Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1995, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1995, Blaðsíða 42
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1995 50 0iák New York vaknar úr dái - spenna færist í einvígi Kasparovs og Anands eftir daufa byrjun Svo virtist sem einvígi Kasparovs og Anands í New York væri að verða jafnteflisdauðanum að bráð en í vikunni hresstust kapparnir loks og hættu að slíðra sverðin í miðjum klíðum. Skákunnendur, sem voru farnir að venjast því að tíðindalaust væri af vesturvígstöðv- unum, hrukku skyndilega upp við það að þrátt fyrir allt væru þetta býsna skemmtilegir skákmenn og einvígið gæti kannski orðið spenn- andi. Anand vann óvæntan sigur í 9. skákinni á mánudag með hugvit- samlegri skiptamunsfórn sem sló Kasparov algjörlega út af laginu. Hins vegar var Kasparov fljótur að jafna sig og náði strax að svara fyr- ir sig með því að rifja upp afrakstur heimavinnunnar í 10. skákinni. An- and tókst ekki að leysa flókin vandamálin yfir borðinu en Kasparov þurfti ekki að nota mik- inn tíma. . Átta jafntefli í byrjun einvígisins og mörg á ótefldar skákir hafa farið fyrir brjóstið á mörgum skákunn- andanum. t.a.m. er erfitt að hugsa sér að nokkur fáist i framtíðinni til Hurley í eld- heitum nektar- v l atriðum Sviðsljós Elizabeth Hurley, unnusta breska hjartaknúsarans og hrakfallabálksins Hughs Grants fækkaði fótum fyrir framan kvikmyndavélina fyrir nokkr- um árum þegar hún steig fyrstu skref- in á frama- og frægðarbrautinni. Viðburðaríkt blað fyrir þig Tónlist Kvikmyndir Myndbönd Dagskrá Sviðsljós - og margt fleira DV er skemmtilegt blað með allar nýjustu fréttimar. Frjálst, óháð dagblað fyrir þig Munið nýtt símanúmer 550-5000 þess að kosta skákviðburði þar sem slík lognmolla ræður ríkjum. Ef- laust hefur Anand litið þannig á málin að réttast væri að fara sér að engu óðslega í fyrri hluta einvígis- ins og reyna fremur að afla sér reynslu og sjálfstrausts. Kasparov virtist á hinn bóginn óöruggur, yfir- leitt var það hann sem átti hug- myndina að því að hætta skákunum og í þriðju skákinni hefði Anand getað komið honum á kné. Tefldar verða tuttugu skákir í New York. Einvígið er hálfnað og staðan er 5—5. Hætt er við að nú færist harka í leikinn og að meistar- arnir láti öðrum eftir friðarsamn- inga. 9. einvígisskákin: Hvítt: Viswanathan Anánd Svart: Garrí Kasparov Sikileyjarvörn. 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be2 e6 7. 0-0 Be7 8. a4 Rc6 9. Be3 0-0 10. f4 Dc7 11. Khl He8 12. Bf3 í stað 12. Bd3 sem Anand hefur haldið tryggð við í fyrri skákum ein- vígisins. Leikurinn sem hann velur nú þótti sjálfgefinn hér í eina tíð og Kasparov hefur margsinnis mætt honum, oftast þó með 12. - Hb8. Umsjón Jén L. Árnason 12. - Bd7 13. Rb3 Ra5 14. Rxa5 Dxa5 15. Dd3 Had8 16. Hfdl Van der Wiel reyndi 16. Dd2 gegn Kasparov í Amsterdam 1988 en 16. g4!? ári síðar gegn Polugajevsky í Haninge sem tefldist áfram skemmtilega 16. - Bc6 17. b4 Dc7 18. g5 d5!? 19. gxf6 dxe4 20. Dc4 með flækjum sem virðast hvítum í hag. 15. - Had8 16. Hfdl Bc6 17. b4!? Dc7 Auðvitað ekki 17. - Dxb4? 