Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1996, Qupperneq 8
8
FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1996
Stuttar fréttir
Utlönd
Á annaö hundrað fórst þegar 10 tonn af dínamíti sprungu í blokkarkjallara:
Hús gereyðilögðust
metra fjarlægð
Leyniskytta drepin
Yfírmaöur hersveita NATO í
Bosníu lofaði aðgerðum gegn
leyniskyttum og skömmu síðar
drápu Frakkar eina í hverfi
Sera í Sarajevo og handtóku
aðra.
Christopher á ferð
Warren
Christopher,
utanríkis-
ráðherra
Bandaríkj-
anna, held-
ur til fyrr-
um
Júgóslavíu í
dag til að
þrýsta á um
að deiluaðilar standi við gefín
loforð um að fara að skilmálum
friðarsamkomulagsins.
Tígrar fordæmdir
Stjórn Sri Lanka hefur harð-
lega fordæmt tígrana, skæruliða
tamíla, fyrir sprengjutilræðið
sem gi-andaði 80 manns og kom
öllu f jármálalífi úr skorðum.
Samper enn í bobba
Saksóknari í Kólumbíu sagð-
ist geta lagt fram frekari sann-
anir fyrir tengslum Sampers for-
seta við eiturkónga.
Clinton vongóöur
Clinton Bandaríkjaforseti
sagðist vongóður um að Sýrlend-
ingar og ísraelar mundu komast
að
Allt ESB að kenna
Embættismaður ESB viður-
kenndi að vegna mistaka sam-
bandsins hefðu Norðmenn tekið
tvo danska togara að veiðum
undan noregsströridum.
Nýr forsætisráðherra
Antonio
Maccanico
var tilnefnd-
ur forsætis-
ráðherra
Ítalíu í gær
og mun
hann reyna
að mynda
55. stjórn
landsins frá
stríðslokum en 'stjómmálamenn
segja aö það kunni að reynast
erfitt.
í verkfalli
Um hálf milljón rússneskra
námumanna eru á öðrum degi
verkfalls síns til að þrýsta á um
að fá laun sín greidd.
Reuter
í 100
Á annað hundrað manns beið
bana og mörg hundruð særðust þeg-
ar um tíu tonn af dínamíti sprungu í
kjallara fjölbýlishúss í borginni Sha-
oyang i Húnan-héraði í miðhluta
Kína. Sprengingin, sem varð á mið-
vikudag, lagði heilt hverfi gjörsam-
lega í rúst.
„Öll gatan jafnaðist við jörðu,“
sagði starfsmaður sjónvarpsstöðvar í
borginni í samtali við Reuters-
fréttastofuna í morgun.
„Verkamenn eru enn að grafa í
húsarústunum og búast við að finna
fleiri lík,“ sagði embættismaður
borgarinnar í morgun.
íbúðarhús í hundrað metra radíus
frá sprengjustaönum hrundu til
grunna og rúður í húsum í allt að
tveggja kilómetra fjarlægð splundr-
uðust. Sprengingin myndaði þrjátiu
metra breiðan og tíu metra djúpan
gíg i götuna þar sem fimm hæða
íbúðablokk stóð áður. Dínamítið sem
sprakk hafði verið geymt í kjallaran-
um sem trygging fyrir greiðslu
skuldar.
Opinbera dagblaðið í Húnan sagði
í morgun að sprengingin væri ákaf-
lega alvarlegt slys. „Heimili 40 fiöl-
skyldna sem voru í innan við eitt
hundrað metra fiarlægð frá spreng-
justaðnum hrundu og gluggar brotn-
uðu í all að tveggja kílómetra fiar-
lægð,“ sagði í blaðinu.
„Mörg fórnarlambanna var fólk
sem kramdist undir rústunum,"
sagði embættismaður 1 Shaoyang-
borg í morgun og kallaði þetta versta
slys þar í manna minnum. „Fólk um
alla borgina heyrði sprenginguna en
allt var með friöi og spekt.“
Mörg þúsund hermenn, verka-
menn og sjálfboðaliðar eru búnir að
grafa í rústum húsanna og að sögn
lækna er lítil von til að fleiri finnist
álífi.
„Það er ekki líkur á því að fleiri
finnist lifandi en hugsanlega á líkun-
um eftir að fiölga," sagði læknir einn
við alþýðusjúkrahús númer tvö.
Margir hinna slösuðu hlutu bein-
brot þegar múrsteinum, glerbrotum
og málmi úr húsunum rigndi yfir þá.
Miklar vangaveltur voru meðal
ibúanna að sprengingin hefði verið
viljaverk og hún hefði verið í hefnd-
arskyni, að sögn sjónvarpsmannsins.
