Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1996, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1996, Side 7
FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1996 7 DV Sandkorn Fréttir íslenska kennarafé- lag gefur út Ný mennta- mál, vandað og vel unnið rit. í siðasta hefti eru meðal ann- ars efnis nokkrar skemmtileg- ar sögur úr skólastof- unni, eins og höfundur þeirra, Ei- rikur Hermannsson, skólastjóri i Garðinum, kallar þær. í einni sög- unni segir hann frá því að eitt sinn hafi hann lagt bókmenntapróf úr Hrafnkelssögu Freysgoða fyrir 9. bekk grunnskóla. Ekki liöfðu allir nemendumir mikinn áhuga á forn- bókmenntunum og einn piltur sýnu minnstan. Hann svaraði einungis einni spumingu. Óskað var eftir rit- gerð eða lýsingu á aöalsöguhetjunni eins og hún birtist í upphafsköflum sögunnar. Svarið var í knöppum fomsagnastíl. „Hrafnkell gaf fáum sjens og óvinum sínum engann." ít- arlegar lýsingar sögðu varla meira. Knappur stH Bræðurnir DV hefur skýrt frá í hve erfíðri aðstöðu Jón Baldvin Hannibals- son yrði ef eiginkona hans, Bryn- dís Schram, mágur hans, Ellert Schram, og mágkona, Guðrún Pétursdóttir, byðu sig öll fram í komandi forsetakosningum. í upptalningu blaðsins gleymist að geta um þann valmöguleika sem þjóðin fengi ef þetta fólk færi allt í framboð. Þá gæti hún valið á milli þess hvor þeirra bræðra, Jón Bald- vin eða Ólafur Hannibalssynir, yrðu forsetamakar á Bessastöðum. Með slaufu Össur Skarphéð- insson al- þingismað- ur var fmmmæl- andi á opn- um fundi á Eyrarbakka en þar er sagt vera tryggasta vígi krata í Suðurlands- kjördæmi. Eðlilega voru sjávarútvegsmálin efst á baugi eins og eðlilegt er i sjávarplássi. Smábátasjómönnum var heitt í hamsi eins og oft þegar sjávarútvegsmálin eru til umræðu. Þeir sögðu á fundinum að útsendar- ar Fiskistofu njósnuðu grimmt um sjómenn og löngum stundum væru þeir á bryggjunni i Þorlákshöfn og fylgdust með hvaða afli kæmi á land. „Þeir sitja i Fmum bil á útkikki, jakkafataklæddir með bindi," sagði einn fundarmanna. Þá greip Össur fram í og sagði. „Ég skil að þú sért óánægður með þetta, minn kæri vin, ég hefði sjálfur kunnað betur við að þeir væru með slaufur." Fundurinn leystist upp í hlátur og málið ekki frekar rætt. Kirkja er af (F)flóka full Mikið er ort í landinu um þá merkilegu deilu sem uppier i Langholts- kirkju. Eins og gengur eru visumar æöi misjafn- ar enda vandi að yrkja góöa vísu um deilu á borð við þessa. Flestar vís- umar, sem Sandkorni hafa borist, eru í lakari kantinum en ein og ein snjöll. Meðal þeirra er eftirfarandi vísa sem sögð er vera eftir þann kunna hagyrðing, Sigfús Jónsson, garðyrkjubónda í Skrúð í Reyk- holtsdal. Kirkjan er af (Fjflóka full, friðarhnefinn steyttur. Prestar tala bara bull og biskupinn er þreyttur. Umsjón: Slgurdór Sigurdórsson Hjálmar Árnason alþingismaður um veiðileyfagjald: Það er enn þá aðeins á umræöustigi hjá okkur - en orð eru til alls fyrst í þessu eins og öðru „Við höfum, nokkrir þingmenn Framsóknarflokksins, verið aö ræða um og velta þeirri hugmynd upp hvort taka beri upp veiðileyfa- gjald i sjávarútvegi. Þetta er að vísu aðeins hugmynd enn þá en orð eru til alls fyrst í þessu eins og öðru,“ sagði Hjálmar Ámason alþingism- aður í samtali við DV, aðspurður hvort hann styddi hugmyndina um veiðileyfagjald. Það eru mikil pólitísk tíðindi að þingmenn Framsóknarflokks ljái máls á breytingum á lögum um stjórnun fiskveiða. Þeir hafa talað einum munni í þeim málum til þessa. Hjálmar hefur að vísu skipað sér sérstakan sess í sjávarútvegs- málunum og gerði það strax í kosn- ingabaráttunni í fyrra. „Við skynjum það að í þjóðfélag- inu er ólga og reiði vegna ósann- gimi sem ríkir í kvótamálunum. Heiðarlegir og duglegir sjómenn, sem róa þegar byr gefur, þurfa að setja allt upp í helminginn af afla- verðmætinu til einhverra einstak- linga eða útgerða áður en þeir geta farið að reikna sjálfum sér laun, hvað þá reksturinn af róörinum vegna kvótakaupa. Þetta svíður og skapar reiði og á þessu þarf að taka með einhverjum hætti,“ sagði Hjálmar. Hann sagði að ein þeirra hug- mynda sem nokkrir þingmenn Framsóknarflokksins hefðu verið að velta fyrir sér væri að ríkið færi að leigja kvótann. Þar