Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1996, Blaðsíða 4
FÓSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1996
Fréttir
Niðurskurðarhnífurinn á Sjúkrahúsi Reykjavíkur:
Lendir ekki á yfirmönn-
um sem fækkar sáralítið
- fækkun á hjúkrunarsviði
„Við gerðum athugasemd við
fjölda yfirmanna þegar við unnum í
bráðabirgðastjórninni. Við fengum
danska ráðgjafa sem skiluðu
skýrslu þar sem þeir lögðu til
breyttan fjölda yfirmanna. Þeir
bentu á að fimm manna fram-
kvæmdastjóm væri ákjósanleg og
þar með var aðstoðarforstjórastað-
an talin óþörf,“ segir Halldór Árna-
son sem sat i bráðabirgðastjórn við
sameiningu spítalanna tveggja,
Landakotsspítala og Borgarspítala.
Drög að sparnaði, sem nemur 384
milijónum á Sjúkrahúsi Reykjavík-
ur, hafa verið lögð fyrir heilbrigðis-
ráðherra þar sem fyrst var lagt til
að stöðugildum yrði fækkað um 96
og legurúmum fækkað um 77. Heil-
brigðisráðherra hefur ekki sam-
þykkt þetta en sátt hefur náðst um
að stöðugildum fækki um þrettán.
Ekki kemur þó til uppsagna um
þessi mánaðarmót.
Danskir ráðgjafar ráðlögðu fækk-
un í yfirstjóm spítalans, um fimm
stöður í framkvæmdastjóm Sjúkra-
húss Reykjavíkur en eftir samein-
ingu er um að ræða sex stöður.
Fækkað hefur um tvo í fram-
kvæmdastjóminni við sameiningu
spítalanna. Einn af stjórnendum
Landakots er nú forstjóri Sjúkra-
hússins á Selfossi en hjúkranarfor-
stjóri Landakots er nú forstöðumað-
ur starfsmannaþjónustu Sjúkrahúss
Reykjavíkur. Hennar staða var
mynduð við sameininguna. Sam-
kvæmt upplýsingum DV kemur
ekki til fækkunar þeirra 27 yfir-
manna sem enn eru á spítalanum
eftir sameiningu.
Hreyfing innanhúss
„Það er fjarri því að Sjúkrahús
Reykjavíkur sé ofalið af stjómend-
um. Ég tala nú ekki um við breyt-
ingu eins og þessa því mörg ný
stjómunarverkefni koma upp vegna
sameiningarinnar. Þetta er mikil
úrvinnsla, bæði viðkvæm og flókin.
Það er gríðarlegt áiag á stjórnend-
um spítalans núna,“ segir Kristín Á.
Ólafsdóttir, formaður stjórnar
Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Yfirstjórn spítalans er í höndum
forstjórans, Jóhannesar Pálmason-
ar, og aðstoðarforstjóra, Loga Guð-
brandssonar. Að auki er einn starf-
andi hjúkranarforstjóri og einn
lækningaforstjóri. Þá eru tveir
framkvæmdastjórar, annar yfir fjár-
mála- og áætlanasviði og hinn yfir
þróunar- og gæðasviði. Hjúkranar-
framkvæmdastjórar eru nú sjö og
forstöðulæknar sjö. Hjúkranarfor-
stjórum hefur fækkað um fimm en
forstöðulæknum hefur aftur á móti
fjölgað um einn.
Þær leiðir sem samþykktar hafa
verið til sparnaðar innihalda sparn-
að sem nemur 110 milljónum á ár-
inu. Ráðgert er að ná spamaði fram
með hagræðingu og sameiningu
Niðurskurðarhnífurinn hangir yfir starfsmönnum Sjúkrahúss Reykjavikur en ekki hefur verið ákveðið að fækka í röð-
um yfirmanna.
deilda. 70 milljónir verða sparaðar
með því að taka ekki í notkun í
Fossvogi lyfjadeildarrúm sem vora
á Landakoti. Einnig er ráðgerður 23
milljóna spamaður með sameiningu
endurhæfingar- og taugadeildar í
eina deild á Grensási, svo eitthvað
sé nefnt.
„Ekki kemur til uppsagna 1. febrú-
ar en gert er ráð fyrir að stöðugild-
um fækki um þrettán. Það er spurn-
ing hvort uppsagnir innanhúss muni
geta ráðið ferðinni og við gætum
frekar boðið fólki upp á hreyfingu
innanhúss. Það er ákveðin hagræð-
ing í því að hafa mátulega mönnun,"
segir Sigríður Snæbjörnsdóttir,
hjúkrunarforstjóri. -em
Síðasti
dagurinn
Guðjón Petersen, framkvæmdastjóri Almannavarna ríkisins, átti sinn síð-
asta starfsdag í fyrradag og hélt síðdegis áleiðis á Snæfellsnes þar sem
hann sest í stól bæjarstjóra í Snæfellsbæ. Guðjón hefur starfað hjá Al-
mannavörnum í 25 ár, þar af hefur hann verið framkvæmdastjóri í 17 ár, og
tengst starfsfólkinu þar traustum böndum. Guðjón kvaddi starfsmenn sína
á skrifstofunum síðdegis í fyrradag og stimplaði sig út í síðasta skipti en
hann átti einmitt að mæta til vinnu á nýja staðnum klukkan átta í gærmorg-
un. DV-mynd Sveinn
Almannavarnir ríkisins:
Tólf sækja um starf
framkvæmdastjóra
Tólf umsóknir bárust um starf
framkvæmdastjóra Almannavarna
ríkisins þegar umsóknarfrestur
rann út 10. janúar síðastliðinn.