Mikið er um kolanámur í einka-
eigu í Húnan-héraði. Ekki er óal-
gengt að námueigendur og fiölskyld-
ur þeirra geymi sprengiefni og hvell-
hettur á heimilum sínum en það á
sinn þátt í miklum fiölda slysa um
land allt. Reuter
, Bretland:
Ihaldsmenn
steinlágu í
aukakosningum
Verkamannaflokkurinn fór
með yfirburðasigur í aukakosn-
ingum sem fram fóru í Hems-
worht-kjör-
dæmi á
Englandi í
gær. Kjör-
dæmið er eitt
af sterkustu
vígjum Verka-
mannaflokks-
ins og var
ekki búist við
öðru en að
frambjóðandi hans, John Tickett,
færi með sigur. Fékk hann 72 pró-
sént atkyæðanna meðan fram-
bjóðandi íhaldsflokksins fékk ein-
ungis tæp 9 prósent. Kosið var í
kjördæminu þar sem þingmaður
þess dó í fyrra. Eftir kosningarn-
ar er John Major forsætisráð-
herra einungis með fiögurra þing-
sæta meirihluta I breska þinginu.
Breskir stjómmálaflokkar hafa
þegar hafið undirbúning fyrir
komandi þingkosningar en Major
verður aö boða kosningar í síð-
asta lagi í maí á næsta ári. Sigur
Verkamannaflokksins hefði getað
orðið stærri en nýr flokkur, Sós-
íalíski verkamannaflokkurinn,
fékk 5,4 prósent atkvæðanna í
gær. Stofnandi hans er Arthur
Scargill, formaður námuverka-
manna, sem sagði sig úr Verka-
mannaflokknum fyrir stuttu.
Reuter
Slasað barn fær hér umönnun á sjúkrahúsi í Peking en það særðist í gríðarlegri sprengingu í fbúðarblokk í Mið-Kína.
Óttast er að á annað hundrað manns hafi farist í sprengingunni. Símamynd Reuter
UPPBOÐ
Uppboö munu byrja á skrifstofu
embættisins aö Skógarhlíð 6,
Reykjavík, sem hér segir, á eft-
_______irfarandi eignum:______
Bragagata 22, verslunarpláss á neðri
hæð, 01-01, þingl. eig. Smári Guð-
mundsson, gerðarbeiðendur Bygg-
ingarsjóður ríkisins, Gjaldheimtan í
Reykjavík, Lífeyrissjóður Dags-
br/Framsókn og Póstur og sími, inn-
heimta, þriðjudaginn 6. febrúar 1996
kl. 10.00.____________________
Ferjubakki 6, 2. hæð t.h., þingl. eig.
Magdalena Sigurðardóttir, gerðar-
beiðandi Byggingarsjóður verka-
manna, þriðjudaginn 6. febrúar 1996
kl. 10.00.____________________
Flugskóli og verksmiðjuhús á Reykja-
víkurflugvelli, þingl. eig. Helgi Jóns-
son, gerðarbeiðandi Landsbanki ís-
lands, þriðjudaginn 6. febrúar 1996
kl. 10.00.____________________
Gullteigur 4, 1. hæð s-enda, þingl.
eig. Jón Elíasson, gerðarbeiðandi Líf-
eyrissjóður verslunarmanna, þriðju-
daginn 6. febrúar 1996 kl. 10.00.
Hávallagata 42, hluti, þingl. eig.
Andrés Magnússon, gerðarbeiðandi
íslandsbanki hf., þriðjudaginn 6. fe-
brúar 1996 kl. 10.00.
Hólaberg 72, þingl. eig. Björn Amórs-
son, gerðarbeiðendur Byggingarsjóð-
ur verkamanna, Gjaldheimtan í
Reykjavík og Sameinaði lífeyrissjóð-
urinn, þriðjudaginn 6. febrúar 1996
kl. 10.00.________________________
Hólastekkur 1, þingl. eig. Freyja Har-
aldsdóttir, gerðarbeiðandi Lands-
banki íslands, þriðjudaginn 6. febrúar
1996 kl. 10.00.___________________
Kleifarsel 16, íbúð á 2. hæð, merkt
0202, þingl. eig. Óli Antonsson, gerð-
arbeiðendur húsbréfadeild Húsnæð-
isstofnunar og Lífeyrissjóður verslim-
armanna, þriðjudaginn 6. febrúar
1996 kl. 10.00.___________________
Laugalækur 25, þingl. eig. Ólafur Ein-
ar Jóhannsson, gerðarbeiðendur
Byggingarsjóður ríkisins og Gjald-
heimtan í Reykjavík, þriðjudaginn 6.
febrúar 1996 kl. 10.00.
Laxámes, Kjósarhreppi, 12,5% eign-
arhl., þingl. eig. Kristjana Eggerts-
dóttir, gerðarbeiðandi íslandsbanki
hf., þriðjudaginn 6. febrúar 1996 kl.
