Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1995, Qupperneq 43
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1995
Vinir
Hafnar-
fjarðar
Sjöunda október, sem er laug-
ardagur, fer fram sérstakt al-
menningshlaup í Hafnarfirði
sem kallast Vinir Hafnarfjarð-
ar. Það hefst klukkan 14.00 við
Suðurbæjarlaug sem sumir
segja að ætti að heita Áslaug
þar sem hún stendur við Ás-
braut skammt vestan undir Ás-
fjalli.
Hvað um það.
Boöiö verður upp á vega-
lengdir og flokkaskiptingar fyr-
ir bæði kyn. 11 til 16 ára hlaupa
4 km en þeir sem eldri eru
hlaupa 3 til 5 km.
Upplýsingar gefa Siguröur
Haraldsson í síma 565-1114 og
Magnús Haraldsson í síma 565-
4614.
Vitið þið af hverju Hafnfirö-
ingar á leið út í eyðimörkina
taka alltaf með sér bílhurð?
Nei, auðvitað vitiði það ekki.
Það er til þess að þeir geti
skrúfað niður rúðuna þegar hit-
inn verður óbærilegur.
Garða-
bæjar-
laugin í
tísku
Þaulvanur skokkari og sund-
laugafari, sem hefur hengt upp
handklæðið sitt á fleiri snögum
en almennt gengur og gerist,
benti Trimmsíðunni á ýmsa
kosti Sundlaugar Garðabæjar.
Hann taldi laugina vera eitt
best geymda leyndarmál fyrir
trimmara á höfuðborgarsvæð-
inu.
í anddyrinu er gott kort yfir
hlaupaleiðir í nágrenninu og í
biösal er skemmtilegt útsýni
yfir íþróttasalinn. Búningsklef-
ar eru mjög glæsilegir og sér-
staklega eru blásarar í karla-
klefa vel útfærðir, með sjálf-
virkum rofa sem virkar betur
en víða annars staðar og einnig
eru þeir með stillanlegri hæð.
Það skemmir svo ekki ánægju-
lega heimsókn að aðgangseyrir
er 130 krónur fyrir fullorðna
sem er með því lægsta sem ger-
ist.
Trimmsíðan veit um að
minnsta kosti einn hlaupahóp
sem flakkar milli sundlauga
sem hefur bætt sundlaug Garða-
bæjar inn á haustdagskrána og
þykjast meðlimir hópsins hafa
himin höndum tekið og munu
bera hróður laugarinnar víöa
meðal skokkara.
Hlaupaleiðir í nágrenni laug-
arinnar eru mýmargar. Á korti
er merktur nettur 5 km hringur
um Garðabæ og Arnarneshæð
en eftir aðalgötunni í stefnu á
Vífilsstaði er auðvelt að komast
upp í Heiðmörk.
Bæði er hægt að skokka veg-
inn yfir hæðina fyrir norðan
Vífilsstaði og framhjá vatninu
en sé beygt af aðalgötunni tfl
suðurs um það leyti sem byggð-
inni sleppir er hægt að fara um
göng undir Reykjanesbraut sem
tengjast stíg áfram upp í Heið-
mörk.
Vilji menn fremur skokka
með sjávarilm í nösum eru
göng undir Hafnarfjarðarveg
rétt við sundlaugina og þaðan
er hægt að komast út á Álftanes
og skokka lítt truflaður af um-
ferð.
Góða skemmtun.
wimm
51
Hóflegt mataræði og regluleg hreyfing léttir öllum ellina.
|fíj \ rv % >■', KMMk f F a
Sjp k \lfiV V& ■* í1 « ' \ skl » g&MB íi ' 'VfW |k ■
, ’SLvjs ' & v|? 'á
Æskubrunnurinn er fundinn:
Borðaðu minna og lifðu
Lífslíkur íslendinga eru með þeim
bestu í heimi og deilum við þar
toppsætinu yfirleitt með Japönum.
Lífslíkur íslenskra kvenna eru um
81 ár en karla 76 ár. TO samanburð-
ar má geta þess að lífslíkur kvenna
í Afganistan eru 49 ár en karla 51 ár.
En flestir vilja lifa við heObrigöi og
hreysti eins lengi og kostur er.
Talið er að líffræðilega mögulegur
hámarksaldur mannsins sé um 120
ár. Vísindamenn hafa lengi rýnt í
eðli öldrunar og hrörnunar með það
fyrir augum að lengja ævi manns-
ins. Hraði öldrunar er ákvarðaður
af erfðavísum en margt fleira kemur
tO. Frumur líkamans tærast þegar
Umsjón
Páll Ásgeir Ásgeirsson
þær komast í samband við svoköll-
uð sindurefni en það er efnahópur
sem hefur óparaða rafeind og er
rokgjam. Sindurefni eru talin eiga
þátt í mörgum Olkynja sjúkdómum,
s.s. parkinsonveiki, krabbameini og
hjartasjúkdómum, auk þess að eyða
fitu og prótínum sem líkaminn þarf
á að halda. Sindurefni verða t.d. til
þegar frumur taka þátt í efnaskipt-
um og þau verða til við ýmsa mat-
reiðslu, s.s. djúpsteikingu. Leit vis-
indamanna að lengra og betra lífi
beinist einkum að því að finna og
einangra þá erfðavísa sem stjórna
öldrun.
