Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1995, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1995, Page 16
16 MÁNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1995 Fréttir______________________________________ • GöngugatanáAkureyri: Atkvæðagreiðsla um bílaumferð? Göngugatan á Akureyri. Þar er á stundum ekki mikið um að vera eins og sjá má á myndinni sem tekin var i síðustu viku. DV-mynd gk Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Þetta mál hefur ekki fengið end- anlega umfjöllun bæjaryfirvalda, þaö er t.d. í athugun hvað það muni kosta að leyfa tiltekna uinferð bif- reiða í göngugötunni og fleira í þeim dúr,“ segir Gísli Bragi Hjartarson, bæjarfulltrúi á Akureyri. Mjög skiptar skoöanir eru um það hvort leyfa eigi bílaumferð að ein- hverju leyti í göngugötunni. Verslun- areigendur við götuna afhentu bæj- aryfírvöldum undirskriftalista þar sem þeir kröfðust þess að gatan yrði opnuð bílaumferð en við umræður um máliö kom fram tillaga um að bæjarbúum verði gefinn kostur á að greiða atkvæði um málið. „Ég vakti athygli á því að þetta skipti alla bæjarbúa máli og því væri ekki óeðlilegt að Akureyringar fengju að greiða um það atkvæði hvort gatan yrði opnuð fyrir bíla- umferð. Þetta er miðbær allra Akur- eyringa," segir Gísli Bragi. En væri ekki eðlilegt að kanna í leiðinni hvað fólk vill að þarna sé gert? Fjölmargir kvarta t.d. undan því að miðbærinn og þá sérstaklega Ráðhústorgið sé grátt og kuldalegt eftir þær breytingar sem þar hafa veriö gerðar. „ Jú, það er alveg rétt. Það væri líka e.t.v. ekki vitlaust að ljúka fram- kvæmdum samkvæmt verðlauna- teikningu af þessu svæði sem gerði t.d. ráð fyrir meiri gróðri á svæðinu. En ef farið verður út í það að efna til atkvæðagreiðslu meðal bæjarbúa þá er það í sjálfu sér ekki flókin fram- kvæmd, það mætti t.d. senda Akur- eyringum á kosningaaldri atkvæða- seðla heim eða hreinlega opna kjör- stað í stuttan tíma,“ segir Gísli Bragi. Akranesi: Mjölblöndun- artankar reistir Daniel Ólafsacm, DV, AkranesL' Nú standa yfir framkvæmdir við fiskinýölsverksmiðju Harald- ar Böðvarssonar hf. á Akranesi. Um er að ræða uppsetníngu á tönkum og öðrum búnaði til mjöl- blöndunar. Að sögn forráðamanna HB gef- ur þessi fjárfesting möguleika á að blanda mjöl eftir sífellt aukn- um kröfum kaupenda. Sömuleið- is verða gæði framleiðslunnar jafnari hvað varðar efnainnihald og fleira. Fiskimjölsverksmiöja HB hefur verið markvisst byggð upp und- anfarin ár og voru afköst hennar aukin á sl. ári um 200 tonn á sól- arhring með uppsetningu á for- hitara, mjölskilvindu og lýsisskil- vindu. Með því aö bæta nú viö búnaöi til mjölblöndunar er því um að ræða næsta áfanga í end- urbótum á verksmiðjunni. Haraidur Böðvarsson hf. HB rekur fjölþætta starfsemi í sjáv- arútvegi. Á frystitogara, 2 ísfisk- togara, tvö nótaskip, frystihús, fiskimjölsverksmiðju, fiskverk- un, auk stoðdeilda. Unnið viA uppsetningu á mjöl- tönkunum. DV-mynd Daníel Greinarhöfundur með bitið lamb. DV-mynd Jón Ben Refir drepa sauðfé af Heklubæjum Jón Benedildsson, DV, HvolsveDi: Dýrbítur hefur undanfama daga lagst á fé við Heklubæi og hafa lömb frá bæjunum Hólum, Næfurholti og Selsundi verið drepin. Snemma sum- ars fannst lamb inni á Vikrum. Það var tætt og illa bitið en lifði. Undanfarna daga hefur orðið vart við skolla aftur og hafa fundist fjögur lömb bitin. Tvö með lífsmarki en varð ekki bjargað. Það er eins og tóf- unni gangi það eitt til að drepa því að ekkert hefur verið étið af lömbun- um. Skolli bítur sig fastan á nasir og framandlit á lömbunum og kæfir þau. Telja má víst að fleiri lömb hafi orðið tófunni að bráð því torleitað er í hraununum umhverfis bæina. Aðfaranótt mánudags vann Sig- urður Ásgeirsson, refaskytta frá Gunnarsholti, tvö dýr á þessum slóð- um með því að leggja út æti og liggja fyrir skolla. Það er nú von manna að vargurinn sé allur. Elísabet Sif Haratdsdóttir og Sig- ursteinn Másson. Elísabet og Sigursteinn: Dansparinu Elisabetu Sif Har- aldsdóttur og Sigursteini Stefáns- syni hefur verið boðið aö taka þátt í danskeppni í október þar sem þáttakendur eru sex af bestu unglingapörunum í heiminum. 1 apríl siðastliðnum komust El- ísabet og Sigursteinn, sem eru 15 ára, í úrsht í fjórum greinum í óopinberri heimsmeistarakeppni í Englandi og er það besti árangur sem islenskt danspar hefur náð til þessa á svo sterku móti. Alls kepptu 180 pör. Keppnin, sem Elísabetu og Sig- ursteini hefur verið boðin þátt- aka í þann 9. október, er liður í danshátíð sem ber heitið Hátíð 100 stjama. „Þetta leggst rosalega vel í mig. Þetta verður bæöi sýning og keppni og við tökum þátt í keppni í suðuramerískum dönsum. Dag- inn eftir keppum viö i alþjóðlegri keppni sem talin er önnur stærsta keppni í heimi fyrir okk- araldurshóp," segirSigursteinn. „Þetta er alveg fráhært að fá svona boð,“ segir Elísabet sem dansaö hefur við Sigurstein frá níu ára aldri. Þau urðu danspar um hálfu ári eftir að þau byrjuðu að læra að dansa. HéðinsQörður: Varia stætt á Hestskarðinu Þóihallur Ásmundss., DV, Sauðárkróki: „Þaö smalaðist vel hjá okkur og veðrið var alveg frábært báða dagana. Hins vegar kom hvellur um kvöldið þann sextánda. Það var ansi hvasst þegar við rákum yfir í Siglufjörð, varla stætt á Hestskarðinu," sagði Egill Rögn- valdsson á Siglufirði en skíða- menn í bænum tóku aö sér göng- ur í Héðinsfirði eins og síðustu 12-13 árin. Þykir það góð fjáröfl- un fyrir skíðafélagið, eitthvað á annaö hundrað þúsund í kass- ann. Engum vandkvæðum var bundið að fá menn í göngumar og fór 20 manna flokkur frá Siglu- firöi. Siglt var til Héðinsfjarðar og smalaö i Músadal og Víkurdal og réttað um kvöldið. Afréttin í Héöinsfirði var gengin og safnið svo rekið yfir Hestskarðið til Sigluíjarðar á sunnudagsmorg- un. Alls taka því göngurnar í Héðiflsfirðinum rétt rúma tvo sólarhringa. Um 100 fjár eiga sumarhaga í Héðinsfirði, ur Ólafsfirði og Fljót- um. Ekki hefur siglfirsk kind gengið í Héðinsfirði til fjöida ára.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.