10.00.____________________________
Njörvasund 23, hluti, þingl. eig. Sig-
ríður Sveinsdóttir og Guðmundur
Björnsson, gerðarbeiðendur Búnað-
arbanki íslands, Hellu, Byggingarsj.
ríkisins, húsbréfadeild, og Bygging-
arsjóður ríkisins, þriðjudaginn 6. fe-
brúar 1996 kl. 10.00.
Otrateigur 50, þingl. eig. Þorbjörg
Jónsdóttir, gerðarbeiðendur Gjald-
heimtan í Reykjavík og Sparisjóður
Reykjavíkur og nágr., þriðjudaginn 6.
febrúar 1996 kl. 10.00.
Rauðarárstígur 7, íbúð á 1. hæð t.h.,
merkt 0102, þingl. eig. Einar Óskars-
son, gerðarbeiðandi Innheimtustofn-
un sveitarfélaga, þriðjudaginn 6. fe-
brúar 1996 kl. 10.00.
Ránargata 2, íbúð í kjallara, þingl. eig.
Jóhannes Jónsson, gerðarbeiðandi
Lífeyrissjóður verslunarmanna,
þriðjudaginn 6. febrúar 1996 kl. 10.00.
Reyrengi 2, íbúð á 2. hæð t.v. m.m.,
þingl. eig. Katrín Björk Eyjólfsdóttír
og Trausti Antonsson, gerðarbeiðend-
ur Byggingarsjóður verkamanna og
tollstjórinn í Reykjavík, þriðjudaginn
6. febrúar 1996 kl. 10.00.
Sigtún 7, 030101, skrifst.- og þjón-
ustuhúsn. 1. hæð aust., þingl. eig.
Pallar hf., gerðarbeiðandi Gjald-
heimtan í Reykjavík, þriðjudaginn 6.
febrúar 1996 kl. 10.00.
Stangarhylur 6, þingl. eig. Ártak hf.,
b.t. Jón Á. Guðjónsson hdl, gerð-
arbeiðandi Landsbanki íslands,
þriðjudaginn 6. febrúar 1996 kl. 10.00.
Stóragerði 28, íbúð á 4. hæð t.v., þingl.
eig. Bjarni Sigtryggsson, gerðarbeið-
endur Byggingarsjóður ríkisins og
Landsbanki fslands, þriðjudaginn 6.
febrúar 1996 kl. 10.00.
Vegghamrar 41, íbúð á 2. hæð, merkt
0303, þingl. eig. Bryndís Jarþrúður
Gunnarsdóttir og Þorfinnur Guðna-
son, gerðarbeiðendur Byggingarsjóð-
ur verkamanna, Gjaldheimtan í
Reykjavík, íslandsbanki hf. 526 og
Tollstjóraskrifstofa, þriðjudaginn 6.
febrúar 1996 kl. 10.00.
Þúfusel 2,1. hæð + bílskúr, þingl. eig.
Guðrún Guðmundsdóttír, gerð-
arbeiðendur Húsasmiðjan hf. og
Kaupþing hf., þriðjudaginn 6. febrúar
1996 kl. 10.00.___________
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
UPPBOÐ
Framhald uppboös á eftirfarandi
eignum veröur háö á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Nmegin:Einarsnes 42, 40% hlutí,
þingl. eig. Sigurður Öm Sigurðsson,
gerðarbeiðendur Gjaldheimtan í
Reykjavík og húsbréfadeild Húsnæð-
isstofnunar, þriðjudaginn 6. febrúar
1996 kl. 13.30.
Fífusel 27 og stæði nr. 4 í bílskýli,
þingl. eig. Aðalsteinn Þórðarson,
gerðarbeiðandi Byggingarsjóður rík-
isins, þriðjudaginn 6. febrúar 1996 kl.
14.30.
Fljótasel 18, íbúð í kjallara, þingl. eig.
Valdís Hansdóttír, gerðarbeiðendur
Búnaðarbanki íslands, Garðabæ,
Gjaldheimtan í Reykjavík, Lands-
banki íslands, lögfrdeild, og Toll-
stjóraskrifstofa, þriðjudaginn 6. febr-
úar 1996 kl. 15.00.
Grettisgata 40b, íbúð í kjallara og 1/2
útígeymsla 0001, þingl. eig. Magnús
Skarphéðinsson, gerðarbeiðandi
Gjaldheimtan í Reykjavík, þriðjudag-
inn 6. febrúar 1996 kl. 14.30.
Hraunbær 62, jarðhæð í vestur, þingl.
eig. Atli Hauksson, gerðarbeiðendur
Gjaldheimtan í Reykjavík, Hraunbær
62, húsfélag, og íslandsbanki hf.,
þriðjudaginn 6. febrúar 1996 kl. 16.00.
Viðarás 35, hluti, þingl. eig. Suðurás
hf., gerðarbeiðandi Gjaldheimtan í
Reykjavík, þriðjudaginn 6. febrúar
1996 kl. 15.30.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK