Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1995, Blaðsíða 6
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1995
6 *
útlönd
Frakkar undirbúa aðgerðir gegn málaliðum á Comores-eyjum:
Harðir bardagar
um f lugvöllinn
Færri alnæmisUlfelli
Tvö ný alnæmistilfelli greind-
ust í Færeyjum í fyrra en færri
hafa greinst með veiruna þar en
annars staðar á Noröurlöndum.
Andreotti og mafían
Dómari á ítal-
íu hefur birt
myndir af
Giulio Andre-
otti,fyrrumfor-
sætisráðherra,
með kaupsýslu-
manni með
maííutengsl.
Andreotti hefur sagt að hann
þekki ekki manninn.
Ódýrari matur
Neytendafélög í Evrópu segja
að matvæli í ESB séu enn allt of
dýr og þau krefjast lægra verðs.
Stjórnvöld í Afrikuríkinu
Gambíu hafa bannað opinberum
starfsmönnum að lýsa hörundslit
sinn með efnasamböndum.
Undirbiia kvennabanka
Fjórar konur í Svíþjóð hafa hug
á að kanna grundvöll fyrir sér-
stökum kvennabanka sem mundi
sérhæfa sig í lánum til fyrirtækja
kvenna.
Lekinntiilöggunnar
Norska fjármálaráðuneytið
hefur beðiö lögregluna um að
rannsaka hvaðan upplýsingar
um fjárlagafrumvarpið, semDag-
bladet birti, eru komnar og einnig
hefur ráðuneytið sett á laggirnar
vinnuhóp til að rannsaka málið.
Flóðiðverðlagt
Tjónið af flóðunum í Noregi í
vor nam um 160 milfjörðum ís-
lenskra króna.
Heim eftir 35 ár
Enska skjaldbakan Chester er
komin heim aftur eftir 35 ára
flökkulíf en hún komst þó aldrei
nema 150 metra á þeim tíma,
Uknarbelgur í flugvél
Sænsku flugvélaverksmiðjurn-
ar Saab ætla að setja iíknarbelg
i JAS Gripen orrustuvélar sínar.
Viðruddumbrautina
James Baker
segir að þrátt
fyrir storma-
sama sambúð
Bandaríkjanna
og ísraels þegar
hann var utan-
ríkisráöherra
hafi það verið
stjórn Bush forseta sem ruddi
brautina fyrir friðarsamkomulag
ísraels og PLO.
Hafnaökuleið
Stjórnvöld i Bosníu hafa hafnað
tillögu SÞ um akstursleið lang-
ferðabíla meö óbreytta borgara
til og frá Sarajevo.
Ritzau, Reuter, NTB, TT
Beðið átekta
íTokyo
Verð á hlutabréfum hefur hækkað
talsvert undanfarna viku, sérstak-
lega í Tokyo en einnig í Hong Kong,
þó að lækkun hafi orðið nú í vikulok-
in þar sem fjárfestar bíða rólegir eft-
ir nýjum mánuði. Hlutabréfavísitai-
an í New York hækkaði einnig nokk-
uð í vikunni til að lækka svo aftur í
vikulokin og lækkun varð einnig á
vísitölunni í Lundúnum og Frank-
furt.
Engar stórvægilegar breytingar
urðu á bensín- og olíuverði á erlend-
um mörkuðum í vikunni. 92ja og 98
oktana bensín lækkaöi í verði meðan
hráolía tók kipp upp á við. Verðlækk-
un varð á sykri og kaífi í Lundúnum.
Reuter
Sjö menn að minnsta kosti, þar af
tveir hvítir málaliðar, féllu í bardög-
um þegar hersveitir hliðhollar for-
seta Comores-eyja á Indlandshafi
náðu aðalflugvelli eyjanna aftur úr
hendi málaliða í gær.
Hinir fimm sem féllu voru í liöi
lögreglunnar sem gerði harða
gagnrárás á málaliðana, sem eru
undir stjóm gamalreynds ævintýra-
manns, Frakkans Bobs Denards.
Hörðustu bardagarnir voru háðir
miðja vegu milli flugvallarins og höf-
uðborgarinnar Moroni.
Embættismenn í París sögðu í gær
að Frakkar, sem eitt sinn réðu yfir
Comores-eyjum, íhuguðu að skerast
„Eg hafði alltaf litið á hjónaband
mitt sem mikilvægasta og helgasta
þátt lífs míns og það tekur mig ákaf-
lega sárt að þurfa að horfast í augu
við það aö glata eiginmanni mínum
án þess að fá nokkru ráðið þar um,“
sagði Julia Carling, eiginkona Wills
Carlings, fyrirliða enska rugby
landsliðsins og meints ástmanns Dí-
önu prinsessu, í yfirlýsingu sem hún
sendi frá sér í gær.
Julia er alveg eyðilögð en hún gekk
þó ekki svo langt að kenna prinsess-
í leikinn til að stökkva málaliðunum
á flótta. Varnarmálaráðuneytið
franska hefur fyrirskipað hersveit-
um sínum í Indlandshafi að vera í
viðbragðsstöðu.
Chouzour, fyrrum sendiherra Co-
mores-eyja í Frakklandi, sagði í sam-
tali frá eyjunum að lögreglusveitir
stjómarinnar væru undir stjórn
Ismaels höfuðsmanns, ákafs stuðn-
ingsmanns forsetans, Saids Mo-
hameds Djohars, sem málaliðar hafa
í haldi.
Sendiherrann fyrrverandi sagði að
Ismael væri að reyna að flytja liðs-
auka frá nærliggjandi eyjum, Anjoan
og Moheli.
unni opinberlega um hvernig fór.