Samkvæmt upplýsingum frá dóms-
málaráðuneytinu er verið að fara
yfir umsóknirnar og kalla umsækj-
endur í viðtal. Umsækjendur era:
Benedikt Þór Gústafsson raf-
magns- og stærðfræðingur, Garðar
Lárasson rafmagnstæknifræðingur,
Gylfi Ástbjartsson verkfræðingur,
Harald S. Holsvik rafvirki, Jóhann-
es Reykdal, upplýsingafulltrúi Al-
mannavarna í neyðartilvikum, Leif-
ur Benediktsson verkfræðingur,
Magnús Hallgrímsson verkfræðing-
ur, Sigurður Þórður Ragnarsson,
B.Sc. í jarðfræði, Sigurvin R. Sig-
urðsson véltæknifræðingur, Sólveig
Þorvaldsdóttir verkfræðingur,
Tryggvi Felixson hagfræðingur og
Þorsteinn Þorsteinsson flugvéla-
verkfræðingur. -GHS
Fiskistofa neitar að leiðrétta eigin mistök:
Sektar fyrir umframafla
sem ekki var veiddur
- eins og að tala við steininn, segir Lárus Guðmundsson útgerðarmaður
„Það er eins og að tala við stein
að eiga við þetta kerfi sem kallast
Fiskistofa. Ég fékk um áramótin
bréf frá stofnuninni, þar sem ég er
sektaður um 93.116 krónur fyrir að
hafa látið veiða 800 lestir umfram
kvóta af grálúðu á síðasta ári á
Siglunesi HF. Sannleikurinn er sá
að báturinn veiddi enga grálúðu í
fyrra. Ég lét ekki veiða svo mikið
sem eina grálúðu af grálúðukvóta
bátsins. Þess í stað var grálúðukvót-
inn færður frá Siglunesinu HF yfir á
togara. Sú færsla var í einu og öllu
gerð samkvæmt tölvuútskrift frá
Fiskistofu um stöðuna hjá bátnum
og færslan var samþykkt af Fiski-
stofu. Það var stofnunin sem gerði
mistök en neitar nú að leiðrétta þau,
kennir mér um og sektar mig,“ sagði
Lárus Guðmundsson, útgerðarmað-
ur Sigluness HF, í samtali við DV.
Hann segist vera búinn að tala við
þá sem þessu ráða hjá Fiskistofu og
það sé alveg sama hvernig hann
bendi þeim á mistök þeirra, því er
neitað og ekki hlustað á nein rök.
Lárus segist nú ekki eiga annarra
kosta völ en að kæra Fiskistofu til
að ná rétti sínum i þessu máli. Sekt-
ina muni hann að sjálfsögðu aldrei
greiða.
-S.dór
Akranes:
Tillaga um
flugvöll
enn felld
DV, Akranesi:
Bæjarstjórn Akranes felldi 30.
janúar með 5 atkvæðum gegn 4
tillögu Péturs Ottesens um að
flugvöllur verði gerður á Akra-
nesi. Það er annað árið í röð
sem tillaga þess efnis er felld í
bæjarstjóm.
Bygginga- og skipulagsnefnd
bæjarins telur að staðurinn, sem
hún valdi og er í landi Innsta-
Vogs, norðvestan við þjóðveg-
inn, sé sá eini sem kemur til
greina innan bæjarmarkanna.
„Ég tel að það sé nauðsynlegt
fyrir okkur með ferðaþjónust-
una og fleira í huga að hafa hér
flugvöll. Það er tímaskekkja að
leggjast gegn þessu. Innsti-Vog-
ur er eini staðurinn sem kemur
til greina. Það þýðir ekki að
vera að berja hausnum við
steininn í leit að nýjum stað. Ég
gefst ekki upp og mun flytja til-
lögu aftur að ári,“ sagði Pétur
Ottesen í samtali við DV. -DÓ
Skákþing Reykjavíkur:
Torfi Leifsson heldur
sínu striki
Torfi Leósson, ungi strákurinn
sem komið hefur svo á óvart á Skák-
þingi Reykjavíkur, heldur sínu
striki. í 10. umferðinni i gærkvöldi
vann hann Hrannar Baldursson og
hefur eins vinnings forskot fyrir
síðustu umferðina. Torfi, sem er 17
ára, þarf þvi jafntefli í lokaumferð-
inni til að verða skákmeistari
Reykjavíkur.
Hann hefur hlotið 9 vinninga af
10 mögulegum en næstir koma Sig-
urður Daði Sigfússon og Bergsteinn
Einarsson með 8 v.
Síðasta umferð mótsins verður
tefld í kvöld. -Hsím
Borgey hf.:
Kaupir Húnaröstina !<
og fær kvótann
Verið er að ganga frá kaupum út-
gerðarfyrirtækisins Borgeyjar hf. á
Höfn í Homafirði á 50 prósenta hlut
í nótaskipinu Húnaröst RE. Húna-
röstin verður í eigu Borgeyjar hf. og
Hákonar Magnússonar og fjölskyldu
til helminga.
Halldór Árnason, framkvæmda- '
stjóri Borgeyjar, segir að Húnaröstin
verði skráð á Hornafirði fyrir mán-
aðamót og færist þá kvótinn, 1.400-
1.600 þorskígildi, eftir því hvernig
loðnukvóti er metinn inn í, frá
Reykjavík til Hornafjarðar. -GHS