Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1996, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1996, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1996 Allt aö 70 prósenta veröhækkun á grænmeti: Sumt af þessu er algert drasl Neytendur íslenskir tómatar: Væntanlegir á markað Að sögn Kolbeins Ágústssonar, hjá Sölufélagi garðyrkjumanna, má allt eins búast við íslenskum tómötum á markað í byrjun næstu viku. Kolbeinn segir tómatana koma frá Guðjóni á Melum, framboðið verði líklega lítið fyrst í stað og menn komi væntanlega til að bítast um það litla sem komi. í lagi á útsölum í blaði Samkeppnisstofnunar kemur fram að stofnunin gerði könnun á ástandi verðmerkinga á útsölum á höfuðborgarsvæðinu. Ástandið var kannað í 113 versl- unum og í ljós kom að verðmerk- ingar voru í lagi í 93% tilvika. Að- eins þurfti því að gera athuga- semdir í 7% tilvika og var það oft- ast vegna þess að varan var ein- ungis verðmerkt með útsöluverð- inu. Þessi niðurstaða þykir mjög ánægjuleg og vekur vonir um að brátt komist sama lag á verð- merkingar í sýningargluggum þannig að neytendur geti gengið um verslunargötur og verslunar- miðstöðvar og áttað sig á verðlagi með því að skoða í búðarglugga. Meðvitaðri neytendur Víða erlendis, þar sem frjáls verölagning á vöru og þjónustu hefur tíðkast mun lengur en hér á landi, eru neytendur meðvitaðri um mikilvægi góðra verðmerk- inga. Samkvæmt erlendri könnun frá 1993, þar sem 500 manns á aldrinum 20-65 ára, tóku þátt, töldu 92% aðspurðra það mjög mikilvægt að kaupmenn verð- merktu vörur í sýningargluggum. Þá sögðust 64% aðspurðra oft eða stundum hætta við að fara inn í verslun þar sem vörur væru ekki verðmerktar i gluggum. Ef marka má þessa niðurstöðu má ef til vill segja að kaupmenn tapi á því að verðmerkja ekki. í blaði Sam- keppnisstofnunar kemur fram að þar á bæ sé mönnum ekki kunn- ugt um að kannanir af þessu tagi hafi farið fram meðal íslenskra neytenda. Kjúklingar á lágu verði „Kjúklingar hafa verið á tilboði í verslunum frá því í lok sept- ember og þetta er því engin ný bóla,“ segir Bjarni Ásgeir Jóns- son, formaður Félags kjúklinga- bænda, í samtali við DV, en KÁ auglýsir nú kílóið af kjúklingum á 398 krónur. Bjarni Ásgeir segir verðið hafa farið lægst niður í 378 krónur og þaö sé allt of lágt. „Það er eins með okkur og svínabændur að við getum ekki legið með mikið magn af kjöti. Framboðið hefur verið of mikið og þess vegna lækkaði verðið. Það er á uppleið aftur en enn er eitt- hvað um að kjúklingur sé boðinn á tilboði. Gott jafnvægi á markaðnum Svínakjöt hefur verið boðið á útsöluverði í stórmörkuðum að undanfórnu og DV sló á þráðinn til Guömundur Lárussonar, for- manns Landssambands kúa- bænda, til þess að kanna hvort einhverrar lækkunar væri að vænta á nautakjöti. „Ég held ég verði að svara þér eins og þegar við töluðum saman síðast. Við erum ekki með neitt útsölugóss. Það er mjög gott jafn- vægi á nautakjötsmarkaönum, framboð og eftirspurn haldast vel í hendur og því mun verðið ekki lækka,“ segir Guðmundur. -sv „Það er alger þvæla ef menn ætla að fara að halda því fram að engar verðhækkanir hafi orðið á græn- meti nú á milli ára og mér sýnist hækkunin geta numið allt að 70 pró- sentum. Það út af fyrir sig er alveg nóg en þessu til viðbótar er þetta al- gert drasl sem markaðurinn er að bjóða," segir Frangois Fons, mat- reiðslumaður á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði. Nokkuð hefur verið um að haft hafi verið samband við Neytendasíðuna vegna þess að mönnum þykir sem verð á græn- meti hafi farið ört hækkandi að undanförnu. Frangois Fons segist í starfi sínu bæði kaupa innlént og erlent græn- meti og vera löngu hættur að botna nokkuð í markaðnum hér á landi. Það sé með ólíkindum að t.d. inn- tluttir tómatar og agúrkur sem hann hafi fengið á 60-80 krónur kílóið í fyrra og hittifyrra séu nú komin langt yfir 200 krónur kílóið. „Þetta er bara rugl. Þú sérð að kílóið af gulrótum var á 230 kr. í síð- ustu viku, einmitt á þeim tíma þeg- ar mest framboðið er erlendis og verðið á að geta verið mjög lágt. Ein skýringin á þessu eru háir tollar en ég velti því fyrir mér hvort hugsan- Eins og fólki ætti að vera kunn- ugt hafa bensínstöðvarnar boðið fólki upp á afslátt af bensínverði dæli það sjálft á bílana. Eftir að hafa kannað þetta mál nokkuð hefur Neytendsíðan komist að þvi að ekki er sama hvert farið er, hvenær far- ið er og á hvaða dælu maður dælir á bílinn sinn. Skeljungur býður fólki upp á 1,20 kr. í afslátt dæli það sjálft á bíl sinn. Sá afsláttur gildir á öllum dælum á þeim stöðvum sem bjóða upp á legt sé að milliliðirnir séu að taka of rnikið," segir Frangois. Ótrúlega lélegt „Innlenda hvítkálið er ótrúlega lélegt, svo lélegt að þótt búið sé að taka utan af hausnum er hann samt skemmdur. Á tveimur reikningum sem ég er með, frá 2. janúar og 18. janúar, hefur hækkunin á milli þeirra orðið umtalsverð. Gulræ- turnar hafa hækkað um 33% og kartöflurnar um 25%. Á sama tíma stendur innfluttur laukur frá Hollandi í stað. Þetta er ekki hægt og það er óþolandi ef einhver mafía getur haldið uppi verði á þessum af- urðum í landinu í skjóli verndar- reglna sem segja að ekki megi flytja inn fyrr en allt innlent sé búið á markaðnum," segir Eiríkur Viggós- son matreiðslumaður. Gæðin fara batnandi „Það er hugsanlegt að í einhverj- um tilvikum sé eitthvað að í sam- bandi við gæðin. Að mínu mati hafa þau þó alveg örugglega farið batn- andi. Hvað verðhækkanir áhrærir urðum við að taka töluvert af græn- meti og ávöxtum til landsins með flugi síðustu vikuna á liðnu ári. Það þennan möguleika, hvort sem fólk kemur að nóttu eöa degi. Tveggja krónu afsláttur er veittur á tveimur stöðum, á Gylfaflöt og Miklubraut, norður. Hjá Esso fæst afslátturinn aðeins að degi til og á þeim dælum sem sér- staklega eru merktar fyrir sjálfsaf- greiðslu. Fyrir næturþjónustuna greiða menn hið hefðbundna dag- gjald. Þar sem menn geta dælt sjálf- ir á lægra verði er gefin ein króna í afslátt á hvern lítra. leiddi til þeirrar hækkunar sem kemur fram í neysluverðsvísitöl- unni síðustu. Það á eftir að lækka,“ segir Gunnar Gíslason hjá Mata. Hann segir griðarlegar verðsveiflur geta verið á einstökum vörutegund- um á milli ára og kannski sé hægt að taka sérstaklega lágt verð fyrir tveimur árum og bera það saman við eitthvert sérstaklega hátt verð í dag og fá út þetta mikla hækkun eins og Frangois nefnir. Hann segist þó ekki kannast við svona miklar verðhækkanir. Óvenjuslæmt „Ég get alveg tekið undir það að gæðin séu ekki nægileg og það ger- ir bara tíðarfarið á Spáni t.d. Lok desember, janúar og febrúar er sá tími sem ástandið er verst. Það er svo lítið framboð af grænmeti. Hvað innlenda hvítkálið varðar þá er það að vísu smátt en gott,“ segir Kol- beinn Ágústsson, sölustjóri hjá Sölufélagi garðyrkjumanna. Hann segist ekki kannast við áðurnefndar verðhækkanir, segist hafa verið með óbreytt verð á