Minni matur, lengra líf
Rannsóknir hafa sýnt að tak-
mörkun á fæðuneyslu getur haft af-
gerandi áhrif á langlífi. Vísinda-
menn í Little Rock í Arkansas hafa
sett fram þá kenningu að nægOegt
sé að neyta 1600 hitaeininga á dag í
stað 2500. Við minni neyslu hægist á
efnaskiptum og minni framleiðslu
verður á sindurefnum. Þetta leiðir
aftur tO aukins langlífis. Þannig
byggist kenningin á því að óhóf
Vesturlandabúa í mataræði leiði til
ótímabærs dauðdaga svo æsku-
brunnurinn er í rauninni fundinn á
matardiskinum.
Enn hefur engin töfralausn fund-
ist sem lengir líf manna með sér-
tækum aðgerðum. Fleiri og fleiri
rannsóknir sýna að regluleg hreyf-
ing eða iðkun íþrótta ásamt hoOu og
hófsömu mataræði og rósemi hug-
ans eru þeir þættir sem líklegastir
eru til þess að auka langlífi. TO-
raunir með að sprauta vaxtarhorm-
óni í roskna karlmenn leiddi í ljós
ýmsar jákvæðar breytingar á
vöðvamassa, húð og beinum. Það
bendir til þess að ýmis slík hjálpar-
efni geti hjálpað mönnum að varð-
veita æskuna lengur fram eftir aldri
þó að þau lengi kannski ekki lífið
sjálft.
Illræmd aukakíló
Megrunarkúrar eru þekktir fyrir
gagnsleysi og eftir því sem aldurinn
færist yfir gera þeir enn minna
gagn. Þetta byggist á rannsóknum
sem sýna að því eldra sem fólk verð-
ur því erfiðara veitist því að gera
þær breytingar á mataræði sínu
sem þarf til þess að losna við
aukakílóin. Nýlega voru birtar
rannsóknir í Ameríku sem staðið
hafa yfir í tæp 50 ár þar sem fylgst
er með ýmsum heilsufarsþáttum
manna á efri árum og þeir tengdir
við sögu þeirra. í ljós kom að 10
aukakOó á yngri árum tvöfólduðu
líkurnar á því að fá gigt eða aðra
slitsjúkdóma í hné og mjaðmir.
Rannsóknin tók til 1200 karlmanna.
Þau giftu lifa lengur
Allar tölfræðirannsóknir sýna að
fólk sem er gift eða í sambúð lifir
merkjanlega lengur en hinir sem
ganga einir ævinnar veg og binda
ekki trúss sitt við aðra. Erfitt mun
vera að færa einföld læknisfræðOeg
rök fyrir þessum mun önnur en þau
að þeir sem eru hamingjusamir lifa
lengur en hinir. Margir leita lífs-
hamingju alla sína ævi án árangurs
lengur
en útbreiddasta aðferðin tO þess að
höndla hamingjuna er trúlega að
deila lífinu, gleði þess og sorgum,
með einhverjum sem manni þykir
vænt um.
Alzheimer
Nýjar rannsóknir sýna að eitt af
því sem veldur alzheimersjúkdómi
sé minni framleiðsla líkamans á
boðefninu acetylcholine. Tilraunir
með lyf sem heitir NADH og inni-
heldur efni sem hvetur frumurnar á
líkan hátt og acetylcholine lofa góðu
og tilraunasjúklingar sem tóku lyflð
sýndu framfarir eftir aðeins tvær
vikur. Síðar á þessu ári hefjast ítar-
legri tOraunir með lyf þetta.
(Byggt á Men’s Fitness, Men’s Health,
Muscle and Fitness og Lifsþrótti)
HEILSURÆKTARBOMBA
-fyrir unga sem aldna
VERTU VEL VIRKUR í
VETUR OG BJÓDDU
ÖLLU BIRGINN. HJÁ
OKKUR FÆRÐU FÍNT
FORM OG FLOTTAR
LÍNUR FYRIR FÁEINAR
KRÓNUR.
FULLKOMIN LÍKAMSRÆKT
JUDO
JIU-JITSU
SJÁLFSVÖRN
LJÓSABEKKIR
SAUNA
TAEKWONDO
ÞJÁLFARI: MICHAEL J0RGENSEN, 4. DAN
n
f
&
ÞREKTÍMAR í HÁDEGINU
FITUBRENNSLA f HÁDEGINU
EINKAÞJÁLFUN FYRIR HÁDEGI
RÁÐGJÖF UM MATARÆÐI ^
ÞJÁLFARI: ALDA N0RÐFJÖRÐ
■Á
...og svo á eftir - Ljós og Sauna
láttu sjá þig semjyrst
IPillil
JÚdó GYM
EINHOLTI 6
s. 562 7295