Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1995, Síða 64
Sunnudagur
Mánudagur
Veðriö á sunnudag og mánudag:
Austan og norðaustan hvassviðri
Á morgun verður austan og norðaustan hvassviðri um norðan- og vestanvert landið en heldur hægara annars staðar. Suðvestanlands verður að
mestu þurrt en skúrir annars staðar.
Á mánudaginn verður allhvöss noröaustanátt norðan- og austanlands með skúrum eða slydduéljum en mun hægara og úrkomulaust annars staðar.
Veðrið 1 dag er á bls. 69
LOKI
Hollt esheima hvat!
ÞREFAIDUR 1.VINMNGUR
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í
síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er
notað I DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
550 5555
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
Frjalst,ohaö dagblaö
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1995.
Fékk bensín í skóinn og
sviðnaði upp eftir fæti
„Þetta var bara leikur sem ég var
áhorfandi að. Strákarnir í hverfinu
hafa verið að leika sér að því að
hella bensíni í rák á steypuna í
undirgöngunum og kveikja í. Leik-
urinn er síðan fólgin í að hoppa
yfir eldinn. Ég átti leið um undir-
göngin og varð að hoppa líka. Þá
gerðist þetta,“ segir Hrafnkell
Pálmarsson, 14 ára unghngur úr
Grafarvoginum, í samtali við DV.
Hrafnkell liggur nú á Landspítal-
anum með annars og þriðja
bruna á hægri fæti.
„Það var míkill reykur í undir-
göngunum og ég sá ekki bensín-
brúsa sem stóð hinum megin við
eldrákina. Þegar ég hoppaði yfir
lenti ég á brúsanum og fékk bensín
í skóinn og á buxnaskálmina. Þaö
var eldur í stútnum á brúsanum-
og báhð blossaði upp þegar ég lenti
á honum," segir Hrafnkell.
Hann brenndist illa á fætinum,
húðin sviönaði af og varð að flytja
húð af lærinu til að græða sárið.
Hrafnkeli er nú búinn að vera hálfa
aðra viku á spítalanum en fær trú-
lega að fara heim að hálfum mán-
uði hðnum.
„Ég gat ekki slökkt í buxunum
sjálfur og man ekki hvað það leið
langur tími áður en vinir minir
MEISTARAFELAG
RAFF.INDAVIRKJA
S. 561 6744
Viðurkenndur
R AFEINDA VERKT AKI
annars og þriðja stigs bruna
stukku á mig og slökktu með hönd-
unum. Þetta var voðalega sárt,“
segir Hrafnkell.
Vinir Hrafhkels báru hann, eftir
að búið var að slökkva eldinn, í
félagsmiðstöðina Fjörgyn og þar
tók starfsfólkið við honum og lét
renna vatn á fótinn meðan beðið
var eftir sjúkrabíl.
Sjö marka skotfótur
Nú bíður Hrafnkell þess aö kom-
heim á ný. Hann er hress í
bragði og vongóður um að ná sér
að fullu. Fóturinn sem brenndist
hefur dugað honum og íþróttafé-
laginu Fjölni vel í fótboltanum í
sumar og einu sinni náði Hrafnkell
skora sjö mörk í leik.
Nú verður nokkur bið á að hann
fara að sparka á ný enda má hann
enn ekki stiga í fótinn. Félagarnir
í Fjölni fylgjast þó vel meö fram-
vindu mála og hafa sent Hrafnkath
áritaðan bolta og konfekt.
Móðir Hrafnkels, Jóhanna
Hrafnkelsdóttir híúkrunarfræð-
ingur, vildi í samtali við DV sér-
staklega vara börn viö að leika sér
með bensín og eins beina því til
foreldra að hafa bensín ekki á
glámbekk.
„Sonur minn var áhorfandi að
þessum leik núna en hann hefur
tekið þátt í þessu sjálfur áður. Ég
vona að það gerist ekki oftar,“ sagði
Jóhanna.
Leikurinn með bensínið mun að
sögn ná vinsældum á haustin þegar
skólar taka th starfa. Hrafnkell
sagði að félagar hans í Grafarvog-
inum væru nú -hættir þessum
háskaleik og sjálfur kvaðst hann
ekki koma nærri þessu oftar. -GK
Flugumf erðarstjórar sögðu upp
I gær sögðu 80 flugumferðarstjórar
upp störfum með samningsbundnum
þriggja mánaöa fyrirvara. Um er að
ræða nær alla starfandi flugumferð-
arstjóra á íslandi. Þeir sem ekki segja
upp eru tveir sem fara á eftirlaun
um áramót og fimm sem gegna
stjórnunarstörfum, auk eins sem
ekki sagði upp.
Astæður uppsagnarinnar má rekja
til þess að flugumferðarstjórar hafa
ekki verkfallsrétt og enga lögbundna
viðmiðunarstétt og geta ekki skotið
málum sínum til kjaradóms, kjara-
nefndar eða í gerðardóm. Flugum-
ferðarstjórarnir telja sig í raun vera
svipta öllum samningsrétti.
>-rt
Allt hótelvínið heimaf engið
Hrafnkell Pálmarsson, 14 ára, úr Grafarvoginum, fékk nýjar umbúðir á
brennda fótinn á Landspítalanum í gær. Bensín helltist í skó Hrafnkels
og á buxur og brenndist hann illa. Kristín Þorbjörnsdóttir hjúkrunarfr.
og Rafn Ragnarsson læknir eru hér að búa um fótinn. DV-mynd GVA
Hótel Jórvík á Þórshöfn hefur
misst leyfi til að selja áfengi eftir að
lögreglan á Þórshöfn lagði hald á aht
vín staðarins. Hvít og rauð vín voru
framleidd á staðnum en sterkari vín-
in smygluð og því allt á barnum ólög-
legt.
Lögreglan telur hugsanlegt að sala
á heimafengnum vökva hafi gengið
lengi á hótehnu þótt ekki hafi komist
upp. Málið var sent sýslumanninum
á Húsavík til meðferðar og er búist
við að ákæra verði gefin út eftir helg-
ina. -GK