skilað fyrirtækjunum þremur um 8 milljónum króna í flýtifé að meðtöldum virðisauka- skatti. Hann segir menn vera spennta að komast í ferðina en slær á léttar nót- ur og segir þó gæta nokkurs kvíða vegna fyrirsjáanlegrar notkunar á Helgi Hallgrímsson vegamálastjóri og Halldor Blöndal ráðherra opna brúna. DV-mynd Hanna Ingólfsdóttir Brúarvígsla í Breiðdal Sigursteinn Melsted, DV, Breiðdalsvik: Nýja brúin yfir Breiðdalsá var vígð fyrir helgina og formlega tekin í notkun. Ráðherrann khppti á borða og hleypti á umferð. Farið var að huga að byggingu nýrrar brúar þarna 1980 og var henni vahnn staður við Ósinn eftir miklar vangaveltur. Skriður komst á máhð haustið 1991 þegar gólfið í gömlu brúnni brotnaði. Hún var byggð 1939. Haustið 1993 var lokið við hina 90 metra löngu, nýju brú en í sumar var vegurinn, sem er 7 km, að fullu frá- genginn Álftáróshf.: „Það stóð aldrei til aö fyrirtæk- ið greiddi fór starfsmanna til út- landa. Þetta var aht unnið sam- kvæmt uppmælingu og við höf- um aldrei ætlað aö fara í ferðina. Þaö eru fjórii- starfsmenn frá okkur sem ætla að fara í ferðina á eigin kostnað," segir Berg- sveinn Ólafsson, fjármálastjóri Álftáróss hf„ vegna þess að starfsmenn fyrirtækisins fara ekki til Newcastle með starfs- mönnum JVJ og Hlaöbæjar Colas. Bergsveinn segir ekki vera óánægju meðal starfsmanna vegna þessa þar sem þessi fór hafialdreikomiðtilumræðu. -rt „Eg held ég gangi heirn" Ettir einn -ei aki neinn UUMFEROAR rAo

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.