Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1996, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1996
7
DV Sandkorn
í Fjarðar-
póstinum er
bráð-
skemmtilegt
viðtal sem
hefst á þessa
leið:
Vilt þú,
Halla,
lífsins lalla,
langan flalla
- með mér
veg.
Mína galla,
elska alla,
eins þótt skalla
- fái ég.
Þeir eru ekki á hverju strái í dag
sem biðja sér konu með dýrt kveðn-
um hringhendum en fmnast þó.
Einn þeirra er Símon Jón Jóhanns-
son, fiamhaldsskólakennari í Flens-
borg að starfi, en fjölskrúðugur að
mennt og upplagi. Ættaður að norð-
an af heilsteyptri Sambands- og
framsóknarfamiliu, en nú allaballi,
menningarfrömuður og formaður
Sálarrannsóknarfélags Hafnarfjarð-
ar tO skamms tíma. Kennari kaþ-
ólskra nunna, draumaráðningar-
maður, þjóðfræðingur og spesialisti
í þjóðtrú....
Karlmennsku-
táknið
Og áfram í
sama viðtal.
Símon er að
tala um
drauma og
draumaráðn-
ingar og seg-
ir þar að i
draumaráðn-
ingabókinni
komi til
dæmis fram
hvemig þjóð-
trú breytist
því nú fara
að koma inn hlutir á borð við bíla,
jeppa, farsíma og annað. Símon seg-
ir að dreymi konu jeppa, sé það fyr-
ir sambandi við karlmann og það
hversu jeppinn er stór eða vígaleg-
ur sé einhvers konar ábending um
myndarleik mannsins.
Viö sögðum
frá því í
Sandkomi í
síðustu viku
að fjórir
þeirra sem
nefndir eru
sem hugsan-
legir for-
setafambjóð-
endur séu
komnir af
hinum stóru
og miklu
valdaættum
landsins, Briemum, Stephensenum,
Thórsurum og Hafsteinum. Ágætur
kunningi sandkornsritara benti
honum á að þetta hefðu ekki verið
tæmandi ættartengsl. Hann sagði að
Davíð Oddsson forsætisráðherra
væri sá fimmti þvf hann væri af
ætt Briemara. Og svo væri það Pét-
ur Hafstein. Hann er ekki bara af
ætt Hafsteina, heldur líka Stephen-
sen, Briem og Thors og því skyldur
öllum hinum fjómm frambjóðend-
unum. Síðan sagði hann að ekki
mætti gleyma því að Guðrún Pét-
ursdóttir væri ekki bara Thors
heldur væri hún af Engeyjarættinni
líka.
í síðustu
viku birtust
þrjár visur
hér í Sand-
komi þar
sem skotið
var á séra
Hjálmar
Jónsson al-
þingismann
fyrir hug-
mynd hans
um að auka
þorskkvótann um 20 þúsund lestir.
Það voru þeir Jón Kristjánsson al-
þingsmaður, Páll Pétursson félags-
málaráðherra og einn blaðamaður
sem ortu visumar. Nú hefur Hjálm-
ar svarað vísunum.
Lítt af þekking lýsti þar
lokaðir viskubrunnar.
Vita þeir fátt um fiskveiðar
og fræði Biblíunnar.
„Lúkas 5 til 11“
Skipið fyllt af fiski var
fagnað kvótum stærri.
Þá voru fiskifræðingar
og Framsókn hvergi nærri.
Umsjón: Sigurdór Sigurdórsson
Nægur afli
Frændi
Bónorðið
____________________________________________________________Fréttir
íbúi í Laugardalnum hefur verið kærður til lögreglu fyrir hundahald:
Talinn halda 30-40 hunda
án þess að hafa leyfi
-minni spámenn teknir en þetta mál velkist í kerfinu árum saman
Jón Guðmundsson, íbúi við Suðurlandsbraut, ræktar hunda af springer spaniel-kyni í óleyfi í húsi sínu í Laugardaln-
um og hefur ekki staðið skil á öilum gjöldum vegna hundahaldsins til borgarinnar. Málefni Jóns hafa verið til um-
fjöllunar í borgarkerfinu og hjá lögreglunni í nokkur ár án þess að nokkur niðurstaða hafi fengist. DV-mynd GS
„Það er búið að kæra hann til
rannsóknardeildar Lögreglunnar í
Reykjavík fyrir nokkrum mánuðum
síðan fyrir óleyfilegt hundahald og
eða hrot á hundasamþykktinni. Það
er búið að vinna lengi í þessu máli
en ég man ekki hvenær það byrjaði.
Það er búið að gera fullt í þessu
máli en ég get ekki svarað því af
hverju þetta hefur dregist svona,“
segir Oddur Rúnar Hjartarson, for-
stöðumaður Heilbrigðiseftirlits
Reykjavíkur.
Jón Guðmundsson, íbúi að Álfa-
brekku við Suðurlandsbraut, hefur
haldið hunda í húsi sínu í nokkur
ár. Áriö 1993 haföi Jón undanþágu
frá hundabanni fyrir sex fullorðna
hunda en var sviptur undanþágu
fyrir þrjá þeirra. Þrátt fyrir þetta er
talið að hann haldi 30-40 fullorðna
hundar í húsi sínu auk fiðrilda-
hunda og hvolpa. Aldrei hefur þó
sannast að Jón eigi hundana og
sjálfur segist hann gjarnan vera
með þá í gæslu fyrir ættingja og
vini.
Skuldar gjöld vegna hund-
anna
„Ef ég man rétt þá borgaði hann
einhver gjöld af hundunum á tíma-
bili. Hann skuldar núna. Ég veit
ekki hvað það er mikið, það fer eft-
ir því hvað hann er með marga
hunda. Ég hef ekki hugmynd um
það. Það er mjög óljóst. Það er sjálf-
sagt hægt að telja hundana en það
kostar fógetaúrskurð að fara inn í
húsið. Hann hefur ekki hleypt okk-
ur inn nema einstaka sinnum og þá
hafa ekki verið neinir hundar þar
eða mjög fáir,“ segir Oddur Rúnar.
DV hefur áreiðanlegar heimildir
fyrir því að Jón hafi fyrir nokkrum
árum verið kærður fyrir brot á
dýravemdarlögum og líkamsmeið-
ingar en aldrei neitt verið sannað.
Hundahald hans hefur þráfaldlega
verið inni á borði borgarlögmanns
og lögreglu. Samkvæmt heimildum
DV era mál hans enn að velkjast í
kerfinu. Gerð hefur verið samantekt
um málið hjá Heilbrigðiseftirlitinu
en ekki tókst að fá hana í gær.
Ekkert er gert
Samkvæmt heimildum DV hafa
hundaeftirlitsmenn borgarinnar
haft reglulegt eftirlit með hunda-
haldi Jóns og reynt að kasta tölu á
hundana þegar Jón hleypir þeim
lausum við húsið. Fyrir nokkra
kom til ryskinga milli Jóns og
hundaeftirlitsmanns og þá var þess
krafist að eitthvað yrði gert í mál-
inu. DV hefur heimildir fyrir því að
í borgarkerfinu þyki skrýtið að
ganga þurfi harkalega að „minni
spámönnum," eins og það er orðað,
en ekkert sé gert í þessu máli.
-GHS
Jón Guðmundsson:
Verið að skoða málið hjá
„Girðingar eru mesta kúgun sem
þú getur sett á eina skepnu eins og
íslenskan hund sem þarf hreyfingu,
umhverfi og vinnu og loka hann
inni. Hjá mér sérðu engar girðingar.
Þeir hundar sem vilja fara fara.
Mikið af þessum hundum sem ég er
með hérna eru hundar sem era ætt-
aðir frá mér. Af einhverjum ástæð-
um þurfa þeir ný heimili. Þeir eru
alltaf velkomnir hingað og ég finn
ný heimili fyrir þá endurgjalds-
laust,“ segir Jón Guðmundsson,
hundaræktandi við Suðurlands-
braut.
Jón bendir á að hann sé fimmti
ættliðurinn sem búi i Laugardaln-
um. Hann segir þar hafa verið bú-
skap frá upphafi og hundahald hafa
tíðkast. Hann sé nú eini aðilinn sem
nýti landið. Honum finnst ósann-
gjarnt að hann sé krafður um gjöld
upp á hundruð þúsunda vegna
hundaræktarinnar meðan maður í
sams konar rekstri rétt fyrir utan
borgarmörkin borgi ekki krónu. Það
sé ekki eðlileg samkeppnisstaða.
„Það er verið að skoða þessi mál
hjá borginni. Nágranni minn fékk
leyfi fyrir sínu dýrahaldi þó að íjár-
búskapur væri bannaður í Reykja-
vik. Hann lifði af landinu og haíði
alltaf gert. Ég er búinn að vitna í
borginni
samninginn við hann og það er ekki
tekið neitt óeðlilega í það. Það er
bara ekki búið að koma þeim málum
á hreint og bara heðið eftir því
hvernig reglurnar verða," segir
hann.
Jón vill ekki segja nákvæmlega
hversu margir hundar eru hjá hon-
um en segir að 30-40 séu alltof há
tala. Hann segir að þeir séu af kyn-
inu springer spaniel.-GHS
í glæsilegri '96 árgerðinni frá ARCTIC CAT er að finna fjölda athyglisverðra
nýjunga sem allir áhugamenn um vélsleða kunna að meta.
Ef þú ert áð leita að vönduðum og nýtískulegum vélsleðafatnaðí, W
fínnur þú hann örugglega í '96 línunni frá Arctic cat.
Dæmi um verð
Teg.: Stgr.verð
Phanther Liquid ............. 758.000
Bearcat 550 Widetrack ....... 849.000
EXT 580 EFI ................. 839.000
Pantera ..................... 897.000
ZRT 600 ..........-........ 929.000
Wildcat EFI Touring ......... 997.000
Thundercat ................ 1.098.000
ÁRMÚLA 13 SlMI: 568 1200
BEINN SÍMI: 553 1236
*
Umboðsaðílar: Ólafsfjöröur: Múlatindur • Akureyri: Straumrás, Furuvöllum 3 * Egilsstaöir: Bílasalan Ásinn