Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1995, Blaðsíða 59
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1995
afmæli
Jörína Guðríður Jónsdóttir
Jörína Guðríður Jónsdóttir hús-
móðir, Hjallaseli 55, Seljahlíð,
Reykjavík, er níutíu og fimm ár í
dag.
Starfsferill
Jörína fæddist í Blönduholti í Kjós
og ólst upp í Kjósinni. Hún lauk
kennaraprófi frá KÍ1922, stundaði
kennslu við Barnaskóla Ólafsvíkur
1925-32 og síðan einn vetur við Mið-
bæjarbarnaskólann í Reykjavík. Að
öðru leyti stundaði Jörína húsmóð-
urstörf og var jafnframt bóndakona
í Saurbæ á Rauðasandi.
Jörína starfaði í Ungmennafélag-
inu Dreng í Kjós þar til hún flutti
til Reykjavíkur. Hún starfaði með
stúkunni Freyju í Reykjavík og var
í allmörg ár ritari hennar. Þá starf-
aði hún með Félagi Framsóknar-
kvenna og er ein af fjórum fyrstu
heiðursfélögum þess. Hún starfaði
einnig með Kvenfélagi Hallgríms-
kirkju, Barðstrendingafélaginu og
Átthagafélagi Kjósverja.
Fjöldskylda
Jörína giftist 27.9.1923 Sigurvin
Einarssyni, f. 30.10.1899, d. 23.3.
1989, kennara og alþm., en hann var
sonur Einars Sigfreðssonar, bónda
í Stakkadal í Rauðasandshreppi, og
k.h., Elínar Ólafsdóttur húsfreyju.
Börn Jörínu og Sigurvins: Rafn,
f. 14.3.1924, loftsiglingafræðingurí
Reykjavík, kvæntur Sólveigu
Sveinsdóttur og eiga þau þrjú börn;
Einar, f. 6.7.1927, flugvélstjóri í
Garðabæ, kvæntur Sigrúnu Lárus-
dóttur og eiga þau sex börn;Sigurð-
ur Jón, f. 16.8.1931, d. 1946: Ölafur,
f. 5.7.1935, og á hann átta börn; El-
ín, f. 21.10.1937, söngkona og íþrótta-
kennari í Reykjavík, gift Sigurði
Eggertssyni og eiga þau þrjú böm;
Björg Steinunn, f. 31.5.1939, skrif-
stofustjóri í Reykjavík, var gift
Kristjáni S. Kristjánssyni og eignuð-
ust þau þrjú börn; Kolfmna, f. 25.4.
1944, íþróttakennari í Reykjavík, gift
Sverri Má Sverrissyni og eiga þau
þrjú börn.
Bróðir Jörínu var Bjarni, f. 27.11.
1892, nú látinn, b. í Dalsmynni á
Kjalarnesi, var fyrst kvæntur Álf-
dísi Jónsdóttur, sem er látin, og
eignuðust þau átta börn en seinni
kona Bjarna var Jensína Guðlaugs-
dóttir.
Jörina Guðríður Jónsdóttir.
Systir Jörínu var Birgitta, f. 22.8.
1895, en hún er látin, var klæðskeri
í Reykjavík.
Foreldrar Jörínu voru Jón Stef-
ánsson, bóndi að Blönduholti í Kjós,
og Sigríður Ingimundardóttir.
Útboð FÍB á bifreiðatryggingum vekur athygli:
Erlendir miðlarar
koma til landsins
félögum 1FIB hefur flölgað um þriðjung
„Norski tryggingamiðlarinn hafði
frétt af þessu útboði og var bara að
undirbúa jarðveginn. Það er engin
launung á því aö við höfum verið í
sambandi við bresk, þýsk og sænsk
félög sem hafa haft samband við okk-
ur gégnum síma og heimsótt okkur
þannig að það er greinilega áhugi og
menn eru að skoða þetta. Við eigum
ekki í neinu leynimakki og tilkynn-
um öllum að við munum standa fyr:
ir opnu útboði," segir Runólfur Ól-
afsson, framkvæmdastjóri Félags ís-
lenskra bifreiðaeigenda, FÍB.
Fjöldi erlendra tryggingamiðlara
kemur hingað til lands á næstunni
til að ræða við forráðamenn FÍB um
væntanlegt útboð á bifreiðatrygging-
um yfir 10 þúsund FÍB-félaga. Norski
tryggingamiðlarinn Kolbein Aarnes
átti viðræður við FÍB í fyrradag en
hann er miðlari fyrir enska fyrirtæk-
ið Lowndes Lambert sem er það 15.
stærsta á sínu sviði í heiminum.
í Félagi íslenskra bifreiðaeigenda,
FÍB, hefur fjölgað um rúmlega fjögur
þúsund, úr um 7.000 í rösklega 11.000
félagsmenn, þó að fram að þessu hafi
aðeins verið hringt í bifreiðaeigendur
á höfuðborgarsvæðinu. Á næstunni
munu starfsmenn FÍB hringja í bíleig-
endur á landsbyggðinni til að bjóöa
þeim þátttöku í útboðinu en á þessari
stundu er ljóst að vel yfir 11.000 bif-
reiðatryggingar verða boðnar út
heima og erlendis þegar átakinu lýk-
ur eftir nokkrar vikur.
„Þetta gengur vonum framar. Við
settum okkur það markmið að hafa
samband við alla bíleigendur í land-
inu og það er bara tæknilegi þáttur-
inn sem tefur okkur, til dæmis fjöldi
símtækja. Við eigum eftir að hringja
töluvert lengur en svörunin hefur
verið mjög góð,“ segir Runólfur Ól-
afsson, framkvæmdastjóri FÍB.
Ársgjald í FÍB er 3.300 krónur og
greiða nýir félagsmenn aðeins árs-
gjald fyrir næsta ár - ekki þetta ár -
þó að þeir fái strax alla þá þjónustu
sem stendur til boða. Tekjur FÍB af
ársgjöldum nema um 21 milljón
króna á þessu ári og má búast við
að þær aukist upp í að minnsta kosti
30 milljónir eftir því hversu margir
ganga í félagið. Runólfur segir að
tekjuaukningin fari beint upp í
kostnað af útboðinu.
FÍB hefur að undanförnu átt í við-
ræðum við fjármálaráðuneytið um
breytingar á bílaskatti og öryggis-
hlutumfyrirfarþega. -GHS
Krabbameinssjúk börn:
Dagsferð í Legoland
__________________________________fréttir
Ráðsteíha á Húsavík:
Framtíð héraðs-
sjúkrahúsa
Ráðstefna um framtíð héraðs- dreifa valdi en starfsfólki sjúkra-
sjúkrahúsa verður haldin í dag, húsannaútiálandiíinnstlausnirn-
laugardag á Hótel Húsavík. Það eru ar í mörgum tilfellum stefna í þver-
sjúkrahús á landsbyggðinni sem öfuga átt. Þessi mál öll verða rædd
halda ráöstefnuna sem er opin öll- á þessari ráðstefnu.
um almenningi. Sérstaklega eru Spurt verður ýmissa grundvall-
boðaðir til fundarins fulltrúar arspurninga eins og hvort eitthvað
sjúkrahúsa, ráðherra og ráðuneyt- sparist við það að leggja niður
isfólk, landlæknir og starfsmenn bráðaþjónustu á landsbyggðinni?
landlæknisembættisins, sveitar- Eins hvort þjöðin hafí efni á að
stjómarmenn, þingmenn og frétta- byggja þetta land. Enn fremur
menn. verður rætt um hvaöa þjónustu
Tilefni fundarins er það að starfs- eigi að skera niður ef þjóðin hefur
mönnum sjúkrahúsanna á lands- ekki efni á núverandi heilbrigðis-
byggöinni finnst óeðhlega staðið að þjónustu.
skýrslugerðum um þessi mál þar Forsvarsmaður ráðstefnunnar er
sem Utið eða ekkert samráð er haft Friðfinnur Hermannsson, fram-
við það fólk sem vinnur við viö- kvæmdastjóri heilsugæslustöðvar-
komandi stofnanir. innar á Húsavik og Sjúkrahúss
Yfirlýst markmið er að spara og Húsavíkur.
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA
VALDA ÞÉR SKAÐA!________
Kynningarfundur
í dag
Síðasti kynningarfundur ársins
verður í dag kl. 14.00 í kennslustofu
Sálarrannsóknarskólans um starf-
semi og tilgang skólans.
Á fundinn er öllu áhugafólki um
sálarrannsóknir, dulræn mál og samband
okkar við framliðna boðið að koma og
kynna sér sérstaklega starfsemi skólans
og tilgang, sem og annað sem áhugafólk
um þessi mál fýsir að vita varðandi
kennsluna í skólanum.
A
„Vélin tekur 125 manns í sæti og
færri komust að en vildu. Þessi ferð
er fyrir börn og unglinga sem fengið
hafa krabbamein. AUir sem eru á
skrá, 80-85 manns, fengu boð. Þau
börn sem eru 12 ára og yngri fá að
hafa fylgdarmann en 13 ára og eldri
eru í hópum með einn úr stjórn fé-
lagsins sem fararstjóra," sagði Þor-
steinn Ólafsson, framkvæmdastjóri
Styrktarfélags krabbameinssjúkra
barna.
Börnin fara í dagsferð til Danmerk-
ur og í heimsókn í Legoland. Farið
verður frá Leifsstöð klukkan 7 á
mánudagsmorgun, 2. október, lent í
Billund kl. 11 og fárið beint í Lego-
land. Komið verður aftur til landsins
klukkan 20.
Þorsteinn sagði aö þegar búið hefði
verið að úthluta þeim börnum sem
vildu fara og fylgdarmönnum þeirra
sætum hefðu 19 sæti verið eftir. TU
að fylla þau var fiölskyldum barn-
anna boðið að sækja um sæti, eitt
fyrir hveija fiölskyldu. Um 40 um-
sóknir bárust. Þá var farin sú leið
að biðja hjúkrunarfólk og lækna á
barnadeild Hringsins, sem séð hafa
um hjúkrun barnanna, að draga um
sætin.
. „Síðan voru sumir heppnir og aðrir
óheppnir eins og gengur, það eru
nefnilega oft systkin veiku barnanna
sem verða út undan og eitthvað af
þeim kemst með,“ sagði Þorsteinn.
Flugfélagið Atlanta leggur til flug-
vélina, börnunum að kostnaðar-
lausu, og Olís eldsneytið. Vífilfell og
Sól gefa drykki i ferðinni og sagði
Þorsteinn að þessi fyrirtæki ættu
miklar þakkir skildar.
(Vegmúli 2 er sama hús og
Suðurlandsbraut 16 í Reykjavík.)
Allir velkomnir
meðan húsrúm leyfír.