Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1995, Síða 32
32
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1995
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1995
41
.
Heimasætan á bænum með Togga í fanginu en þeim hefur orðið vel til vina.
Lubbi og Toggi eru góðir félagar og leika sér oft saman. Toggi er hér að
reyna að fá Lubba til að togast á við sig um snærisspotta.
„Hvor skyldi hafa betur?
Hvað ertu að reyna, litli minn? Þú færð ekki snærið. Er það á hreinu?
Jæja, komdu þá,“ gæti Lubbi verið að segja við
eftir sér, enda stærðarmunurinn nokkur.
og dregur hann hér á
af henni. Nú virðist stofninn hins
vegar vera í nokkru jafnvægi.
Skýringar á þessu eru margar. Það
kann að vera að stofninn hafi hrunið
þegar fæðuframboð minnkaði áður
fyrr. Nú er hins vegar færra sauðfé í
landinu og hagar í betra ástandi
þannig að stofninn hrynur ekki af
þeim orsökum heldur frekar vegna
veiði. Það hefur komið fram við rann-
sóknir að rjúpan er staðbundinn fugl.
Hún ferðast ekki mikið á milli lands-
hluta eins og haldið hefur verið fram.
Það segir okkur að álagið er mest í
kringum þéttbýlissvæðin og ég held
að stofninn komist ekki hærra vegna
veiðanna.
Það hefur gjarnan verið sagt, og
verið eins konar amen hjá fuglafræð-
ingum, að veiðarnar hafi engin áhrif
á stofninn. Skotveiðimenn taka heils
hugar undir það. Það er alveg ljóst að
þótt náttúrulegur dauði einhvers
stofns sé svo og svo mikill þá geta
veiðarnar aidrei verið aðeins af þeim
hluta sem deyr hvort sem er. Það
hlýtur alltaf að vera skotið eitthvað
að því sem ella myndi lifa. Ég get
ekki valið úr feigar rjúpur og skotið
þær en sleppt hinum og aldrei finn ég
dauðar rjúpur nema þá skotnar. Mér
finnst það óskaplega einkennilegt ef
rjúpan lýtur einhverjum öðrum líf-
fræðilegum lögmálum en önnur dýr.“
Hann segir að áður fyrr hafi rjúp-
an komið í flokkum. Fyrst hafi menn
skotið upp fuglinn sem var á láglend-
inu en síðan hafi rjúpan af hálendinu
komið niður þegar frost fór að herða
og snjó að festa á hálendinu. Nú sé
hins vegar svo komið að það er skot-
ið óhemju magn af rjúpu á svæðum
sem aldrei hefur verið skotið á áður,
segir hann. Allir kofar og skýli á há-
lendinu séu upptekin strax við upp-
haf veiðitímabils og þaðan geri menn
út til veiða þannig að ekki er rjúpna
að vænta þegar líður á veiðitímann
til að skerpa á veiðinni í byggð.
Næturlangt á grenjum
Snorri byrjaði á grenjum snemma
á sjöunda áratugnum i ísafjaröar-
djúpi og hefur í nær tuttugu ár verið
grenjaskytta í Hálsasveit. Hann tekur
að sér að leita grenja frá Flókadal
norður að sýslumörkum á Arnar-
vatnsheiði. Fram til þessa hefur það
verið lagaleg skylda sveitarfélaga að
sjá til þess að gáð sé á þá staði þar
sem greni hefur verið að finna sein-
ustu áratugina. Ríkið sé þó búið að
draga úr þátttöku í kostnaði við tófu-
veiðina. Snorri segist veiða á bilinu
10 til 15 tófur yfir veturinn en fyrir
dýrið fær hann níu þúsund krónur.
Yfirleitt notar hann haglabyssu til
verksins en hefur þó stundum með
sér riffil seinni hluta vetrar. Fyrir
komi þó að yrðlingum sé gefið líf eins
og tilvist Togga sannar.
„í þessum skála sem ég hef núna til
að stunda veiðarnar hef ég tækifæri
til að hreyfa mig aðeins. Áður fyrr
hafði ég lítið skýli og þurfti þá að
sitja hreyfingarlaus I stól, oft nætur-
langt, til að bráðin sæi mig ekki.“
Veiðisíðferði ábótavant
-öHvaða augum líturðu á. þinn
veiðiskap og sjálfan þig?
„Ég er kannski að hluta til sport-
veiðimaður því ég myndi ekki gera
þetta nema ég hefði svolítið gaman af
því. Það er dálítið skrýtið að sumir
skotveiðimenn segja að það sem sé að
ganga af rjúpnastofninum dauðum
séu atvinnuveiðar landeigenda. Ég
spyr á móti hverju það breyti þótt hér
séu drepnar þúsund rjúpur af mér
eða hvort það séu 50 karlar úr
Reykjavík eða af Akranesi sem gera
nákvæmlega það sama. Ég sé engan
mun á því. Þetta er ákveðin pólitík og
ég fæ ekki séð að ég gangi neitt nær
náttúrunni en þeir nema síður sé.
Auk þess vil ég halda því fram að
veiðisiðferði sé mjög ábótavant hjá
mörgum. Ég legg til dæmis mjög mik-
ið á mig til að ná í særða rjúpu og yf-
irgef hóp ef ég sé særðan fugl fljúga
undan skoti mínu. Því miður verð ég
var við að menn sinna ekki um svona
lagað. Þeir hugsa bara um magnið og
auðvitað geri ég það líka en með þess-
um fyrirvara. Ég er enginn útrým-
andi; svoleiðis er enginn veiðimaður.
Veiðimönnum er mjög annt um nátt-
úruna. Það versta sem kemur fyrir
mig er að særa tófu. Mér líður illa í
marga daga á eftir. Þetta kemur fyrir
en ég reyni alltaf að ganga hreint til
verks og virða náttúruna. Við lifum
nú einu sinni á því að nýta jörðina og
erum veiðidýr, og þau grimm, og þá
er þetta bara spurning um hvaða að-
ferðum við beiturn."
Rollurnar áttu að vera
ellilífeyrir
Snorri segist þrátt fyrir allan veiði-
skapinn vera sauöfjárbóndi og ekki
lifa neinu sældarlífi af jörðinni
þrátt fyrir þessi „hlunnindi" sem
hann njóti. Án rjúpnanna, refanna,
fiskanna og norðurljósanna væri
hann þó ekki þar sem hann er í dag.
Rollurnar, sem áttu að vera eins kon-
ar ellilífeyrir þegar hann væri orðinn
of fótfúinn að ganga til veiða, skila þó
vart ætluðu hlutverki þegar þar að
kemur. Lífeyrissjóður bænda, „flugfé-
lagið okkar“, eins og Snorri kallar
það, tryggi ekki nægilegar fram-
færslutekjur aldraðra bænda.
-PP
*
Hátíðarmáltíð hjá haukunum varð að engu við byssuskot bóndans.
Vinskapur tókst með yrðlingi og grenjaskyttunni í Hálsasveit:
Norðurljósabúskapur,
sauðféog
veiðar góð blanda
- rætt við Snorra Jóhannesson, bónda og veiðimann á Augastöðum
„Eg tók hann af greni í vor. Maður
notar oft yrðlinga til að hæna tófur
að, bindur þá einhvers staðar uppi á
hól eða hefur þá í minkagildrum. Þeg-
ar þeim verður kalt byrja þeir að
kalla og þá koma önnur dýr. Ég hef
oft gert þetta en aldrei hefur þetta
þróast í vináttu eins og þessa. Hann
er eins og hvert annað heimilisdýr -
heldur sig til dæmis vera hund og
leikur sér með þeim. Hundarnir leyfa
honum að ærslast með sér en verða
svo leiðir á honum eftir smátíma og
glefsa í hann,“ segir Snorri Jóhannes-
son, bóndi á Augastöðum í Hálsa-
sveit, um nýjasta heimilisdýrið á
bænum, sumargamla tófu.
Heimasætan og Toggi
Það vekur furðu þeirra
sem ekki til þekkja aö
grenjaskyttan í sveitinni
og veiðimaður, eins og
Snorri er, haldi tófu
og slík vinátta hafi
tekist með þeim að
búið er að gefa
henni nafn.
Tófuna kallar
hann Togga
og hyggst
láta dýra-
1 æ k n i
gelda hana
en venjan
er að yrð-
1 i n g a r
hlaupist að
heiman í
makale it
þegar nátt-
úran kall-
ar. Toggi
er hins
vegar seinn
til þroska, er *
í minna lagi,
og auk þess
lenti hann í um-
ferðarslysi í vor
þannig að einn fót-
urinn á honum er
úr lagi genginn. Hann
bjargar sér þó og
heimasætan á bænum,
Elísa, heldur mikið upp
á hann en honum semur
illa við kettina. Snorri fór
í seinustu viku aö smala fé
og elti Toggi hestinn alla
leið. Segir Snorri Togga síst
hafa verið til ógagns og hafa bara
farið nokkuð vel að fé en þó verið
fljótur að renna af hólmi þegar kind-
urnar sneru sér að honum.
Fálkar í ætisleit
Talið berst að dúfum þegar tveir
fálkar svífa tignarlega yfir hlaðinu.
Allt í einu hljóðar heimasætan á
bænum upp yfir sig að þeir séu að elt-
ast við dúfu. Þarna er á ferðinni önn-
ur dúfnanna á bænum. Snorri hleyp-
ur inn í skemmu og nær í haglabyss-
una, hleður hana og hleypir viðvör-
unarskoti af út í loftið í sömu mund
og annar fálkanna er að læsa klónum
í bráð sína. Þeir fælast við hvellinn
en dúfan flýgur með öran
hjart-
slátt inn í skemmu fyrir neðan bæ-
inn.
„Það er gaman að þessu og við höf-
um verið með alls kyns dýr: kanínur,
geitur og dúfur, en núna eru bara
tvær dúfur eftir því við áttum svo
duglegan kött fyrir nokkrum árum að
hann át allan dúfnastofninn," segir
Snorri.
Þrjú ár urðu að fimmtán
Á Augastöðum er
stundaður sauð-
fjárbú-
skapur
og er
Snorri
ásamt konu
sinni, Jó-
hönnu
Björnsdóttur,
með um 180 fjár
en hefur líkt og
margir aðrir
komið illa út úr niður-
skurði sauðfjárkvóta. I sveitinni tala
menn um að hann hafi farið ótroðnar
slóðir í að bæta sér upp tekjumissinn
með eins konar norðurljósabúskap.
Japanskir vísindamenn, sem stunda
rannsóknir á segulvirkni og hátterni
norðurljósanna, hafa leigt hjá honum
aðstöðu seinustu 15 árin og er mikinn
og dýran tækjabúnað að finna í íbúð-
arhúsinu á Augastöðum. Bærinn er
hluti af stærra neti en tvær aðrar
rannsóknarstöðvar eru hér á landi, á
Tjörnesi og í Æðey, en aðalrannsókn-
arstöðin er á Suðurskautslandinu.
Snorri hefur eftirlit með tækjabúnað-
inum 11 mánuði ársins en árlega
koma til hans sprenglærðir visinda-
menn til að afla frekari vitneskju til
sinna rannsókna.
„Þetta byrjaði allt árið 1983. Segul-
lína jarðar á upphaf sitt yfir suður-
skautinu og endar á tilsvarandi stað
á norðurhveli jarðar, Húsafelli. Jap-
anarnir, sem vinna að rannsókn
norðurljósanna, fengu aðstöðu hér
eftir að Kristleifur á Húsafelli hafði
bent á mig. Þetta var á þeim tíma sem
ég var að byggja íbúðarhúsið og ég
hugsaði sem svo að ég myndi ekki
setja stofuna í stand næstu þrjú árin
en þetta var þriggja ára verkefni í
upphafi. Þeir eru hins vegar enn þá í
stofunni. Ég hef ætlað að byggja við
en vegna þess hve uppgangurinn í
sauðfjárbúskapnum lætur á sér
standa hefur ekki enn orðið af því,“
segir Snorri.
Hann segist hafa þokkalegar leigu-
tekjur vegna rannsóknarstöðvarinn-
ar en töluverð fyrirhöfn sé vegna
hennar en hann sér um eftirlit með
henni, eins og fyrr sagði, bróðurpart
ársins. „Við getum sagt að ég hafi
meira upp úr þessu en refarækt ef ég
sneri mér að henni.“
Taka ber tillit til hlunninda
Snorri hóf búskap á Augastöðum
árið 1973. Hann bvggði núverandi
húsakost upp frá grunni og kom illa
út úr þvi þegar
kvótakerf-
ínu
„Eg hef oft tekið yrðlinga í fóstur en það hefur aldrei
þróast í vináttu eins og þessa. Hann er eins og hvert
annað heimilisdýr, heldur sig til dæmis vera hund og
leikur sér með þeim,“ segir Snorri Jóhannesson.
DV-myndir GVA
sauð-
fj árbú-
skap var
komið á. Upp-
haflega hafði hann
fengið vilyrði hjá
framleiðsluráði fyr-
ir 440 ærgildum í
fullvirðisrétt.
Hann hafi hins
vegar staðið í upp-
byggingunni og því
hafi hann ekki
fjárfest nema í litl-
um hluta þess bú-
stofns sem hann
hafði leyfi til að hafa.
Skilaboðin hafi verið
þau að það sem hann
nýtti ekki strax af full-
virðisréttinum stæði
honum til reiðu þegar á þyrfti að
halda. Uppbyggingin hefði farið fram
í samræmi við þennan fjölda fjár en
svo þegar kom að því að hann ætlaði
að nýta sér fullvirðisréttinn hefði
hann ekki lengur verið til, honum
hafði verið breytt í greiðslumark og
upphaflega loforðið því orðið ávísun
á íjárfestingar sem í dag eru illa nýtt-
ar.
Hann segist lítið hafa skoðað nýjan
búvörusamning en hefur þó ákveðnar
skoðanir á því hvernig taka beri á
vanda. í -stað þess að láta stærstu
búin hafa mestu kvótaúthlutunina og
þau smæstu þá minnstu eigi að hafa
endaskipti á þessu. Taka beri tillit til
hlunninda bænda: laxveiði, rjúpna-
veiði, ef hún verður viðurkennd sem
hlunnindi, atvinnumöguleika og jafn-
framt ætti það að vera þegnskylda
þeirra sem hafi vísitölubú í mjólkur-
framleiðslu að slá af í sauðfjárbú-
skap.
„Það verður ansi snúið að búa í
sveitunum þegar stórbændurnir eru
bara eftir þar. Það er ýmislegt sem
hinir stóru og smáu verða að vinna
saman og má þar nefna smala-
mennsku og ýmsa félagslega þjón-
ustu. Það er komið að þeim mörkum
að byggðin er að hrynja. Hér í kring
eru ótrúlega margar jarðir þar sem
framtíðin er engin. Þar er enginn til
að taka við því framleiðslurétturinn
á þeim er lítill sem enginn. Enginn
hefur efni á því að byrja frá grunni
og fjárfesta í framleiðslurétti, tækj-
um, húsakosti og öðru sem til þarf
þar sem ekkert bú stendur undir
slíku. Þetta er þá frekar spurning um
lífsstíl. Ef menn eiga nógan pening
sem þeir vilja leggja í slíkt þá er það
hægt en það fer enginn af stað í þetta
sem atvinnu í dag.“
Allt að þúsund rjúpur
yfir veiðitímann
Talið berst að veiðiskap en Snorri
er þekktur út fyrir sína sveit fyrir
rjúpna- og grenjaskytterí, auk þess
sem hann er veiðivörður í Veiðivötn-
um á sumrin. Margir hafa hneykslast
á því hversu Snorri sinnir rjúpna-
veiði en ekki er óalgengt að hann
veiði þetta á bilinu 500 tO 1000 rjúpur
á veiðitímanum, enda segist hann líta
á þetta sem hlunnindi en ekki sem
sportveiði.
„Þetta eru hlunnindi sem þarf að
hafa fyrir. Það kemur enginn millilið-
ur með ávísun til mín árlega eins og
tíðkast hjá þeim bændum og leigutök-
um áa. Maður þarf að hafa fyrir
þessu. Þetta hefur verið svipaður
rjúpnafjöldi hér undanfarin ár. Áður
fyrr voru þetta sveiflur. Hún hvarf al-
veg sum árin en önnur ár var mikið