gulrótum í allan vetur og að verð á kartöflum hafi ekki hækkað. -sv Ragnheiður Björk Guðmundsdótt- ir er forstöðumaður kynningar- deildar Olís. Hún segir að verið sé að tölvuvæða og bæta þjónustu á stöðvum Olís. Ein dæla á stöðvun- um sé vel merkt sem sjálfsagreiðslu- dæla allan sólarhringinn og hún veiti afslátt en ekki hinar. Afsláttur- inn er á bilinu 1,30-2 kr. í Ána- naustum og í Breiðholti er veittur tveggja krónu afsláttur af bensíni þrátt fyrir fulla þjónustu. -sv DV Neytendamál: Fræðsla í skólum Á fundi norrænna ráðherra á sviði neytendamála á Sjálandi 24. janúar síðastliðinn urðu menn sammála um að nauðsynlegt væri að auka kennslu í skólum um málefíii neytenda. Samþykkt var áætlun um neytendafræðslu í skólunum en rannsóknir hafa sýnt að þekking ungs fólks á þessum málum er mjög lítil, þrátt fyrir auknar kröfur til þess um þekkingu að þessu leyti. í því sambandi er bent á notkun greiðslukorta sem verður æ al- gengari og framboð lánsfjár verð- ur stöðugt meira. Jafnframt verð- ur sífellt erfiðara að henda reiður á alls kyns tilboðum á neytenda- markaði. Vonast menn til þess að sameiginleg áætlun megi verða til þess að auka áhuga kennara og almennings á málefninu. Villandi auglýsingar Þorkell Helgason ráðuneytis- stjóri sat fundinn í fjarveru Finns Ingólfssonar. Á ráðherra- fundinum var rætt um ríkjaráð- stefnu þá sem haldin verður á þessu ári um endurmat á sam- starfínu innan Evrópusambands- ins og forgangsröðun málefna af hálfu Ítalíu sem fer með for- mennsku í ESB á fyrri helmingi ársins. Meðal áhersluatriða í neytendamálum í Evrópusamt- arfinu verða dómsleiðir til að greiða úr ágreiningi seljenda og neytenda, auking neytendavernd en einnig verður sérstaklega fjall- að um villandi og varhugaverðar auglýsingar, m.a. með tilliti til velferðar barna. Forysta í neytenda- málum Á títtnefndum fundi var sér- staklega rætt um framtíð nor- rænna umhverfismerkisins á neytendavörum með hliðsjón af hliðstæðri merkingu á Evrópska efnahagssvæðinu. Voru ráðherr- arnir einhuga um að halda þeirri forystu sem Norðurlandaþjóðir hafa í neytendamálum í Evrópu- samstarfinu. Sérstaklega var rætt um stuðning Norðurlanda við þróun neytendamála í grann- löndunum í austri og samþykktir gerðar í því sambandi. Blóm og grænmeti: Hagsmuna- félög framleiðenda 1 dag verður stofnað á Hótel Örk í Hveragerði hagsmunafélag blóma- og grænmetisframleið- enda sem yrði landsfélög með að- ild aö Sambandi garðyrkju- bænda. Eftir því sem segir í fréttatil- kynningu segir að tilgangurinn með stofnun félaganna sé m.a. að stuðla að hvers konar fræðslu- starfsemi, koma á samræmdum flokkunarreglum og gæðamati með hagsmuni framleiðenda og neytenda í huga. Að afla upplýs- inga um innlenda framleiðslu og aðstoða við ræktunarskipulagn- ingu, svo og að gæta hagsmuna félagsmanna varðandi innflutn- ing og samkeppnisstöðu. Allir blóma- og grænmetisframleiðend- ur geta orðið stofnfélagar, hvort sem þeir hafa starfað áður í svæðisbundnum garðyrkju- bændafélögum eða ekki. Stofn- fundur Félags blómaframleið- enda verður kl. 13 en kl. 15 hjá Félagi grænmetisframleiðenda. -sv Frangois Fons, matreiðslumaður í Hveragerði, segir sumt grænmetið á markaðnum vera algert drasl. Honum þykir verðið hátt þótt framleiðendur og innflytjendur vilji ekki kannast við að hækkun hafi átt sér stað. Afsláttur viö sjálfsafgreiðslu á bensínstöðvum: Ekki alveg sama hvenær eða hvar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.