gæti verið um að ræða leigu til eins árs í senn Húnaflói: Skilyrði frábær og afli eftir því DV, Hólmavík: „Það má segja að bátur hafi ekki hreyfst síðan rækjuveiðamar hófust aftur upp úr áramótum - slík hefur veðurbliðan verið þennan tíma. Mjög góð veiði hefur verið og rækj- an veiðst á stóru svæði. Bátar með ríflegar aflaheimildir hafa fengið yfir 5 tonn að meðaltali í róðri sem er mun meira en verið hefur undan- farin ár,“ segir Benedikt S. Péturs- son, skipstjóri á Ásbjörgu frá Hólmavík. Hann segir skilyrði í hafinu vera betri núna en undanfarna vetur. Sem dæmi nefnir hann að hitastigið á rækjúslóðinni hafi undanfamar vikur verið á bilinu 2-3 gráður við botn. Til samanburðar megi nefiia að undir miðjan júnímánuð í fyrra hafi hann verið um frostmark. -GF Þjónustugjöldin á ellilífeyrisþega. Tekin út úr vistgjaldi vegna mismununar - segir Sighvatur Björgvinsson „Ástæðan fyrir því að ég lét taka þjónustugjöldin út úr vistgjaldi á dvalarheimilunum var mikil mis- munun. Staðreyndin var sú að enda þótt gjaldið væri inni í vistgjaldi til öldmnarstofnananna létu sumar þeirra fólkið samt greiða fyrir þjón- ustuna en önnur ekki,“ sagði Sig- hvatur Björgvinsson, alþingismaður og fyrrverandi heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra, í samtali við DV. Það var 25. nóvember 1992 sem Sig- hvatur gaf út reglugerð um það hvað væri innifalið í vistgjöldum ellilífeyr- isþega og hvað ekki. Þar segir í 4. grein. „Öldrunarstofhunum er ekki skylt að kosta persónulega muni og auka- Skólaskrifstofa og þjónustu, svo sem fatnað, fatahreins- un, snyrtivörur, hársnyrtingu og fót- snyrtingu." Á þeim öldrunarstofnunum sem tekið hafa upp þjónustugjöld, en það hafa þær ekki allar gert, er verð fyr- ir þessa þjónustu við gamla fólkið sem hér segir. Fótsnyrting 1.100 krónur, hárþvott- ur 200 krónur, blástur-hárgreiðsla 750 krónur, djúpnæring 400 krónur, fastaskol 900 krónur, glansskol 750 krónur, hárlagning 800 krónur, hár- litun 1.200 krónur, klipping karla 700 krónur, klipping kvenna 850 krónur, permanent 2.050 krónur, rúllur 350 krónur, strípur 1.250 krónur og sær- ing 550 krónur. -S.dór Fræðsluskrifstofa: Verða Fræöslumiðstöð Borgarráð hefur samþykkt að koma á fót Fræðslumiðstöð Reykja- víkur. Fræðslumiðstöðin á að gegna hlutverki núverandi Skólaskrifstofu og Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur og taka til allrar starfsemi gmnn- skólanna í borginni. í bréfi frá skólamálaráði Reykja- víkur til borgarráðs kemur fram að ráðið telji brýnt að ganga fljótlega frá ráðningu yfirmanns Fræðslumiðstöðvar og er lagt til að starfið verði auglýst nú þegar. -GHS Færri fæðingar á Akranesi DV, Akranesi: Færri börn fæddust á fæðingar- deild Sjúkrahússins á Akranesi 1995 en áriö áöur - fæðingar 10% færri, að sögn Sólveigar Kristins- dóttur, ljósmóður á fæðingardeild- inni. Arið 1995 var 161 fæðing og vora stúlkuböm þá í meirihluta - 83 á móti 78 strákum. Árið 1994 vom fæðingar 177 og þá komu í heiminn 99 strákar í framtíðarlið knattspymubæjarins en stúlkur vom 78 og munurinn því 21. -DÓ eða fimm ára, svo dæmi væm nefnd. „Hugsanlega mætti þar taka hóf- legt veiðileyfa- eða leigugjald. Kost- urinn við það er sá að þar með fengi þjóðin fastar og tryggar tekjur af auðlindinni. Þær tekjur mætti til aö mynda nota til að jafna sveiflur í sjávarútvegi. Þetta væri þó alger- lega háð þvi að framsal, leiga eða sala á kvóta til þriðja aðila yrði bönnuð, nema menn séu innbyrðis að skipta um tegundir. Ég vil líka benda á það að fiskvinnslan er rek- in með tapi í dag. Meginástæðan fyrir því er hátt fiskverð. Ein ástæð- an fyrir háu fiskverði er einmitt kvótabrask, framsal og leiga kvót- ans sem kemur niður á þjóðarhags- munum í taprekstri fiskvinnslunn- ar,“ sagði Hjálmar Ámason. -S.dór Orninn er sestur. Hörkuspennandi njósna- mynd meö Michael Caine, Robert Duvall og Donald Sutherland. í kvöld kl. 23:15 — Grensásvegi 11 Sími: 5 886 886 Fax: 5 886 888 UmJihiAni trfui 1 ■ H 1 _8K- - nroop)onusTa w KtnasDyggmw: Grœnt númer: mmm TIL ALLT AÐ 36 MANAÐA 800 6 886 (Kostar innanbœjarsímtal og vörvmarerusendarsamdœgwsl VISA RADGREIÐSLUR I TIL 2-3 AAÁNAOA j

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.