Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1995, Qupperneq 11
MÁNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1995
11
I
r
>
í
>
Sviðsljós
Elizabeth Berkley, aöalstjarna myndarinnar Showgirls, og mótleikari hennar, Kyle MacLachlan, eru sjálfsagt held-
ur kát með ailt umtalið sem myndin hefur hlotið vegna nektaratriða og klámbúllusora. Simamynd Reuter
Engin ástæða til að
selja sálina í sér
„Það sem mér flnnst kaldhæðnis-
legast í þessu öllu saman er að þessi
kvikmynd, sem hefur siðferðilegan
boðskap fram að færa, er bönnuð
innan sautján ára af því að það eru
nektaratriði í henni. Boðskapurinn
er sá að maður þuríi ekki að selja sál
sína til aö komast af,“ segir Joe Eszt-
erhas, höfundur handritsins að
Showgirls, einhverri umtöluðustu
myndinni í Hollywood um þessar
mundir. Myndin var frumsýnd
vestra um helgina.
Eszterhas segir Showgirls vera sið-
bótarsögu um unga stúlku með há-
leitar hugsjónir sem er varpað inn í
hringiðu soranæturlífsins í Las Veg-
as. Hún lætur peningana og völdin
glepja sig en hefst upp úr þessum
lifnaði af eigin rammleik fyrir til-
stilli samvisku sinnar.
Bandaríska kvikmyndaeftirlitið
bannaði myndina innan sautján ára.
Allajafna gera leikstjórar og fram-
leiðendur allt til að losna við slíkan
stimpil þar sem hann þýðir oftast
nær stórtap. Unglingar eru reyndar
meirihluti þeirra sem sækja kvik-
myndahús, jafnt í Bandaríkjunum
sem á fslandi. Höfundarnir, í þessu
tilviki Eszterhas og leikstjórinn Paul
Verhoeven, létu sér þó vel lynda,
enda þekkastir fyrir heitan trylli,
Ógnareðlið með Sharon Stone, ein-
hverja kynþokkafyllstu mynd af
sinni tegund.
En siðapostular eru að sjálfsögðu
ákaflega kátir.
„Borgararnir eiga fullan rétt á því
að mótmæla þessari tilraun til að
þröngva soranum og kláminu úr
nektarbúllunum í Las Vegas upp á
heimili sín,“ segir Robert Peters,
forpsrakki siðvæðingarsamtakanna
Siðferði í íjölmiðlum, sem hefur að-
setur sitt í New York. Hvorki meira
né minna en fjórtán þúsund manns
eru í samtökum þessum.
Rómontísk spennusaga
Spennandi óstarsaga
Urvals afþreying
á næsta sölustað og kostar
aðeins 895 kr. og ennþá
minna í áskrift.
í
>
Ófrísk Sinead
vill ekki giftast
Söngkonan Sinead O’Connor virð-
ist hafa sérstakar hugmyndir um
sjálfa sig. Hún krúnurakaði sig til
að fólk héldi ekki að hún væri bara
einhver snoppufríð söngkona. Þeim
sem létu ekki ginnast fannst hún í
staðinn vera sköliótt snoppufríð
| söngkona. Hún lét framkvæma tvær
fóstureyðingar á 18 mánaða tímabili
af því að hún ætlaöi ekki að eignast
| börn með mönnum sem vildu bara
sofa hjá rokkstjömu. Ófáum finnst
að hún hefði átt að spá í þá hluti
| áður en hún hoppaði í bólið. Nú er
^ Sinead hins vegar ófrísk eftir blaða-
mann að nafni John Waters sem hún
lýsir sem afskaplega fallegri mann-
veru. En hún vill ekki giftast honum
þar sem hann er ekki eigin-
mannstýpa. Hún er semsagt á lausu,
hafi einhver áhuga.
Sinead O’Connor.
MALNING 15-50% GOLFDUKAR 15-50% STÖK TEPPI15%
GÓLFTEPPI15-50% FLÍSAR ÚTIOGINNI15-50%
DYRAMOTTUR OG DREGLAR 15-50%
BLÖNDUNARTÆKI15-50%
HREINLÆTISTÆKI15-50%
QUICK STEP PARKET 15%
ÚTILJÓS/INNIUÓS 15%
M
METRÓ
miðstöð heimilanna
OPIÐ ÖLL KVÖLD OG ALLAR HELGAR
-------T----------------^--------------------
Reykjavík Reykjavík Reykjavík
Málarinn Skeifunni 8 Hallarmúla4 Lynghálsi 10
581 3500 553 3331 567 5600
Akureyri
Furuvöllum 1
461 2785 461 2780
Akranesi
Stillholt 16
431 1799
Isafirði
Mjallargötu 1
456 4644