18. Hdbl og næst 19. Bb6 og fangar döm- una. 18. b5 Bd7 19. Habl axb5 20. Rxb5 Bxb5 21. Dxb5 Ha8 22. c4 e5 23. Bb6 Dc8 24. fxe5 dxe5 25. a5 BfB 26. h3 De6 sl lié 7 1 iái 6 ÉL W* íSf A 4 A m&m 3 É, & 2 , s B : * A B C D F G H í fljótu bragði skyldi ætla að svartur mætti vel við una; hvítur á sundurslitna peðastöðu og bisk- upapar hans virðist lítils virði því að hvítreita biskupinn er fangi peð- anna. 27. Hd5! Djúphugsuð stöðuleg skiptamuns- fórn sem á fullan rétt á sér því að ljóst er að staða hvíts batnar mikið ef svartur þiggur fórnina. 27. - Rxd5(?) Athyglisvert hefði verið að sjá hvernig Anand hefði brugðist við svarinu 27. - g5!? sem gefur svörtum möguleika á að þiggja fómina við hagstæðari skilyrði eða halda áfram með h7- h5 og g5-g4 o.s.frv. 28. exd5 Dg6 29. c5 Nú eru endatöfl hagstæð hvítum því að á einfaldan hátt (a6 og knýr fram bxa6) getur hann myndað tvo samstæða frelsingja. Svo virðist sem Kasparov geri sér þetta ljóst og því leggur hann út í vafasamar sóknar- aðgerðir í stað þess að búast til varnar. 29. - e4 30. Be2 He5?! 31. Dd7! Hg5 Betra er 31. - He7 en svarið yrði 32. Dg4 sbr. athugasemd við 39. leik hvíts. 32. Hgl e3? 33. d6 Hg3 34. Dxb7 De6 35. Kh2 - Og Kasparov gafst upp, því að 35. - De5 er einfaldlega svarað með 36. Dxa8 og ekki þarf að óttast frá- skákina. 10. einvígisskákin: Hvítt: Garrí Kasparov Svart: Viswanathan Anand Spænskur leikur. 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0 Rxe4 6. d4 b5 7. Bb3 d5 8. dxe5 Be6 9. Rbd2 Rc5 10. c3 d4 11. Rg5!? Leikur Mikhails Tal, fyrrverandi heimsmeistara, sem var einn að- stoðarmanna Karpovs í einvíginu viö Kortsnoj í Baguio 1978. Á sínum tíma olli leikurinn miklum úlfaþyt í skákheiminum og sitt sýndist hverj- um. Þannig var Vassily Smyslov hvergi banginn gegn Timman ári síðar og lék 11. - Dxg5 12. Df3 0-0-0 13. Dxc6 Dxe5 14. b4 Dd5! 15. Dxd5 exd5 16. bxc5 dxc3 17. Rb3 d4 og tafl- inu lauk með jafntefli um síðir. 11. - dxc3 12. Rxe6 fxe6 13. bxc3 Dd3 Fetar í fótspor Kortsnojs en til greina kemur 13. - Rxb3. 14. Bc2! Nýjung, í stað 14. Rf3 eins og Kar- pov lék gegn Kortsnoj og Kasparov í 6. skákinni við Anand. 14. - Dxc3 15. Rb3! Rxb3 16. Bxb3 Rd4 Til greina kemur að þiggja hrók- inn og skila honum aftur eftir 16. - Dxal 17. Dh5+ g6 18. Df3 Rd8! og nú 19. Dxa8 Dxe5, eða 19. Df6 Hg8 20. Bxe6 Hg7. 17. Dg4! Dxal 18. Bxe6 Hd8 Ef 18. - Dc3 19. Bd7+ Kf7 20. Be3 Bc5 21. Hdl og svartur á í mesta vanda. T.d. 21. - Re2+ 22. Dxe2 Dxe5 23. Df3+ Ke7 24. Bxc5+ Dxc5 25. Bh3! og svartur er varnarlaus. w é w £=& CS «■■**■ i. A A A A k A & % # & &&& W M. B E F H 19. Bh6!! Kasparov hafði aðeins eytt örfá- um mínútum af umhugsunartíma sínum er hér var komið sögu. Þessi laglegi leikur er áreiðanlega afrakst- ur heimavinnunnar. 19. - Dc3 20. Bxg7 Dd3! 21. Bxh8 Dg6? Eftir 21. - Re2+ 22. Khl Rg3+ 23. hxg3 Dxfl+ 24. Kh2 Dd3 á svartur undir högg að sækja en mikið er þó eftir af taflinu. Nú neyðist hann til að tefla vont endatafl með peði minna. 22. Bf6! Be7 23. Bxe7 Dxg4 24. Bxg4 Kxe7 25. Hcl c6 26. f4 Úrslitin eru því sem næst ráðin. Auk umframpeðs á hvítur heil- steypta stöðu og sterkan biskup gegn riddara. 26. - a5 27. Kf2 a4 28. Ke3 b4 29. Bdl a3 30. g4 Hd5 31. Hc4 c5 32. Be4 Hd8 33. Hxc5 Re6 34. Hd5 Hc8 35. f5 Hc4+ 36. Ke3 Rc5 37. g5 Hcl 38. Hd6 b3 39. f6+ Kf8 40. Bh5! Rb7 41. Ha6 - Og Anand gafst upp. -JLÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.