Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1995, Side 26
26
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1995
í íslensku
umhverfi
- Lína Rut Karlsdóttir spjallar um förðun og eitt verka sinna
Listaverk byggt á frægu
málverki Boticelli, ítalska
endurreisnarmálarans, í
hráslagalegu íslensku um-
hverfi útfært af íslenskum
listamanni á íslenskt hold.
Líklega eru fáar myndir
sem þessi jafn fjarlægar
hugsun manns dags daglega
en DV fékk Línu Rut
Karlsdóttur myndlistarkonu
til aö sýna hæfni sína í með-
ferð vatnslita á
kvenmannshold á dögunum.
Listformið kallast Body-
painting, líkamsmálun, og
fellst í þvi að mála sérstaka
vatnsliti á mannshold.
Mikilvægt er fyrir
listamanninn að vera með
hugmyndina útfærða i
kollinum áður en gengið er
til verksins' því nauðsynlegt
er að ljúka því á örfáum
klukkustundum áður en
verkið „hrörnar" af sjálfu
sér.
„Almennt getur góð
hugmynd að líkamsmálun,
sem er eitt form af list-
förðun, verið marga mánuði
að þróast. Stundum getur
hugmynd kviknað
skyndilega og verið nothæf
eða maður þarf að útfæra
hana frekar. í þessu verki
sem er hér til sýnis er ég að
leggja meiri áherslu á
skúlptúrana,“ segir Lína
Rut.
Andstæður
skapaðar
Lína Rut, sem er
útskrifuð úr málaradeild
Myndlista og handíðaskóla
íslands og lærður
förðvmarfræðingur frá
París, er nýkomin frá
Flórens, hvaðan Boticelli er
einmitt upprunnin, þar sem
hún var á námskeiði við
gerð skúlptúra. Við gerð
þessa verks, sem hér er til
umfjöllunar, segist Lína Rut
hafa farðað módelið á lát-
lausan máta en lagt meira í
skúlptúrinn, hárið og
skelina, ólíkt því sem sjá má
í fyrri verkum hennar en
mikil hreyfmg, litadýrð og
dýpt hafa einkennt þau.
Einfalt litasamspil er
einkennandi fyrir þetta
verk. Umhverfið er í
mikilli andstæðu við til-
Tilgangurinn er einfaldur. Líkt og með alla list, að búa
til eitthvað fallegt sem grípur augað og hugann, segir
Lína Rut sem hér stendur með módelinu sínu.
Lína Rut við gerð listaverksins en henni til aðstoðar
var Þórunn Högnadóttir.
tölulega látlausa liti
módelsins, ólíkt upphaflegu
verki Botticelli. Hart bergið,
skelin enn á ný og mosinn
skapa andstæður.
Lína Rut segir þetta listform
ekki vera nýtt af nálinni þótt
almenningur á íslandi hafi
ekki mikið séð af því hingað
til. Tilgangurinn er ein-
faldur. Líkt og með alla list,
að búa til eitthvað faUegt
sem grípur augað og
hugann. Flestum lesenda
erlendra tímarita ætti að
vera í fersku minni
forsíðumynd af leikkonunni
Demi Moore framan á
tímaritinu Vanity Fair, þar
sem hún var á Evuklæðun-
um ímáluð jakkafötum.
Undanfarið hefur
líkamsmálun æ meira verið
notuð í svipuðum tilgangi
við auglýsingagerð, til
dæmis viö skó- og úra-
auglýsingar. Þá eru módel
ekki lengur íklædd vörunni
sem þau eiga að auglýsa
heldur er hún máluð á þau
til að fanga augað og hugann
á annan máta en venjulega
er gert.
Ekki of margir
förðunarfræðingar
Margir sem leggja stund á
líkamsmálun hér á landi eru
fyrrum. nemendur Línu
Rutar en hún hefur rekið
eigin listfórðunarskóla frá
því árið 1992. Skólinn er
nýverið fluttur í nýtt
húsnæði í Skeifunni og er
rekinn samhliða
módelskrifstofu, þá er
ljósmyndari einnig með
aöstöðu í húsakynnunum.
Þetta leysir margan
vandann því auðvelt er að fá
módel fyrir nemendur í
listforðunamáminu og
ljósmyndari er á staðnum.
Mikið hefur verið talað um
að of mikið sé af
forðunarfræðingur hér á
landi. Lína Rut er sammála
því en hún fullyrðir að nóg
sé fyrir hæfa
förðunarfræðinga áð gera.
Málið sé aö fólk einblíni of
mikið á förðun sem starf
fyrir förðunarfræðinga.
Nauðsynlegt sé að útvíkka
sjóndeildarhringinn og átta
sig á því að fólk sem sótt
Einfalt litasamspil er einkennandi fyrir þetta verk Línu Rutar. Umhverfiö er í
mikilli andstæðu við tiltölulega látlausa liti módelsins, ólíkt upphaflegu verki
Botticelli. Hart bergið, skelin enn á ný og mosinn skapa andstæður.
DV-myndir JAK
-
hefur námskeið og skóla í förðun á
fjölda aðra atvinnumöguleika
tengda námi sínu. Til dæmis hefur
Lína Rut nýverið opnað snyrtivöru-
verslun og þar starfa einungis förð-
unarfræðingar og er þjónustan því
ólík því sem gerist víða annars stað-
ar.
„Förðun á íslandi hefur batnað tO
muna síðastliðin ár. Hér hafa vissu-
lega verið góðir förðunarfræðingar,
en ég segi að því fleiri sem eru á
markaðnum því betri þjónustu fá
viðskiptavinirnir. Við þurfum að
leggja meira á okkur og vanda
okkur meira til að ná verkefnum og
fúskaramir hverfa úr stéttinni."
-PP