Will Carling flutti að heiman á
fimmtudag og tilkynningin um skiln-
að þeirra hjóna olli miklu írafári í
Bretlandi. Þau höfðu verið gift í að-
eins fjórtán mánuði.
Will hafði átt fjölda leynilegra
funda með Díönu, eiginkonu sinni til
mikils ama. Julia, sem er fyrrum
ástko'na Erics Claptons, er ljóska eins
og Díana og sagt er að hún leíti jafn
mikið í sviðsljósið og prinsessan.
„Það hryggir mig mjög hvernig fór
Gagnárás lögreglusveita eyjanna
kom íbúunum í opna skjöldu en hún
var gerð aðeins nokkrum klukku-
stundum eftir að málaliðar lýstu því
yfir að þeir hefðu tekið öll völd.
Forsetinn nýtur ekki mikillar hylli
meðal eyjarskeggja og að sögn emb-
ættismanns dansa landsmenn á göt-
um úti.
Leiðtogi nýrrar hernefndar, sem
bolaði forsetanum frá, Houmadi
Combo höfuðsmaður, sagði í gær að
forsetanum liði vel.
„Hann er óhultur þar sem hann
er,“ sagði Combo í viðtali við franska
Útvarpið. Reuter
en þrýstingurinn og spennan að und-
anfömu hafa leitt til þessa,“ sagði
Julia Carling.
Díana prinsessa var í líkamsrækt-
arklúbbi sínum í gær en þar áttu þau
marga fundi, hún og Will. Díana vildi
ekkert tala við fréttamenn.
Sérfræöingur blaðsins Daily Mirr-
or sagði í gær að Díönu væri alveg
sama um Carling, henni hefði bara
þóttgaman að daðra og firina til valds
síns yfir honum. Nú væri hún orðin
leið á honum. Reuter
Kauphallir og vöruverð erlendis I
Annar meintra morðingja ungrar spænskrar konu, sem hvarf fyrir rúmum tveimur árum, aðstoðar lögregluna við
að leita að líki hennar. Lögreglan hafði tilkynnt að likamsleifar konunnar væru fundnar. Simamynd Reuter
Julia Carling alveg eyðilögð
vegna missis eiginmannsins
Fjármálaráð-
herrann kominn
ípabbaleik
Sigbjörn
Johnsen, fjár-
málaráðherra
Noregs, ermað-
ur önnum kaf-
irrn. Ekki nóg
með að hann
þurfi að koma
nýju fjárlaga-
frumvarpi á koppinn heldur þarf
hann nú að annast nýjan fjöl-
skyldumeðlim, dóttur sem fædd-
ist fyrir viku.
„Við feðurnir verðum að standa
okkur í stykkinu, eins og við get-
um, óháð því hvaöa stöðu við
gegnum," segir Johnsen sem nú
er kominn i tveggja vikna feðra-
orlof. Johnsen og eiginkona hans
áttu eina dóttur fyrir.
Urslitastund
miðlínudeilunn-
arnálgast
Senn líður að því að úrslit ráö-
ist í miðlinudeilu Færeyinga og
Breta á hafsvæðinu milli Færeyja
og Hjaltiands þar sem miklar ol-
íulindir er hugsanlega að finna.
Næsti fundur embættismanna
verður haldinn í Lundúnum í
desember og er búist við að þá
ráðist hvort samkomulag tekst,
eða hvort málinu verður skotið
fyrir Aiþjóðadómstólinn í Haag.
Síðasta fundi er nýlokið en ekki
þokaðist í samkomulagsátt á hon-
um.
Mikil olía hefur fundist rétt ut-
an færeysku fiskveiðilögsögunn-
ar. Færeyingar gera sér vonir um
að olíu sé einnig að finna á þeirra
hafsvæði og þeir eru þegar faniir
að búa sig undir hugsanlegt olíu-
ævintýri.
Ríkisborgarar
Norðurlanda
skulujafnir
Ríkisborgarar Norðurlandanna
skulu njóta jafnréttis í Öllum
iöndunum fimm og þess vegna
skulu löndin gæta þess við mótun
laga og annarra réttarreglna.
Þetta var samþykkt á auka-
fundi Norðurlandaráðs í Kaup-
mannahöfn í gær með 73 atkvæð-
um gegn engu. Ríkisstjómir land-
anna verða að samþykkja breyt-
ingarnar og staðfesta til að nýr
Helsinki-sáttmáli geti tekið gildi
fyrir áramót. Helsinki-sáttmálinn
hefur verið hornsteinn norrænn-
ar samvinnu frá árjriu 1962.
Breytingarnar brjóta ekki gegn
skuldbindingum landanna og eru
löggjöf þeirra ekki æöri eins og
tilskipanir ESB.
Hvala-Watson
leitaðvegna
norskrarákæru
Lögregla í
bæðiKanada og
Noregileitarnú
Pauls Watsons,
leiðtoga hvala-
vinasamtak-
anna Sea Shep-
herd, til að
hægtséaðbirta:
honum ákæru vegna ásighngar
skips hans á norskt varðskip á
hvalamiðunum í fyrrasumar.
Watson og sambýliskona hans,
Lisa Distefano, hafa lýst því yfir
að þau mundu afplána hugsan-
lega refsingu í Noregi ef lögleg
framsalsbeiðni verður lögð fram.
En fyrst verður að birta honum
ákæruna.
„Hann er á sífelldum feröalög-
um. Við höfum lent í sama vanda
áður,“ segir Geir Fornebo viö
saksóknaraembættiö í Bodö.
NTB, liitzau